Morgunblaðið - 05.09.1998, Side 14
14 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
DAÐUR VESTRA EN
UMDEILDUR HÉR
Það hillir undir að
einn frægasti háhyrn-
ingur heims komi í ný
heimkynni í Klettsvík
í Vestmannaeyjnm.
Guðjón Guðmundsson
stiklar hér á stóru í
sögu Keiko og rifjar
upp undirbúning að
komu hans hingað.
Hahyrningurinn
Keiko er líklega umtal-
aðasti einstaklingurinn
af sjávarspendýrakyni.
Umræður á Islandi hafa verið
miklar og skiptar skoðanir eru um
flutning dýrsins frá Oregon í
Bandaríkjunum til íslands. Dýra-
verndunarfélög hafa látið málið til
sín taka, stjórnmálamenn, emb-
ættismenn innan stjórnsýslunnar,
hæstaréttarlögmenn, höfundar
lesendabréfa í dagblöðum, menn í
almennum viðskiptum, hagsmuna-
aðilar innan sjávarútvegs og ferða-
þjónustu og ekki síst þjóðin sjálf,
sem í Gallup könnun lét í ljós skoð-
un sína á málinu í marsmánuði sl.
54% vildu Keiko til landsins en um
24% voru því andvíg.
Koma Keiko til íslands á sér
langan aðdraganda. í október 1993
var greint frá því á erlendri frétta-
síðu Morgunblaðsins að háhyrn-
ingurinn væri mikið veikur og til
að bjarga honum hygðust velunn-
arar hans ílytja hann til heimahag-
anna við Island. Kostnaður við
fiutninginn var áætlaður um 350
milljónir kr. I fréttinni var þess
getið að ólíklegt væri að leyfi feng-
ist fyrir flutningnum af ótta við
sýkingarhættu og yfirdýralæknir
hefði lagst gegn sambærilegri um-
sókn ári fyrr. Þar var um að ræða
háhyrninginn Tilikum. Sjávarút-
vegsráðuneytið hafnaði þá inn-
flutningnum vegna sjúkdóma-
hættu.
Fangaður1979
Keiko var fangaður úti fyrir
Eskifirði haustið 1979 og var hafð-
ur í sædýrasafninu í Hafnarfirði
allt til ársins 1982. Þá var hann
seldur til sædýrasafns í Ontario í
Kanada þar sem hann var þjálfað-
ur og hélt sína fyrstu sýningu
sama ár. Um þetta leyti fór fyrst
að bera á sárum á skráp hans.
1985 var hann seldur til skemmti-
garðsins Reino ---------
Aventura í Mexíkóborg
íyrir 25 milljónir ÍSK.
1992 lék hann aðalhlut-
verkið í Free Willy
sem Warner Bros.
framleiddi og Keiko varð heimilis-
vinur margra milljóna skólabarna
víða um heim.
Bandaríska tímaritið Life sagði
frá því í nóvember 1993 að Keiko
liði illa í prísundinni þar sem sjór-
inn væri um 26 gráðu heitur. Hann
horaðist og léttist um tvö tonn og
fékk slæma sýkingu í húð. í kjölfar
þess fékk Warner Bros. yfir sig
skriðu af hringingum og bréfum
þar sem kvikmyndafyrirtækið var
hvatt til að taka mál Keikos í sínar
hendur. Ári síðar voru Free Willy
Keiko samtökin stofnuð með fjög-
urra milljóna dollara stofnframlagi
frá Warner Bros. og ónafngreind-
um aðila.
Morgunblaðið/Karl Blöndal
MATMALSTIMI hjá háhyrningnum Keikó á sædýrasafninu í Newport í Oregon.
Sumir vilja nýta
heimsfrægð
Keikós
Gömlu heimkynnin
Ken Balcomb sjávarlíffræðingur
lét sig velferð Keiko miklu varða
en hann fullyrðir að háhyrningar
sem eyða ævinni í búmm lifi að
jafnaði í tíu ár en við eðlilegar að-
stæður séu lífslíkur frá 30 og upp í
50 ár. Balcomb kom til Islands
1993 og ræddi við íslensk yfirvöld
um hugsanlegan flutning á Keiko
og keypti jafnframt íslenska síld
handa honum.
Keiko var fluttur til nýrra heim-
kynna sinna frá Mexíkó til
Newport í Oregon 7. janúar 1996.1
byrjun desember á síðasta ári kom
hingað til lands David Phillips,
einn af stofnendum Frelsum Willy
Keiko-stofnunarinnar, og átti hann
fundi með Davíð Oddssyni forsæt-
isráðherra og forsvarsmönnum í
viðskiptalífinu um flutning á Keiko
til Islands. Talsmenn íslensks ráð-
--------- gjafafyrirtækis stofn-
unarinnar bentu um
þetta leyti á að alþjóð-
leg fréttaumfjöllun um
flutninginn yrði stærri
í sniðum en umfjöllun
um leiðtogafund Ronalds Reagans
og Mikhaels Gorbatsjovs hér á
landi. Viðbúið væri að tugmilljónir
manna fylgdust með málinu og
umfjöllunin gæti eflt ímynd ís-
lands sem náttúruparadísar og
haft margvísleg hliðaráhrif á
ferðamennsku til landsins.
Keiko er nú talinn vera 20 ára
gamall og hefur hann verið inni-
lokaður mest allt sitt líf í búrum.
Margir telja því að lífslíkur há-
hyrningsins, við allt aðrar aðstæð-
ur, í stórri sjókví og allt öðru liita-
stigi en hann hefur vanist, geti rið-
ið honum að fullu, lifi hann sjálfan
flutninginn af. Þjálfarar og um-
sjónarmenn hvalsins eni hins veg-
ar sannfærðir um að unnt verði að
kenna Keiko að aðlagast nýju um-
hverfi og undirbúa hann fyrir
frelsi sem er lokatakmark Frels-
um Willy Keiko stofnunarinnar.
Jákvæðar undirtektir
Áformum um flutning Keikos til
Islands var strax tekið með opnum
hug af stjórnvöldum. Forsætisráð-
herra sagði í febrúar að málið yrði
skoðað með jákvæðu hugarfari og
skömmu síðar hvöttu Austfirðing-
ar stjórnvöld til að veita því braut-
argengi að Keiko yrði fluttur til
Eskifjarðar, „í sitt upprunalega
umhverfí". Miklar vonir voru
bundnar við að Keiko kæmi þang-
að og höfðu Eskfirðingar unnið í
málinu allt frá árinu 1993. Fleiri
hugðu þó gott til glóðarinnar, ekki
síst Vestmannaeyingar sem töldu
sig geta boðið upp á bestu aðstæð-
urnar fyrir hvalinn.
Seinnipart síðasta vetrar hófst
síðan nokkurt karp og lagatækni-
leg umræða um málið. Jón Steinar
Gunnlaugsson hæstaréttarlögmað-
ur sendi landbúnaðarráðheiTa sér-
stakt álit í umboði Frelsið Willy
stofnunarinnar um að hann teldi
ekki þörf á sérstöku leyfi til að
flytja Keiko til íslands. Vitnaði
hann tO laga nr. 54/1990 um inn-
flutning dýra þar sem segir að
bannað sé að flytja til landsins „öll
lifandi landdýr, bæði hryggdýr,
hryggleysingja og lagardýr sem
lifa að hluta eða öllu leyti í fersku
vatni“. Af þessu leiddi í niðurstöðu
hæstaréttarlögmannsins að lagar-
dýr sem að öllu leyti lifa í sjó telj-
ist undanþegin reglum laganna um
innflutning dýra. Þessu svaraði
Sigríður Ásgeirsdóttir lögfræðing-
ur og formaður Dýraverndarsam-
bands Islands á þann hátt að ekki
bæri að telja upptalningu þessa í
lögunum tæmandi. Orðskýinng
geti gengið á skjön við lagabók-
stafinn og fráleitt sé að túlka hana
þvert á tilgang laganna, sem er að
vernda íslensk dýr vegna þess að
þau séu sérstaklega viðkvæm fyrir
hvers konar smiti sakir einangrun-
ar landsins. Engu að síður var
stuðningur við það innan Dýra-
verndarsambandsins að Keiko yi’ði
fluttur til landsins. Sagði Sigríður
að líta mætti á stuðning íslenskra
yfirvalda við heimkomu Keikos
sem yfirbót af þeirra hálfu fyrir að
hafa á sínum tíma leyft veiðar á
háhyrningum til að halda þeim
föngnum í dýrasöfnum.
Yfírdýralæknir hafði ýmislegt
við heimkomu Keiko að athuga um
miðjan febrúar sl. Sagði hann
meðal annars að reglan væri sú að
dýr sem færa héðan fengju ekki
innflutningsleyfi aj'tur á grundvelli
sjúkdómareglu. Ái-ni Mathiesen,
þingmaður og formað-
ur Dýraverndarráðs,
benti á að Keiko hafi
verið á vesturströnd
Bandaríkjanna þar
sem sjúkdómar eru
þekktir í fiskum sem ganga jafnt í
ferskt vatn og salt en það þekktist
ekki hérlendis.
Skiptar skoðanir
á Alþingi
Rætt var um málið á Alþingi um
svipað leyti. ísólfur Gylfi Pálma-
son, þingmaður Framsóknar-
flokks, sagði að ef tekið yrði á móti
Keiko gætu Islendingar gleymt
þvi að hefja hvalveiðar að nýju.
Samflokksmaður hans, Jón Krist-
jánsson, hvatti hins vegar stjórn-
völd til að líta jákvætt á óskir um
heimkomu Keikos. Einar K. Guð-
finnsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, fullyrti að öfgasinnuð sam-
Meiri umfjöllun
en um leíðtoga-
fundinn?
tök um hvalavernd væru að setja á
svið leikrit í kringum háhyrning-
inn vegna þess að þau sæju sér
fjárhagslegan hag af því. Fráleitt
væri að tengja málefni hans þeii’ri
spurningu hvort hér væru veiddir
hvalir eða ekki.
Yfirdýralæknir hélt til Newport
til að skoða Keiko í apríl. 8. júní
skýrði hann ft’á því að hann sæi
ekki ástæðu til að mæla gegn
flutningi hans til Islands og skilaði
áliti þar um til landbúnaðarráð-
heraa. Niðurstaða embættisins var
byggð á rannsóknum sem fram
fóra á vegum Frelsum Willy Keiko
stofnunarinnar og viðbótarrann-
sóknum sem yfirdýralæknisemb-
ættið fór fram á.
Daginn eftir, 9. júní, heimiluðu
stjórnvöld flutning á Keiko til
landsins með þeim skilmálum að
Frelsið Willy Keiko-stofnunin tæki
fulla ábyrgð á velferð dýrsins við
flutning og eftir að hann væri
kominn á sinn stað, bæri allan
kostnað af því að koma honum fyr-
ir og venja hann við og af lausn
hans í íslenskt hafsvæði ef af því
yrði. Þá stóð valið enn á milli Eski-
fjarðar og Vestmannaeyja. I lok
aprfl barst reyndar óvænt boð frá
Reykjavíkurborg um að fóstra
hvalinn í Hvammsvík í Hvalfirði,
þar sem borgin var að taka í notk-
un nýtt útvistar- og skógræktar-
svæði.
Keppni bæjarfélaga
Meðan á þessu stóð kepptust
Eskfirðingar og Eyjamenn um að
fá Keiko til sín. Fulltrúar Frelsið
Willy Keiko-stofnunarinnar
kynntu sér aðstæður á stöðunum
en gáfu lítið uppi. Bæjarstjóri
Vestmannaeyja sagði 11. júní að
ákveðið hefði verið að Vestmanna-
eyjabær sæi um nauðsynlega
dýpkun í Klettsvíkinni ef þörf væri
talin á. Ráðist var í nákvæmar
dýptarmælingar í víkinni í þessu
skyni. Fráfarandi bæjarstjóri á
Eskifirði sagði að nægilegt dýpi
væri í kyrrlátri Mjóeyrai'vík í firð-
inum þar sem ölduhæð væri óveru-
leg og skipaumferð aldrei nær en í
nokkur hundruð metra fjarlægð.
Þjóðhátíðardaginn 17. júní kom
frétt í Morgunblaðinu um að
ákveðið hefði verið að Keiko verði
fluttur til Eyja. Það sem mestu réð
um staðarvalið var mikil og góð
rannsóknaraðstaða sem fyrir
hendi er í Eyjum.
Öllu herskárri aðilar létu málið
einnig til sín taka því í þrígang
hefur borist nafnlaus hótun til um-
boðsmanns Frelsum Willy Keiko
stofnunarinnar á Islandi og ýmissa
fjölmiðla um að eitrað verði fyrir
háhyi-ningnum þegar hann komi til
íslands. Lögreglan í Vestmanna-
eyjum hefur málið til rannsóknar.
Sumir hugðu hins vegar gott til
glóðarinnar og vildu nýta sér
heimsfrægð Keikos í viðskiptaleg-
um tilgangi. Vestmanneyskt hand-
verksfólk hóf framleiðslu minja-
gripa með minni Keikos. Fyrir-
tækið Grindvíkingur keypti einka-
rétt á skipsnöfnunum Keiko og
Keikó vegna fyrirhugaðra hval-
skoðunarferða. Nöfnin lágu á
lausu og kostuðu fyrir-
tækið 60 þúsund kr.
Öllu hærra verð var
sett upp fyrir netfang-
_________ ið Keiko. Keik ehf.,
sem Þróunarfélagið í
Eyjum og Vestmannaeyjabær
stofnuðu vegna komu Keikos, var
boðið svæðisnetfangið Keiko.is til
sölu fyrir 10 milljónir kr. Ekki
náðust samningar um kaupin.
10. ágúst sl. sendi síðan Frelsum
Willy Keiko stofnunin frá sér
fréttatilkynningu þar sem staðfest
er að háhymingurinn komi til
Vestmannaeyja að morgni fimmtu-
dagsins 10. september nk. Daginn
áður verður Keiko settur um borð
í C-17 flutningaflugvél bandaríska
hersins. Á leiðinni til Islands tekur
hún eldsneyti úr sérstakri elds-
neytisvél sem fylgir henni. Áætluð
lending er kl. 9 að morgni í Vest-
mannaeyjum.
1
I
|
I