Morgunblaðið - 05.09.1998, Side 26
26 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Félagi,
ekki herra
Pcking;. Reuters.
STJORNVÖLD í Kína hafa
brýnt fyrir félögum í Kommún-
istaflokknum að ávarpa hver
annan með orðinu „félagi“ en
taka sér ekki orðin „herra“ eða
„yfirmaður“ í munn. Léttúðug
ávörp félaganna eru yfirvöldum
mikið áhyggjuefni. I Dagblaði al-
þýðutmar, málgagni Kommún-
istaflokksins, segir að svo rammt
kveði að rangri orðanotkun sem
þessari að ekki sé annað fært en
að grípa í taumana. Blaðið kenn-
ir slæmum áhrifum mark-
aðsvæðingar um fráhvarf frá
tungutaki byltingarinnar.
Reuters.
Lítið jarðnæði
til greftrana
SKORTUR ájarðnæði til
greftrunar líka hijáir íbúa
Bangladesh en þrír fjórðu
hlutar landsins eru undir vatni
eftir langvinnustu flóð í sögu
þess. Um 600 manns hafa týnt
lífi í flóðunum. „Nógu slæmt er
að þurfa að búa við flóðin en
það bætir gráu ofan á svart að
geta ekki grafið hina látnu,“
sagði Sohail Ahmed, sem býr á
flóðasvæði í úthverfi
höfuðborgarinnar Dhaka.
Helmingur höfuðborgarinnar
er undir vatni og ættingjar
látinna verða að fara langa
vegu í Ieit að greftrunarstað.
Mikil smithætta er af rotnandi
Iíkum og heilbrigðisyfirvöld
segja að tæplega 150 þúsund
manns þjást af niðurgangi eftir
að hafa lagt sér skemmdan mat
og mengað drykkjarvatn til
munns. Á myndinni sést hvar
fjölskylda í leit að
greftrunarstað rær með
líkkistu ástvinar á bát á
flóðasvæði í Dhaka.
í I L E S
LEIKUR
Leiddu sannleikann í
Nú eru Ráðgátur (X-files) komnar á hvíta tjaldið. Myndin er í anda
sjónvarpsþáttanna vinsælu, spennandi og dularfull.
Af þessu tilefni standa Morgunblaðið á Netinu og Skífan fyrir leik á mbl.is þar sem heppnir
þátttakendur, sem leiða sannleikann í leiknum í Ijós, geta unnið miða á myndina, X-files-
bol, X-files-húfu og geisladisk með tónlistinni úr myndinni frá Spori, Músík og myndum.
Taktu þátt í skemmtilegum leik og leiddu sannleikann í Ijós!
Lewinsky-mál Bills Clmtons
Biðst afsökunar
í skugga vax-
andi gagnrýni
Dublin, Washington. Reuters, The Daily Telegraph.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, baðst í gær í fyrsta skipti af-
sökunar vegna sambands síns og
Monicu Lewinsky, fyrrverandi
starfsstúlku í Hvíta húsinu. Kom af-
sökun Clintons er hann var spurður
um viðbrögð sín við ummælum Jos-
ephs Liebermans, öldungadeildai’-
þingmanns fyrir Demókrataflokkinn
bandaríska, sem í fyiTakvöld sagði
framferði Clintons hafa verið „sið-
laust“ og „til skammar" og að forset-
inn ætti enn eftir að gangast við
ábyrgð á hneykslinu.
„Eg get ekki verið ósammála
nokkrum manni sem gagnrýnir
framferði sem ég hef þegar viður-
kennt að er óverjanlegt," sagði
Clinton við blaðamenn í Dublin. „Eg
hef þegar sagt að ég gerði slæm mis-
tök, þau eru óverjanleg og ég biðst
afsökunar." Clinton hefur hingað til
aðeins sagst „sjá eftir“ sambandi
sínu við Lewinsky og verið gagn-
rýndur í Bandaríkjunum fyrir að
biðjast ekki afsökunar.
Lieberman, sem til langs tíma hef-
ur verið bandamaður Clintons og
þykir afar virtur stjórnmálamaður,
gagnrýndi Clinton á fundi öldunga-
deildarinnar á fimmtudag fyrir að
halda því fram að samband sitt við
Lewinsky væri þrátt fyrir allt einka-
mál. Sagði Lieberman að staða
Clintons gerði hann að fyrirmynd,
átrúnaðargoði og valdamesta manni í
heiminum. Kvaðst hann því telja að
framhjáhald forsetans, sem meira að
segja átti sér stað í Hvíta húsinu
sjálfu, væri ekki aðeins „óviðeig-
andi“, eins og Clinton sagði í sjón-
varpsávarpi sínu 17. ágúst, heldur
„siðlaust".
Clinton sagði það ekki sitt hlut-
verk að dæma hvort ummæli
Liebermans væru óviðeigandi en
augljóst var að hann var áfram um
að svara fullyrðingum öldungadeild-
arþingmannsins.
Alvarlegt áfall
fyrir Clinton
Margir fréttaskýrendur telja um-
mæli Liebermans alvarlegt áfall fyr-
ir forsetann en Lieberman sagði
einnig að Ciinton hefði beitt blekk-
ingum í málum sínum sem skaðað
hefðu forsetaembættið, trúverðug-
leika Clintons og Bandaríkin sjálf.
Gekk Lieberman svo langt að segja
að ef skýrsla Kenneths Starrs, sér-
legs saksóknara, sem væntanleg er
innan tíðai' leiddi í ljós að forsetinn
hefði misbeitt valdi sínu til að hylma
yfii' Lewinsky-málið þá væri afsögn
forsetans eða málshöfðun til starfs-
missis einu kostirnir í stöðunni. Tók
hann þó fram að þangað til skýi-sla
Starrs lægi fyrir væri ótímabært að
ræða hvort þingið ætti að ræða máls-
höfðun á hendur Clinton. Orðrómur
er þó á kreiki i Washington um að
skýrslan verði Clinton alls ekki hag-
stæð og að í henni verði hægt að lesa
nákvæmar lýsingar á samskiptum
hans og Lewinsky.
Einn ónefndra heimildarmanna
Reuters-fréttastofunnar úr röðum
Demókrata sagðist telja gagm-ýni
Liebermans marka upphaf enda-
lokwanna fyrii' Clinton. Lieberman
er meðal valdameiri þingmanna í
Demókrataflokknum og er líklegt að
fleiri þingmenn fylgi í kjölfarið og
gagnrýni Clinton harkalega. Tóku
öldungadeildarþingmennimir Bob
Kerrey ft'á Nebraska og Daniel Pat-
rick Moynihan frá New York undir
gagnrýni Liebermans í fyrrakvöld.
Fjáröflun rannsökuð
Clinton varð fyrir enn einu áfall-
inu í fyrrakvöld þegar Janet Reno,
dómsmálai'áðhen'a Bandai'íkjanna,
samþykkti loks að hefja rannsókn á
því hvort Clinton hefði gerst brotleg-
ur við lög i tengslum við fjársöfnun
við síðustu forsetakosningar.
Vel heppnuð ferð Clintons til Irlands
Ahern segir frið
innan seilingar
Dublin. Reuters.
BERTIE Ahem, forsætisráðhema
Irlands, sagði í gær að Irland hefði
brennt allar brýr að baki sér á leið-
inni til varanlegs friðar og að ekki
yrði aftur snúið, friður væri innan
seilingar. Lét hann þessi orð falla í
höfuðstöðvum Gateway-tölvufyrir-
tækisins bandaríska í Dublin þar
sem hann og Bill Clinton, Banda-
ríkjaforseti, undhrituðu viðskipta-
samning landanna tveggja.
Ahern þakkaði Clinton ómetanleg-
an stuðning á síðustu árum og sagði
hann hafa reynst vinur í raun. Hann
hélt því einnig fram að heimsókn for-
setans nú hefði haft góð áhrif.
„Heimsókn þín hefur þiýst á flokk-
ana á N-írlandi að taka skref fram á
við í málefnum sem ella hefði dregist
á langinn að leysa.“
Forsetinn hrærður
vegna móttökunnar
Clinton fór í mikla frægðarfór til
írlands í desember 1995, meðan
íyrra vopnahlé IRA var enn í gildi,
en ekki hafði verið búist við að þessi
för yrði jafn söguleg. Bæði eru íbúar
N-írlands raunsærri en þá í vænting-
um sínum og auk þess hafa atburðir
sumarsins við Drumcree og í Omagh,
þar sem 28 fómst í sprengjutilræði,
skapað mikinn vanda. Heimsókn
Clintons þótti hins vegar takast afar
vel.
Sagði Larry Butler, framkvæmda-
stjóri Evrópudeildar bandaríska
þjóðaröryggisráðsins og fyrrverandi
aðstoðai-maður bandaríska sendi-
herrans í Dublin, sem var í fylgdarliði
Clintons, í samtali við Morgunblaðið í
gær að það hefði glatt forsetann
mjög, og komið honum skemmtilega
á óvart, hversu vel almenningur á N-
Irlandi tók þeim. „Fundm' forsetans
með þeim sem um sárt eiga að binda í
Omagh vai' sérstaklega hvetjandi því
hann sýndi vilja fólks, sem mátt hefur
þola gífui'legan harm, tii að láta
ódæðismennina ekki hafa betur.“
Butler kvaðst sammála Bertie
Ahem um það að friðarumleitanir á
N-írlandi væru nú svo langt komnar
að þær geti staðist árásir eins og þá
er átti sér stað í Omagh. „Ef sprengj-
an í Omagh hefði átt sér stað fyrir
einu eða tveimur árum þá er allt eins
líklegt að öfgahópar sambandssinna
hefðu séð sig knúna til að fram-
kvæma viðlíka verknað. Tilræðið í
Omagh hefur hins vegar orðið til að
sameina fólk á N-írlandi, hvort sem
það eru kaþólikkar eða mótmælend-
ur, og sú staðreynd sýnir okkur
hversu nærri við erum markmiði
okkar nú.“