Morgunblaðið - 05.09.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 59.
STEINAR WAAGE
Ýmsir litir - Fjöidi tegunda - Einnig í herrastærðum
'eg. Liberty-G
Verð kr. 7.995
Teg. Olmo
BRÉF TIL BLAÐSINS
WARNERS
Frá Eggerti E. Laxdal:
DAGARNIR koma og fara, uns
ævin er öll. Líf mannsins spannar
ekki langan tíma, það vita allir,
sem eitthvað eru komnir til ára
sinna. Fólk býr sig undir ellina,
leggur peninga til hliðar, til þess
að grípa til, ef illa árar og lífeyris-
sjóðurinn hrekkur ekki fyrir nauð-
synlegum útgjöldum. Aður fyrr
var fólk sett á sveitina, þegar það
gat ekki unnið lengur og þótti það
bæði smán og illt aðgöngu. Fékk
lélegan fatnað og lítið að borða.
Enginn fékk peninga, því að slíkt
var helgur dómur mitt í fáæktinni.
Sem betur fer eru tímarnir betri
nú en þeir voru þá. Þó er langt í
land með það, að öllu réttlæti sé
fullnægt. Það er smárn saman ver-
ið að skerða hlut gamla og sjúka
fólksins og sér ekki fyrir endan á
þeirri píslargöngu. Biblían segir að
oss beri að elska hvert annað og
elska náungann eins og sjálf okkur
og síðast en ekki síst, að elska
Guðs son, Jesú Krist, því að hann
ber lítilmagnann og kjör hans fyrir
brjósti. Kristnum mönnum ber því
að vinna þessum málum til heilla
eftir því sem efni og tækifæri
leyfa. Það er ekki hægt að lifa af
50.000 kr. á mánuði, það vita allir
og ekki síst þeir, sem stjórna þess-
um málum, en þeir skella skolla-
eyi-um við öllum umkvörtunum, og
segja að þjóðin geti ekki gert
meira fyrir þetta fólk, það vanti
peninga. Þó ræðst ríkið í stórfram-
kvæmdir sem kosta milljarða, á
meðan gamla og sjúka fólkið hálf-
sveltur og getur ekki borgað húsa-
leigu eða klætt sig sómasamlega.
Þetta er ekki í anda Jesú Ki-ists,
Lítilmagninn
sem þjóðin kennir sig við. Það er
vafamál hvort þjóðin getur talist
kristin, því að kærleikurinn er
enginn, en Páll postuli segir að
kærleikurinn sé æðstur. Elska
skaltu náungann eins og sjálfan
þig, sagði ég áður, en ég segi það
aftur, því að þetta er sígilt boðorð
og ef farið er eftir því út í ystu æs-
ar, þá yrði jörðin ein paradís. Mað-
urinn hefur eldað grátt silfur við
sjálfan sig frá upphafí og til þessa
daga. Kain drap bróður sinn og
síðan hafa mennirnir barist og
myrt innbyrðis. Heimurinn er eins
og púðurtunna, sem gæti sprungið
hvenær sem er og tortímt öllu lífí.
Hver á þessa sundruðu jörð? Jesús
Kristur á hana, hann er konungur
hennar og er gefið allt vald yfir
henni. Hvers vegna gerir hann
jörðina ekki góða? Það er vegna
þess að hann vantar menn til þess
að hreinsa hana af öllu ranglæti
með boðskap friðar og kærleika.
Skaparinn gaf manninum frjálst
val, maðurinn hefur fullt frelsi til
þess að athafna sig eins og hann
vill, en hann kemst ekki hjá því að
meðtaka sinn dóm, því að öllum
ber oss að koma fram fyrir Dómar-
ann og meðtaka laun fyrir verk
sín, bæði góð og ill. Þetta þarf fólk
að vita, svo að það hafí eitthvað að
miða við þegar það ákvarðar at-
hafnir sínar.
Menn verða ekki sáluhólpnir fyrir
verk sín, heldur aðeins fyrir trú og
undirgefni við Jesú Ki-ist konung
lífsins. Góð verk eiga hins vegar að
koma fram hjá hinum trúuðu og ef
þau eru metin gild hjá Drottni, þá
getur verið að hann auki við þá náð
ogjstyrki þá í trúnni.
í bréfí Páls postula, 4. kap., segir
á þessa leið.
Abraham trúði Guði, og það var
reiknað honum til réttlætis. Þeim
sem vinnur verða launin ekki reikn-
uð af náð, heldur eftir verðleika.
Hinum aftur á móti, sem ekki vinn-
ur, en trúir á hann, sem réttlætir
óguðlegan, er trú hans reiknuð
honum til réttlætis. Eins og líka
Davíð lýsir þann mann sælan, sem
Guð tilreiknar réttlæti án tillits til
verka. Sælir eru þeir, sem afbrotin
eru fyrirgefín, og syndir þein-a
huldar. Sæll er sá maður sem
Drottinn tilreiknar ekki synd.
EGGERT E. LAXDAL,
Frumskógum 14, rlveragerði.
Flott
undirföt
vtl//
Kringlunni
S. 553 7355
níllur
af frábæru íondri
Þ
é'
Laugardaginn 5. september opnum við nýja verslun
með föndur og gjafavörur, að Langholtsvegi 111.
Opið verður frá kl. 10 til 17
og eru allir hjartanlega velkomnir í kaffi og konfekt.
Úrval af
akrýlmálningu,
glermálningu,
stenslum og
stenslalitum
frá Plaid
og Delta
Trévörur frá
Walnut Hollow
og Provo Craft.
Tilbúnir hlutir
til taumálunar
frá Bagworks.
Útskurðarblöð
frá Darrow.
Amerisk
gjafavara
í úrvali.
KÓRSKÓLI
LANGHOLTSKIRigU
fyrir Börtt oq xmqíinga
Skólinn veröur settur 10. september kl. 17:00 í Langholtskiikju.
Aldurstakmark er 8 ára og eldri. Kennslugreinar eru tónfræöi, tón-
heym, raddþjálfun og samsöngur. Kennt veröur á þriöjudögum og
fimmtudögum klukkan 17-18:20. Kennarar eru Laufey Ólafsdóttir
og Bryndís Baldvinsdóttir tónmenntakennarar og Jón Stefánsson
kantor. Kennslugjald er kr. 12.000 fyrir hvora önn.
KRIÍTTAKÓRfyrir 4-7 dra Böm
Kennt veröur í tveimur hópum á miövikudögum kl. 17-17:40 og
17:30-18:10. MaikmiÖiÖ er aö efla sönggleði og veita frumþjálfun
í samsöng. Kennari er Bryndís Baldvinsdóttir tónmenntakennari.
Kennslugjaid er kr. 4.000 fyrir hvora önn.
Afsláttur fyrir systkini er 25% fyrir Kórsk(Hann og Krúttakórinn
Nánari upplýsingar og innritun í Langholtskirkju í síma 5201300
TEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Sími 551 8519
'oppskórinn
V/INGÓLFSTORG SlMI: 552 1212
STEINAR WAAGE >
SKÓVERSLUnJ^
Sími 568 9212
E.BACKMAN ouglýiingostofo