Morgunblaðið - 05.09.1998, Side 51

Morgunblaðið - 05.09.1998, Side 51
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 51* ' EIN af þekktustu niðurstöðum hagfræði er að frjáls samkeppni leiði að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum til hagkvæmni. I ljósi þessa virðist sumum það skjóta skökku við að Alþingi ætli að lögfesta einkaleyfí eins aðila til að byggja gagnagrunn á heilbrigðissviði. Réttilega hefur verið bent á að með því sé löggjafarvaldið að búa til einokunarfyrirtæki á þessu sviði og loka fyrir alla samkeppni. Spurn- ingin er hvort það sé vond hag- fræði í þessu tilfelli. I flestum tilfellum er það vond hagfræði ef ýtt er undir einokun þar sem einokunarfyrirtækið hefur þá vald til að ráða verðinu á mark- aðinum. Það sem er óhagkvæmt við slíkt fyrirkomulag er að verðið sem kemur best út fyrir einokunar- fyi-irtækið er hærra en það verð sem hámarkar ávinning þjóðfélags- ins. Eitt af skilyrðunum fyrir því að frjáls samkeppni leiði til hag- kvæmni er að hver og einn aðili í þjóðfélaginu njóti einn afraksturs- ins af sinni eigin vinnu. Stór hluti af þeirri vinnu sem ráðast þarf í við gerð gagnagrunns á heilbrigðis- sviði er þannig að þegar hún hefur verið unnin í fyrsta skipti er engin leið til þess að koma í veg fyrir að aðrir sem vilja byggja sams konar gagnagrunn njóti hennar. Því yrði mun kostnaðarsamara fyrir þann fyi’sta að byggja gagnagrunn en þá sem á eftir kæmu. Þetta gerði það aftur að vei’kum að enginn fengist til að ríða á vaðið vitandi það að hinir sem fylgdu í kjölfarið myndu geta notað hans vinnu til að bjóða sömu þjónustu á lægra verði. Af þessum sökum myndi frjáls sam- keppni ekki leiða til hagkvæmni þegar um gagnagrunn á heilbrigð- issviði er að ræða. Eins og fyri’ segir eru einkaleyfi sem leiða af sér einokun slæm að því leyti að einkaleyfíshafínn geng- ur svo langt í því að stækka hlut Lögbundin einkaleyfi í flestum tilfellum er það vond hagfræði ef ýtt er undir einokun þar sem einokunarfyrirtækið hefur þá vald til að ráða verðinu á markaðinum. Það sem er óhagkvæmt við slíkt fyrirkomulag er að verðið sem kemur best út fyrir einokunarfyrirtækið er hærra en það verð sem hámarkar ávinning þjóðfélagsins. Jón Steinsson skrifar um hagfræðileg málefni, sinn í ávinningnum af viðskiptunum að heildarstærð ávinningsins minnkai’. En markmið íslenska rík- isins er auðvitað að hámarka ávinn- ing íslendinga ekki heildarávinn- inginn. Það sem er sérstakt við gagnagrunnsmarkaðinn fyrir okkur Islendinga er að við erum seljendur en kaupendumir eni að verulegu leiti erlendir aðilar. Einkaleyfið gef- ur þess vegna íslenska aðilanum á markaðinum vald til að ná stærri hluta ávinningsins til sín á kostnað erlendra aðila. Ef sátt næst um að skynsamlegt sé að lögbinda einkaleyfí um starf- rækslu gagnagrunns á heilbrigðis- sviði er stóra spurningin hvernig úthluta eigi einkaleyfinu. Frá hag- fræðilegu sjónai-miði þarf sú leið sem farin er að tryggja eins vel og kostur er að einkaleyfíð komist í hendur þess aðila sem skapað get- ur mest verðmæti með því. Hún þarf einnig að tryggja að þeir sem lagt hafa út í kostnað við að afla sér þekkingar á þessu sviði og komið okkur hinum í skilning um að hér geti legið mikil verðmæti njóti þess. En hitt má ekki gleymast að með tilurð einkaleyfísins er verið að takmarka rétt annarra íslend- inga til að byggja gagnagrunn á heilbrigðissviði. Hér er því verið að veita einum aðila sérstök réttindi fram yfír aðra aðila á íslandi. Það er því eðlileg krafa okkar hinna að þessi aðili borgi sanngjarnt verð fyrir. Getur verið að nokk- ui’ leið uppfylli öll þessi skilyrði svo vel sé? Jú, ákveðnar gerð- ir útboða gera það einmitt á glæsilegan hátt. Imyndum okkur til dæmis að einkaleyf- ið væri boðið út á eftir- farandi hátt. Öllum væri gefínn kostur á að skila inn boði. Sá sem byði hæst fengi einkaleyfið og þyrfti að borga upphæðina sem sá bauð sem bauð næsthæst. I útboðum er tvennt sem bjóð- endur þurfa að hafa í huga. Annars vegar skiptir máli í hvaða tilvikum þeir vinna útboðið og hins vegar skiptir máli hversu mikið þeir þurfa að borga ef þeir vinna. Þegar um útboð af ofangreindri gerð er að ræða hefur eigið boð aðeins áhrif á líkumar á því að bjóðandinn hljóti einkaleyfíð. Upphæðin sem hann borgar þegai’ hann vinnur ákvarðast hins vegar af boðum hinna sem hann getur ekki haft áhrif á. Þess vegna er best fyrir sérhvem bjóðanda að bjóða raun- verulegt mat sitt því þá hlýtur hann einkaleyfið ná- kvæmlega alltaf þegar hann vill (þ.e. þegar hann þarf að borga minna en sitt raun- veralega mat) en aldrei þegar hann vill ekki fá það (þ.e. þegar hann hefði þurft að borga meira en sem nemur mati hans á verðmæti einkaleyfis- ins). Lítum á hvemig slíkt útboð uppfyllir ofangreind skilyrði. Þar sem allir bjóðend- ur bjóða raunverulegt mat sitt er augljóst að sá sem metur einkaleyfið mest býður hæst og hlýtur það. Fyrsta skilyrðinu er því fullnægt. En hvað er sanngjamt verð? Á síðasta ái’atug tókst hagfræðingum að sýna fram á að ómögulegt er að finna leið sem gefur meira af sér fyrir seljanda heldur en útboð af þessari gerð. Það er því strax ljóst að slíkt útboð leiðir ekki til þess að of lágt verð fáist fyrir einkaleyfið. En verður verðið of hátt? Nei, þar sem sigurvegari útboðsins borgar aðeins það sem sá bauð sem bauð næsthæst er hann í rauninni að njóta nákvæmlega allrar þeirrar þekkingar sem hann hefur aflað Jón Steinsson umfram aðra á verðmæti einka- leyfisins en borga aðeins fyrir verðmætin sem aðrii’ kunna að vita að era fyrir hendi. Fleiri rök hníga að því að bjóða eigi út einkaleyfið. Sala réttinda er nefnilega hagkvæm leið til að afla tekna fyrir ríkið. Ríkið aflai^-' stærsta hluta tekna sinna með sköttum. Flestir skattar valda ein- hvers konar óhagkvæmni. Skattar auka kostnað þess sem þá borgar og letur fólk því til viðskipta. Flest- ir myndu til dæmis vinna annað- hvort meira eða minna ef þeir þyrftu ekki að borga tekjuskatta og sala á bflum myndi vísast drag- ast saman ef tollar væra hækkaðir svo einhver dæmi séu nefnd. Sala á réttindum eins og sala á rfldseign- um hefur aftur á móti engin slík ^ áhrif og er því hagkvæmari tekjuöflun með skattheimtu. Útboð tiyggir að það verð fáist fyrir einkaleyfið sem best endur- speglar alla þá þekkingu sem til er á verðmæti þess. Með skynsam- legu útboði hefur ríkið eins miklar tekjur og hugsast getur af útgáfu einkaleyfisins og það án þess að óhagkvæmni hljótist af. Og þar að auki nýtur frumkvöðullinn allrar þeirrar þekkingar sem hann hefur aflað sér fram yfir aðra í þjóðfélag- inu á verðmætunum sem fólgin era í einkaleyfinu. Má ætlast til meira? Á síðasta áratug láðist að bjóða út aflaheimildirnar sem urðu til þegar réttur Islendinga til að veiða^ við strendur landsins var takmark- aður. í dag era flestir á þeirri skoð- un að þá hafi réttlætið verið fyi-ir borð borið. Hér er um mjög svipað mál að ræða. Það yrðu meiriháttar mistök ef stjórnvöld létu hjá líða að bjóða einkaleyfið út. Mistök af sömu stærðargráðu og þau sem gerð voru á síðasta áratug með ókeypis úthlutun aflaheimilda. Höfundur er hagfræðinemi við Princeton-háskóla íBandaríkjununnm^ Hann hlýtur aó töfra þig upp úr skónum enda var ekki Iftió í hann lagt. 90 milljarðar kr. og 7 milljónir vinnustunda liggja að baki nýjum Clio. Það skilar sér í þægindum og öryggisbúnaði stóra bílsins og fjölda óvenjulegra nýjunga sem vert er aó kynna sér. Komdu á frumsýninguna um helgina í B&L. Clio er sannkallaður sjarmör. Í^^Msýnimc . neigma í| Laugardagur: 10-17 ■Sunnudagur: l?.i-7

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.