Morgunblaðið - 05.09.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 23
VIÐSKIPTI
Kaupþing Norðurlands hf. á Akureyri hagnast um 12,5 milljónir á fyrri árshelmingi
Aukning á öllum svið-
um verðbréfaviðskipta
UMSVIF Kaupþings Norðurlands
hf. á Akureyri hafa aukist verulega
á öllum sviðum verðbréfaviðskipta.
Félagið skilaði 12,5 milljóna króna
hagnaði á fyrri árshelmingi, sem er
lítið eitt lakari afkoma en á síðasta
ári, en afkoman samsvarar þó 21%
ávöxtun eigin fjár.
Heildartekjur Kaupþings Norð-
urlands hf. námu rúmum 68 milljón-
um kr. fyrstu sex mánuði ársins og
er það 47% aukning frá sama tíma-
bili á síðasta ári. Að teknu tilliti til
vaxtagjalda og verðbóta og
reiknaðra gjalda vegna verðlags-
breytinga voru hreinar rekstrar-
tekjur nú 50,5 milljónir kr. en voru
43,8 milljónir fyrir ári. í takt við
þessa aukningu hefur starfsfólki
fjölgað um þrjá frá áramótum og eru
starfsmenn félagsins nú tólf.
Tryggvi Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings Norður-
lands hf., segir að félagið hafi í upp-
hafi sérhæft sig í hlutabréfaviðskipt-
um. Þau séu enn veigamikill þáttur í
starfseminni en fyrii'tækið hafi aukið
hratt hlut sinn á öðrum mörkuðum,
skuldabréfa- og peningamai’kaði og í
erlendum viðsldptum. Eigið fé í lok
júní nam 134 milljónum kr. en var
119,6 milljónir í upphafi ársins. Það
jókst því um 14,4 milljónir kr. og
samsvarar það 21% ávöxtun eigin
fjár, segh- í fréttatilkynningu frá
félaginu.
Flest verðbréfafyrirtækin í
Reykjavík hafa útibú eða einhvers
konar aðstöðu á Akureyri en
Kaupþing Norðurlands hf. er eina
löggilta verðbréfafyrirtækið þar og
raunar hið eina utan Reykjavíkur.
Það veitir einstaklingum, fyrirtækj-
um og stofnunum um allt land al-
hliða þjónustu á sviði fjármála og
verðbréfaviðskipta. Tryggvi segir að
eðli málsins samkvæmt sé þjónusta
við einstaklinga mest á Akureyri og
nágrenni. Öðru máli gegni um fyrir-
tæki og stofnanir, þar sé félagið í
viðskiptum á almennum markaði,
eins og önnur verðbréfafyrirtæki.
Sjóðir í vörslu félagsins eru Hluta-
bréfasjóður Norðurlands og
Sjávarútvegssjóður Islands.
Kaupþing Norðurlands hf. er
dótturfyrirtæki Kaupþings hf., sem
á tæplega tvo þriðju hlutafjár.
Þriðjungur er í dreifðri eignaraðild
þar sem lífeyrissjóðir og sparisjóðir
eru meðal hluthafa, einnig eiga
Kaupfélag Eyfirðinga og Búnaðar-
bankinn litla hluti í félaginu.
Kornax fær
hveitibíl
KRAFTUR ehf., sem er með um-
boð fyrir MAN-bifreiðar, afhenti
nýlega Kornaxi ehf. nýja MAN
26.463 DFLC vörubifreið til
hveitiflutninga.
Bifreiðin er 26 tonna þung
með 460 hestafla vél, loftíjöðrun,
svefnhúsi og ýmsum öðrum
búnaði. Á bifreiðinni eru fjórir
tankar sem gera flutning á fjór-
um mismunandi hveititegundum
mögulegan, samtals 13 tonnum.
Bifreiðin er einnig búin hátækni-
vigtarbúnaði til að vigta
nákvæmiega það hveiti sem af-
greitt er hverju sinni.
---------------
Fjármunir
víxluðust
í SKÝRINGARTÖFLU með frétt
um afkomu Taugagi'einingar hf.,
sem birtist í Morgunblaðinu í vik-
unni, lentu veltufjármunir í sæti
fastafjármuna og öfugt. Hið rétta er
að að fastafjármunir fyrh'tækisins á
fyrstu sex mánuðum ársins námu
119.998 mkr. en veltufjármunir voru
29.294 mkr.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum sem urðu í vinnslu blaðsins.
NETÞJONAR FYRIR RLLRR
STÆRÐIR FYRIRTfEKJA
Með netþjóninum frá Compaq leggurðu
grunninn að öflugu tölvukerfi í fyrirtæki þínu
og tryggir öryggi gagna og skjala.
Allt framleiðsluferli netþjónsins er undir hinu
stranga gæðaeftirliti Compaq sem hefur
skilað fyrirtækinu 43% markaðshlutdeild
í PC netþjónum í Bandaríkjunum.
Compaq tölvukerfin er sérlega auðvelt að
aðlaga að mismunandi þörfum fyrirtækja
og einstakiinga vegna hinnar framúrskarandi
samhæfingar sem kerfin byggja á.
Tæknivai
Kauphöllin íNew York notar Compaq tölvur
NftST YFIRBURÐIR
• flfköst
www.mbl.is
s/cc‘r öllvirri t>iö
www.toeknivol.i