Morgunblaðið - 05.09.1998, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Menntasmiðja kvenna að hefja sitt fímmta starfsár
Hyggjast gera, Smiðjuna
að sjálfstæðum skóla
MENNTASMIÐJA kvenna á Ak-
ureyri er nú að heíja sitt fimmta
starfsár. Kynningarfundur um
starfsemi haustsins og fyrirhugað-
ar breytingar á skipulagi verður
haldinn í húsnæði Menntasmiðj-
unnar, Glerárgötu 28, 3. hæð
mánudagskvöldið 7. september kl.
20.30.
Menntasmiðja kvenna hefur verið
rekin á vegum Akureyrarbæjar,
sem verkefni jafnréttisnefndar með
styrkjum og dyggum stuðningi
menntamála- og félagsmálaráðu-
neyta auk þess sem Rauði krossinn
og fleiri fyrirtæki og félagasamtök
hafa styrkt einstök verkefni. Starf-
semin í haust er styrkt með sér-
stöku framlagi frá Svæðisráði
vinnumiðlunar Norðurlands eystra
og unnið er að samkomulagi um
samstarf milli þeirra og Mennta-
smiðjunnar.
Námskeið fyrir almenning í boði
Menntasmiðjan er skóli sniðinn
að þörfum kvenna og sérstaklega
þein-a sem eru að takast á við erfíð-
leika eða breytingar í lífi sínu og er
markmið skólans að auka lífshæfni
nemenda sinna. Þar skapast félags-
legur stuðningur sem miðar að því
að auka sjálfstæði, þor og sjálfs-
styrk nemenda, þá gefur skólinn
hagnýta menntun sem þó er hvergi
að finna annars staðar í hefðbundnu
Islensku skólakerfi.
Auk dagskóla sem að þessu sinni
verður í 12 vikur verður í haust
boðið upp á námskeiðaröð fyrir þær
konur sem þegar hafa lokið námi í
Menntasmiðjunni, en það eru alls
um 170 nemendur. Auk þess verða í
boði námskeið fyrir almenning, fyr-
irlestraraðir og leshringir, ljóða-
kvöld, myndbandakvöld og fleira.
Menntasmiðjan hefur til umráða
stórt og gott húsnæði og stendur
myndlistarkonum til boða að sýna
verk sín en þemað í haust verður
draumar kvenna.
Unnið er að því um þessar mund-
ir að gera Menntasmiðjuna að sjálf-
stæðum skóla sem rekinn yrði sem
sjálfseignarstofnun með eigin tekj-
ur en styrkt m.a. af ríki og bæ.
Öflugt samstarf hefur verið og verð-
ur áfram við Punktinn og ýmsar
deildir Akureyrarbæjar og unnið
verður að því að koma á samstarfi
við t.d. framhaldsskóla, háskóla,
heilsugæslustöð, svæðisvinnumiðl-
un og atvinnuþróunarstofnanir.
Frumsýnt á Akureyri og í Reykjavík
Oska stuðnings menn-
ingarmálanefndar
AksjóN
Laugardagur 5. september
12.00^-Skjáfréttir
17.00^-Dagstofan (e)
21.00^-Kvöldljós Kristilegt efni frá
sjónvarpsstöðinni Omega.
Surmudagur 6. september
12.00KSkjáfréttir
17.00^-Dagstofan (e)
21 .OO^-Kvöldljós Kristilegt efni frá
sjónvarpsstöðinni Omega.
Mánudagur 7. september
12.00^ Skjáfréttir
18.15^Kortér Fréttaþáttur í sam-
vinnu við Dag. Endursýndur kl. 18.45,
19.15,19.45, 20.15,20.45.
21.00Þ’Mánudagsmyndin - Sláninn
(TallGuy) Leikarinn Dexter á ekki
frama vísan meðan hann er mótleikari
Rons sem er nískupúki og
leiðindagaur. Iturfogur hjúkka flækist
í málin og úr verða drepfyndnar flækj-
ur og djarfar uppákomur. Aðalhlut-
verk. Jeff Goldblum, Rowan Atkinson
og Emma Thompson. 1990.
FORSVARSMENN Loftkastalans í
Reykjavík og Renniverkstæðisins á
Akureyri hafa leitað eftir fjárstuðn-
ingi frá menningarmálanefnd Akur-
eyrarbæjar, til að setja upp nýtt ís-
lenskt leikrit, Bjölluna, eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Hugmyndin er að
setja verkið upp í Loftkastalanum og
á Renniverkstæðinu og frumsýna
það sama dag á báðum stöðum fyrir
jól.
Leikritið Bjallan er gamanleikur
og fjallar um þrjá feðga sem reka
bílasölu og aðferðir þeirra við að
halda rekstrinum gangandi. Eftir er
að ráða leikstjóra og leikara í þau
sex hlutverk sem eru í verkinu en öli
undirbúningsvinna og æfingar verða
á hendi Loftkastalans.
Að sögn Kristjáns Sverrissonar,
rekstraraðila Renniverkstæðisins, er
kostnaður við uppsetningu verksins
á milli 9 og 10 milljónir króna og
hann vonast eftir fjárstuðningi frá
menningarmálanefnd upp i þann
kostnað.
Kristján átti fund með Stefáni
Baldurssyni þjóðleikhússtjóra í vik-
unni og nú hefur verið ákveðið að
Þjóðleikhúsið setji upp tvær sýn-
ingar á Renniverkstæðinu, Lista-
verkið í næsta mánuði og Gaman-
sama harmleikinn síðar. Kristján
sagði það vissulega jákvætt að þjóð-
ieikhússtjóri hefði tekið jafn vel í
máialeitanina og raun bar vitni og
hann vonaðist eftir enn frekara sam-
starfi í framtíðinni.
Tangi hf.
TILKYNNING UM SKRÁNINGU
HLUTABRÉFA Á VERÐBRÉFAÞING
ÍSLANDS
títgefandi: Tangi hf., kt. 551265-0219, Hafnarbyggð 7, 690 Vopnafirði.
Starfsemi: Tilgangur félagsins samkvæmt 3. gr. samþykkta þess er „útgerðarstarfsemi“,
fiskverkun og fisksala, iðnaðarstarfsemi til nýtingar sjávarafla svo og rekstur fasteigna
og lánastarfsemi í því sambandi."
Umsjón með skráningu: Kaupþing Norðurlands hf., Skipagötu 9, 602 Akureyri, sími 460-4700, símbréf
460-4717.
Heildarnafnverð hlutafjár: Heildarnafnverð hlutabréfa félagsins er kr. 501.993.182, -.
Einkenni bréfa: Hlutafé fyrirtækisins skiptist ( einnar krónu hluti og margfeldi þar af. Bréfin eru
ekki gefin út í föstum einingum. Öll bréfin tilheyra sama flokki jafnrétthárra bréfa.
Viðskipti og skráning: Stjórn Verðbréfaþings íslands hefur samþykkt að skrá hlutabréf félagsins á
Aðallista þann 9. september 1998. Til þessa hafa bréf félagsins gengið kaupum og
sölum á Opna tilboðsmarkaðnum.
Tilgangur skráningar: Að hægt sé að eiga viðskipti með bréf félagsins á skipulegum markaði,
Verðbréfaþingi íslands, og að seljanleiki og verðmyndun bréfa félagsins verði
skilvirkari.
Upplýsingar og gögn:
Réttindi hluthafa:
Skattamál:
Skráningarlýsing og önnur gögn um Tanga hf. liggja frammi hjá Kaupþingi
Norðurlands hf., Kaupþingi hf. og Tanga hf.
Engar hömlur eru lagðar á meðferð hlutabréfa í félaginu. ÖII hlutabréf í
félaginu eru jafn rétthá og eitt atkvæði reiknast fyrir hvern einnar krónu hlut í
félaginu. Akvörðun um greiðslu arðs og útgáfu jöfnunarhlutabréfa er tekin á aðalfundi
félagsins. Þeir sem eiga hlut í félaginu þegar aðalfundur viðkomandi uppgjörsárs er
haldinn eiga rétt á greiðslu arðs fyrir það uppgjörsár í samræmi við hlutafjáreign sína.
Skattaleg meðferð hlutafjár fer eftir gildandi skattalögum á hverjum tíma.
Félagið hefur fengið staðfestingu ríkisskattstjóra fyrir árið 1998 á að félagið fullnægi
skilyrðum þess að einstaklingar geti dregið kaupverð hlutabréfa frá tekjuskattsstofni
samkvæmt ákvæðum 11. gr. laga nr. 9/1984 með síðari breytingum. Ennfremur er
útgefanda skylt að halda eftir skatti af arðgreiðslum til hluthafa, sbr. 2,mgr., 3. gr., laga
nr. 94/1996.
KAUPÞING
NORÐIJRLANDSIIF
Hauskúpa
og brot úr
lærlegg
STARFSMENN Malar og sands
fundu hauskúpu og brot úr lær-
legg þar sem þeir voru við vinnu
í malarnámu í landi Glerár
skammt ofan Akureyrar í fyrra-
kvöld.
Gröfumaður var að stíga úr úr
vél sinni þegar hann rak augun í
hauskúpuna og við nánari eftir-
grennslan komu fleiri bein Ijds.
Sennilega hafa beinin legið í mal-
arhól sem þarna stóð, en ýtt var
ofan af honum í fyrrahaust og
líkast til hefur veðrast ofan af
honum síðasta vetur.
Að sögn starfsmanna fyrirtæk-
isins eru sagnir um að kirkju-
garður hafi verið í landi Glerár
fyrir nokkur hundruð árum og
hafa þeir áður rekist á bein í
malarnáminu. Ekki var nákvæm-
lega vitað hvar garðurinn var
fyrr en farið var að vinna við
malarnámið.
Messur
AKURE YRARKIRK J A:
Kvöldguðsþjónusta í kirkjunni
kl. 21 annað kvöld, sunnu-
dagskvöld. Sr. Svavar A. Jóns-
son messar.
GLERÁRKIRK J A:
Kvöldguðsþjónusta í kirkjunni
kl. 21. „Komið og njótið kyrrð-
ar í helgidómi Guðs.“ Sr. Gunn-
laugur Garðarsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Bænastund og bibh'ukennsla í
umsjá Mike Bradley kl. 20 í
kvöld, laugardagskvöld. Sunnu-
dagaskóli fjölskyldunnar á
morgun kl. 11.30. Biblíukennsla
fyrir alla aldurshópa, Mike
Bradley prédikar. Samkoma
sama dag kl. 20. Mikill og lífleg-
ur söngur. G. Theódór Birgis-
son prédikar. Bamapössun fyr-
ir börn yngri en 6 ára. Biblíu-
kennsla með Mike Bradley kl.
20 á mánudagskvöld. Heima-
síða www.gospel is og Vonar-
lína, símsvari með uppörvunar-
orð úr Biblíunni allan sólar-
hringinn, sími 462 1210.
Leikskóladeild Akureyrarbæjar
Tæplega 30
börn bíða eftir
leikskólaplássi
UM síðustu mánaðamót voru tæp-
lega 30 börn á leikskólaaldri á
biðlista eftir leikskólaplássi á
leikskólum Akureyrarbæjar. Þá
eru margir foreldrar með vaðið
fyrir neðan sig og um mánaðamót-
in var búið að skrá 113 börn á
biðlista sem fædd eru árið 1997 og
22 böm sem fædd em á þessu ári.
Leikskólaaldurinn er miðaður við
tveggja ára aldur barna en þó er
leikskólinn Kiðagil með undanþágu
til að taka eins árs böm til vistunar
og þar em nú 10 eins árs börn. Ak-
ureyrarbær rekur 10 leikskóla og
Hvítasunnukirkjan einn, með stuðn-
ingi bæjarins. Þá hætti einkarekni
leikskólinn Arsól starfsemi um síð-
ustu mánaðamót en þar var
leikskólarými íýrir 40-50 böm.
Engin umsókn um stöður
leikskólakennara
Leikskóladeild Akureyrarbæjar
auglýsti lausar stöðui- mmlega 40
leikskólakennara við leikskóla
bæjarsins í síðasta mánuði og var
umsóknarfrestur til 1. september sl.
Að sögn Hrafnhildar Sigurðardótt-
ur hjá leikskóladeild bæjarins sótti
enginn leikskólakennari um vinnu.
„Við vorum heldur seint á
ferðinni að auglýsa enda flestir
leikskólakennarar búnir að ráða
sig til starfa. Við auglýsum þessar
stöður í apríl og aftur í ágúst og
það em auglýsingarnar á vorin
sem skila mestu. Og það er búið að
ráða 8 nýja leikskólakennara frá
því í vor.“
Ástandið mun betra
en undanfarin ár
Hrafnhildur sagði að um 37%
starfsmanna á leikskólum bæjarins
væru faglærðir en á landsvísu væri
hlutfaliið 32-36%. Hún sagði
ástandið mun betra nú en undan-
farin ár og að nú væri aðeins í ein-
um leikskóla uppi sú staða að
leikskólastjórinn væri eini faglærði
starfsmaðurinn.
Hrafnhildur sagðist binda vonir
við að fá til starfa leikskólakennara
sem útskrifast frá kennaradeild
Háskólans á Akureyri næsta vor.
„Það em 45 leikskólakennaranemar
í háskólanum sem eiga lögheimili á
Akureyri eða í næsta nágrenni og
þar af um 20 sem útskrifast næsta
vor. „Eg bind vonir við að þetta fólk
skili sér til starfa hjá okkur.“