Morgunblaðið - 05.09.1998, Side 20
20 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Framkvæmdastjóri Verðbréfastofunnar gagnrýnir mikinn mun á gengi
við hlutafjárútboð Landsbankans
Landsbankinn talinn væn-
legur fjárfestingarkostur
EF markaðurinn myndi meta
hlutabréf í Landsbanka Islands á
sama hátt og Islandsbanka myndi
markaðsvirði bankans hækka úr
liðlega 12 milljörðum sem það er
nú miðað við útboðsgengi til al-
mennings og fara í 19-20 milljarða
kr. Gengi hlutabréfanna myndi
hækka við það úr 1,9 í 3. Jafet
Ólafsson, framkvæmdastjóri Verð-
bréfastofunnar hf., telur kaup á
hlutabréfum Landsbankans væn-
lega fjárfestingu. Hann gagnrýnir
hins vegar þá ákvörðun að selja
starfsfólki bankans hlutabréf á
þriðjungi lægra verði.
Nýtt hlutafé í Landsbankanum
er boðið á sanngjörnu verði, að
mati Jafets. Markaðsvirði Lands-
bankans er liðlega 12 milljarðar
kr., miðað við útboðsgengi til al-
mennings. Jafet telur að miðað við
stærð Landsbankans og heildar-
eignir væri eðlilegt að hann skilaði
1,5 milljörðum kr. í hagnað á ári og
þá yrði verðmæti hans mun hærra,
eða 18-20 milljarðar kr. sem sam-
svarar því að gengið yrði um eða
uppundir 3. Hann bendir hins veg-
ar á að bankinn hafí ekki náð þess-
um árangri og því þurfí að selja
hann á lægra verði. Það gefí fjár-
festum möguleika á að hagnast á
fjárfestingunni.
Ódýrari en
Islandsbanki
Hlutabréf í Landsbanka Islands
eru ódýrari en hlutabréf Islands-
banka sem hafa verið á markaði í
mörg ár. „Eðlilega," segir Jafet,
„hann er að koma nýr inn á markað
og hefur ekki grætt mikið.“
I Morgunkorni, fréttabréfí Fjár-
festingarbanka atvinnulífsins hf.,
er verðmæti Landsbankans sam-
kvæmt útboðsgengi borið saman
við gengi hlutabréfa Islandsbanka.
Hlutfall markaðsvirðis og bók-
færðs eigin fjár Islandsbanka er nú
um 2,1. Sama hlutfall hjá Lands-
bankanum eftir útboð myndi þýða
19,5 milljarða króna markaðsverð-
mæti og gengi nálægt 3,0. „Ósagt
skal látið um líkurnar á því að
markaðurinn meti Landsbankann
á sama hlutfalli. Þær aukast hins
vegar á komandi árum ef Lands-
bankinn nær hlutfallslega sama ár-
angri í hagræðingu og rekstri sín-
um og Islandsbanki hefur náð á
undanfómum misserum og árum.
Fyrst og fremst þarf arðsemi eigin
fjár og vaxtarmöguleikar að vera
sambærileg svo markaðurinn setji
tvo banka í svipað hlutfall mark-
aðsvirðis og bókfærðs eigin fjár,“
segir í Morgunkomi.
Stefnt að 700
millj. hagnaði
Jafet telur kaup á hlutabréfum
Landsbankans vænlegan fjárfest-
ingarkost þegar til framtíðar er lit-
ið. „Eg hef trú á Landsbanka Is-
lands og íslensku bankakerfi."
Hann telur að enn séu miklir hag-
ræðingarmöguleikar í bankakerf-
inu og með því muni verðmæti
bankanna aukast.“
I útboðslýsingu Landsbankans
kemur fram að það er stefna
bankaráðs að greiddur verði arður
af hlutabréfunum, sem nemur
30-50% af hagnaði hvers árs. Á því
verði þó ekki byrjað fyrr en á árinu
2000 af hagnaði ársins 1999. Þang-
að til er ætlunin að nota hagnaðinn
alfarið til að byggja upp eiginfjár-
stöðu Landsbankans. í lýsingunni
kemur einnig fram að áætlanir
bankans hafi í upphafí árs gert ráð
fyrir ríflega 700 milljóna króna
hagnaði á árinu í heild. Ekki kem-
ur fram hvort áætlanir hafí verið
endurskoðaðar í ljósi þess að hagn-
aður fyrstu sex mánaða árins nam
489 milljónum kr. Til að greiða 7%
arð, sem dæmi, þarf bankinn að
verja 455 milljónum kr. Það þýðir
að hann þarf að hagnast um
900-1.500 milljónir kr. á árinu
1999, miðað við að 30-50% hagnað-
ar yrði ráðstafað til arðgreiðslna.
Of mikill munur á gengi
Starfsfólki Landsbankans og
dótturfélaga gefst kostur á að
kaupa hlutabréf á þriðjungi lægra
gengi en almenningi og getur af-
slátturinn numið 154 þúsund krón-
um á hvern starfsmann. I Morgun-
korni FBA er á það bent að al-
gengt sé við hlutafjárútboð ís-
lenskra fyrirtækja að hluthöfum
með forkaupsrétt sé boðið að
kaupa hlutabréf við marktækt
lægra gengi en nemur mark-
aðsvirði þess tíma. Þá sé algengt
erlendis að starfsmönnum bjóðist
lík kjör. „Almennt telst mjög já-
kvætt að starfsmenn séu hluthafar
í þeim fyrirtækjum sem þeir starfa
hjá og verður að telja þessa aðgerð
MARKAÐSVERÐ íslandsbanka er
rúmum milljarði hærra en Lands-
banka, miðað við útboðsgengi til al-
mennings, þrátt fyrir að eigið fé og
heildareignir Landsbankans séu
mun meiri en Islandsbanka.
Viðskiptastofa Landsbankans
hefur tekið saman upplýsingar í
meðfylgjandi töflu um samanburð á
verðmæti viðskiptabankanna
þriggja. Islandsbanki er einn ís-
lenskra banka skráður á Verð-
bréfaþingi íslands og því eini bank-
inn sem markaðurinn hefur lagt
mat á í raun. I töflunni er markaðs-
verð hlutabréfa Islandsbanka
reiknað út frá gengi þeirra hinn 1.
september síðastliðinn, en þá var
það 3,5, og það borið saman við
verð Landsbankans miðað við út-
boðsgengi til almennings, en það er
1,9. Til samanburðar er einnig tekið
verðmæti Búnaðarbankans og þar
miðað við 8 milljarða króna yfir-
tökutilboð íslandsbanka, þótt ekki
hafi orðið viðskipti á gi’undvelli
þess tilboðs.
Ef bornar eru saman kennitölur
úr rekstri og efnahag bankanna,
samkvæmt þessum forsendum, má
sjá að V/I hlutfall, sem segir til um
markaðsverð sem hlutfall af hreinni
nú vísbendingu um jákvæða þró-
un,“ segir í Morgunkorni.
Jafet Ólafsson telur að munur-
inn á gengi starfsfólks og almenn-
ings sé alltof mikill. Hann ætti ekki
að fara yfir 10%. Segir Jafet þá
hættu fyrir hendi, þegar verið sé
að selja hlutabréf á of lágu verði,
að kaupendurnir selji hlutabréfín
strax til að innleysa hagnaðinn, og
þá þjóni þessi aðgerð ekki tilgangi
sínum, það er að hafa starfsfólkið í
hluthafahópnum. „Stjórnvöld eiga
sem eigandi bankans og vörsluaðili
að fá sem hæst verð fyrir hann. Því
væri rétt að bjóða út hlutaféð í
skömmtum og selja hæstbjóðanda
þegar kemur að því að bankarnir
verða seldir,“ segir Jafet.
Ekki telur Jafet að neikvæð um-
ræða um afslátt af verði hlutabréfa
Landsbankans til starfsmanna hafí
mikil áhrif á framkvæmd útboðs-
ins. „En þessi mikli munur á gengi
er auðvitað ekki góður fyrir ímynd
og markaðssetningu hlutabréf-
anna. Við erum auðvitað öll eigend-
ur bankans," segir Jafet Ólafsson.
eign, er lægst hjá Landsbankanum,
1,32, en yfir 2 hjá íslandsbanka.
Búnaðarbankinn er þarna á milli.
Til samanburðar má einnig geta
þess að miðað við gengi til starfs-
manna er þetta hlutfall 0,9.
Markaðsverð íslandsbanka er
nálægt 13,6 milljörðum króna, lið-
lega milljarði hærra en mark-
aðsvirði Landsbanka við útboð
þrátt fyrir að heildareignir Lands-
bankans séu 135 milljónir á móti 98
milljónum hjá íslandsbanka.
V/H hlutfallið segir til um mark-
aðsverð í hlutfalli af hagnaði fyrir-
tækisins. Ef horft er á hagnað árs-
ins 1997 og fyrra árshelmings 1998,
er þetta hlutfall örlítið hærra hjá
Landsbanka en Islandsbanka en
nokkru lægra en hlutfóllin hjá Bún-
aðarbanka miðað við verðtilboðið
frá Islandsbanka. I skýringum sín-
um tekur Viðskiptastofan fram að
hafa verði í huga að framtíðarhagn-
aður fyrirtækjanna skipti máli og
að fjárfestar geti haft mismunandi
skoðanir á honum. „Hagnaður
bankanna og hlutfallsleg arðsemi
skiptir meginmáli við verðlagningu
þeirra, en þessi hlutfoll taka ekki
tillit til arðseminnar," segir þar
einnig.
Árétting frá Lands-
banka Islands hf.:
Eignar-
aðild starfs-
manna hef-
ur jákvæð
áhrif
VEGNA þeirrar umræðu um
sölu hlutabréfa til starfsmanna
í hlutafjámtboði Landsbanka
íslands hf. sem nú er að hefj-
ast vill Landsbankinn taka
fram eftirfarandi:
1. Starfsmönnum Lands-
banka íslands hf. og dótturfé-
laga Landsbankans er heimilt
að kaupa hlutabréf í útboðinu
fyrir allt að 325 milljónir kr. að
nafnverði, á sölugenginu 1,285.
Þetta gengi jafngildir innra
vii’ði Landsbankans 31. desem-
ber 1997 og er um þriðjungi
lægra en gengið í almenna út-
boðinu.
2. Gengi hlutabréfa í sölu til
starfsfólks var formlega
ákveðið af ríkisstjórn Islands
hinn 31. desember 1997, sem
líður í heildarsamkomulagi
vegna breytingar Landsbank-
ans í hlutafélag og breytinga á
lífeyriskerfi starfsmanna.
3. Starfsfólk Landsbankans
átti aðild að breytingu bankans
í hlutafélag og hefur lagt tölu-
vert á sig vegna þessa, m.a.
með breytingum á réttindum.
Því varð að samkomulagi að
bjóða starfsmönnum umrædd
kjör. Landsbankinn telur að
aðilar hafí fullt frelsi til að
semja um mismunandi gengi
við útboð hlutabréfa og er það
þekkt íyrirkomulag.
4. Hámarksfjárhæð sem
hverjum starfsmanni er heim-
ilt að skrá sig fyrir er 250.000
kr. að nafnvirði. Öllum starfs-
mönnum í föstu starfi, hjá
Landsbankanum eða dótturfé-
lögum hans við upphaf útboðs-
ins, svo og þeim starfsmönnum
sem létu af föstu starfi á tíma-
bilinu frá 1. janúar 1997 fram
að upphafsdegi útboðsins, er
heimilt að taka þátt í útboðinu.
Hlutafé sem ekki selst til
starfsmanna með þessum
hætti verður boðið Lífeyris-
sjóði bankamanna á sömu
kjörum. Starfsmönnum og Líf-
eyrissjóði bankamanna er
óheimilt að framselja áskrift-
arrétt sinn.
5. Ef heildarfjárhæðin í
þessum hluta útboðsins, 325
milljónir kr. að nafnverði, selst
ekki til starfsmanna og Lífeyr-
issjóðs bankamanna svo sem
hér að framan er lýst, flyst sú
fjárhæð sem eftir stendur yfir í
almenna áskriftai-flokkinn.
6. í hlutafjárútboði Lands-
banka Islands hf. er starfs-
mönnum heimilað að skrifa sig
fyrir nýju hlutafé á ofangreindu
gengi og greiðist andvirði
hlutafjár til Landsbanka ís-
lands hf. Því er ekki um það að
ræða að ríkissjóður selji bréf í
sinni eign til starfsmanna og
verði af tekjum vegna þessa.
Með hliðsjón af ofansögðu
telur Landsbankinn eðlilegt að
starfsmenn fái að kaupa hluta-
bréf á sérstöku umsömdu
gengi. Bankinn telur að kaup
starfsmanna á hlutabréfum í
bankanum treysti betur bönd-
in á milli þeirra og hlutafélags-
ins. Sem hluthafar verða
starfsmenn betur meðvitaðir
um reksturinn og salan til
starfsmanna mun því tryggja
gott samstarf við að ná þeim
rekstrarmarkmiðum sem sett
hafa verið. Bankinn er þess því
fullviss að þessi ráðstöfun
muni mæta skilningi meðal
annarra hluthafa og að eignar-
aðild starfsmanna hafi jákvæð
áhrif á rekstur hans.
Tilkynning um almennt hlutafjárútboö og skráningu á Veröbréfaþingi íslands
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF.
kt. 660269-2079
Aðalstræti 6-8,101 Reykjavík
Fjárhæð útboðsins er 3.946.159 krónur að nafnverði og um er
að ræða eldra hlutafé. Bréfin eru seld gegn staðgreiðslu.
Útboðsgengi er 14,0 til starfsmanna fyrirtækisins.
Almennt útboðsgengi er 25,0.
Tilgangur útboðsins er að fjölga í hluthafahóp til að
uppfylla skilyrði Verðbréfaþings íslands um
skráningu félagsins á Aðallista.
Sölutímabil: 9. september 1998 til 11. september 1998.
Umsjón með útboðinu hefur Búnaðarbankinn Verðbréf,
kt. 490169-1219, Hafnarstræti 5, 3. hæð, 155 Reykjavík.
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að skrá hlutabréf TM
á Aöallista þingsins. Bréfin verða skráð í seinni hluta
september, enda uppfylli félagið þá öll skilyrði um skráningu.
Nálgast má útboðslýsingu hjá Búnaðarbankanum Verðbréf
og útibúum Búnaðarbankans, sem jafnframt
eru sölustaðir hlutabréfanna.
BUNAÐARBANKINN
y/ VERÐBRÉF
- byggir á trausti
Samanburður á verði bankanna *
Eigiðfé1! milljónirkr. 9.328 6.642 4.649
Markaðsverð 12.350 13.571 8.000
Heildareignir1) 134.674 97.509 77.300
Hagnaður af reglulegri starfsemi 1997 1.054 2 1.047 541 co
Hagnaður f. sex mánuði ársins 489 596 242 1
Áætlaður hagnaður 700 1
42
V/l - hlutfall (Q-hlutfall) 1,32 2,04 1,72 o o 03
V/H - hlutfall m.v. hagnað 1997 11,72 12,96 14,79 1
V/H - hlutfall m.v. sex mán. hagn. 1998 12,63 11,39 16,53 a
V/H - hlutfall m.v. áætlun fyrir 1998 17,64
1) M.v. 30. júní 1998 að viðbættu hlutafjárútboði Landsbankans. 2) Innheimt áður afskrifuð útlán, 541 m.kr.
Markaðsverð Islands-
banka milljarði hærra
en Landsbankans