Morgunblaðið - 05.09.1998, Blaðsíða 60
-60 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Frá uppfærslu Barna- og unglingakórs Fella- og Ilólakirkju
á helgileik í desember 1997.
Söngnámskeið á
vegum Hafnar-
fjarðarkirkju
Á VEGUM Hafnarfjarðarkirkju
verða á komandi vetri haldin tvö
söngnámskeið, eitt fyrir og eitt eftir
jól. Námskeiðin eru ætluð annars
vegar þeim sem hafa enga reynslu
en dreymir um að læra að syngja og
hins vegar reyndum kórfélögum
sem vilja læra að beita röddinni
rétt. Kennd verður tækni til þess að
losna við hæsi og sérstök áhersla
verður lögð á öndunartækni. Einnig
verður þjálfuð tónheyrn. Leiðbein-
andi á námskeiðunum er Natalía
Chow, organisti og kórstjóri Hafn-
arfjarðarkirkju, en hún er einnig
sérmenntuð sem söngkona. Kennt
verður einu sinni í viku, eina
klukkustund í senn í hinum nýja
tónleikasal safnaðarheimilisins.
Fyrsti tíminn er laugardaginn 19.
september frá kl. 12.30-13.30. Nám-
skeiðið er þátttakendum að kostn-
aðarlausu. Skráning fer fram hjá
Natalíu Chow í síma 555 1295 og
-5551346.
Vetrarstarf
barna- og ung-
lingakórs Fella-
og Hólakirkju
BARNA- og unglingakór Fella- og
Hólakirkju mun hefja fímmta starfsár
sitt miðvikudaginn 9. september. Kór-
stjórar eru Lenka Mátéová organisti
og Þórdís Þórhallsdóttir tónmennta-
kennari. Kórinn starfai’ í tveimur
deildum og hefur þátttaka verið mjög
góð. Kórinn tekur reglulega þátt í
messuhaldi kirkjunnar og kemur
einnig Iram við önnur tækifæri. Þar
að auki er farið í tónleikaferðir, æf-
ingabúðir og þátttaka í kóramótum.
Innritun verður þriðjudaginn 8. sept-
ember kl. 16-18 í safnaðarheimilinu.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Snorri Óskarsson. Almenn samkoma
kl. 16.30. Ræðumaður Snorri
Óskarsson. Lofgjörðarhópur Fíla-
delfíu syngur. Allir hjartanlega vel-
komnir. Áth. breyttan samkomu-
tíma.
Topptilboð
Herraskór
Opið laugardag 10-16
Ath.: Nýir skór daglega ■ Póstsendum samdægurs
1 oppskórinn » VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
OP'Lda9
\^a A6
WHWSI
Mörkinni 6, sími 588 5518
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Opið bréf til
yfírstjórnar
Sjúkrahúss
Reykjavíkur
UNDIRRITAÐUR, Guð-
mundur Ingi Kristinsson,
óskar eftir því að yfir-
stjórn SHR svari eftirfar-
andi spurningum: Hvaða
starfandi læknar SHR
hafa unnið íyrir trygginga-
félög og hverjir eru trún-
aðarlæknar tryggingafé-
laga og þá fyrir hvaða fé-
lög starfa þeir? Ef einhver
starfar fyrir tryggingafé-
lag þarf hann þá að gera
grein fyrir þvi hvort hann
er að fara inn í sjúkraskrár
sjúklinga fyrir trygginga-
félag eða til lækninga? Og
á hvern hátt er hægt að
aðskilja þetta og hver
fylgist með því?
Mér var tjáð hjá SHR
að það þurfí leyfi til að
fara inn í gamlar sjúkra-
skrár. Það var farið inn í
mína sjúkraskrá hjá SHR
síðan 1981 og hún notuð
gegn mér til að valda mér
tjóni. Mig langar að vita
hver fór inn í sjúkra-
skrána mína og hver
heimilaði það og á hvaða
forsendum var það leyft?
Ber ekki yfirstjórn SHR
fulla ábyrgð á sjúkra-
skrám hjá Sjúkrahúsi
Reykjavíkur?
Á það fólk sem hefur
farið í rannsóknir eða
myndatökur hjá SHR á
hættu að læknar á vegum
SHR eða örorkunefndar-
læknai- geti notað þær til
að finna fáranlegan veik-
leika sem eiga að koma
ffam 12-18 árum síðar og
hafa af viðkomandi bætur.
(Þótt rannsóknir sýndu að
ekkert hafi verið að). Ef
læknar telja sig geta séð
leyndan veikleika, eins og
t.d. lömun (í gömlum rann-
sóknum, sem sýndu ekki
neitt) sem legið hefur í
leyni í 12 ár, eiga þá ekki
allir sem hafa farið í rann-
sóknir hjá SHR síðustu
t.d. 30 árin (þótt þær
sýndu að ekkert væri að) á
hættu að þær séu notaðar
gegn þeim til að koma í
veg fýrir löglegar slysa-
bætur?
í lögum um sjúkraskrár
segir: Sjúkraskrár skulu
geymdar á tryggum stað
og þess gætt að einungis
þeir starfsmenn er nauð-
synlega þurfa, hafi aðgang
að þeim. Hvaða nauðsyn
var fyrir hendi til að fara
inn í mína sjúkraskrá?
Svar óskast strax.
Guðmundur Ingi
Kristinsson.
Kt:140755-7299.
Tapað/fundið
Plastpoki týndist
á biðstöð
PLASTPOKI merktur Ey-
mundsson með skóladóti í
týndist seinnipart miðviku-
dags á strætisvagnabið-
stöð á Lækjartorgi/Hafn-
arstræti. Þeir sem hafa
orðið pokans varir hafi
samband við Atla í síma
568 3836.
Dökkblá leðuról
í óskilum
Á MENNINGARNÓTT
var skilin eftir dökkblá
leðuról hjá Ófeigi gull-
smiðju og listmunahúsi,
Skólavörðustíg 5. Upplýs-
ingar í síma 551 1161.
Blár páfagaukur
í óskilum
BLÁR páfagaukur er í
óskilum á Seilugi'anda.
Upplýsingar í síma
562 2202 eða 898 1061.
Dvergkanína óskar
eftir heimili
DVERGKANÍNA, blágrá,
óskar eftir heimili. Upplýs-
ingar í síma 562 0508 og
561 1885.
KÖTTURINN Snúður
er týndur.
Svört læða í óskilum
SVÖRT læða fannst við
Skógarhlíð 20, Karlakór
Reykjavikur. Læðan er
nýbúin að eignast kett-
linga. Þeir sem kannast við
læðuna hafi samband í
síma 892 3449.
KOTTURINN Snúður
týndist frá Álfhólsvegi 143
í Kópavogi sunnudaginn
23. ágúst. Hann er árs-
gamall og grábröndóttm',
eyrnamerktur (R 8103) og
var með rauða hálsól þeg-
ar hann hvarf. Upplýsing-
ar óskast í síma 564 2850.
SKAK
Ilnisjóu Margeir
l’élursson
STAÐAN kom upp á opna
bandaríska meistaramótinu
sem fram fór í Waikiki á
Hawai-eyjum í ágúst. Joel
Benjamin (2.595) hafði hvítt
og átti leik
gegn Eduard
Gufeld
(2.465).
30. Hxe4! -
fxe4 31.
De6+ - Kh8
32. Dxh6! -
Rf5 (Svartur
mátti ekki
þiggja
drottningar-
fómina. 32. -
gxh6 33.
RÍ7+ +
Kg8 34. Rh6
er sérlega
glæsilegt
mátstef!) 33.
Rg6+ - Kg8 34. Hxd5 og
svartur gafst upp.
Urslitin á mótinu urðu:
1.-2. Júdit Polgar, Ung-
verjalandi og Boris Gulko,
Bandaríkjunum 8 v. af 9
mögulegum, 3.-5. Rogers,
Ástralíu, Wojtkiewiez,
Bandaríkjunum og Shaked,
Bandaríkjunum 7‘A v.
o.s.frv.
HVÍTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkveiji skrifar...
ORÐATILTÆKI og orðaforði
hvers tungumáls mótast gjarn-
an af þeim veruleika, sem það fólk
býr við, sem talar málið. Þannig
segja menn að inúítar eigi fleiri
orð yfir snjó en aðrir jarðarbúar.
Víkverji áttaði sig á því þegar
hann var á ferð í Afríku fyrir
stuttu að íslenzk tunga dugar illa
til að lýsa veruleika þeirra, sem
búa við vötnin miklu í Afríku. Þar
er að finna menn, sem stundað
hafa fiskveiðar frá blautu barns-
beini en hafa til dæmis hvorki mig-
ið í saltan sjó né dýft hendi í kalt
vatn!
XXX
STUNDUM hræra menn saman
gömlum og nýjum, íslenzkum og
útlendum orðatiltækjum og fínnst
Víkverja yfírleitt fara illa á því.
Dæmi um slíkt er að fínna í máli
Kristins Péturssonar fískverkanda í
Morgunblaðinu í gær, þar sem hann
kallar það „að vera í rússneskri rúl-
lettu með fjöregg þjóðarinnar" að
geyma fiskinn í sjónum þegar auð-
velt sé að veiða hann. I þjóðsögun-
um var það nú yfirleitt þannig að
tröllin köstuðu fjöreggjunum, sem
varðveittu líf þein’a, á milli sín.
Ekki minnist Víkverji þess hins
vegar að þau hafi gert mikið af því
að halda marghleypu með einu skoti
að eggjunum, enda þekkja íslenzk
tröll tæplega slík tól.
xxx
F HVERJU geta íslendingar
ekki lært að ferðast með rúllu-
stiga? I öllum siðuðum löndum
standa menn hægi'a megin í stigan-
um og leyfa þeim, sem eru að flýta
sér, að komast fram úr sér vinstra
megin, svona rétt eins og ökumenn
eiga að gera í umferðinni. Á íslandi
stendur fólk hins vegar hist og her í
stigunum, gjarnan hlið við hlið eða í
hnapp í stað þess að fara í einfalda
röð hægra megin. Þeir sem vilja
ferðast hraðar komast engan veg-
inn framhjá. Hvernig væri nú að
t.d. forráðamenn Kringlunnar
tækju sig til og gæfu fólki réttar
leiðbeiningar um það hvernig nota
á rúllustiga?
XXX
VÍKVERJA finnst einkennilegt
að ekki skuli vera gönguljós á
Listabraut, á móts við Kringluna. í
hverfinu sunnan Listabrautar býr
mikið af eldri borgurum, sem eiga
oft erindi í verzlanamiðstöðina.
Þeir verða hins vegar að taka á sig
stóran krók til að eiga örugga leið
yfir götuna, þar sem jafnframt eru
fláar í gangstéttir fyrir t.d. inn-
kaupatöskur á hjólum og hjóla-
stóla. Gönguljós gætu án efa einnig
nýtzt því marga æskufólki, sem
stundar nám í Verzlunarskólanum
og Viðskiptaháskólanum og fara
því hagsmunir kynslóðanna saman
í þessu máli. Víkverji stingur upp á
að borgaryfirvöld geri eitthvað í
því.