Morgunblaðið - 05.09.1998, Síða 34

Morgunblaðið - 05.09.1998, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 IflKU IM MORGUNBLAÐIÐ ÚTI AÐ B0RÐA MEÐ GÉRARD IEMA RQ UIS Frökkum er ekki vel við að þj ást Heimsmeistarar Frakka í knattspyrnu -------7------------------- mæta Islendingum í kvöld. Gérard Lemarquis, sem Skapti Hallgrímsson bauð -----------------7 -------- í mat á Þrjá Frakka hjá Ulfari - nema hvað - segist and-sportisti, en fannst engu að síður mikið til um sigur sinna manna á HM; af þjóðfélagslegum ástæðum. Morgunblaðið/Jón Svavarsson GÉRARD Lemarquis gæðir sér á gellum á Þremur Frökkum. GÉRARD Lemarquis hefur búið á íslandi í 23 ár og segir sér líða einstaklega vel. Hann kennir frönsku í Háskóla Islands og Menntaskólanum við Hamrahlíð, og er að auki frétta- ritari AFP fréttastofunnar og þess kunna dagblaðs Le Monde. Eiginkona Gérards er María Gunnarsdóttir. „Hún sér um bóka- safnið í Valhúsaskóla á Seltjarnar- nesi,“ segii' hann. Þau eiga tvö börn saman, en áttu sitt hvort barnið fyrir. Það er þriðjudagskvöld en samt sem áður þétt setinn bekkurinn á veitingastaðnum. Hann er lítill og andrúmsloftið notalegt. Gérard borð- aði saltfisk kvöldið áður og pantar sér gellur. Blaðamaður snæddi hins vegar gellur kvöldið áður og pantar sér saltfisk. Hann: Pönnusteiktar gellur með grænmeti í rjómasósu og purpurahimnu, einsog rétturinn heit- ir á matseðlinum og kosta herlegheit- in 1.520 krónur. Eg: Pönnusteiktur saltfískur með tómat, ólífum og hvít- iauk, sem kostar 1.580 krónur. En fyrst er það forrétturinn. „Ég vil frekar forrétt en eftirrétt," segir Gérai'd og báðir panta ristaðan, rjómasoðinn hörpudisk. Rétturinn kostai- 920 krónur. „íslenska vatnið er yndislegt," seg- fr Frakkinn og fær sér vænan sopa, meðan við ræðum val á víni. Hann drekkur ekki hvítvín en rauðvín drekkui- Gérard Lemarquis á hverj- um einasta degi. Við pöntum rauð- vínsflösku, Torres Gran Coronas Reserva frá Penédas á Spáni, á 2.700 krónur. Franskt vín, Premier Cru frá Pommard í Bourgogne (Búrgúndý) var afar freistandi, en kostar 5.270. „Ég get ekki drukkið svona dýrt vín á veitingahúsi, af siðferðilegum ástæð- um. Mér líður hreinlega ekki vel að drekka vin sem kostar svona mikið,“ segir Gérard með sínum fallega, franska hreim. Hann er fæddur í París. Móðir hans einnig; á Mont- martre hæðinni en á ættir að rekja til Normandí. Faðir hans er hins vegar frá fjallahéruðum Austur-Frakklands. Gérai-d líkaði ekki vel á íslandi í upphafi. Spurður hve lengi hann hafi verið að venjast aðstæðum segir hann: „Það tók langan tíma...“, fær sér svo bita af hörpudiskinum og hugsar næsta leik. Nokkur tími líður, en segja má að þónokkur hluti viðtalsins hafi einmitt byggst á þögn. Maturinn reynist svo góður að við leyfum okkur að þegja um stund annað slagið og njóta hans. Frásögn af þögninni er hins vegar sleppt til að spara plássið í blaðinu. „... en núna líður mér mjög vel,“ segir Gérard eftir drykklanga stund. „íslendingar hafa alltaf verið forvitn- ir hvernig útlendingi líður hérna,“ segir hann svo og hlær. „Ég reyni að vera ekki of jákvæður, því Islending- ar eru nógu ánægðir, en heldur ekki of neikvæður núna, af því að veturinn nálgast. Ég reyni að fara milliveg.“ Forréttinum er best lýst með einu orði: yndislegur. En það hvarflaði aldrei að Gérard að snúa aftur heim til Frakklands. „Nei, nei. Ég er fjölskyldumaður og datt aldrei í hug að fara frá bömum mínum. Ég hef verið heppinn í lífinu og ekki haft neina ástæðu til að kvarta. Ég bý líka í fallegasta hverfi í Reykjavík, Grjótaþorpinu, og svo er- um við á hverju sumri í Frakklandi, öll fjölskyldan. í París, Normandí - þar sem foreldrar mínir eiga sumar- hús - eða annars staðar í landinu. Til dæmis í Suður-Frakklandi.“ Gérard og fjölskylda hans eru að sumu leyti frábrugðin þeirri venju- legu: „Við höfum valið að eiga ekki bíl. Búum í miðbænum og ég tek strætó og við notum peningana til að ferðast. Börnin okkar eru tvityngd og þess vegna erum við ekki með sjónvarp. Erum með myndbandstæki en létum gelda sjónvarpið!" segir hann og hlær. „Nei, við höfum aldrei verið með sjónvarp. Það talar bara ensku í sjónvarpinu. Bömin okkar horfa aðallega á franskar spólur og era því á milli tveggja menningar- heima. Ekki þriggja. Þetta má þó ekki túlka þannig að við séum að reyna að byggja einhverja múra.“ Aðah'éttimir era komnir á borðið og báðir smjöttum við af ánægju með þá. „Þetta er mjög gott,“ segir Gér- ard. Hann segist borða nokkuð oft á Þremur Frökkum, þá í hádeginu, og maturinn sé alltaf mjög góður. „Hér er allt ekta. Ekkert gervi. Þeh' nota smjör og rjóma. Ef ég fer út að borða vil ég gera mér dagamun; mér finnst allt í lagi að of margar kaloríur séu á diskinum. Ég er ekki nouvelle cuisine sinnaður; vil heldur borða kaloríumat en finna þrjár grænar baunir á disk- inum.“ Frakkar eru þekktir fyrir mikið hvítlauksát, og Gérard er þar engin undantekning. „Fyrst eftir að ég kom hugsaði ég stundum; Æ,æ,æ... ég á að kenna á morgun. Vegna þess hve mikinn hvítlauk ég hefði borðað. Síðan hef ég þrefaldað magnið og enginn kvartar yfir lykt> inni!“ Hann á ekki bíl sem fyrr greinir: „Ég drekk rauðvín á hverju kvöldi. Samkvæmt umferðarreglum mætti ég hvort sem er ekki nota bílinn eftir það. En við drekkum aldrei áfengi í hádeginu, ekki einu sinni um helgar. Bara með kvöldmat.“ Hann ólst upp við það í Frakklandi að drakkið var í hádeginu. „Jafnvel þegar ég var í menntaskóla, var drukkið rauðvín með matnum í mötu- neytinu." Nú hefur þetta reyndar breyst og áfengisdrykkja minnkað mjög mikið í Frakklandi, „kannski jafnvel of rnikið," segir hann, hristir hausinn, og bætir í rauðvínsglösin okkar. „Þetta unga fólk!“ segir hann svo, „það drekkur allt of mikið gos með matnum." Honum líst bersýni- lega ekki á þá þróun. Staðreyndin er samt sem áður að báðir afar Gérards og önnur amma hans drakku of mikið, að hans sögn. „Foreldrar mínir drukku ekki og gera ekki enn. Þegar ég kom til Is- lands drakk ég sjaldan en lærði hér að gimast áfengi, sem hafði aldrei verið neitt spennandi. Það tók mig 20 ár að sætta mig við ofdrykkju ömmu minnar og núna nýt ég þess að drekka rauðvín og ég vil að það sé partur af mínu daglega lífi.“ Þegar tahð berst að drykkjuvenj- um Islendinga kemur í ljós að Gérard hefur óvenjulegan skoðun á þeim. „Þetta er lítið þjóðfélag, mér finnst áfengismenning Islendinga fín og skal segja þér af hverju. Lítið þjóð- félag, hvað þá lítið þjóðfélag á eyju, hefur tilhneigingu til að vera óþol- andi. Þar er til- hneiging til að sér- trúarflokkar verði sterkir og siðferð- isreglur strangar. í litlu þjóðfélagi er hætta á að allir kafni og ég held að áfengismenning á íslandi sé ómeðvit- andi vöm á móti þessu. Þess vegna eru tvö kerfi; dag- legt kerfi og helg- arkerfi þar sem aðrar reglur gilda varðandi fram- komu. Og þetta er fínt; ég tel æskilegt að þessi áfengis- menning lifi, ásamt léttvínsmenningu. Fyllirísmenningin er útrás fyrir fólk- ið.“ Og svo minn- umst við á áfengis- verð hérlendis, einkum léttra vína. Gérard segir að vegna verðsins finnist honum rauðvín hvergi eins gott og á ís- landi. Flaska af rauðvíni sé ekki einsog hver önnur sem menn opni hugsunarlaust vegna þess að hún kosti varla neitt, einsog t.d. í Frakk- landi. „Og einasti bjórinn sem er góð- ur er bjórflaskan sem ég drekk á Keflavíkurflugvelli um morguninn á leið til Frakklands. En hann var enn- þá betri þegar bjórinn var bannað- ur!“ segir hann og hlær. Drekkur annars ekki bjór. Hann minnnist á píramída-snobb- isma sem hann kallar svo, varðandi vín. „Neðst, í stærsta hópnum, eru þeir sem vita ekkert um vín. Síðan þeir sem vita svolítið og era hræddir um að vera granaðir um að vita ekki nóg og efst era þeir sem þora að virða ekki reglurnar! Þær era þannig að drekka á hvítvín með ákveðnum mat og rauðvín með öðr- um, en í Frakklandi er það orðið snobbismi að drekka rauðvín með fiski. Ég geri það ekki vegna snobb- isma, heldur samkvæmt ráði læknis; hvítvín dregur B-vítamín úr líkama mínum.“ Hann segir Is- lendinga snobba miklu meira fyrir léttvíni en Frakk- ar. „Islendingum finnst það fínast sem þykir fínt annars staðar. í útlöndum, Frakk- landi nánar tiltek- ið, er snobbisminn hins vegar orðinn þannig að, tU dæmis varðandi vín, þykir fínast að þekkja bónda ein- hvers staðar sem framleiðir vín sem enginn hefur heyrt um. Láta vini sína drekka það en það er ekkert merki á flöskunni. Og í matarmenningu Frakka er það fín- asta ekki það sem er að finna í dýrasta veitinga- húsinu, heldur það sem er „ekta“; það sem fæst hjá bóndanum. Fær- ustu kokkar í Frakklandi gorta sig þess vegna af því að fara út á markaði að kaupa grænmeti, að klifra upp fjallið að tína jurtir; það snobbaðasta er í raun og veru sveitamenning. Hér hef ég á tU- finningunni að því dýrari sem flask- an er, því betri þyki hún, að ég tali nú ekki um ef Chateau stendur á henni að auki.“ Og svo er það maturinn: „Ef ég kaupi gott álegg á íslandi, stendur alltaf lúxus á þvi(!), en ef ég kaupi hráskinku í Frakklandi, stendur a1- veg einsog hjá ömmu í sveitinni. í sveitinni þykir púkó á Islandi," segir hann og er furðu lostinn! Rétt er að taka fram að matur- inn er sérlega góður. Og nú verða kaflaskipti í viðtalinu. Spurt er: Gérard, hefur þú gaman af fótbolta? „Ég ætla að fara á leikinn á þaugar- daginn,“ segir hann fyrst. „Ég hef fylgst með, vai' í Frakklandi á meðan heimsmeistarakeppnin var í sumar, og þótt ég sé and-sportisti sjálfur labba ég mikið og hef gaman af að synda. Ég hef hins vegar ekki gaman af keppnisíþróttum, en samt sem áð- ur var þetta tímabil í sumar mjög ánægjulegt sem þjóðfélagslegur at- burður. Hefur verið ofboðslega já- kvætt fyrir Frakkland. Blaðamaðm’ Le Monde skrifaði í þessari viku að sigur í heimsmeistarakeppninni hefði verið fyrir Frakka einsog Falklandseyjastríðið var Englend- ingum; sjálfstraust þjóðaiúnnai' jókst mikið. Undanfarin ár hefur Frakk- land þjáðst af efnahagskreppu og at- vinnuleysi. Nú eru æðstæður já- kvæðar. Allt á uppleið; atvinnuleysi minnkar og kaupmáttur hækkar. En það vantaði eitthvað meira og sigm- inn í HM var punkturinn yfir i-ið. Að þessu leyti var þetta mikilvægt. Ann- að atriði er að í þessu liði Frakklands eru menn af ýmsum þjóðernum; til dæmis frá Alsír og svertingjar. Það er ofboðslega mikilvægt fyrir Frakk- land,“ segir Gérard og leggur mikla áherslu á orð sín. „Þegar úrslitaleik- urinn fór fram var ég á götum París- ar, og veistu, að þegar ég sá unga Araba og svertingja...“ Hann þagnar og tárast. „... fyrirgefðu. Þegar ég sá Araba og svertinga kalla Lifí Frakkland varð ég svo stoltur. Le Pen [foringi Þjóðfylkingarinnar, hægri öfga- flokksins í Frakklandi], sagði ári áð- ur að leikmennimir í fótboltaliðinu kynnu ekki einu sinni að syngja þjóð- sönginn. Ég var á Champs Elysée þegar liðið kom, sá fána Alsírs þai' og það hefur aldi'ei gerst áður. Og það var engin andstaða við fánann. Mað- urinn er svo opinn og umburðai-lynd- ur sem sigurvegari. Sigurinn skipti því ótrúlega miklu máli fyrir þjóðfé- lagið. Ótrúlegu,“ segh' hann með áherslu. „Ég veit að þeir eru til sem era á móti samkeppni, en mér finnst þetta heimska og heilaþvottur," segir Gér- ard og vísar til stefnu Le Pens og fé- laga; sem eru á móti innflytjendum. Segja Frakkland fyrir Frakka. „Sumir skrifuðu að hefði Zinedine Zi- dane keyrt á gamla konu og drepið hana væri hann jafn hataður og hann er dáður núna,“ segir Gérard, en Zi- dane er ættaður frá Alsír. „Kannski er eitthvað til í því, en ég var mjög stoltur af þeim manni. I þýska liðinu era nær allir stórir og germanskir í útliti en í okkar liði voru menn sem eiga ættir að rekja í ýmsar áttir. Ég er stoltur af því.“ Lemai-quis segist raunar telja Frakka fremur lélega íþrótta- menn. „Hvers vegna? Þeir hafa ekki sérstaklega gaman af því að þjást og þá vantar aga. Til þess að verða bestur þarf ákveðna löngun til að þjást. En þegar samstaða er fyrir hendi eru þeir ofboðslega sterkir. Þegar handboltakeppnin var hér var franska liðið óþekkt í Frakklandi. Hingað komu engir blaðamenn nema fulltrúi fréttastofu minnar, AFP, fyrr en á lokadegi þegar ljóst var að Érakkar væru komnir í úrslit. Sam- staðan var mjög mikil í því liði og ástæða þess var að þeir fóra á fyllirí saman í miðbæ Reykjavíkur á hverju kvöldi. Saman.“ Gérai'd fer á völlinn í kvöld, sem fyrr segir, fyrir AFP. „Ég hef sent fréttir vegna leiksins en svo kemur maður frá fréttastofu til að vera á leiknum, þannig að mínu hlutverki er lokið nema kannski að laga kaffi fyr- ir hann.“ Þögn. „En,“ segir Gérard og brosir, skömmu áður en við stígum mettir upp og höldum út í kvöldið: „Ekki skflja það þannig að mér finnist fót- bolti skemmtilegur leikur. Ég tel Frakka almennt lélega íþróttamenn því þeir vilja ekki þjást, einsog ég sagði áðan.“ Og svo bætir hann við: „Hvenær era Frakkar góðir? Þegar hesturinn er góður. Þegar bfllinn er góður. Þegar báturinn er góður.“ Pönnusteikt- ur saltfiskur ÞESSI réttur er á matseðlinum á Þremur Frökkum hjá Úlfari. Upp- skriftin er fyrir fjóra. 800 gr. útvatnaður saltfiskur 4 sveppir 1 rauðlaukur 3 matskeiðar niðurskornar ólífur 1 hvítlauksrif, niðursaxað 1 dós niðursoðnir tómatar, maukaðir. Saltfiskurinn er skor- inn í fjóra hluta (einn á mann). Þerra þarf fiskinn og hon- um er velt upp úr hveiti. Bræð- ið smjörlíki á pönn- unni, sem þarf að vera orð- in heit áður en fiskurínn er sett- ur á hana. Sveppimir og rauðlaukur- inn sett útá eftir að fiskurinn hef- ur verið á pönn- unni í um það bil eina mín- útu. Snúið fiskinum við eft- ir tvær mínútur. Bætið síðan hvít- lauk og ólífum útí og lát- ið allt krauma smá- stund. Svo er tómatmauk- inu bætt við. Lát- ið sjóða í skamma stund. Yfir- leitt þarf ekki að bragðbæta rétt- inn því seltan kemur úr fiskin- um. Gott að bera fram með kart- öflum og grænmeti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.