Morgunblaðið - 05.09.1998, Page 36

Morgunblaðið - 05.09.1998, Page 36
36 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SALA HLUTABRÉFA í LANDSBANKA MEÐ SOLU hlutabréfa í Landsbanka íslands hf. til starfs- manna og almennings er fyrsta skrefið stigið í átt til einka- væðingar ríkisbankanna. í þessum fyrsta áfanga er lögð áherzla á, að gefa starfsmönnum bankans kost á að kaupa hlutabréf og jafnframt að gera hinum almenna borgara fært að eignast hluta- bréf í Landsbankanum. Þetta er ánægjuefni og í samræmi við þá áherzlu, sem ríkisstjórnin hefur lagt á dreifða eignaraðild að rík- isbönkunum við sölu þeirra. Ohætt er að fullyrða, að víðtæk samstaða er um þann þátt í stefnumörkun ríkisstjórnarinnar í bankamálum. Og full ástæða til að ræða frekar hugmyndir Da- víðs Oddssonar forsætisráðherra um að binda í lög ákveðnar takmarkanir um eignarhlut í bönkum. I öðrum löndum hefur það lengi tíðkazt, að starfsmenn ættu kost á að kaupa hlutabréf í fyrirtækjum á ákveðnu verði, sem hugsanlega gæti verið fyrir neðan markaðsverð viðkomandi fyr- irtækis. Þetta hefur m.a. verið aðferð til þess að tryggja starfs- fólki kaupauka, sem jafnframt byggðist á því hversu mikil vel- gengni fyrirtækisins væri. Þeim mun betur, sem rekstur fyrir- tækis gengur, þeim mun verðmætari verða hlutabréf starfs- manna. I umræðum um einkavæðingu hér hefur lengi verið rætt um, að eðlilegt væri að starfsfólk ríkisfyrirtækja ætti kost á að eign- ast hlutabréf í þeim fyrirtækjum í eigu ríkisins, sem ákvörðun væri tekin um að selja á almennum markaði. Eina álitamálið í þessu sambandi er, hvort eðlilegt sé og sanngjarnt, að starfsfólk fái tækifæri til að kaupa hlutabréf á lægra verði en bréfin eru seld á í almennri sölu. Ef Landsbanki íslands hf. væri í einka- eigu væri þetta ekkert álitamál. Þá gætu eigendur bankans ákveðið að umbuna starfsmönnum sínum með þessum hætti. Landsbankinn er hins vegar í ríkiseigu en í því felst, að hann er á þessari stundu eign þjóðarinnar allrar, jafnt starfsmanna bankans, sem annarra borgara. Er eðlilegt í slíku tilviki, að selja starfsmönnum bankans hlutabréf á lægra verði en öðrum? Það er hægt að finna rök bæði með og á móti slíkri ákvörðun. Rökin á móti eru einfaldlega þau, að allir landsmenn eigi að eiga jafnan rétt í þessu sambandi. Á hinn bóginn er líka hægt að segja, að á þessum tímamótum í sögu bankans, þegar hann þar að auki þarf á að halda samstilltum kröftum starfsmanna sinna allra sé ekki óeðlilegt að byggja inn í kjör starfsmanna hvatningu til þess að taka sameiginlega á til að rífa bankann upp úr þeirri lægð, sem hann hefur verið í af margvíslegum ástæðum. Áð minnsta kosti þarf að vera alveg ljóst, að sala á sérkjörum til starfsmanna sé lögleg. Það má enginn vafi leika á því, að svo sé. Hitt er alveg ljóst, að eftir að þessi ákvörðun hefur verið tekin hlýtur hið sama að eiga við um starfsmenn Búnaðarbanka ís- lands hf. og Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., Landssímann og fleiri ríkisfyrirtæki, sem væntanlega verða seld á næstu miss- erum og árum. En hvað sem þessum álitamálum líður er það fagnaðarefni að hreyfing er að komast á sölu ríkisbankanna. Þótt töluverðar sviptingar hafi orðið á undanförnum vikum um það, hvernig standa skuli að þeirri sölu er ekki ósennilegt, að hún muni að lokum ganga hraðar fyrir sig en talið hefur verið eftir að niður- staða ríkisstjórnarinnar lá fyrir. HVETJUM OKKAR MENN TIL DÁÐA HEIMSMEISTARAR FRAKKA í knattspyrnu munu leika gegn íslendingum í undankeppni Evrópumótsins á Laugar- dalsvelli í kvöld. Er þetta fyrsti leikur Frakkanna eftir að þeir unnu hinn frækilega sigur á Brasilíumönnum í úrslitaleik heims- meistaramótsins í júlí síðastliðnum. Ohætt er að segja, að þetta sé einn af mestu íþróttaviðburðum síðustu ára hér á landi enda hefur hann þegar vakið mikla athygli, bæði hérlendis og erlend- is. Guðjón Þórðarson, þjálfari íslenska liðsins, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að hann hefði enga ástæðu til að vera bjart- sýnn fyrir leik gegn heimsmeisturunum. Sagðist hann reyna að leggja kalt mat á stöðuna og vera raunsær án þess að vera nokk- uð skelkaður. Það er augljóst, að okkar menn munu eiga við ramman reip að draga en eins og sagt hefur verið þá getur allt gerst í knattspyrnu, ekki síst ef áhorfendur styðja vel við bakið á leikmönnum. Það er því rík ástæða fyrir áhorfendur til þess að liggja ekki á liði sínu og hvetja okkar menn til dáða. En hvernig svo sem fer á vellinum í kvöld þá verður heimsókn heimsmeistaranna alltaf ávinningur fyrir íslensku íþróttahreyf- inguna og íslensk ungmenni. Hér gefst tækifæri til þess að sjá það besta í vinsælustu íþrótt heims. Er því ekki úr vegi að óska áhorfendum góðrar skemmtunar um leið og landsliðinu er óskað góðs gengis. HVOR er hvað? Tveir leikmenn franska Iiðsins eru krúnurakaðir. Varn- armaðurinn Frank Leboeuf (t.v.) og markvörðurinn Fabien Barthez bíða eftir farangrinum á Keflavi'kurflugvelli. _ Morgunblaðið/Ái*ni Sæberg ANDRE Bisson er sérstakur kokkur franska landsliðsins og hefur verið sl. tíu ár. „Hvort sem það er í Frakklandi, á Islandi eða Japan, þá elda ég alltaf fyrir þá,“ segir Bisson. HEIMSMEISTARAR Frakka í knattspyrnu komu til Iandsins í gærmorgun. Vígalegir gengu þeir inn landganginn, allir eins klædd- ir, í dökkgráum jakkafötum, ljós- gráum skyrtum og með blá bindi. Liðinu fylgir stór hópur aðstoðar- manna, landslið leikmanna yngri en 21 árs, og fastir áhangendur, sem saman eru alls um 80 manns. Leikmennirnir voru hinir hressustu við komuna til Kefla- víkur í gær, spjölluðu við íjöl- miðla og gáfu eiginhandaráritan- ir. Að því búnu héldu þeir til há- degisverðar í Reykjavík og síðan var efnt til blaðamannafundar, en liðinu fylgir einnig mikill fjöhli franskra blaða- og fréttamanna. „Allir leikir eru erfiðir" Didier Deschamps fyrirliði liðs- ins sagði í samtali við Morgun- blaðið að mikilvægt væri fyrir lið- ið að vinna leikinn við íslendinga á morgun. Þetta væri fyrsti leikur þeirra í Evrópukeppninni og mik- ilvægt að byrja vel. Aðspurður hvort ekki væri erfitt að koma til keppni á ný eftir að hafa unnið heimsmeistaratitilinn í sumar sagði hann að heimsmeistara- keppnin væri að baki og liðið væri ekki að velta sér upp úr því sem væri liðið. Nú væru þeir að horfa fram á við og markmiðið væri að standa sig í Evrópukeppninni. Deschamps sagði að leikmenn franska liðsins hefðu kynnt sér vel íslenska liðið. Hann sagðist vita að liðið hefði tapað fáum leikjum, í því væri mikil barátta og það gæfíst ekki auðveldlega upp. „Allir leikir eru erfíðir, og þessi verður það líka,“ sagði Deschamps. Deschamps er eini leikmaður- inn í hópnum sem hefur áður komið til íslands, en hann Iék með franska liðinu á móti íslendingum á laugardalsvelli árið 1991. Að- spurður kvað hann sér líka ágæt- lega að spila á íslandi, en hann hefði því miður ekki séð mikið af Iandinu. „Það sem ég hef séð af landinu einkennist af mikilli víð- áttu. Þetta er ólíkt öllu sem þú sérð í Evrópu þar sem öllu hefur verið skipt niður, og alls staðar býr fólk. Hér eruð þið hins vegar svo fá í svo stóru landi að víðátt- urnar eru miklar og merkilegar." Miðvallarleikmaðurinn Youri Djorkaeff var afslappaður við komuna til Keflavíkur í gær. Hann sagðist hafa kynnt sér ís- Ienska liðið vel og sagði að leikur- inn væri ákaflega mikilvægur. „Við þurfum að vara okkur á ís- lendingum, það getur allt gerst,“ sagði Djorkaeff. „Það er mikil- vægt að byrja vel og íslenska liðið er sterkt. Við munum gera okkar besta eins og alltaf en maður veit aldrei hvernig fer.“ Markvörðurinn Fabien Barthez sagðist vera í fínu formi fyrir leik- SPJALLAÐ saman meðan beðið var e Christophe Dugarry, miðjumaðurinn inn Robert Pires spjalla við i MIKILL fjöldi franskra blaða- Heimsn Hafa o g Landslið heimsmeist- ara Frakka í knatt- sp.yrnu kom til ís- lands í gær og leikur síðdegis í dag við landslið íslands. — Ragna Sara Jónsdótt- ir fylgdist með komu liðsins og ræddi við nokkra leikmenn, þjálfara liðsins og kokkinn sem fylgir liðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.