Morgunblaðið - 05.09.1998, Síða 48

Morgunblaðið - 05.09.1998, Síða 48
-48 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR VIGDÍS ELÍSABET EINBJARNARDÓTTIR + Vigdís Elísabet Einbjarnardótt- ir var fædd 7. ágúst 1917 á Elliða í Stað- arsveit, Snæfells- nesi. Hún lést á Sjúkrahúsi Akra- ness hinn 81. ágúst siðastliðinn. Vigdís var húsfreyja á Ytri-Rauðaniel, Eyjahreppi, Hnappadalssýslu > frá 1940, síðar í Borgamesi. For- eldrar hennar voru hjónin Ragnheiður Guðrún Kristjánsdóttir, f. 30.8. 1883, á EUiða í Staðarsveit, d. 27.4. 1966 í Kópavogi og Ein- bjöm Þórðarson. f. 16.4. 1887 í Alftártungu, Álftaneshreppi, Mýrasýslu, d. 13.11. 1957 í Stykkishólmi, síðast bóndi í Straumfjarðartungu, Mikla- holtshreppi, Hnappadalssýslu. Einkabróðir Vigdísar er Álex- ander Eðvarð Einbjörnsson, f. 24.6. 1922. Búsettur í Kópavogi, kvæntur Helgu Bogadóttur. Fyrri maður Vigdísar var Jó- "V hannes Jóhannesson, f. 23.3. 1916, að Höfða í Eyjahreppi, Hnappadalssýslu, d. 29.7. 1949, bóndi á Ytri-Rauðamel í Eyja- hreppi frá 1940 til dánardags. Foreldrar hans vom hjónin Margrét Jóhanns- dóttir, f. 25.1. 1876, d. 1.4. 1950 í Borg- arnesi og Jóhannes Sumarliði Egilsson bóndi á Höfða, f. 25.10. 1886, d. 27.6. 1916. Fósturforeldr- ar Jóhannesar voru hjónin Ólöf Guðný Sveinbjarnardóttir og Gestur Guð- mundsson, bóndi á Ytri-Rauðamel. Börn Vigdísar og Jóhannesar: Hulda Bára, f. 19.7. 1940, húsfreyja í Kópavogi, og Þor- steinn Helgi, vélvirki í Borgar- nesi, f. 18.5. 1944, kvæntur Sv- anlaugu Vilhjálmsdóttur frá Ólafsfirði. Seinni maður Vigdís- ar var Stefán Sigurðsson, f. 6.3. 1910, í Einholtum, Hraunhreppi, bóndi á Ytri-Rauðamel, síðast í Borgarnesi. Lést á Sjúkrahúsi Akraness 18.8. 1988. Þeirra dóttir er Ragnheiður Einbjörg Stefánsdóttir, f. 14.8. 1960, hús- freyja í Borgarnesi, maður Skarphéðinn Gissuarson, kjöt- iðnaðarmaður í Borgarnesi. Barnaböm Vigdísar urðu 7 og langömmubömin 5. Vigdís verður kvödd frá Borgarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Hún Dísa er dáin, og ég sem ætl- aði alltaf að vera löngu búin að taka mig taki og fara oftar í heim- sókn, en maður heldur alltaf að það sé nægur tími. Hún sagði eitt sinn, komdu í Tfeimsókn til mín á meðan ég hef eitthvert vit og er sæmilega klár í kollinum, ég hef ekkert með það að gera þegar og ef ég er orðin elliær og komin út úr heiminum. Sem drengur var ég mörg sumur á Rauðamel og einnig þegar frí var í skóla, seinna var farið í leitir og til Skilafrestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- y dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, fostu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. rjúpna, þaðan á ég góðar minning- ar. Eg hef oft sagt og segi enn að ég var heppinn að fá að vera á Rauðamel. Þar var gott fólk og þar leið mér vel, með afa og ömmu (Gesti og Ólöfu), Dísu, Báru og Steina frænda. Að fá að kynnast gamla tíman- um, hvernig unnið var til sveita áð- ur fyrr, fara á hestvagni með mjólkina niður á veg þar sem Siggi Brynka tók hana og flutti í Borgar- nes, draga rakstrarvélina með hon- um Kvisti gamla, snúa smiðjunni fyrir afa þegar hann var að smíða skeifur eða hlusta á ömmu fara með vísur og þulur. Rauðimelur er kirkjustaður og á messudögum var öllum kirkjugest- um boðið í kaffi eins og þá tíðkað- ist, og þar fyrir utan var alltaf mjög gestkvæmt og auðvitað alltaf hlaðið borð af brauði og kökum. Já, ég man að mér fannst ótrúlegt biir- ið hennar Dísu, það var eins og það tæmdist aldrei. Það væri hægt að segja svo ótal margt en ég kveð þig nú með þessum sundurlausu orð- um og minnist þess best hve þú varst mér alltaf ljúf og góð. Þótt mikil vinna væri á oft mannmörgu heimili gafst tími fyrir bæði fræðslu og handavinnu. Ófáar peysur, sokka og vettlinga fékk ég gegnum tíðina. Dísa mín, ég þakka þér þann góða tíma sem ég átti með þér og bið guð að gæta þín. Báru, Steina, Heiðu, Alla og þeirra fjölskyldum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Björn Jóhannsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróöir, afi og langafi, GUÐMUNDUR JENSSON fyrrverandi yfirkennari, Grundargerði 7, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánu- daginn 7. september kl. 15.00. Sigríður Þorkelsdóttir, Brynja R. Guðmundsdóttir, Hafsteinn Skúlason, Elín Guðmundsdóttir, Magnús Jóhannsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Böðvar Magnússon, Skúli Jensson, Ólafur Jensson, barnabörn og barnabarnabörn. Pólitískt morð í höfuðstaðnum ERLEMIAR BÆKUR Spcnnusaga MORÐ f ÞINGHÚSINU „MURDER IN THE HOUSE“ eftir Margaret Truman. Fawcett Crest 1998. 344 síður. MARGARET Truman heitir bandarískur spennusagnahöfundur sem skrifað hefur á annan tug spennusagna sem flestar ef ekki allar gerast í Washington og segja af morðum sem framin eru við söfn eða stofnanir eða þekkt kennileiti í höfuðborg Bandaríkjanna. Heiti bókanna eru öll mjög svipuð; Morð í hæstarétti heitir ein, Morð í Kennedymiðstöðinni heitir önnur, Morð á Potomacánni sú þriðja og svo mætti áfram telja. Nýasta sag- an hennar heitir Morð í þinghúsinu og segir af því þegar þingmaður öldungadeildar Bandaríkjanna er drepinn framan við þinghúsið í Washington. Allt eru þetta póli- tískir samsæristryllar ef að líkum lætur og eitthvað er að marka Morð í þinghúsinu. En ef þær eru allar eins óspennandi og lélegar og þessi nýjasta er varla um áhuga- vert sögusafn að ræða. Þingmaður deyr Það er reyndar mjög vel til fund- ið hjá Margaret Truman, sem sjálf býr á Manhattan, að hafa höfiið- borgina Washington fyrir sögusvið í bókum sínum því hún býður auð- vitað uppá óendanlega möguleika fyrir þá sem vilja einbeita sér að pólitískum samsæristi'yllum þar sem hún er miðpunktur valdakerf- isins vestra. Truman virðist enda þekkja vel til innviða borgarinnar og starfsemi þingsins í þessu til- viki. En henni er fyrirmunað að skapa spennu eða persónur sem eru hið minnsta áhugaverðar. Þingmaðurinn Paul Latham er skotinn utan við þinghúsið í Wash- ington að nóttu til. Forsetinn hafði skipað hann næsta utanríkisráð- herra Bandaríkjanna þvi Latham þessi þótti klókur vel og var einn af vinum forsetans í ofanálag. Helsti stuðningsmaður hans var iðjuhöld- urinn Warren Brazier. Til þess að þakka fyrir stuðninginn hafði Lat- ham oft og tíðum komið í gegnum þingið frumvörpum sem hagstæð voru viðskiptabrasi Braziers. Br- azier þessi er að reyna að kaupa helstu orkufyiirtæki Rússa nú þeg- ar Sovétveldið er hrunið og þarf á stuðningi þingsins að halda. Eitt- hvað er hann með óhreint mjöl í pokahorninu og leyniþjónustan, CIA, fær einn af ráðgjöfum Lat- hams heitins, Mac Smith, ákaflega færan lögfræðing, til þess að hræra upp í Brazier og gera hann óróleg- an. Virðist það virka ágætlega því áður en hægt er að segja svo mikið sem Monica er höfiiðstaðurinn krökkur orðinn af rássneskum leigumorðingjum. Hvimleið spennusaga Söguþráðurinn er jafnvel enn meira óspennandi en þessi stutta samantekt gefur til kynna. Trum- an blandar rússnesku mafíunni í pólitísk átök í Washington með einstaklega ósannfærandi hætti og jafnvel hlægilega groddalegum. I upphafi sögunnar lýsir hún því hversu hroðalegir morðingjar eru á snærum rássnesku mafíunnar með því að láta einn aðalmanninn þeirra skjóta móður sína og þykja það bara fínt. Segir síðar í hlægi- legum samræðum um morðið að hann hafi elskað hana. Sumar setningar eru óskiljan- legar eins og: A meðan ég man, Rut segir að Marge hafi sagt Molly rétt fyrir morðið á Paul að Marge hafi sagt henni... Átta eða níu persónur sögunnar bera nöfn sem byrja á M (kannski ruglar það mann að hamborgarastaðurinn MacDonalds er nefndur á þriðju hverri síðu). Truman hefur sér- staklega gaman að því að telja upp nefndir og undirnefndir þingsins og stofnanir borgarinnar svo úr verður mikill og leiðinlegur hræri- grautur skammstafana og nefnda- heita. Sjálfsagt skipti þetta ekki máli ef maður hefði einhvern minnsta áhuga á sögunni en Truman tekst hvorki að gera hana áhugaverða né spennandi. I leiðindum sínum byrjar maður að telja mannanöfn- in. Segir líklega allt sem segja þarf um þennan hvimleiða pólitíska samsæristrylli. Kannski næsta spennusaga hennar geti heitið Morðið á MacDonalds. Arnaldur Indriðason Jóhannes og Olafur sýna á Húsavík Morgunblaðið. Húsavík. TVEIR ungir listamenn, Jóhann- es Dagsson frá Haga, (bróður- sonur Hrings) og Olafur Sveins- son, fæddur Reykvíkingur, en nú búsettur á Hjalteyri, opnuðu myndlistarsýningu, samsýningu, í Safnahúsinu á Húsavík, síðustu helgina í ágúst. Sýningin hefur vakið athygli og verið vel sótt. Listamennirnir hafa báðir lok- ið námi frá Myndlistaskóla Akureyrar og er þetta frumsýn- ing Jóhannesar, en hann stund- ar nú nám í heimspeki og bók- menntum við Háskóla íslands. En Olafur er orðinn þekktur, því þetta er 20. sýning hans, bæði norðan heiða og sunnan. Myndirnar eru málaðar með olíu- og akríllitum og fara ungu mennirnir ekki hefðbundnar leiðir eldri málara, þótt áhrifa þeirra megi finna frá þeim. Það einkennir flestar myndir þeirra beggja að konunnar gætir mjög í þeim og virðist konan í mynd- sköpun þeirra beggja skipa stórt hlutverk. Morgunblaðið/Silli JÓHANNES Dagsson, f.v., og Ólafur Sveinsson sýna málverk í Safna- húsinu á Húsavík. KVIKMYMUR Háskólabíó WASHINGTON SQUARE ★★ Leikstjóri: Agnieszka Holland. Hand- ritshöfundur: Carol Doyle eftir sögu Henry James. Aðalhlutverk: Jennifer Jason Lcigh, Ben Chaplin, Albert Finncy og Maggie Smith. Hollywood Pictures 1997. CATHERINE greyið er óskap- lega klunnaleg sem barn og ófríð sem ung kona. Hún dáir föður sinn lækninn, en hann hyggst gifta hana eldri ekkjumanni og þá getur hann rólegur dáið. En hið óhugsandi gerist. Ungur og fríður maður verður ástfanginn af Catherine, og þau vilja ólm rugla reytum saman. En hvaða reytum? spyr læknirninn sig, því ungi mað- urinn er bláfátækur, og hann bannar turtildúfunum að sjást. Ást í meinum Þetta er allt ósköp erfitt að horfa upp á, því Catherine er elskuleg stúlka og á vissan hátt heillandi í vilja sínum að þóknast öðrum. Jennifer Jason Leigh er frábær leikkona og henni tekst að gera aðalsöguhetjuna kómíska, aumkunarverða og sérlega sann- færandi um leið. Finney geislar af persónutöfrum sem læknirinn ákveðni, Maggie Smith er systir hans og fóstran hannar Kötu og Ben Chaplin leikur ástmöginn. Saman mynda þau skemmtilegan hóp öll að berjast um og við ást milli tveggja ungmenna. Eða hvað? Þegar líða tekur á myndina hætti ég eiginlega að skilja hvað var að gerast. Hvaða ráð voru fóstran og ástmögurinn að brugga saman? Elskaði hann Catherine eða bara stóra arfinn hennar? Margt er gefið í skyn sem ekki er gefið svar við og það gerir manni gramt í geði. Eg hef ekki lesið söguna sem handritið er byggt á. Henry James skrifaði nokkrar sögur um ungar ríkar konur, og náði skemmtilega vel að skilja sálarlíf þeirra. Jane Campion kom því ágætlega til skila í Portrait of a Lady, sem reyndar þótti írekar vælin mynd. Mér finnst hins vegar Agnieszka Holland ekki ná að skila tilfinningum Kötu misheppn- uðu né annarra persóna til áhorf- enda, og þá verður ekki annað sagt en að hún missi marks. Hildur Loftsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.