Morgunblaðið - 05.09.1998, Qupperneq 58
MORGUNBLAÐIÐ
-*'58 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1998
Dýraglens
Ljóska
Ferdinand
Andy and Olaf 5o,ofcourse,
never reached Mickey never
Mickey Mouse sent the limo.
on the phone.
1 mmm. ML.-. fétiikék
Kátur og Lubbi náðu Svo að Mikki sendi
aldrei í Mikka Mús í síma. auðvitað aldrei eðal-
vagninn.
]n the meantíme,
5pike was still
waitinq for them
out on tne desert.
Á meðan beið Sámur Þú ert hærri en ég...
ennþá eftir þeim úti í sérð þú einhvem?
eyðimörkinni.
t
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
„Hvað er hvurs og
hvurs er hvað?“
Frá Jóni K. Guðbergssyni:
ENN ER verið að minna þjóðina á
að ekki sé heppilegt að foreldrar
reyki á heimilum. Þá er hvatt til þess
að fækka sölustöðum tókbaks og
minnt á að neftókbak sé nánast bann-
vara á Islandi. (Og við sem erum á
móti öllum boðum og bönnum!) Þetta
eru að sjálfsögðu þarfar ábendingar
og þakkarverðar. Þá er hitt ekki síð-
ur þakkarvert að menn skuli ekki
vera að agnúast út í áfengisdrykkju á
heimilum. Það er náttúrlega ekkert
sérlega heilnæmt fyrii- börn að anda
að sér tóbaksreyk út úr foreldrum
sínum eða öðrum en hitt skiptir sjálf-
sagt minna máli að sömu foreldrar
veltist blindfullir um heimili sín,
mölvi húsgögn og fljúgist á. Mig rek-
ur þó ekki minni til að hafa heyrt
þess getið að böm kviðu helgum og
hátíðum vegna reykinga foreldra og
ekki mun aigengt að menn séu fluttir
í böndum af heimilum sínum þó að
þeir taki duglega í nefíð.
Það er flestum Ijóst að til að draga
úr tóbaksnotkun er gott ráð að fækka
sölustöðum sem mest. Hins vegar
gilda náttúrulega allt önnur lögmál
um áfengi. Það er best að sjoppu-
greifamir planti niður íyrirtækjum
sínum sem víðast og fái að selja vam-
ing sinn allan sólarhringinn. Ráða-
menn hafa nefnilega séð af hyggjuviti
sínu margrómuðu að það er ekki
drykkjufólk sem fer með ópum og of-
beldi um borgina um nætur, hægir
sér til baks og kviðar á götum og í
görðum og skilur þannig við miðborg-
ina að það þarf her manns til að þrífa
ósómann áður en sómakært fólk fer á
stjá. Það em náttúrlega reykinga-
menn sem þannig haga sér og þeirra
em neftóbakskarlar verstir. Þess
vegna má setja hömlur á neftóbak en
þeir ráðvöndu og heiðarlegu menn,
sem áfengið selja, skulu hafa sitt
frelsi óheft og ekki skal amast við því
að þeir selji vöm sína hvar sem er,
hvenær sem er og hverjum sem er.
JÓN K. GUÐBERGSSON,
Máshóium 6, Reykjavík.
Opið bréf til banka-
stj órnar Lands-
banka Islands
Frá Hreggviði Jónssyni:
í GREIN minni hér í Morgunblaðinu
„Dánarbú ríkisbankanna og skipta-
ráðendur þeiiTa“, var meðal annars
fjallað um Landsbanka Islands og
SE-bankann. Þar var tæpt á því að
Steingrímur Hermannsson seðla-
bankastjóri gæti hafa verið hinn dul-
arfulli milligöngumaður í þessu máli.
Hann hefur nú borið þetta til baka í
Velvakanda hér í blaðinu og er hann
beðinn velvii-ðingar á þessum orðum,
en mætur maður sagði mér.
1 framhaldi af svari Seðlabanka-
stjórans fer ég opinberlega fram á
það við bankaráð Landsbanka Is-
lands að það upplýsi eftirfarandi:
1) Hver var milligöngumaðurinn,
sem bauð Landsbanka Islands, SE-
bankanum til kaups?
2) Hver fyrirskipaði og leyfði, að
SE-mennirnir fengju að skoða innri
viðskipti Landsbanka íslands?
Astæður þessarar fyrirspurnar
minnar eru augljósar. Þjóðin á rétt á
því að fá að vita, hver hefur svo mik-
il völd í þjóðfélaginu, að hann geti
greitt leið erlendra manna beina leið
að innstu hliðum Landsbanka Is-
lands, án þess að hósta eða stuna
heyrist frá hinu margfræga banka-
ráði. Ríkisendurskoðun hefur að
minnsta kosti orðið að bíða bljúg við
hlið Landsbanka Islands, til að fá
upplýsingar, sem þó má telja smá-
ræði hjá þeim hagsmunum, sem hér
eru í húfi.
HREGGVIÐUR JÓNSSON,
fyrrveranndi þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Yfírlýsing
Frá Sjávarnytjum:
í TILEFNI fréttafiutnings af ítrek-
uðum hótunum vegna fyrirhugaðrar
komu háhyrningsins „Keikós" til Is-
lands, vilja Sjávarnytjar koma eftir-
farandi á framfæri:
Samkvæmt fréttum að undan-
förnu hefur óþekktur aðili enn á ný
hótað því að drepa háhyrninginn
„Keikó“ eftir að hann kemur til Is-
lands síðar í þessum mánuði. „Rétt-
lætir“ hann það ætlunarverk sitt
með því að koma hvalsins hingað til
lands skaði hagsmuni Islendinga af
hvalveiðum.
Af þessu tilefni vilja Sjávarnytjar
taka fram það álit samtakanna, að
þeim hagsmunum er ekki stefnt í
voða með komu háhymingsins, enda
geta hvalveiðar og hvalaskoðun farið
saman hér á landi, eins og í Noregi.
A það jafnt við, hvort sem skepnan
er villt eða tamin, og haldið fanginni
í sjókví, eins og raunin verður með
téðan háhyrning.
Sjávarnytjar harma að reynt sé
að sverta jafn ágætan málstað og
hvalveiðar Islendinga eru með þess-
um hætti og benda á að honum sé
síst unnið gagn með ósmekklegum
hótunum af þessu tagi.
Jafnframt vilja Sjávarnytjar lýsa
þeirri skoðun sinni að sá, sem sendir
frá sér slíkar hótanir sem hér um
ræðir, gangi vart heill til skógar, eða
eigi sér annan málstað kærari en
þann að hvalveiðar hefjist við Island
á nýjan leik.
JÓN GUNNARSSON,
formaður Sjávarnytja.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.