Morgunblaðið - 24.09.1998, Page 1

Morgunblaðið - 24.09.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913 216. TBL. 86. ÁEG. Erik Ásbrink Ylva Johansson Ráðherra- ástir í Svíþjóð Stokkhólmi. Reuters. YLVA Johansson, menntamála- ráðherra Svíþjóðar, og Erik Ás- brink fjármálaráðherra til- kynntu í gær að þau væru ást- fangin og hygðust skilja við maka sína til að geta verið sam- an. Ekki er vitað hvort þessi yf- irlýsing hefur áhrif á skipan ríkisstjórnarinnar, en breyting- ar á henni standa fyrir dyrum í kjölfar nýafstaðinna kosninga. Sögusagnir höfðu verið á kreiki um að ráðherrarnir ættu í ástarsambandi og í yfirlýsingu sinni í gær sögðust Johansson og Ásbrink vilja staðfesta það að þau væru ástfangin. Þau hygðust hins vegar ekki hefja sambúð að svo stöddu. Ásbrink er þriggja barna fað- ir en Johansson á tvö börn. Bandaríkin Líkur á vaxta- lækkun Washington. Reuters. ALAN Greenspan, seðla- bankastjóri Bandaríkjanna, sagði á fundi með fjárlaga- nefnd öldungadeildar þingsins í gær að fjármálaumrótið í heiminum væri meira en nóg til að stemma stigu við verð- bólgu í Bandaríkjunum. Um- mæli hans voru túlkuð sem vísbending um að hann væri að íhuga vaxtalækkun. Greenspan sagði að efna- hagsástandið hefði versnað verulega frá síðasta stjórnar- fundi seðlabankans 18. ágúst og lagði áherslu á að stjómvöld þyrftu að vera á varðbergi vegna vísbendinga um frekari efnahagssamdrátt í heiminum. Ummæli hans kyntu undii’ vangaveltum um að stjóm seðlabankans myndi ákveða vaxtalækkun á fundi sínum 29. september. Gengi verðbréfa hækkaði verulega í kauphöll- inni í New York vegna um- mæla seðlabankastjórans. Seðlabankinn hefur verið tregur til að lækka vextina af ótta við að það valdi verðbólgu sem skapi meiri hættu fyrir efnahaginn en áhrifín af efna- hagssamdrættinum í heimin- um. Vextimir hafa verið óbreyttir frá því í mars á liðnu ári. FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Gerhard Schröder segir Þýskaland þarfnast nútímalegs stjórnanda Kohl útilokar ekki „stóru samsteypu“ Ludwigshaven. Morg^inblaðið. HELMUT Kohl, kanslai'i Þýska- lands, lét í fyrsta sinn í gær, fjórum dögum fyrir kosningar til Sambands- þingsins, þau orð falla að stjórnar- samstarf Kiástilegra demókrata (CDU) og Jafnaðarmannaflokksins (SPD) - svokölluð „stóra samsteypa" - kæmi tíl greina. Fram til þessa hafði kanslarinn svarað spurningum um þetta aðeins á þá leið, að af slíkri stjórn yi’ði ekki. I viðtali við sjónvarpsstöðina ZDF, sem sent var út í gærkvöldi, sagði Kohl að „stóra samsteypa" væri „að sjálfsögðu möguleg", þar sem lýð- ræðissinnar yrðu að geta starfað saman. Nauðsyn á myndun slíkrar stjórnai’, sem hann hefur ítrekað lýst yfir að hann muni sjálfur ekki koma nálægt, sæi hann hins vegar ekki. I öðru viðtali sem birtist í tímarit- inu Wirtschaftswoche sakaði Kohl Gerhard Schröder kanslaraefni SPD um skort á einlægni í félagslegum málefnum. En Schröder lagði í ræðu sem hann hélt á fjölsóttum kosninga- fundi í Ludwigshaven í gærkvöldi mesta áherslu á að núverandi að- stæður í Þýskalandi krefðust þess af stjómendum þess að þeir væru í takt við tímann og hæfír til að takast á við vandamál 21. aldarinnar. Eftir 16 ára valdatíma Kohls ætti þetta ekki leng- ur við hann og stjóm hans en þýskir jafnaðarmenn væru fulltrúar þessara dyggða auk félagslegs réttlætis. Efnislega gengur megináhersla kosningabaráttu SPD út á að Kohl- stjórnin hafi á valdatíma sínum auk- ið félagslegt óréttlæti og standi nú fyrir stöðnun sem einungis ný stjórn skipuð nýju fólki geti komið Þýska- landi út úr. En hvort nógu margir kjósendur sannfærast um þetta er með öllu óljóst þótt nýjustu skoðana- kannanir sýni að enn haldi SPD fylg- isforskoti sínu á CDU. Þetta kom líka berlega fram í máli ungra þýskra kjósenda sem Morgunblaðið innti álits að loknum kosningafund- inum í Ludwigshaven í gærkvöldi. Þeim þótti boðskapur Schröders innihaldsrýr en það sama ætti við um andstæðinga hans og því voru þeir enn óákveðnir í því hvernig þeir myndu verja atkvæði sínu. Reuters GERHARD Schröder, kanslaraefni Jafnaðarmannaflokksins í Þýska- landi, við upphaf kosningafundar í Ludwigshaven í gærkvöldi. Clinton reynir að semja um málshöfðunarferli við þingið Gingrich hafnar sam- komulagi um ávítur Washington. Reuters. Reuters NEWT Gingricli, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, ræðir við fréttamenn í þinghúsinu í gær. NEWT Gingrich, forseti fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings, hafnaði því í gær að þingið gengi án tafar til samninga við Bill Clinton, forseta, svo að komist yrði hjá málshöfðun á hendur honum en e.t.v. samþykktar á hann vítur. Dick Gephardt, leið- togi demókrata á þingi, lýsti áhyggjum sínum af því að repúblík- anar drægju málið á langinn. Hann vill að flokkarnir ákveði að máls- höfðunarferlinu verði lokið innan eins til tveggja mánaða. „Það er útilokað að slá nokkru fóstu fyrr en við ljúkum rannsókn málsins," sagði Gingrich við frétta- menn að loknum fundi með leiðtog- um demókrata um stöðu rannsókn- arinnar á Bandaríkjaforseta. „I nafni þjóðarhagsmuna, barna- heillar og með hina gífurlegu fjöl- miðlaumfjöllun í huga, þá þarf ekki einungis að gæta þess að farið sé að lögum, heldur einnig að það sé gert með hraði,“ sagði Gephardt við fréttamenn í Washington í gær. Bandamenn Clintons freista þess að ná samkomulagi við Bandaríkja- þing um að það láti sér nægja að samþykkja vítur á forsetann, og e.t.v. fjársekt, en höfði ekki mál til embættismissis gegn honum, viður- kenni hann að hafa ekki sagt fylli- lega rétt frá sambandi sínu við Monicu Lewinsky í vitnisburði sín- um í Paulu Jones-málinu. Repúblikanar þrýsta hins vegar fast á um að hafnar verði umræður um ákæru á hendur forsetanum. „Embættið niðurlægt" Jimmy Carter, fyrrverandi for- seti Bandaríkjanna, sagðist á þriðjudag harma framferði Clint- ons, sem honum þætti mjög vand- ræðalegt. Carter lét þessi orð falla í Emory-háskólanum en hann hefur ekki tjáð sig áður opinberlega um málið. Hann spáði því að málshöfð- un til embættismissis Clintons yrði samþykkt í fulltrúadeild Banda- ríkjaþings en felld í öldungadeild- inni. George Bush, sem tapaði fyrir Clinton í forsetakosningunum 1992, sagði í viðtali á sjónvarpsstöðinni NBC að hann vildi ekki taka þátt í að gagnrýna forsetann en bætti þó við: „Því miður, held ég að úr því sem komið er, hafi það [embætti forseta] verið niðurlægt." • • Orysföfisráð SÞ krefst vopnahlés í Kosovo Sameinuðu þjóðunum. Rcuters, The Daily Telegraph. ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð- anna samþykkti í gærkvöldi ályktun þar sem þess var krafist að komið yi’ði á vopnahléi í Kosovo og hafnar yrðu viðræður um friðsamlega lausn deilunnar um héraðið. Tillag- an hlaut fjórtán atkvæði af fimmtán í öryggisráðinu, en Kína sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Búist var við að Atlantshafsbandalagið (NATO) fylgdi henni eftir í dag með hótun um loftárásir hættu serbneskar ör- yggissveitir ekki hernaðaraðgerð- um sínum í héraðinu. ígor ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, hefur varað við því að slík hernaðaríhlut- un af hálfu NATO geti leitt til „stór- styrjaldar" í Evrópu. I ályktun öryggisráðsins segir að það myndi „íhuga frekari aðgerðir og viðbótarráðstafanir til að við- halda eða koma á friði og stöðug- leika“ í Kosovo. Bandarísk stjórn- völd líta svo á að ályktunin greiði fyrir hernaðaríhlutun til að binda enda á átökin í Kosovo. Sergej Lavrov, sendiherra Rúss- lands, sagði hins vegar að í ályktun- inni væri „ekkert sem heimilar valdbeitingu". Rússneski utanríkis- ráðherrann sagði á allsherjarþingi SÞ að hernaðaríhlutun af hálfu NATO gæti „leitt til stórstyrjaldar sem hefði ófyrirsjáanlegar afleið- ingar fyrir Balkanskaga og alla Evrópu".

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.