Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 56
- 56 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ KIRKJUSTARF I DAG Háteigskirkja Safnaðarstarf Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 14-17. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun, altaris- ganga. Léttur málsverður í safnað- arheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Kvöldsöngur með taizé-tónlist kl. 21. Kyrrð, íhugun, endurnæring. Allir velkomnir. Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Orgeltónlist frá kl. 12. Léttur málsverður að stundinni lokinni. Samvera eldri borgara kl. 14 í umsjá sóknarprests og þjón- ustuhóps kirkjunnar. Breiðholtskirkja. Mömmumorg- unn á föstudögum ki. 10-12. Digraneskirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Bænarefnum má koma til sóknarprests eða kirkjuvarðar, einnig má setja bænarefni í bæna- kassa í anddyri kirkjunnar. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11-12 ára kl. 16. Grafarvogskirkja. Mömmumorgn- ar kl. 10. Dagskráin í vetur verður fjölbreytt og boðið upp á áhuga- verða fyrirlestra og skemmtilegar samverustundir. Æskulýðsfélagið, 10. bekkur kl. 20-22. Kópavogskirkja. Starf eldri borg- ara í dag kl. 14-16 í safnaðarheim- ilinu Borgum. Kyrrðar- og bæna- stund í dag kl. 18. Fyrirbænaefn- um má koma til prests eða kirkju- varðar. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10-12 ára böm frá kl. 17-18.30 í safnaðarheimilinu, Linn- etstíg 6. Æskulýðsfundur kl. 20-22. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 22, kaffi og létt meðlæti á eftir. Viðistaðakirkja. Foreldramorgunn milli kl. 10 og 12. Opið hús fyrir 10-12 ára böm kl. 17-18.30. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Fyrirbænaefnum skal komið á framfæri við sóknarprest á viðtalstíma hans í safnaðarheimil- inu (sími 431-3290). Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Bænastund kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir. Landakirkja Vestmannaeyjum. Opið hús unglinga í KFUM og K- húsinu. Fríkirkjan Vegurinn. Konukvöld: Föstudaginn 25. sept. kl. 20.30 verður „dekurkvöld" fyrir konur í Fríkirkjunni Veginum. Allar konur velkomnar. Karlamorgunn: Laug- ardaginn 26. september kl. 10 verður svo karlastarfið með sinn mánaðarlega fund. Allir karlar vel- komnir. Hjálpræðisherinn. í kvöld kl. 20.30 ísraelssamkoma. Ólafur Jóhanns- son sýnir skuggamyndir frá Israel. Allir hjartanlega velkomnir. VELVAKANPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Af hverjum er myndin? GUNNAR hafði samband við Velvakanda og bað um birt- ingu á myndum af ættingjum sínum. Ef einhver þekkir fólkið á þessum myndum þá vmsamlega hafið samband við: Gunnar Jakobsen, Botngaten 24, 5500 Haugesund, Norge. ísland í dag ÉG ER vön að horfa alltaf á Island í dag, þættina hjá Stöð 2, en ég get bara ekki stillt mig um að skrifa og spyrja forsvarsmenn þátt- anna hvort þeir hafí nú ekki gengið of langt und- anfarið. Oft og mörgum sinnum hafa þeir sýnt efni sem mér finnst alls ekki hæfa á þessum tíma dags- ins þar sem börn eru gjaman framan við sjón- varpið, t.d. fyrir nokkru þegar þeir sýndu frá nekt- ardansklúbbi í borginni og þar var ekkert verið að klippa filmuna. Svo núna voru hrossin á fullu og sem fyrri daginn var allt sýnt og ekki nóg með það held- ur spyr Þorsteinn J. hvort hann hafi verið að „fá það“! Daginn eftir var Svavar Örn að velta fyrir sér brjóstastækkunum og segist aldrei hafa „káfað á svona brjóstum áður“ sem i hans tilfelli er sennilega rétt, en alveg óþarfi að segja svona fyrir framan heila þjóð! Hvað næst?! Þeir hafa áður sýnt sköpun konunnar þannig að nú er sennilega komið að körlun- um! Eru þeir kynóðir eða með kynlíf á heilanum þessir starfsmenn á Stöð 2? Ef þeir telji sig nauð- synlega þm-fa að koma þess konar efni írá sér, geta þeir þá ekki haft þetta í lok 22.30 ft-éttanna þegar börnin eru þá von- andi farin í rúmið? Þar sem ég er nú þegar að kvarta undan Stöð 2, langar mig að athuga hvort ekki megi fara að hvíla þá Jón Arsæl og Þor- stein J. Mér finnst þeir al- veg rosalegir egóistar og yrði fegin að fá einhverja pásu frá þeim. Nú undi'ast eflaust margir hvers vegna ég bara sleppi ekki að horfa á ísland í dag fyrst þetta fer svona fyrir brjóstið á mér, en málið er að mér hefur oft þótt gam- an að þáttunum og fylgist þar af leiðandi með til að sjá um hvað er fjallað, en eins og ég segi finnst mér þeta hafa gengið of langt undanfarið. Mergur máls- ins er, að íslenskt þjóðfé- lag hefur upp á margt ann- að að bjóða en það sem ís- land í dag hefur verið að sýna landsmönnum undan- farið. Með þökk fyrir bút- inguna. Áhorfandi. Tapað/fundið Gleraug'u í óskilum GLERAUGU í svörtu hulstri fundust hjá Vall- hólma í Kópavogi um miðj- an september. Upplýsing- ar í síma 554 3465. Dýrahald Svartur skógar- köttur týndist SVARTUR skógarköttur (læða) týndist í Vestur- bænum sl. sunnudag. Hún er ómerkt og ólarlaus. Þeii- sem hafa orðið hennar var- ir hafi samband í síma 552 8337 eða 699 3969. Kettlingur óskast ÓSKUM eftir kettlingi, annaðhvort hreim’æktuð- um a.m.k. að hálfu leyti, persneskum, helst tveggja mánaða, á gott heimili í Reykjavík. Upplýsingar í síma 551 3162. SKAK llmsjón Margeir Pétnrsson ÞEIR Gary Kasparov (2.815) og Jan Tiniman (2.655) háðu nýlega sex skáka einvígi í Prag í Tékk- landi. Þessi staða kom upp í þriðju skákinni. Kasparov hafði hvitt og átti leik: 20. c4! - Bc6 21. Hxd7! - Bxd7 22. Rxf6+ - Kg7 23. Rxd7 - ffi 24. Ke2 - Hc8 25. Hcl - Hc7 26. Rb8 og Timman gafst upp. Kasparov sigraði mjög ör- ugglega í einvíginu, með fjór- um vinningum gegn tveimur. Haustmót Taflfélags Reykjavíkur hefst á sunnu- daginn, 27. september. Teflt er á sunnudögum kl. 14-18.30 og miðvikudags- og föstu- dagskvöldum frá kl. 19.30-24. Keppendum er skipt í riðla með tilliti til styrkleika. Verðlaun í A flokki eru 60 þús., 35 þús. og 20 þús. Mótið er öllum opið og skráning stendur yfir í síma TR 568-1690. Lokaskráning er á laugardaginn til kl. 20. Einnig er hægt að skrá sig með tölvupósti til rz@itn.is. HVÍTUR leikur og vinnur. Víkverji skrifar... ARSSKYRSLA Háskóla Islands fyrir árið 1997 kom nýlega fyrir augu Víkverja, myndarlegt 64 síðna rit þar sem víða er komið við. At- hyglisvert er að lesa kafla um fjölg- un nema við HÍ, en undir millifyrir- sögninni „Vaxandi fjöldi" segir svo meðal annars: „Hin síðari ár hefur aðsókn að Háskólanum aukist mikið. Fjöldi nemenda hefur fimmfaldast á þrem- ur áratugum og mun vaxa enn frek- ar þegar til lengri tíma er litið, þótt hægt hafi á vextinum hin síðari ár. Aðstæður sem áhrif hafa á aðsókn hafa tekið miklum breytingum sl. 30 ár, framhaldsskólum sem útskrifa stúdenta hefur fjölgað úr fjórum í 26 og háskólum hefur einnig fjölg- að. Hins vegar taka þeir flestir tak- markaðan fjölda inn og námssætum í þeim hefur ekki fjölgað í neinu hlutfalli við vaxandi íjölda þeirra sem brautskrást með stúdentspróf. Hlutfall þeirra sem ljúka stúd- entsprófí af hverjum fæðingarár- gangi hefur farið stigvaxandi og nálgast nú 40%. Hlutfall kvenna sem lýkur stúdentsprófi er hærra en karla eða um 50% og teljast þær nú um 56-57% af stúdentum Há- skólans - urðu í fyrsta skipti fleiri en karlar 1986. xxx NOKKRU síðar í skýrslunni er fjallað um virkni stúdenta og dreifingu í námsgreinar og þar seg- ir: „Frá árinu 1988 hefur stúdentum við Háskólann fjölgað úr 4.294 í 5.826 háskólaárið 1996-1997. Virkni þeirra er um 70%, en með virkni er átt við hversu stór hluti stúdenta skilar fullu námi ár hvert. Þannig var hlutfall virkra nemenda 67% af heildarfjölda árið 1988 og 70% árið 1996.“ I kafla um kennsluhúsnæði segir meðal annars: „Hin öra fjölgun stúdenta hefer kallað á aukið kennsluhúsnæði. Tekist hefur með herkjum að hýsa kennsluna en ljóst er að hinn þröngi stakkur hús- næðis sem kennslunni er víða snið- inn hefur áhrif til hins verra á kennslu og nám svo og vinnutíma kennara og stúdenta. Stundatöflur einstakra hópa eru tíðum sundur- slitnar og kennsla sett í óhentugt húsnæði eða nánast óviðunandi. Þá er með naumindum unnt að koma skriflegum prófum fyrir á próf- tímabilum, einkum í desember, og hefur þessi skortur húsnæðis iðu- lega áhrif á próftöflur nemenda til hins verra.“ Loks er gripið niður í málsgrein um kennslu í lokakafla skýrslunnar, en þar segir: „Rekstur Háskóla ís- lands á árinu 1997 varð erfiðari en áður vegna þeirrar þenslu, sem er í efnahagslífi landsins. Háskólinn hefur átt erfitt með að greiða laun sem eru sambærileg við það sem aðrar stofnanir í ríkiskerfinu og hinn frjálsi vinnumarkaður greiðir fyrir vel menntað starfsfólk. Kenn- arar í lykilgreinum eins og tölvun- arfræði hafa hætt vegna bágra launa og erfiðlega gengur að ráða í aðrar stöður svo sem viðskiptafræði og sjúkraþjálfun.“ xxx * AFUNDI í Noregi nýlega hafði Norðmaður sem skrifari ræddi við orð á því hversu vakandi ís- lendingar væru fyi'ir vernd tungu- málsins. Þeir gættu sérstaklega vel að því að því að finna íslensk orð yfir hugtök sem tilheyrðu nýrri tækni. Nefndi maðurinn sem dæmi að á fundi fyrir nokkrum árum hefði norskur ræðumaður á ráðstefnu notað orðið „transparent" um glærur. íslendingur, sem lengi hef- ur búið í Noregi, gerði athugasemd við orðavalið, og benti ræðumanni á að Norðmenn ættu orðið „lysark", sem væri norskt og miklu betra. Hann sagði að Norðmenn ættu að sjá sóma sinn í að halda málinu hreinu þar sem þess væri framast kostur. Fleiri dæmi sagðist viðmælandi Víkverja geta nefnt um árvekni ís- lendinga. Það væri líka eins gott að einhverjir væru vakandi og sagði að Norðmenn mættu taka sig á í þess- um efnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.