Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 53 L FRÉTTIR Nýr framkvæmda- stjóri Gídeonfélagsins FRAMKVÆMDASTJÓRASKIPTI hafa farið fram hjá Gídeonfélaginu á Islandi. Sigurbjöm Þorkelsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri félagsins sl. 12 ár, hefur verið kallaður til, og hafið störf frá 1. ágúst sl., sem framkvæmdastjóri KFUM og KFUK í Reykjavík. Hinn nýi framkvæmdastjóri Gídeonfé- lagsins heitir Jogvan Purkhus. Hann er Færeyingur að uppruna, en hefur búið á Is- landi í yfir þrjátíu ár og verið liðsmaður Gídeonfélagsins í yfir tuttugu ár. Jogvan bjó lengst af á Akureyri eftir að hann flutti til íslands, en hefur verið búsettur í Reykjavík sl. tvö ár. Gídeonfélagið var stofnað í Bandaríkjun- um árið 1899, _og verður félagið því 100 ára á næsta ári. ísland var þriðja landið, þar sem Gídeonfélag var stofnað, árið 1945, en í dag starfar félagið í 172 löndum. Sigurbjörn Þorkelsson fráfarandi fram- kvæmdastjóri félagsins var beðinn að segja frá Gídeonfélaginu og starfi þess á þessum tímamótum. „Gídeonfélagið er eins og framlengdur armur kirkjunnar. Við færum einstakling- um Nýja testamentið með skipulögðum hætti og komum því einnig fyrir við hinar ýmsu þjóðbrautir lífsins eins og á sjúkra- húsum, hótelum, elliheimilum, í fangelsum, skipum og víðar.“ Hvað með gjafir félagsins á Nýja testa- mentinu til skólabarna? ,Á hverju hausti heimsækjum við alla skóla landsins, sem hafa 10 ára börn eða 5. bekk. Þeim árgangi er fært Nýja testament- ið að gjöf svo að þessu hausti loknu ættu flestir Islendingar 10-56 ára að hafa fengið Nýja testamentið að gjöf frá félaginu.“ Hvað hafið þið gefið mörg Nýja testa- menti? „Við höfum komið í umferð um 265.000 eintökum af Nýja testamentum og Biblíum frá upphafi ef allir þættir dreifingarinnar eru teknir með.“ Hvert er markmiðið, hvers vegna eruð þið að þessu? „Markmiðið er að kynna orð Guðs í Nýja testamentinu fyi'ir fólki svo það læri að þekkja Jesú Krist, sem sinn persónulega vin og frelsara." Nýja testamentið hjálpar mörgum Geturðu gefið dæmi um viðbrögð fólks? „Já, já, ég get það svo sannarlega. í augnablikinu kemur mér maður í hug, sem settist inn á skrifstofu félagsins á Vestur- götunni og sagði eitthvað á þessa leið: „Ég fékk Nýja testamentið að gjöf rétt fyrir fermingu, ef ég man rétt. Bókin var mér mjög sérstök, því þetta var fyrsta bók- in, sem ég eignaðist. Þetta var líka fyrsta bókin sem ég las í af einhverju gagni. Mér þótti afar vænt um bókina og þykir reyndar enn. Hún hefur fært mér frið og ró og orð hennar hafa veitt mér styrk og uppörvun i lífinu. Ég var á sjónum í nokkur ár, og fór þá að fikta við að drekka áfengi, eins og svo alltof margir, því miður. Með Guðs hjálp og góðra manna tókst mér loks að hætta drykkjunni, og hef nú verið þuir í ein tíu ár. í mínum huga er það fyrst og fremst Guði að þakka og hefur Nýja testamentið leikið lykilhlutverk í því sambandi. Það er svo gott að leita styrks í trúnni á Jesú, og leyfa orði Guðs að leika um mann og styrkja. Ég segi fyrir mig, að í þessu sam- bandi var það Guð, trú mín á hann og Nýja testamentið sem hafði allt að segja“.“ Hvert er helzta starf framkvæmdastjóra Gídeonfélagsins? „Það er margþætt, skal ég segja þér. Framkvæmdastjórinn sinnir viðveru og af- greiðslu á skrifstofu félagsins á Vesturgötu 40 og sinnir öllum daglegum rekstri félags- ins. Hann skipuleggur félagsstarfið, veitir upplýsingar, skipuleggur dreifingu á Nýja testamentinu, hvaða deildir félagsins sjái um hvað landssvæði og fleira í þeim dúr. Hann heimsækir félagsdeildir, sem nú era sextán alls á landinu. Hann gefm- út frétta- blöð, gögn og skrár til leiðbeiningar í starf- GÍDEONFÉLAGiD Á ÍSLANDI Morgunblaðið/pþ SIGURBJÖRN Þorkelsson, fráfarandi framkvæmdastjóri, felur Jogvan Purk- hus, núverandi framkvæmdastjóra, að halda merki Gídeonfélagsins á loft. inu, sem að öðru leyti er algjörlega unnið í sjálfboðavinnu. Þetta er svona hluti af starfinu, en of langt mál yrði að gera frek- ari grein fyrir þvf hér.“ Getum þakkað fyrir okkur með framlögum erlendis Hvernig er þetta starf fjármagnað? „Stai’fið er fyrst og fremst fjármagnað með frjálsum framlögum félagsmanna sjálfra og nokkurra velunnara félagsins. Þá hafa kirkjan og ýmsir söfnuðir hennar einnig lagt okkur mikilvægt lið. Þess má geta að á undanförnum tíu árum höfum við lagt fram fé til kaupa á Biblíum og Nýja testamentum, sem dreift hefur verið á tungumálum innfæddra á meðal þjóða, þar sem innfæddir Gídeonfélagar ná ekki að standa straum af kostnaði sjálfir, en þannig mun farið í um 150 löndum af þeim 172 sem félagið starfar í. Þess má einnig geta að allt fram til ársins 1980 þurftum við á styrk að halda frá al- þjóða Biblíusjóði Gídeonfélagsins til að geta gefið íslenzkum skólabörnum Nýja testa- mentið, þannig að segja má að við séum eins og að þakka fyrir okkur nú. A allra síð- ustu áram höfum við sent 25.000 dollara eða tæpar tvær milljónir íslenzkra króna til kaupa á Biblíum og Nýja testamentum til dreifingar á meðal annarra þjóða, jafnframt því sem við kaupum og dreifum 8.000 til 10.000 eintökum hérlendis.“ Erað þið ekki með minningarkort einnig? „Jú, það er rétt, og ekki aðeins minning- arkort heldur einnig heillaóskakort. Kortin er að finna í anddyrum flestra kirkna á landinu í sérstaklega merktum veggvösum. Samúðarkortin nota menn að sjálfsögðu þegar við á, en heillaóskakortin er hægt að nota í tilefni alls konar tyllidaga og hátíða. Allur ágóði fer til kaupa á Biblíum og Nýja testamentum." Og nú lætur þú af störfum sem fram- kvæmdastjóri Gídeonfélagsins eftir 12 ára starf. Hvemig er tilfinningin? „Tilfinningin er mjög sérstök, jafnvel óþægileg. Tólf ár eru langur tími af lífi ungs manns. Ég hef lagt mig fram í þessu starfi, hef lagt hjarta mitt í það. Þetta hefur eiginlega ekki eingöngu verið mér sem starf heldur hreinlega lífið sjálft. Ég hef gefið af mér, og nú er eins og verið sé að slíta hluta af hjartanu úr mér. Svona er nú lífið. Það er ekki bæði sleppt og haldið, allt hefur sinn tíma og ég hef nú verið fenginn til að koma að mikilvægum störfum sem framkvæmdastjóri KFUM og KFUK, sem verða 100 ára á næsta ári og gegna mikil- vægu hlutverki í þjóðfélaginu, sérstaklega á meðal barna og unglinga. Það er stöðug og ný þörf fyrir dreifingu á Nýja testamentinu og því verður það veiga- mikla og þýðingarmikla starf að halda áfram. Það era forréttindi fyrir þjóðina, að heill árgangur hennar skuli eignast Guðs lifandi orð á hverju ári, nýr árgangur, nýjar dýrmætar sálir, sem þurfa að læra að elska Guð, sem skapaði þau og frelsaði. Læra að elska náungann og bera virðingu fyrir allri sköpun Guðs. Læra að biðja til Guðs og þakka allar góðar gjafir hans. Það skiptir öllu máli fyrir okkur öll að hafa traustan grunn til að byggja lífið okk- ar á. Við þurfum festu og holl gildi. Við þurfum að læra að byggja líf okkar á bjarg- inu óbifanlega og trausta sem er frelsarinn sjálfur, Jesú Kristur." Námskeið Biblíu- skólans BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg byi-jar haustmisserið á laugardag- inn kemur, 26. september, með námskeiði þar sem fjallað verður um sálgæslu og fyrirbæn. Er það sérstaklega ætlað þeim sem taka þátt í sálgæslu og fyrirbænastarfi í kristilegu æskulýðs- og fullorðins- starfi og stendur yfir frá kl. 9.30 til 15. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson pró- fastur fjallar um sorgarviðbrögð og fyrirbænir og sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur um það að hlusta og koma rétt fram við þá sem leita leiðsagnar og fyrirbæna. Einnig verður á námskeiðinu rætt um hvernig leiða á aðra til trúar. Nám- skeiðsgjald er kr. 2.000 og er matur innifalinn. Miðvikudaginn 30. september hefst Alfa-námskeið í húsnæði skól- ans á Holtavegi 28 í Reykjavík. Alfa-námskeiðin eru orðin nokkuð þekkt hér á landi en árlega sækja hundruð þúsunda manna slík nám- skeið víða um heim. Fjallað er um lykilatriði kristinnar tráar á ein- faldan hátt og reynt að svara spurningum þátttakenda. Kennt verður á miðvikudagskvöldum til 25. nóvember og hefst hvert kvöld með sameiginlegum kvöldverði kl. 19.15. Námskeiðsgjald er kr. 3.900 og kennari sr. Kjartan Jónsson kristniboði. Allar nánari upplýsingar um námskeið Biblíuskólans veitir skrif- stofa skólans, Holtavegi 28, og þar fer einnig fram skráning. Skrán- ingu á sálgæslu- og fyrirbænanám- skeiðið 26. september lýkur í dag, fimmtudaginn 24. september. Eins árs ábyrgð og ryðvörn innifalin í verði Orfáir bílar til afgreiðslu strax Kof“Pi IU|R ■ Rpf'Fa ifpm DCU I IVIUywU DClrl Cl Vwl U Finndu muninn á buddunni Umboðsmaður ),Þ. bíl; Selfossi, sími 482 3893 Bttastúdíó hf. Faxafeni 14, 108 Reykjavík, sími 568 5555, fax 568 5554. Opið kl. 10-19 mán.-föst., kl. 11-14 laugard /O
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.