Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gamli prests- bústaðurinn í uppruna- lega mynd VERIÐ er að gera upp gamla prestsbústaðinn á Landakoti þessa dagana. Húsið, sem stendur við Túngötu, hefur staðið autt undanfarin ár en verður í framtíðinni notað und- ir hluta af starfsemi Landakots- skóla. Að sögn séra Iljalta Þorkels- sonar, skólastjóra Landakots- skóla, var ákveðið í samráði við húsafriðunarnefnd að húsið yrði gert upp sem næst þeirri mynd, sem það hafði eftir að það var hækkað um eina hæð árið 1896. Neðri hæð hússins er hins vegar byggð 1838 og það er því með eldri húsum í borg- inni að stofni til. Tvær viðbygg- ingar, sem reistar voru við fram- og bakhlið hússins í kringum 1930, hafa verið rifn- ar. Bekkjum fjölgað í Landakotsskóla Sr. Hjalti segir að á neðri hæð hússins verði bókasafn Landakotsskóla en á efri hæð- inni kennslustofa og vinnu- stofa fyrir eldri nemendur. „Gamla prestshúsið mun síðan tengjast nýbyggingu, sem reist verður austan við það, við Túngötu. Það verður álma, sem bætist við húsnæði Landa- kotsskóla og gerir okkur kleift að bæta við þremur bekkjum og bjóða þannig upp á allan grunnskólann," segir sr. Hjalti. Bústaður dómkirkjupresta úr tveimur kirkjudeildum Prestsbústaðurinn við Tún- götu hefur m.a. þá sérstöðu að hafa verið bústaður dóm- kirkjupresta úr tveimur kirkjudeildum, bæði lúterskra og kaþólskra. Séra Helgi G. Thordersen, þáverandi prestur við Dómkirkjuna í Reykjavík og síðar biskup, keypti Landa- kot 1837 og reisti prestsbú- staðinn, sem þá var einlyft timburhús með risi, árið eftir. Á eftir Helga bjó séra Ásmund- ur Jónsson dómkirkjuprestur í Landakoti. Árið 1859 keypti hins vegar franskur trúboðs- prestur, séra Bernharður, Landakot af séra Ásmundi og varð staðurinn upp úr því mið- stöð kaþólsks trúboðs á Is- landi. Þar var síðar reist kaþ- ólsk dómkirkja og höfðu prest- ar hennar aðsetur í húsinu við Túngötu til 1983. Morgunblaðið/Ami Sæberg BÚIÐ er að rífa síðari tíma viðbyggingar við prestsbústaðinn og verður hann gerður upp sem næst þeirri mynd, sem hann hafði 1896, en þá var húsið hækkað um eina hæð. Brenndist í vinnuslysi STARFSMAÐUR í malargryfju í Lambafelli við Þrengslaveg brenndist í andliti í gær, þegar olíu- tunna sprakk í námunda við hann. Verið var að brenna rusli í gryfj- unni, sem er suðaustan í Lambafelli. Kviknaði í olíumettuð- um jarðvegi og hljóp eldurinn beina leið í tunnuna, sem stóð skammt frá, með þeim afleiðingum að hún sprakk. Sjúkraflutningamenn frá Reykja- vík tóku við hinum slasaða við Litlu kaffistofuna af sjúkraflutninga- mönnum frá Selfossi og var hann fluttur á Landspítalann. Var hann lagður inn á handlækningadeild til meðferðar og líður eftir atvikum vel. -------------- Öryrkjar í Reykjavík Undirbúa fram- boð til Alþingis ÁKVEÐIÐ hefur verið að vinna að sérstökum framboðslista öryrkja við alþingiskosningamar næsta vor, að sögn Jóhannesar Þórs Guð- bjartssonar, formanns Sjálfsbjarg- ar, samtaka fatlaðra á höfuðborgar- svæðinu. Tekin var ákvörðun um framboð- ið á fundi svonefnds samstarfshóps fatlaðra í Reykjavík í gærkvöldi en í honum sitja 18 helstu forsvarsmenn öryrkja á höfuðborgarsvæðinu og landinu öllu. Hópurinn hyggst vinna að fram- boði í Reykjavík en Jóhannes sagði að öryrkjum annars staðar á land- inu stæði til boða aðstoð hópsins ef þeir íhuguðu framboð í heimabyggð. Tvíprentun rafmagns- reikninga SUMIR rafmagnskaupendur á orkuveitusvæði Rafmagns- veitu Reykjavíkur hafa fengið senda tvo eins rafmagns- reikninga vegna sama tíma- bils og með sömu upphæð. Ástæða þess er sú, að mis- tök urðu við útskrift reikn- inganna sem Rafmagnsveitan og Skýrr hf. sjá um. Verið er að grafast fyrir um orsakir þessara mistaka, en fyrir liggur að á sjötta þúsund reikninga hefur verið tví- prentað. Rafmagnskaupendum er óhætt að fleygja öðrum reikningnum. Rafmagnsveit- an hefur jafnframt haft sam- band við banka og sparisjóði vegna þeirra rafmagnskaup- enda sem nýta sér greiðslu- þjónustu bankanna og gert viðvart um þessi mistök. Launþegar utan Evrópska efnahagssvæðisins sem greiða í lífeyrissjóði Geta fengið stærstan hluta iðgjaldsins endurgreiddan SAMKVÆMT nýjum lögum um starfsemi líf- eyrissjóða geta útlendingar, sem starfa hér á landi tímabundið, fengið endurgreitt iðgjald úr lífeyrissjóði, bæði þann hluta sem launþeginn greiðir og einnig stærstan hluta af því sem at- vinnurekandinn greiðir. Þetta á þó ekki við launþega sem koma frá löndum sem eru aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. Þeir öðlast rétt- indi í sjóðunum eins og íslenskir launþegar. Samkvæmt eldri lögum um starfsemi lífeyris- sjóða átti útlendingur sem starfaði hér tíma- bundið rétt á að fá endurgreitt frá viðkomandi lífeyrissjóði þau 4% sem hann greiddi í iðgjald meðan hann starfaði hér. Hann átti hins vegar ekki rétt á þeim 6% sem atvinnurekandinn greiddi í iðgjald. 1. júlí sl. tóku ný lög um starfsemi lífeyris- sjóða gildi, en þar segir: „Heimilt er að endur- greiða iðgjöld til erlendra ríkisborgara þegar þeir flytjast úr landi enda sé slíkt ekki óheimilt samkvæmt milliríkjasamningi sem ísland er að- ili að. Óheimilt er að takmarka endurgi-eiðsluna við tiltekinn hluta iðgjaldsins nema á trygginga- fræðilega réttum forsendum." Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Sam- bands almennra lífeyrissjóða, sagði að sam- kvæmt þessu ákvæði ættu útlendingar frá öðr- um löndum innan EES ekki rétt á endur- greiðslu á iðgjöldum þegar þeir færu úr landi, en hins vegar öðluðust þeir réttindi í sjóðunum eins og íslenskir launþegar. Þurfa að greiða skatt af endurgreiðslunni Hrafn sagði óeðlilegt að erlendir launþegar fengju allt iðgjaldið, þ.e. 10%, endurgreitt því að meðan þeir störfuðu hér nytu þeir trygginga- verndar. Þeir ættu rétt á örorkulífeyri og hefðu makalífeyrisréttindi. Einnig væri eðlilegt að þeir tækju sinn þátt í rekstri sjóðanna. Þess vegna væri í lögunum talað um endurgreiðslu á tryggingafræðilega réttum forsendum. Hrafn sagði að lífeyrissjóðimir hefðu hugað að þessu, en sagðist ekki vita hvort reynt hefði á þetta ennþá. Tryggingafræðingar þyrftu að leggja fram sitt mat á hver endurgreiðslan ætti að vera, en það væri þó ljóst að lífeyrissjóðunum væri heimilt að greiða mun meira en sem næmi 4% iðgjaldi launþegans. Hrafn benti á að líklega yrðu launþegar sem fengju iðgjaldið endurgreitt að borga skatt af endurgreiðslunni því skv. núgildandi lögum væri iðgjald launþega í lífeyrissjóð skattfrjálst. Hrafn sagði að sér væri ekki kunnugt um að lífeyrissjóðir í nokkru öðru landi í heiminum endurgreiddu iðgjald til útlendinga þegar þeir færu úr landi. Víða erlendis væru nokkurra ára biðtímaákvæði varðandi lífeyrisréttindi, en hér öðluðust menn lífeyrisrétt um leið og þeir greiddu sína fyrstu krónu í lífeyrissjóð. I Sérblöð í dag VIÐSiaPTI AIVINNULÍF íslendingar skelltu Finnum í Smáranum 27:19/C1 Þorkell með stórskotahríð í Þýskalandi - 18 mörk! / B3 BAKKAVÖR BRAUTARHOLT Kavíar- Svína- framleiðsla rækt Fyrir ísland og Skandinavíu/B1 1000 tonn á ári/B4 MEÐ blaðinu í dag á Akureyri • og nágrenni fylgir auglýsinga-. blað frá BYKO.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.