Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 31
Halla Margrét Arnadóttir söngkona til liðs við óperettuhóp
Syngur í óperuhúsum
víðsvegar um Italíu
Ttiakita.
Ráðgjafi frá (linique verður í snyrtivöruversluninni Glæsibæ í dag og
á morgun frá kl. 13-18.
SNV'RTIVÖRUVERSIJIMN
GLÆStM Sími 563 5170
færð um að ég á eftir að læra
heilmargt af því - það eru í raun
fon-éttindi að fá tækifæri til að
vinna með þessu fólki.“
I óperettu er töluðum texta,
dönsum og fleiru skotið inn milli
sunginna atriða. Hvernig leggjast
leikurinn og dansinn í Höllu Mar-
gréti?
„Eg er gamall dansari þannig að
ég hef litlar áhyggjur af honum.
Leikurinn er aftur á móti meira
mál enda þarf ég acl tala heilmikið í
báðum sýningum. I raun þarf ég að
verða leikkona á tíu dögum, því hér
á Italíu gefa menn sér ekki lengri
tíma til að setja upp sýningar. Fyr-
ir vikið hefur skapast ófremdará-
stand á heimilinu enda geng ég um
gólf og þyl línur úr sýningunum
yfir fjölskyldunni. Hún er að verða
vitlaus á mér!“
Að öllu gríni slepptu ber Halla
Margi'ét mikið lof á fjölskyldu sína
og vini, bæði á Italíu en ekki síður
hér heima. „Fjölskylda mín og
bestu vinir eiga stóran þátt í þeim
áfanga sem ég er að ná núna. Án
þeirra stuðnings væri ég ekki í
þessum sporum. Þeir hafa haft trú
á mér og fyrir það er ég þakklát."
Söngkonan kveðst ekki enn vera
farin að velta því fyrir sér hvaða
þýðingu þetta tækifæri komi til
með að hafa fyrir hana í framtíð-
inni. „Eg syng þetta bara með mínu
nefi, eins vel og ég get. Auðvitað
vona ég að þetta komi til með að
vinda upp á sig - að ég fái fleiri
tækifæri fyrst ég er á annað borð
komin upp á sviðið. Eg er búin að
sá óteljandi fræjum á undanförnum
árum og nú er uppskeran að koma í
ljós - vonandi verður hún góð!“
Taktu prófið
Komdu síðan til Clinique og fáðu svarið
Náðu í glært límband, límdu þétt á handarbakið. Fjarlægðu það gætilega aftur. Uttu á, það
sem þó sérð eru dauðar húðfrumur, fita og óhreinindi sem þekja annars ferska húð þína.
Clinique notar þetta próf til að sýno hvernig við fjorlægjum dauðar húðfrumur. Hreinsum
burt gamalt lag af yfirborði húðarinnar sem hylur ferska, hreina húðina. Hreinsun á dauð-
um húðfrumum er kjarninn i þriggja þrepa kerfinu frá Clinique: Facial Soap, Clarifying
Lotion - sem fjarlægir dauðar húðfrumur - og Dromatically Different Moisturizing Lotion.
Notaðu þriggja þrepa kerfið tvisvar á dag, hvern dag og fáðu fallegri húð.
Eins og þú sérð þá þarf það ekki að vera erfitt.
Allt sem þarf er smá heimavinna.
Komdu í dag og fáðu þriggja þrepa kerfið í prufusetti frá Clinique - ókeypis.
Halla Margrét
Arnadóttir
HALLA Margrét
Arnadóttir sópran-
söngkona hefur skrifað
undir samning við
óperettuhóp leikstjór-
ans Corratos Abbadi,
sem mun vera sá
stærsti sinnar tegund-
ar á Ítalíu, og tekur
þátt í 120 sýningum á
vegum hópsins víðs-
vegar um Italíu næsta
hálfa árið. Fyrsta sýn-
ingin verður í Teatro
Reggio í Parma 11.
október næstkomandi
og þar mun Halla Mar-
grét hljóta eldskím
sína á óperusviði.
Operetturnar sem fluttar verða í
ferðinni eru tvær, Sardasfurstinnan
eftir Kálmán og La Scugnizza. Fer
Halla Margrét í báðum tilvikum
með aðalhlutverk.
„Þetta er í einu orði sagt frá-
bært,“ segir söngkonan, sem verið
hefur búsett á Italíu undanfarin ár.
,Áfagið verður að vísu mikið en þar
sem ég er búin að bíða eftir þessu í
átta ár kom aldrei til greina að
hafna þessu tilboði. Ég var farin að
gera mér vonir um að komast inn á
sporið með því að fá aukahlutverk í
einhverjum sýningum en að byrja
ferilinn með því að syngja aðalhlut-
verk í stórum óperuhúsum víðsveg-
ar um Italíu er miklu meira en ég
lét mig dreyma um.“
Teatro Reggio er í hópi virtustu
óperuhúsa á Italíu en Halla Mar-
grét segir að aðeins verði sýnt í
húsum sem eru í A-flokki í ferðinni,
meðal annars í Róm, Mflanó,
Napólí og á Sikiley. „Þetta er eins
og draumur, því mig hefur lengi
langað til að syngja í Teatro
Reggio. Aldrei lét ég mig þó
dreyma um að þreyta frumraun
CLINIQUE
100% ilmefnalaust
CLINIQUE
dramattcalfy
differem
rnoístur«ing lotton
mína þar og ég fæ
gæsahúð þegar ég
hugsa til þess að ég
eigi eftir að standa á
sama sviði og fólk á
borð við Mariu Callas,
Luciano Pavarotti og
Kristján Jóhannsson
hefur staðið á.“
Halla Margrét segir
stórkostlegt að fá
tækifæri til að vinna
sem söngvari á Italíu.
Að því sé ekki hlaupið
- allra síst fyrir út-
lendinga. „Fólk hefur
verið að hvetja mig til
að reyna fyrir mér í
Þýskalandi en ég hef
valið að bíða átekta hér á Ítalíu. Ég
er líka búin að berjast svo mikið við
að koma mér áfram á Italíu að ég
hef ekki efni á að yfirgefa hana fyrr
en hún borgar mér pínulítið til
baka. Annaðhvort næ ég fótfestu
hér eða ekki!“
Vann keppni í
Bergamo
Halla Margrét kveðst mæta vel
stemmd til leiks. „Mér hefur gengið
vel undanfarið, meðal annars vann
ég söngkeppni í Bergamo í fyrra-
vetur, sem ég fæ hlutverk út á
næsta vetur, og_ komst í úrslit í
tveimur öðrum. Ég finn því að eitt-
hvað er að gerast - ítalir eru farnir
að treysta mér.“
Fyrsti samlestur undir stjórn
Abbadis var fyrr í vikunni og segir
Halla Margrét sér lítast vel á sam-
starfsfólkið. „Það er mikið af frá-
bæru listafólki þarna, bæði söngv-
urum og leikurum, og ég er sann-
Hjólsagir
Stingsagir
Keðjusagir
Ú tsöl u staðirnir og
ÞÓR HF
Reykjavfk - Akureyri
Nýjar hljómplötur
• TRAUST er fyrirmælaverk sem
Hilmar Jensson samdi upphaflega
fyrir þrjú hljóðfæri, en hefur á
undanfórnum mánuðum gengið í
gegnum miklar breytingar í með-
fórum mismunandi hljómsveita,
segir í fréttatilkynningu.
Ennfremur segir að hver flutn-
ingur á hljómplötunni sé einstakur
og byggist að mestu á spuna flytj-
endanna. Eins og titill verksins gefí
til kynna byggist fíutningur tónlist-
arinnar á trausti fíytjendanna
hvers á öðrum og fyrirmælum.
Verkin eru ífímm hlutum.
Flytjendur eru Hilmar Jensson
gítarleikari, Kjartan Valdemars-
son píanóleikari, Matthías Hem-
stock, trommu- og slagverksleikari,
og Pétur Grétarsson, víbrafón- og
slagverksleikari.
Traust er í útgáfuröð Smekk-
leysu, „Frjálst er í fjallasal".
Upplestur í
Kaffístofu
Gerðarsafns
UPPLESTUR á vegum Rit-
listarhóps Kópavogs verður í
Gerðarsafni í dag frá kl. 17-18.
Gestur að
þessu sinni
verður Þórð-
ur Helgason,
lektor við
Kennarahá-
skóla ís-
lands, ljóð-
skáld og rit-
Þórður höfundur.
Helgason Hann mun
lesa úr nýrri barna- og ung-
lingabók sinni, Tilbúin undir
tréverk.
Aðgangur er ókeypis.
RANN í S
Rannsóknarráð íslands auglýsir
styrki úr eftirfarandi sjóðum
* Vísindasjóði er hefur það hlutverk að efla
vísindarannsóknir.
‘Tæknisjóði er hefur það hlutverk að styðja
nýsköþun í íslensku atvinnulífi með því að efla
tækniþekkingu, rannsóknir og þróunarstarf.
Umsækjendur geta verið:
* Visindamenn og sérfræðingar.
* Háskólastofnanir og aðrar vísinda- og
rannsóknastofnanir.
* Fyrirtæki, einstaklingar og samtök er hyggjast vinna
að rannsóknum og nýsköpun.
* Bygginga- og tækjasjóði er hefur það hlutverk að
styrkja tækjakaup og uppbyggingu á aðstöðu til
rannsókna í vísindum og tækni.
Umsækjendur geta verið:
* Opinberar vísinda- og rannsóknarstofnanir.
Veittir eru fimm tegundir styrkja úr ofangreindum
sjóðum sem hér segir:
1. „Verkefnastyrkir“ til fræðilegra og hagnýtra
verkefna. Miðað er við að upphæð styrkja geti numið
allt að 7.000 þús. kr.
Umsóknarfrestur er til 30. október 1998.
2. „Forverkefna- og kynningarstyrkir11
* Til undirbúnings stærri rannsókna- og
þróunarverkefna, allt að 000 þús. kr.
* Til að fylgja eftir og koma á framfæri niðurstöðu
verkefna sem lokið er
Umsóknarfrestur er opinn en umsóknir eru
aforeiddar 15. ianúar oa 15. maí.
3. „Alþjóðastyrkir“ til undirbúnings alþjóðlegra
samstarfsverkefna, allt að 300 þús. kr.
Umsóknarfrestur er opinn.
4. „Starfsstyrkir"
Veittar eru tvær tegundir starfsstyrkja:
„Rannsóknastöðustyrkir" eru veittir úr Vísindasjóði
til tímabundinna starfa vísindamanna, er nýlega hafa
lokið doktorsprófi eða hlotið samsvarandi menntun
við viðurkennda háskóla. Styrkir eru veittir til allt að
3ja ára við innlenda stofnun og nema launum
sérfræðings.
Umsóknarfrestur er til 30. október 1998.
„Tæknimenn í fyrirtæki" er heiti styrkja sem veittir
eru úr Tæknisjóði til fyrirtækja í þeim tilgangi að ráða
vísinda- og/eða tæknimenntað fólk til starfa. Styrkir
eru veittir til allt að 3ja ára og nema hálfum
launakostnaði sérfræðings.
Umsóknarfrestur er til 15. ianúar 1999.
5. „Bygginga- og tækjakaupastyrkir"
Veittir eru styrkir úr Bygginga- og tækjasjóði til að
styrkja kaup á tækjum og búnaði og byggja upp
aðstöðu til rannsókna fyrir vísinda- og
rannsóknastarfsemi.
Umsóknarfrestur er til 15. ianúar 1999.
Ný eyðublöð á heimasíðu Rannís verða tilbúin föstudag-
inn 25. september nk. Slóðin er: http://www.rannis.is
Rannsóknarráð íslands, Laugavegi 13,
sími 562 1320, fax 552 9814. Opið kl. 9.00 til 17.00.