Morgunblaðið - 24.09.1998, Page 4

Morgunblaðið - 24.09.1998, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Harðar deilur verkalýðsfélaga og verktaka við Búrfellslínu 3A Laun utlendinga verði greidd á íslenska bankareikninga RAFIÐNAÐARSAMBAND ís- lands og Félag jámiðnaðarmanna hafa í sameiningu skrifað starfsmönnum rússneska fyrir- tækisins Technopromexport, sem vinnur að því að reisa staura í Búr- fellslínu 3A fyrir Landsvirkjun, bréf þar sem sagt er að krafíst hafí verið þess að laun þeirra yrðu greidd með milligöngu Landsvirkj- unar inn á íslenska bankareikn- inga í nafni hvers starfsmanns fyr- ir sig. í bréfinu segjast félögin einnig hafa krafist þess að fulltrúar Technopromexport undirriti rúss- neska þýðingu á kjarasamningi starfsmannanna. Fulltrúar félags jámiðnaðar- manna fóm til fundar við útlendu verkamennina á Selfossi í gær og kynntu þeim þessar kröfur. „Við fengum ágætar viðtökur,“ segir Öm Friðriksson, formaður félags- ins. „Rússamir spurðu mikið um það hvort okkur myndi raunveru- lega takast að tryggja að þeir fengju launin greidd. Þeir gerðu sér greinilega vonir um það.“ Þegar líða tók að lokum fundar- ins kom einn yfirmanna Techno- promexport á vettvang og mót- mælti því að verið væri að halda fund á vinnutíma. Honum var þá bent á að verkamennimir hefðu rétt til fimmtán mínútna frítíma. Deilt um aðstæður í mötuneyti Deilur standa einnig milli Raf- iðnaðarsambands íslands og fyrir- tætósins J.A. verktaka, undirverk- taka Teehnopromexport, vegna þess að trúnaðarmaður verkalýðs- félagsins meðal starfsmanna sem setja saman og reisa möstur á línustæði var færður úr því starfi. Rafiðnaðarsambandið hefur ítrekað kvartað yfir aðbúnaði þess- ara starfsmanna og taldi meðal annars að aðstæður í mötuneyti þeirra væm óviðunandi. Birgir Þórðarson, fulltrúi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, kannaði mötuneytið og salemi sem staðsett er við hlið þess á þriðju- dag og dæmdi aðstöðuna viðun- andi. Þó var bent á að nauðsynlegt væri að þrif færu fram að minnsta kosti daglega fram í báðum húsum og allur úrgangur þaðan væri flutt- ur til förgunar á viðurkenndum förgunarstað. I bréfi til verkalýðsfélagsins Þórs á Selfossi í gær sagði Birgir að hann myndi beita sér fyrir því að unnar yrðu reglur og tæknileg- ar skýringar vegna dagnota- Morgunblaðið/Sigurður Fannar RÚSSNESKU starfsmennirnir Iesa bréf það sem íslensku verkalýðsfélögin hafa ritað og létu jafnframt þýða yfir á rúss- nesku. Á minni myndinni ræðir Öm Friðriksson, formaður Félags jámiðnaðarmanna, við Rússana. húsnæðis í tengslum við atvinnu- starfsemi í dreifbýli. Guðmundur Gunnarsson, for- maður Rafiðnaðarsambandsins, segir í bréfi til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands í gær, að þegar fulltrúi þess hafi komið til að kanna mötu- neytið á þriðjudag hafi í fyrsta sinn verið kominn gashitari í húsið og í fyrsta sinn hafi verið þar raf- magnsrafall, sem þó hafi verið of lítill til að ráða bæði við hitun og lýsingu. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála Dómstólar skeri úr um lögmæti útboðs ÁFRÝJUNARNEFND sam- keppnismála hefur hafnað kröfu Arnars E. Gunnarssonar, sem var einn bjóðenda í vetrar- þjónustu fyrir Vegagerðina á Holtavörðuheiði árin 1997-2000, um að útboðið verði lýst ógilt. Samkeppnisráð hafði 8. júlí fengið málið til meðferð- ar og gefið Vegagerðinni ákveðin fyrirmæli varðandi slík útboð en ekki séð ástæðu til að hrófla við samningnum sem gerður var í kjölfar útboðsins. Araar E. Gunnarsson telur að ógilda beri útboðið þar sem óeðlilega hafi verið að því staðið hvað varðar útboðsgögn og vinnslu og bendir á að sam- keppnisráð hafi tetóð undir at- riði sem hann benti á í erindi sínu til þess. Bendir hann á að við nýlegt útboð í snjómokstur á Vesturlandi hafi ektó verið stuðst við sænskt punktakerfi til að meta bjóðendur eins og gert var í verkinu um Holta- vörðuheiði. Afrýjunamefndin kemst að þeirri niðurstöðu að ektó sé að finna heimild í samkeppnislög- um fyrir Samkeppnisstofnun til að kveða á um lögmæti útboða sem þegar hafa farið fram. Slíkt sé á valdi dómstóla. Hluti fyrirmæla ógiltur Vegagerðin kærði einnig ákvörðun samkeppnisráðs og krafðist þess að hluti af fyrir- mælum ráðsins yrði felldur úr gildi, en þau eru á þann veg að Vegagerðin skuli, ef hagstæðasta tilboð er ekki jafn- framt lægsta tilboð, senda bjóðendum greinargerð með rökstuðningi um valið á til- boðinu eigi síðar en þremur vikum eftir ákvörðun. Afrýjun- amefndin féllst á að fella þenn- an hluta fyrirmælanna úr gildi, þar sem hann ætti sér ektó stoð í samkeppnislögum. Ný forsíða Morgun- blaðsins á Netinu í DAG breytist sú ásjón sem les- endur Morgunblaðsins á Netinu geta notað til þess að nálgast hina ýmsu vefi blaðsins. Búin hefur ver- ið til forsíða sem blasir við lesend- um þegar þeir tengjast www.mbl.is. í dálkinum lengst til vinstri má tengjast hveijum vef fyrir sig og einnig má tengjast stökum efn- isþáttum innan vefjanna. Sem dæmi má nefna að ef smellt er á FRÉTTIR, teng- ist lesandi for- síðu Fréttavefj- arins. Sumir þessara veQa em lesend- um vel kunnir en einnig hafa nýir efnisþættir bæst við. Má þar nefna fréttaget- raun sem lesendur geta tekið þátt í og dregið verður vikulega úr rétt- um svörum og verðlaun veitt. Þá má fá ýmsar upplýsingar um Morg- unblaðið, svo sem verð auglýsinga, hvernig senda á efni til blaðsins og skilafrest á minningargreinum, með því að velja efnisþætti innan svæðisins Upplýsingar. Á miðju forsíðunnar má sjá helstu fréttirnar þá stundina, en þær er einnig að finna á Frétta- vefnum ásamt fjölda annarra frétta. Innan þáttarins Efst á baugi, sem er hægra megin á síðunni, má fá yfirsýn yfir það mál sem mesta athygli vekur þá stundina, fréttir því tengdar og ítarefni. Nýtt gengi jafnharðan Þátturinn Nýtt á mbl.is gefur lesendum til kynna það nýjasta sem er á vefjum blaðsins hverju sinni. Þar má nú finna Svipmyndir vikunnar sem notið hafa mik- illa vinsælda. Á forsíðunni má sjá gengi Qög- urra helstu gjaldmiðla heims, en ef smellt er á það gengi birtist stærri geng- istafia með öll- um helstu gjald- miðlunum. Gengisupplýsingar eru uppfærðar jafnharðan. Með sama hætti má fylgjast með erlendum visitölum og þær upplýsingar eru uppfærðar á klukkustundar fresti. Innan þáttarins Veður má finna hádegisspá fyrir sex staði á land- inu, hitatölur ásamt smámynd sem gefur til kynna hvernig veðrið er á hveijum stað. Það er von Morgunblaðsins að lesendur mbl.is kunni vel að meta þessar breytingar og þær auðveldi þeim að nálgast þær upplýsingar sem óskað er eftir að kalla fram hveiju sinni á vefjum blaðsins. Ákvæði í rekstrarleyfí Landssímans fjallar um GSM-kerfíð Landssíma ber að skipta rekstrinum fyrir áramót I REKSTRARLEYFI, sem Póst- og fjarstóptastofnun gaf út til Landssíma Islands hf. í júlí á þessu ári, er gerð krafa um að Landssím- inn haldi einstökum þjónustuþátt- um starfseminnar aðstóldum í bók- haldi, þar á meðal rekstri GSM- kerfis. Stofnunin veitti Landssím- anum frest til næstu áramóta að gera þær breytingar á bókhaldi sem fullnægja þessu ákvæði rekstrarleyfisins. Sem kunnugt er hefur TAL hf. kært Landssímann til Samkeppn- isstofnunar og krafist þess að stofnunin sjái til þess að Lands- síminn aðskilji GSM-þjónustu fyr- irtækisins frá öðrum rekstri. Gústav Amar, framkvæmdastjóri Póst- og fjarstóptastofnunar, sagði að stofnunin hefði þegar gert þessa kröfu til Landssímans. Stjórnendur fyrirtækisins hefðu óskað eftir að fá tíma til áramóta til að gera nauðsynlegar breyting- ar á bókhaldskerfi sínu og Póst- og fjarstóptastofnun hefði fallist á þessa ósk. „TAL hefur valið þann kost að senda kæruna til Samkeppnis- stofnunar og meðan kæran liggur þar og hefur ektó verið vísað til okkar gerum við ekkert í málinu. Ef kæran kæmi til okkar yrðum við að taka á málinu og athuga hvort það væri hægt að fullvinna þetta í bókhaldinu eins og það er í dag, en Landssíminn hefur verið allt þetta ár og raunar lengur að undirbúa nýtt reikningsbókhald sem á að gera þessa kostnaðar- greiningu auðveldari. Við höfum viðurkennt sjónarmið Lands- símans, að hann þyrfti tíma til að koma þessu í lag, og þess vegna höfðum við ektó hugsað okkur að skoða þetta íyrr en eftir áramótin. Kæra gæti breytt þessari afstöðu okkar,“ sagði Gústav. Grunnnetið opið öllum, en óljóst með símstöðvamar í Morgunblaðinu í gær segir Guðmundur Björnsson, forstjóri Landssímans, að Íslandssími þurfi að hafa yfir að ráða einhveiju línu- kerfi. Túlkun forsvarsmanna Is- landssíma á fjarstóptalögum sé rúm þegar þeir segi að þeir eigi að fá fullan aðgang að grunnneti Landssímans. „Svokölluð OMP-ákvæði, sem eru komin frá framkvæmdastjórn •Evrópusambandsins í Brussel og hafa verið sett í íslenska löggjöf í gegnum reglugerðir og nýju fjar- stóptalögin, segja mjög greinilega að öllum eigi að vera opinn að- gangur að grunnneti símans. Það þýðir m.a. að nýir aðilar eigi að geta fengið aðgang að línukerfinu. Þar er um að ræða skylduákvæði sem Landssíminn verður að beygja sig undir. Við komum hins vegar að gráum svæðum þegar farið er að tala um að Landssíminn eigi að hleypa öðr- um aðilum inn í sínar sjálfvirku símstöðvar. Þarna er íslenska löggjöfin ektó algerlega skýr og að því leyti eru orð forstjóra Lands- símans rétt. Þá reynir á túlkun lag- anna. Þessi mál eru í þróun erlend- is og það eru sífellt að koma fram ný sjónarmið í þessu efni, m.a. inn- an ESB. Við verðum að taka mið af því sem er að gerast á þeim vett- vangi. Svona mál hafa ekki komið upp áður og þegar þetta kemur til okkar, sem eru ákveðnar líkur á að gerist, þurfum við að koma fram með ákveðna túlkun á þessu. Lögin gera ráð íyrir að íyrirtækin, þ.e. Landssíminn og Íslandssími, ræði sín á milli og ef þeim tekst ekki að ná samkomulagi geta annar hvor eða báðir aðilar skotið málinu til Póst- og fjarskiptastofnunar," sagði Gústav.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.