Morgunblaðið - 24.09.1998, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
49. flokksþing Alþýðuflokksins sett á morgun
Spá óhefð-
bundnu þingi
SIGHVATUR Björgvinsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, segir að 49.
flokksþing Alþýðuflokksins, sem sett
verður á morgun, verði óhefðbundið
og muni bera sterkan keim af því að
flokkurinn hafí tekið ákvörðun um að
taka þátt í sameiginlegu framboði fé-
lagshyggjuflokkanna.
Flokksþingið er haldið undh- kjör-
orðinu ,Auðlindastefna í almanna-
þágu“. Það er haldið á Grand Hóteli í
Reykjavík og eiga um 260 flokks-
menn rétt til setu á þvi. Að lokinni
setningarræðu formanns flokksins
verða pallborðsumræður sem bera yf-
irskriftina „Til hvers er ætlast af Al-
þýðuflokknum?". Umræðunum stýrir
Óssur Skarphéðinsson alþingismað-
ur, en þátttakendur era einstaklingar
sem standa utan flokksins, þau Jó-
hanna Sigurðardóttir, foiTnaður Þjóð-
vaka, Bryndís Hlöðversdóttir, þing-
maður Alþýðubandalagsins, Svanur
Kristjánsson, prófessor í stjómmála-
fræði, Þráinn Hallgrímsson, skrif-
stofustjóri Dagsbrúnar, og Hulda
Ólafsdótth- sjúki-aþjálfari. Að loknum
þessum umi'æðum hefjast almennar
stjómmálaumræður og hefur vara-
formaðm' flokksins, Ásta B. Þor-
steinsdóttir, þær.
Þingstörf hefjast á laugardaginn
með því að þinginu verður skipt upp í
þrjá hópa þar sem rætt verður um
lýðræði og jafnrétti, verkalýðshreyf-
inguna og sameiningarferlið og um
auðlindir og umhverfi. Að því búnu
verður stjómmálaályktun flokksins
afgi'eidd, en framsögu fyrir henni
hefur Guðmundur Ámi Stefánsson
alþingismaður. Samhliða verður for-
ysta flokksins þjörin, en kosningin
fer að þessu sinni fram með því að
kjörstaður verður opnaður.
Eftir hádegishlé munu þingfull-
trúar fara í kynnisferð í Háskóla ís-
lands þar sem fjallað verður um efn-
ið „Háskólinn og þjóðfélagið, hvaða
hlutverk hafa vísindin í þróun þjóð-
félagsins?“
Eftir heimsókn í Háskólann verð-
ur rætt um sameiginlegt framboð, en
framsögu um það hefur Rannveig
Guðmundsdótth', formaður þing-
flokksins. Þinginu lýkur á sunnudag
með afgi-eiðslu lagabreytinga, reikn-
inga og afgreiðslu ályktunai- um
menntasamfélagið.
Málefnaskráin ekki
borin undir atkvæði
Sighvatur sagði að þingið myndi
endurspegla þá stöðu sem flokkurinn
er í hvað varðar sameiginlegt fram-
boð. Venjulega hefði flokksþing af-
greitt fjölda ályktana um margvísleg
mál, en nú hefði flokkurinn gert
samning við aðra flokka um málefna-
skrá og sameiginlegt framboð og því
væri óeðlilegt að flokkurinn færi að
samþykkja sérstaka stefnu í málum
sem hann hefði þegar gert samning
um að standa að.
Hann sagði að málefnaskrá flokk-
anna yrði ekki lögð undir atkvæði
flokksþingsins og ekki yrðu af-
greiddar breytingartillögur við hana.
Hins vegar yrði málefnaskráin rædd
og hann kvaðst eiga von á að athuga-
semdir kæmu fram um einstök atriði
hennar.
Sighvatui' sagði að síðasta flokks-
þing hefði falið forystu flokksins tvö
meginverkefni. Annars vegai' að
ganga til samstarfs við aðra félags-
hyggjuflokka um sameiginlegt fram-
boð og hins vegar að opna á ný skrif-
stofu flokksins og koma fjármálum
hans í lag. Þetta hefði verið gert og
fjármál flokksins stæðu nú betur en
þau hefðu gert um langt skeið.
Við upphaf flokksþingsins verður
flutt útsetning Arna Björnssonar á
laginu „Sjá roðann í austri“. Tón-
skáldið gaf á sínum tíma ungum
jafnaðarmönnum útsetninguna, en
hún var framflutt á síðasta ári af
Lúðrasveit verkalýðsins. Núna mun
kvennakórinn Vox feminae flytja
lagið með lúðrasveitinni.
MARBERT
Kvenleg fegurd
Þessi glæsilegi kaupauki að verðmæti
kr. 1.690 fylgir með þegar keyptir
eru þrír hlutir úr förðunarlínunni frá
MARBERT. Ekki missa af þessu.
Kynningar verða:
Fimmtudag Föstudag
Kvenleikinn er í fyrirrúmi hjá MARBERT
veturinn '98-'99. Áhrifin eru sótt i ástriðu-
fullt og lokkandi andrúmsloft Karíbahafs-
eyjanna, þar sem rauður litur ástríðunnar
og svartur litur syndarinnar eru
grunntónarnir.
Snyrtihöllin Garðabæ
Snyrtivörudeild Hagkaups
Skeifunni
Snyrtivörudeild Hagkaups
Skeifunni
Miðbær Vestmannaeyjum
Morgunblaðið/Kristinn
MAGNUS Norðdahl, formaður framkvæmdastjórnar Alþýðuflokksins, Sighvatur Björgvinsson, formaður
flokksins, og Ingvar Sverrisson framkvæmdastjóri kynntu flokksþingið í gær.
Formaður svæðisráðs fatlaðra í Reykjavík
gagnrýnir félagsmálaráðherra
Fagleg sjónarmið réðu
ekki við ráðningu
FORMAÐUR svæðisráðs um mál-
efni fatlaðra gagnrýnir þá ákvörðun
félagsmálaráðherra að ráða Björn
Sigurbjörnsson, áður skólastjóra á
Sauðárkróki, í stöðu framkvæmda-
stjóra svæðisskrifstofu um málefni
fatlaðra í Reykjavík. Segir hann
fagleg vinnubrögð ekki hafa verið
höfð að leiðarljósi. Björn var ráðinn
úr hópi 10 umsækjenda og mun
hefja störf í næstu viku.
Þá óskaði Reykjavíkurborg eftir
samráði við félagsmálaráðherra um
ráðninguna en af því varð ekki.
Umsækjendur um stöðuna auk
Björns voru: Ai'nþór Helgason,
deildarsérfræðingur, Reykjavík,
Ásta M. Eggertsdóttir, fyrrverandi
framkvæmdastjóri, Reykjavík,
Gunnar M. Sandholt, fyrrverandi
ráðgjafi hjá Norrænu ráðherra-
nefndinni, Kópavogi, Halldór Kr.
Júlíusson, yfirsálfræðingur á svæð-
isskrifstofunni, Reykjavík, Kristín
Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá
ríkisskattstjóra, Mosfellsbæ, Krist-
ján Valdimarsson, forstöðumaður
Örva, Reykjavík, Már Viðar Más-
son, sálfræðingur, Reykjavík,
Salóme Anna Þórisdóttir, forstöðu-
þroskaþjálfí, Landspítala, Kópa-
vogi, og Vilborg Oddsdóttir, þroska-
þjálfi á svæðisskrifstofunni, Reykja-
vík.
Halldór Gunnarsson, fonnaður
svæðisráðs um málefni fatlaðra í
Reykjavík, segir ráðið hafa geflð
ráðherra almenna umsögn vegna
ráðningarinnar. „Framundan er eitt
viðamesta verkefni í þessum mála-
flokki í Reykjavík í áratugi sem er
flutningur málefna fatlaðra frá ríki
til sveitarfélaga,“ segir Halldór.
„Framkvæmdastjóri svæðisskrif-
stofunnar verður einn lykilmanna í
þessu verkefni og verður að hafa
góða þekkingu á málefnum fatlaðra
í Reykjavík og öllu félagsþjónustu-
kerfí borgarinnar sem taka mun við
málaflokknum á næstu misseram. A
þetta bentum við í umsögn okkar og
sögðum jafnframt að í hópi umsækj-
enda væra nokkrir sem hefðu bæði
menntun og reynslu á þessu sviði,“
sagði Halldór ennfremur.
Marglr umsækjenda
með meiri menntun
Hann sagði ráðið hafa átt í erfið-
leikum með að benda sérstaklega á
einhvern umsækjenda miðað við
gögn sem lágu fyrir en þó bent á
Gunnar M. Sandholt, sem síðustu
árin hefur starfað sem ráðgjafí hjá
Norrænu ráðherranefndinni og var
áður yfirmaður fjölskyldudeildar
hjá Félagsmálastofnun Reykjavík-
ur. Halldór segir félagsmálaráð-
herra hafa sniðgengið þessar
ábendingar og sagði ljóst að margir
umsækjenda hefðu bæði meiri
menntun og reynslu en fyirverandi
skólastjóri. „FélagsmálaráðheiTa
hefur ekki sýnt fagleg vinnubrögð
við ráðningu framkvæmdastjórans
og þar hafa einhver önnur sjónar-
mið ráðið en hagsmunir fatlaðra í
Reykjavík," segir Halldór Gunnars-
son.
Svæðisráðið hefur verið boðað til
fundar á morgun og er ætlunin að
ræða þar formleg viðbrögð ráðsins
við ákvörðun ráðherrans.
Borgin óskaði samráðs
Reykjavíkurborg fór fram á það
við félagsmálaráðherra þegar staða
framkvæmdastjórans var auglýst
að hann hefði samráð við fulltrúa
borgarinnar um ráðninguna. Jón
Björnsson, framkvæmdastjóri
menningar-, upplýsinga- og félags-
mála, tjáði Morgunblaðinu að slíkt
samráð hefði ekki verið haft við
borgina og kvaðst hann hafa ritað
ráðherra í gær og kvartað yfir að
ekki skuli hafa orðið af því samráði.
Var ósk um samráð borin fram með
þeim rökum að málefni fatlaðra
yrðu færð til borgarinnar og að
hugsanlega myndi umræddur fram-
kvæmdastjóri einnig fylgja mála-
flokknum.
Landssamtökin Þroskahjálp og
Öryrkjabandalag íslands óskuðu
eftir því við ráðherra í gær að af-
henda honum bréf vegna ákvörðun-
ar hans um ráðningu.
Hart barist um Gljúfurá
LANDEIGENDUR við Gljúfurá í
Borgarfírði velta nú fyrir sér
hvaða tilboði í ána skuli taka, en
þeir opnuðu alls fimm tilboð í
Hótel Borgarnesi á þriðjudag. Lé-
leg veiði var annars í þessari fal-
iegu á í sumar, en það kom ekki í
veg fyrir áhuga félaga og einstak-
linga að bjóða í hana. Stangaveiði-
félag Reykjavíkur hefur haft ána á
leigu um nokkurt árabil.
Hæstu krónutöluna bauð Ingvi
Hrafn Jónsson í nafni fyrirtækis
síns, Langárveiða, 4,8 milljónir á
ári til fimm ára, en skilyrt var í
boðinu að veiðifélag Gljúfurár
tæki sér fyrir hendur að reisa nýtt
veiðihús, sex herbergja, þar sem
fjögur væru ætluð veiðimönnum
eitt fyrir ráðskonu og það síðasta
fyrir staðarleiðsögumann.
Næsthæsta boðið var frá
Stangaveiðifélaginu Lax-á, sem
Arni Baldursson rekur, boð hans
hljóðaði upp á 3,7 milljónir, en síð-
an kom SVFR með tilboð upp á
„skipta áhættu“, en það er svipað
fyrirkomulag og félagið rekur við
ýmsar af ám sínum og felst í því
að gangi sala veiðileyfa illa, fínni
bæði SVFR og bændur fyrir því,
en gangi salan vel njóti þess báðir
í ríkum mæli. Miðað við hugmynd-
ir í tilboði SVFR gætu bændur við
Gljúfurá náð 3 milljónum 840 þús-
und krónum á ári miðað við sölu
eins og hún tókst til á nýlokinni
vertíð. Auk þess bauð SVFR 7
milljónir króna fyrirframgreiðslu.
Hin tilboðin tvö voru lægri, ann-
að var.frá Stórlöxum ehf., 2 millj-
ónir 870 þúsund og hitt frá
Stangaveiðifélaginu Tinnu, 2,4
milljónir. Forsvarsmenn Stórlaxa
leigja fyrir Svínafossá á Skógar-
strönd, en Tinna leigir Svalbarðsá
í Þistilfirði.
SVFR heldur Tungufljóti
Þótt óvíst sé hvort SVFR held-
ur Gljúfurá í Borgai’fírði hefur
gengið betur við samingaborðin
annars staðar. Þannig gerði félag-
ið nýverið nýjan samning til a.m.k.
fímm ára um Tungufljót í Vestur-
Skaftafellssýslu. Áin er ein mesta
sjóbirtingsveiðiá landsins og þar
veiðast yfirleitt stærstu birting-
arnir.
Félagið hefur einnig endurnýj-
að samning sinn um veiði í Soginu
fyrir landi Ásgarðs. Nýi samning-
urinn er til sex ára og er stjórn
SVFR ánægð með hann þar sem
uppsveifla var í veiði í Soginu í
sumar og menn gera sér vonir um
að framhald verði á því.