Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
jHHBBHHBMnMBHBnnHnnMHSim
VOGIR
ELTAK sérhæfir sig í
sölu og þjónusfu á
vogum.
Bjóðum eitt mesta úrval
á íslandi af smáum og
stórum vogum
- vagir cru okkurfag
Kassalíming
hogjreru; okkarjug ■
SOCO færibandakerfið
hefur endalausa
möguleika i samsetningu
og útfærslu.
Einfalt og fljótlegt i
uppsetningu og verðið
er frábært.
- Hafðu samband -
#ELTAKn'
vogit erw okkar fiig
Síðumúla 13. Sími 588 2122
€ Kassalimbandsvél með efri og
neðfi límingu
• Dönsk gæðavara
€ Auðveld i stillingu
€ Frábært veið
rrir kör og bretti
itnsþéttar IP-67
igstætt verð
if hverjum 10
á íslandi!
TAK*
’gjtr tusut okkat;fiig: ■
Færibandakerfi
Ný afgreiðsla Islands-
pósts í miðbænum
Allur póstur
á einn stað
ÍSLANDSPÓSTUR opnar nýja og
glæsflega afgreiðslu í Skipagötu á
Akureyri á morgun, fostudaginn 25.
september. Guðlaugur Baldursson,
stöðvarstjóri íslandspósts, sagði
þessa breytingu mjög til batnaðar
fyrir viðskiptavini fyrirtækisins,
sem nú gætu farið á einn stað með
allan póst, jafnt böggla og bréf.
Á síðasta ári var ákveðið að skipta
upp afgreiðslu og vinnslu póstsins á
Akureyri og íyrr í sumar var vinnsl-
an flutt að Fjölnisgötu 3b. Vegna
uppskiptingar Pósts og síma í tvö
fyrirtæki um síðustu áramót, þar
sem ákvörðun var tekin um fullan
aðskilnað fjarskipaþjónustu og póst-
þjónustu á Akureyri, var nauðsyn-
legt að móta framtíðar húsnæðis-
stefnu fyrirtækjanna beggja á
staðnum.
Niðurstaðan var að nýta húseign
Pósts og síma í miðbænum, þar sem
póstafgreiðsla verði Skipagötumeg-
in en símaafgreiðsla Hafnarstrætis-
megin í húsinu. Töluverðar breyt-
ingar hafa verið gerðar á húsnæðinu
en Islandspóstur leigir húsnæði
póstafgreiðslunnar á Akureyri af
Landssíma Islands hf. sem bar
kostnað af framkvæmdunum.
----------------------
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
FÁTT vita tvíburabræðumir
Trausti Karl og Heiðar Karl
skemmtilegra en að fara út í
hjólatúr með mömmu sinni,
Björgu Traustadóttur. Mæðginin
Tvíburar á
tengivagni
hafa vakið athygli vegfarenda í
Ólafsfirði þegar þau ferðast um
götur bæjarins en eins og sjá má á
myndinni silja þeir bræður í mak-
indum á sérsmíðuðum tengivagni.
Forstöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands eystra
Faglega staðið að
skráningu fólks
Hjálparsveit skáta
Kynning
fyrir nýliða
KYNNINGARFUNDUR fyrir ný-
liða Hjálparsveitar skáta á Ákureyri
verður haldinn í húsakynnum sveit-
arinnar, Lundi við Skógarlund í
kvöld, fimmtudagskvöldið 14. sept-
ember, kl. 20.
Hjálparsveitin leitar nú nýn-a fé-
laga, 17 ára og eldri, og þurfa menn
ekki að hafa tekið þátt í skátastarfi
áður.
Um 50 manns eru í Hjálparsveit
skáta, bæði karlar og konur, en Ás-
geir Hreiðarsson hjá skátunum seg-
ir ekki síst nauðsynlegt að fá fleiri
konur til starfa. Nauðsynlegt sé að
endurnýja stöðugt í sveitinni.
------♦-♦-♦-----
Bókmennta-
kvöld Gilfélags
GILFÉLAGIÐ hefur markað sér þá
stefnu að efla þátt bókmennta í
starfsemi menningarmiðstöðvarinn-
ar í Grófargilinu. Ljóðavökunni
„Heimur ljóðsins", sem haldin var í
Deiglunni í ágústmánuði síðastliðn-
um, verður nú fylgt eftir með bók-
menntakvöldum sem haldin verða
einu sinni í mánuði.
Lesið verður úr formálum ýmissa
öndvegisrita bókmenntanna í kvöld,
fimmtudag 24. september, og á
þriðjudagskvöld, 29. september,
verður ljóðavaka til minningar um
Davíð Stefánsson.
HELENA P. Karlsdóttir, for-
stöðumaður Svæðisvinnumiðlunar
Norðurlands eystra, sagðist vera
ósammála Helga Jóhannessyni,
framkvæmdastjóra Kjötiðnaðar-
sviðs KEA, sem sagði í Morgun-
blaðinu í gær að taka þyrfti skrán-
ingu fólks á atvinnuleysisskrá til
endurskoðunar. Helgi hefur verið í
nokkrum vandræðum með að fá
fólk til starfa í sláturhúsi félagsins
og eru KEA-menn farnir að velta
íýrir sér að fá erlent vinnuafl til
starfa.
I máli Helga kom einnig fram
að KEA hafi fengið fólk til starfa
sem hafi verið á skrá hjá Svæðis-
vinnumiðluninni og sumt af því
fólki hafi gert stuttan stans í
vinnu. Helena sagði faglega staðið
að því að skrá fólk á atvinnuleys-
isskrá og allir teknir í viðtal. Hún
sagði að hafi komið til þess að fólk
hafí stoppað stutt á sláturhúsinu,
hafi það fólk alla vega ekki komið
inn á skrá aftur.
„Við sendum ekki fólk í vinnu
sem við teljum ekki hæft til að
þess að stunda vinnuna. Við vilj-
um vinna þetta á faglegum gi-und-
velli og ef við höfum ekki fólk í
ákveðin störf, getum við ekki
mannað þau. Það er ekki okkar
takmark að koma öllum út af
skránni, heldur að finna réttan
farveg fyrir hvern og einn. Margt
af fólki á skrá er með læknisvott-
orð og ýmsar aðrar ástæður geta
búið að baki,“ sagði Helena.
Fagnar eftirspurn
eftir vinnuafli
Björn Snæbjörnsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar,
sagði atvinnuástand með besta
móti um þessar mundir. Hann
fagnar því að eftirspurn er eftir
vinnuafli, sem leiði vonandi til
þess að atvinnulausum fækki enda
sé það markmiðið. „Margt af því
fólki sem er á atvinnuleysisskrá er
í hlutastarfi og mér finnst að
kanna eigi hvort sláturhúsið er til-
búið að ráða fólk í hlutastörf áður
en farið verður að flytja inn Pól-
verja. Þannig að mér fannst nú
votta fyrir vertiðarskrekki í
Helga.“
Björn sagði unnið að því að efla
Svæðisvinnumiðlunina, hún standi
sig vel og eigi eftir að skila góðu
starfi í framtíðinni. „Skráningin er
mjög eðlileg en það kemur fyrir að
fólki líkar ekki vinnustaðurinn
sem í boði er og það hefur líka
ákveðnar afleiðingar fyrir viðkom-
andi.“
Margir í hlutastarfi
Helena sagði nokkuð hátt hlut-
fall fólks á skrá með hlutastarf og
að mikill meh-ihluta þeirra væri að
leita að vinnu á móti. Hún sagði at-
vinnurekendur í auknum mæli leita
eftir vinnuafli hjá Svæðisvinnu-
miðluninni. „Við eigum hins vegar
eftir að fara út í stærstu fyrirtækin
og kynna okkar starfsemina. Og í
kjölfarið má búast við enn ffekari
virkni, enda starfar hér fagfólk
sem hefur staðið sig mjög vel.“
Slátrið ddýrast
Breyting á aðalskipulagi
Arnarneshrepps 1997-2017
Sveitarstjórn Arnarneshrepps hefur samþykkt tillögu að aðal-
skipulagi Arnarneshrepps 1997-2017. Tillagan var auglýst og lá
frammi til kynningar í Hjalteyrarskóla frá 4. febrúar til 5. mars
1998.
Athugasemdafrestur rann út hinn 19. mars og bárust 15 at-
hugasemdir.
Sveitarstjórn hefur afgreitt athugasemdirnar og sent þeim aðil-
um sem athugasemdir gerðu umsagnir sveitarstjórnar.
Athugasemdirnar gáfu ekki tilefni til umtalsverðra breytinga á til-
lögunni, utan þess að sveitarstjórn hefur ákveðið að færa syðri
lóðarmörk stóriðjulóðar 100 m til norðurs, þetta gildir jafnframt
um suðurmörk ytra hafnarsvæðis sem tengist mörkum stór-
iðjulóðar, sunnanvert. Tillagan hefur nú verið send Skipulags-
stofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu
hennar.
Sveitarstjórn Amarneshrepps.
á Blöndudsi
NEYTENDASAMTÖKIN hafa
gert könnun á verði á slátri til
neytenda frá sláturhúsum á Norð-
urlandi. Sláturhúsin sem þátt tóku
í könnuninni voru Fjallalamb á
Kópaskeri, Sláturhús KÞ á Húsa-
vík, Sláturhús KEA á Akureyri,
Sláturhús Kf. Skagfirðinga, Sauð-
árkróki og Sláturhús SAH á
Blönduósi. Norðvesturbandalagið á
Hvammstanga sendi ekki inn verð-
lista í könnunina.
Aðeins voru teknar þær tegund-
ir sem öll húsin bjóða til sölu, tíu
alls, en eitthvað er misjafnt milli
húsa hvað er á boðstólum. Þessar
tíu tegundir, dilkalifur, dilka-
hjörtu, dilkanýru, dilkasvið, mör,
þindar, eistu, hálsbitar, ærlifur og
ærhjörtu eru ódýrastar á slátur-
húsinu á Blönduósi, kosta þar
1.665 krónur. Næstlægst er verðið
á Sauðárkróki, 1.702 krónur, þá
hjá Fjallalambi á Kópaskeri, 1.997
krónur, á Húsavík kostar pakkinn
2.108 krónur og 2.135 krónur á
sláturhúsinu á Akureyri.
Vambir á Króknum en
gervi annars staðar
Á Blönduósi er ekki selt slátur í
stykkjatali, þar kostar vömb og
keppur, kalónað 80 krónur en
einnig er hægt að fá keyptar
gervivambir. Á Akureyri, Húsavík
og Kópaskeri fylgja hverju slátri
fjórar tilbúnar gervivambir í stað
vambar og vélindiskepps sem ekki
er á boðstólum hjá þessum slátur-
húsum. Kaupfélag Skagfirðinga
heldur sig við gamla lagið en þar
fylgir vömb og keppur slátrinu, en
gervivambir eru ekki á sölulista
þar.