Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 22

Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ 1 ÚR VERINU Loðnuvinnslan hf. kaupir öílugl nóta- og togveiðiskip Verður aðallega gert út á kolmunna Gagnrýni á launakerfí sjómanna Hvati hlutaskiptanna er nauðsynlegur LOÐNUVINNSLAN hf. á Fá- skrúðsfírði hefur gert samkomulag um kaup á öflugu nóta- og togveiði- skipi frá írlandi. Hér á landi verð- ur skipið aðallega gert út á kolmunnaveiðar. Afhending skips- ins er áætluð 1. október nk. og mun það hljóta nafnið Hoffell SU. Skipið heitir Atlantean og hefur síðustu ár verið gert út á togveiðar, bæði á makríl og kolmunna. Það er smíðað í Hollandi árið 1981 en á því hafa verið gerðar talsverðar breyt- ingar. Það er 53 metrar á lengd og um 9,5 metrar á breidd. Réttur til síldveiða Skipið er búið 4.000 hestafla MAK aðalvél sem sett var um borð árið 1993 og verður skipið þannig með öflugustu skipunum í íslenska fískiskipaflotanum. Burðargeta skipsins er um 1.050 tonn. Skipið er búið RSV-kælikerfí og ber um 850 t af kældu hráefni. Einnig eru um borð í skipinu nýleg fiskleitar- tæki og togbúnaður. Að sögn Gísla Jónatanssonar, framkvæmdastjóra Loðnuvinnsl- unnar hf., verður skipið fyrst og fremst á kolmunnaveiðum. A skipið verður nýtt veiðileyfi skuttogarans Hoffells sem áður var í eigu Kaup- félags Fáskrúðsfirðinga en það er stærsti hluthafinn í Loðnuvinnsl- unni hf. Veiðileyfínu fylgir auk þess réttur til veiða úr norsk-ís- lenska síldarstofninum. „Með kaupunum erum við fyrst og fremst að bæta hráefnisöflun Loðnuvinnslunnar sem og að afla qkkur veiðireynslu í kolmunna. Öflugustu skipin hafa náð bestum árangri í kolmunnanum og þvf hentar þetta skip vel til veiðanna. Skipið hefur nær eingöngu verið á togveiðum og við hyggjumst einnig nýta þann möguleika," segir Gísli. FORSVARSMENN sjómannafé- laganna eru sammála um að hvatinn í hlutaskiptaíyrirkomulagi sjó- manna sé nauðsynlegur en hafa ólíkar hugmyndir um hlutaskipt- ingu innan kerfísins. í Verinu í gær kom fram sú skoðun Stefáns Þórar- inssonar, framkvæmdastjóra hjá Nýsi hf., að hlutaskiptakerfi sjó- manna væri úrelt og hamlaði fram- þróun sjávarútvegsins í landinu. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands íslands, segir umræður um breytingar á hluta- skiptafyrirkomulaginu áður hafa komið upp en þær hafí allar dagað uppi því menn hafí enn ekki komið auga á betra fyrirkomulag. Hann segir ummæli Stefáns einkennast af slagorðum og fullyrðingum en hann komi ekki fram með ábendingar eða nýjar hugmyndir. „Bæði útvegs- menn og sjómenn vilja halda þeim hvata sem felst í hlutaskiptakerfinu Lagerutsala vegg- og gólfflísum verð frá kr. 500 prm2 20% afsláttur á flísalími og fúgum E3 ndlaugar margar stærðir. Verð frá kr. 10< 's- ' PfÍ . / ' ■ kr. 15.505, r 170x71 frá kr9. " til kl. 21 c mboðsmenn um NORMANN Hallarmúli 4 • 108 Reykjavík • Sími: 553-3331 • Fax: 581-2664 ehf og vegna sérstöðu sjómennskunnar en erfítt að finna annað launakerfi sem hentar þessari stétt. Ef menn vilja gera breytingar á launakerfí sjómanna þá verða þeir að benda á aðrar leiðir," segir Sævar. í Verinu í gær hélt Stefán því ennfremur fram að íslensk fiskiskip væru í mörgum tilfellum yfirmönn- uð og launahlutfall sjómanna væri þannig of hátt miðað við það sem gerist í mörgum nágrannalöndum. Hann benti í þessu sambandi sér- staklega á nótaskipaflotann. „Þegar Stefán heldur því fram að fiskiskip- in séu yfirmönnuð er hann að lepja upp áróður útgerðarmanna frá því í vinnudeilunni síðasta vetur,“ segir Sævar. „Þá viðurkenndum við reyndar að mönnun á ísrækjuskip- unum væri ekki rétt og höfum verið tilbúnir til að ræða þau mál. En þegar Stefán færir einnig nótaskip- in inn í umræðuna er hann að skjóta út í loftið. Þau eru síður en svo yfir- mönnuð því afköst þeirra eru marg- falt betri en sambærilegra skipa frá nágrannalöndunum sem eru með færri menn í áhöfn.“ Helgi Laxdal, fonnaður Vél- stjórafélags íslands, segist ekki sammála því að hlutaskiptakerfi sjómanna sé að grunni til úrelt. Sá hvati að sjómenn fái greitt eftir því hve mikið þeir afla sé nauðsynlegur. Hinsvegar megi endurskoða skipt- ingu innan kerfisins, bæði milli út- gerðarmanna og sjómanna og eins innbyrðis skiptingu á milli sjó- manna. Það þurfí að endurskoða því launakerfi sjómanna megi ekki hamla þróun sjávarútvegsins. „Það er reyndar ekki rétt hjá Stefáni að hlutskiptafyrirkomulagið eigi rætur sínar að rekja til ársins 1962, því samningar um hlutaskiptingu sjó- manna, nákvæmlega eins og þeir eiu í _dag, voru undirritaðir árið 1933. Ég efa að það sé nokkur ann- ar vinnustaður hér á landi sem hef- ur verið með óbreytt launahlutföll milli starfsmanna í hálfa öld. Ég tel einnig að mönnunarákvæðin séu í einhverjum tilfellum orðin úrelt og það verður að finna leið sem er sanngjöm og eðlileg. Mín tilfinning er sú að í framtíðinni verði sjó- mönnum greidd há föst laun til að minnka áhættuna, en einnig þóknun ef vel gengur," segir Helgi. Tilboðsverð - sem er komið til að vera! indesif Itölsk hönnun, ítölsk gæði. Æ& " * §•# m i Kæliskápur RG 2190 j • Kælir 134 Itr. • Frystlr 40 Itr. • SJátfvlrk afþýðing t kæli • Orkunýtni C •Mál hxbxd: 117x50x60 Kr. 37.900,-slgr. ) iS Kæliskápur RG 2250 • Kælir 184 llr • Frystir 46 Itr - Sjálfvirk afþýðing fkæli • Orkunýtni C • Mál hxbxd: 139x55x59 ( Kr. 39.900.-stgr. ) m o o C Kr. 43.900.- stgr. ) Vifta undirskáp Hl 160 • Mál hxbxd: 15x60x48,5 ( Kr. 5.900.- stgr. ) ( Kr.29.900,-stgr. ^ Heiluborð P04WH • Mál bxdxh: 58x50x3 cm (kr 15.900. ■ stgQ v; ■ fm í/ Á •■■ Kæliskápur RG 2290 Kællr 2111tr. Frystir 63 Itr.osa Sjálfvirk afbýöing I kæll Orkunýtni C Mál hxbxd: 164x55x60 C Kr. 48.900.- stgrý) Þvottavái WG 837 Þurrkari SG 510 • Tekur 5,0 kg • Barki fylgir • Þvottakerfi 18 • Tekur 4,5 kg • Hitastiilir stiglaus • Snýr tromlu í báðar áttir • Vinduhraði 800 - 500 sn/mín. • Ryofrí tromla • Sjálfvirk vatnsskömtun • Hnappur fyrir kaldan blástur • Oryggislæsing • Belgur ryðfrír • Tvö þurrkkerfi • Barki fylgir • Tromla ryðfrf • Mál: hxbxd 85x60x54 cm • Orkunotkun 1,1 kWh • Mál: hxbxd 85x60x60 cm 1 o ................. njppþvottavél DG 5100 •Tekur 12 manna matarstell. • 6 kerfi (65°). • Hljóðlát • Vatnsnotkun: 26 Itr. venjulegt kerti • Orkunotkun 1,8 kWh veniulegt kerfi • Flæoiöryggi • Mál: hxbxd 85x60x60 cm (Kr.46.900.-stgr. ) Veggofn Fl M1WH*Undir og yfirhiti með blæstri • Grill (kr. 27.900 -stgO Þú þarf ekki að bíða eftir næsta tilboði. Þú færð okkar lága INDESIT verð alla daga ' j-" dagar í Perlunni 24. - 27. septe Brezel • AUianz • Bie Zeit • Lloyd • Sonax • BMW • WissoII • Ultje • Sauter • AEG • Beck's • Zwillinn AÐGANGUR ÖKEYFIS H APPOEiETTI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.