Morgunblaðið - 24.09.1998, Síða 25

Morgunblaðið - 24.09.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 25 SÍÐUSTU dagana áður en 60 milljónir þýskra kjósenda ganga að kjörborðinu til að kjósa nýtt þing snýst kosningabaráttan að miklu leyti um það, hvernig hver flokkur fyrir sig getur notfært sér þá möguleika sem hið flókna kosn- ingakerfi býður uppá til þess að auka líkurnar á því að úrslitin verði viðkomandi flokki hagstæð, eink- um með tilliti til þess hvers konar samsteypustjórn verður mögulegt að mynda eftir kosningarnar. Samkvæmt nýjustu skoðana- könnunum er fylgisforskot Jafnað- armannaflokksins, SPD, og kansl- araefnis hans Gerhards Schröders, á Helmut Kohl og flokk hans, Kristilega demókrata, (CDU), orð- ið mjög lítið. Fylgi SPD mælist nú í kringum 40% en CDU um 2% minna. Þar sem stærsti þingílokk- urinn á jafnan kröfu til þess að kanslarinn komi úr hans röðum hafa leiðtogar beggja stóru flokk- anna undanfarna daga lagt allt kapp á að koma þeim skilaboðum til sinna kjósenda, að ekki megi „gefa“ eitt einasta atkvæði. Þetta helgast af því, að hver kjósandi hefur í raun tvö atkvæði. Með öðru kýs hann einstakan frambjóðanda í sínu kjördæmi, með hinu flokk eða framboðslista. Þannig er helmingur þingsæta á Sambandsþinginu skipaður ein- staklingum sem kosnir eru beinni kosningu, og hinn helmingurinn eru listakjörnir fulltrúar. Litlu flokkarnir svokölluðu, Frjálsir demókratar (FDP) - sem era í stjórnarsamstarfi með CDU - Græningjar og PDS (arftakaflokk- ur austur-þýska kommúnista- flokksins SED) hafa hagnast á því að allmargir kjósendur hafa tíðkað að skipta atkvæði sínu á milli flokka - einkum þeirra, sem þeir vilja sjá starfa saman í ríkisstjórn. Þannig hefur FDP oft náð að upp- fylla skilyrðið um 5% lágmarks- ERLENT Allt opið á loka- sprettinum ✓ Oðum styttist í þingkosningar í Þýskalandi sem fram fara á sunnudag. Auðunn Arnórsson fylgist með kosningabaráttunni og segir mikla spennu ríkja á lokaspretti kosninganna. Reuters HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands. ári í Berlín) veldur því, að ómögu- legt er að segja fyrir hvemig meirihlutasamstarf verður í spilun- um eftir kosningar um helgina. Ef Græningjar komast inn, en hvorki FDP né PDS, ætti leiðin að verða greið fyrir SPD og Græningja að mynda saman stjórn, sem er yfirlýst tak- mark þeirra. Komist bæði Græningjar og PDS inn, en ekki FDP, þá má búast við því að SPD og Græningjar gætu ekki myndað stjórn nema með stuðningi þing- manna PDS. Þennan möguleika útmála leiðtogar CDU núna sem það sem koma muni ef Þjóðverjar halda ekki tryggð við Kohl, sem hefur setið við stjórnvöl- inn óslitið i 16 ár. En bæði leiðtogar SPD og Græningja hafa tekið skýrt fram, að ekki komi til greina að mynda stjórn sem væri háð stuðningi PDS - síðast á mánudag gaf Joschka Fischer, einn helsti leiðtogi Græningja, út yfirlýs- ingu þessa efnis. Komist FDP inn á þing auk Græningja og PDS væri tæknilega mögulegt að mynda meirihluta þriggja flokka - SPD, FDP og Græningja. Slíku sam- starfi hafna þó talsmenn allra þriggja flokka fyrirfram. fylgi, sem hver flokkur þarf að ná til að hljóta þingsæti, með því að margir sem kjósa t.d. frambjóðanda CDU í sínu kjördæmi gefa FDP listaat- kvæði. Svipað á við um SPD og Græningja. Litlu flokkarnir róa lífróður Allir þessir þrír flokkar róa nú lífróður, enginn þeirra á samkvæmt skoðanakönnun- um víst fylgi sem dugir þeim til að fá yfirleitt úthlutað þingsætum. Græningjar mæl- ast með í kringum 6%, FDP með um 5% og PDS með minna en 5%. Hinn síðast- nefndi sker sig þó úr með því að njóta svo mikils fylgis í einstaka kjördæmum (sem reyndar eru öll í austurhluta Berlínar), að hann á mögu- leika á að njóta undanþágu frá 5%-reglunni, sem gildir ef flokkurinn fær a.m.k. þrjá menn kjörna beinni kosningu, þ.e. flest atkvæði í sínum kjördæmum. Þessi óvissa um það hve margir flokkar skipta með sér þingsætun- um 565 í Bonn (og frá miðju næsta Stóra samsteypa? Þá er eftir „stóra samsteypan“, samstarf stóra flokkanna tveggja, SPD og CDU. Aðspurðir í skoð- anakönnunum hafa flestir Þjóð- verjar að undanförnu hallast að því að sú verði niðurstaðan. Kohl hefur lýst því yfir að hann muni aldrei taka þátt í slíku samstarfi en segist ekki andvígur því. Það opnar fyrir þann möguleika að Wolfgang Schauble, þingflokks- formaður CDU og hægri hönd Kohls, verði kanslari, fái CDU fleiri þingmenn en SPD. Verði SPD stærsti þingflokkurinn er lík- legast að Sehröder verði kanslari og Schauble varakanslari, en Schröder hefur sagst hafna því að verða varakanslari í stjórn sem CDU færi fyrir. Því veðja margir stjórnmála- skýrendur á að verði „stóra sam- steypan" niðurstaðan og CDU nái að halda stöðu sinni sem stærsti þingflokkurinn þá verði Schauble kanslari og Oskar Lafontaine, for- maður SPD, varakanslari. Óvissa um 5% lágmark Lafontaine lýsti því yfir eftir miðstjórnarfund SPD á mánudag, að flokkurinn þyrfti á hverju ein- asta listaatkvæði að halda sem hann hefur nokkurn möguleika á að fá og bæði Kohl og Schauble hafa á kosningafundum undan- farna daga ítrekað það sama í nafni CDU. Þetta eykur á óvissuna um hvort FDP og Græningjar nái 5%-lág- markinu. Og það sem eykur enn á óvissuna er hve mikið fylgi hægriöfgaflokkar geta náð til sín. Ekki er búist við að neinn þeirra nái 5%-lágmarkinu en samtals gætu þeir - a.m.k. í einstökum hér- uðum - fengið það mikið fylgi að það setti strik í reikning hinna flokkanna. t a-í\. 1010 oiu- oio-. »0’*010111 01» ... m^of 01* J001 >11.10111010 «t 010111'1001011101C i i01Pi’<001v lC *1010101010101011010lv J101010100001010101010010101 .‘■»0101010101010011111101 .U101010101010111111011001011 01010101010110110111111 10101010100001010101110 ',111101010111110010111 l. .OOIOIOIIOIOIOIOIOIO’’ 101010000101010 oioioioir Opinn fræðslufundur um á heilbrigðissviði í Háskólabíói næstkomandi laugardag. I S L E N S K • Einsleit þjóð - ættfræði - erfðaþættir heilsu og sjúkdóma. • Hugmynd - tækifæri - áhætta - ábyrgð - skyldur. • Stofnkostnaður - einkaleyfi - tekjumyndun - eignarhald. • Alþjóðleg samkeppni - kapphlaup við tímann. • Dulkóðun - aðgangshindranir - persónuvernd. • Siðfræði erfðarannsókna - alþjóðasamþykktir. • Framlag til alþjóðlegra læknavísinda. • Þýðing fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu. • Fyrirbyggjandi læknisfræði - aukin þjónusta - lægri kostnaður. • Aðgengi íslenskra og erlendra vísindamanna að upplýsingum. • Atvinnutækifæri og verðmætasköpun á (slandi. • Samstarf og samþykki íslensku þjóðarinnar. f S a g r e n i n g Fundurinn hefst kl. 14.00. Ávörp - erindi - fyrirspurnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.