Morgunblaðið - 24.09.1998, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
________________LISTIR
Skipbrot á I
brúðkaupsnótt -
DOFRI Hermannsson og Pálína Jónsdóttir í hlutverkum brúðhjónanna.
KVIKMYNPIR
Háskðlabfð
DANSINN ★★%
Leikstjóri Ágúst Guðmundsson. Handrit Kristín
Atladóttir og Ágúst Guðmundsson, eftir smá-
sögu Williams Heinesen. Tónlist Kai Doren-
kamp, Jurgen Peukert, Rainer Griinebaum.
Kvikmyndatökustjóri Ernest Vincze. Fram-
kvæmdastjóri Kristín Atladóttir. Aðalleikendur
Gunnar Helgason, Baldur Trausti Hreinsson,
Pálína Jónsdóttir, Dofri Hermannsson, Gísli
Halldórsson, Kristina Sundar Hansen, Saga
Jónsdóttir, Arnar Jónsson, Magnús Ólafsson,
Benedikt Erlingsson, Jógvan Ósá. 87 mín. ísfilm
ofl., 1998.
NÁTTÚRAN og trúin spila stórt hlutverk
í ritsmíðum höfuðskálds Færeyinga, Willi-
ams Heinesen, sem skrifaði smásöguna sem
Ágúst Guðmundsson byggir nýjustu mynd
sína á. Þessir þættir skila sér blessunarlega
vel í flutningnum á tjaldið, Dansinn er lítíl,
ljóðræn mynd sem heldur sínu sérstæða
andrúmslofti frá upphafi til enda. Atburða-
rásin er í eðli sínu alvarleg en í meðfórum
Ágústs, sem einnig skrifar handritið ásamt
Kristínu Atladóttur, verður útkoman létt og
dálítið kyndug mynd sem skilur við mann til-
tölulega sáttan við upplifunina.
Sögusviðið er þorp í Færeyjum á önd-
verðri öldinni. Þar er allt á öðrum endanum
því í undirbúningi er brúðkaup sýslumanns-
dótturinnar Sirsu (Pálína Jónsdóttir) og
Haraldar (Dofri Hermannsson), einkasonar
látins stórbónda. Gestina drífur að. Á meðal
þeÚTa er pilturinn Pétur (Gunnar Helgason),
vinur Sirsu og sögumaður. I nágrenninu býr
ívar (Baldur Trausti Hreinsson), vonbiðill
Sirsu, sem varð, sökum fátæktar, að láta í
minni pokann fyrir Haraldi.
Hann hefur þó ekki gefið upp alla von og í
þeirri þriggja daga brúðkaupsveislu sem í
hönd fer gengur á ýmsu. Bæði mannleg nátt-
úra og náttúruöflin gerast aðgangshörð.
Ófriður ríkir í meyjarskemmu á brúðkaups-
nóttina, um sama leyti strandar enskt skip
við eyjarnar, ýmis óheillavænleg tákn ber
fyrir sjónir, maður ferst. Hin geistlega stétt
stöðvar brúðkauspveisluna, sér djöfulinn í
hverju horni, ekki síst í hinum dunandi
hringdansi.
Færeyingar eru meira bókstafstrúarfólk,
að manni skilst (m.a. af lestri bóka Heines-
ens), freistingamar, syndin og sektin áþreif-
anlegri hugtök en í okkar samfélagi. Um-
hverfið er ægifagurt, þjóðtrúin yfir og allt
um kring. Allt skapar þetta ólgu í blóði og
órætt, jafnvel leyndardómsfullt andrúmsloft.
Þessir þættir skila sér í kvikmyndagerðinni,
það sem helst má að henni finna er peninga-
leysi. Baksviðið er veðrahamur með tilheyr-
andi aftökum og ólgusjó. Skipsstrandið kem-
ur afleitlegast út, kyrrlátar næiTnyndatökur
í bland við brim og boðafóll. Vindurinn
gnauðar en hárið bærist vart á bráðinni á
bjargbrúninni. Það er ekki við Ágúst og fé-
laga að sakast, þeir gera það sem þeir geta;
búa til bíómynd í fullri lengd fyrir fjármagn
sem nægir í eina til tvær mínútur í
Hollywood-kvikmynd. Leikararnir standa
sig flestir þokkalega. Þeir eldri undantekn-
ingarlaust óaðfinnanlegir, af þeim yngri
kemst Gunnar Helgason best frá sínu. Aðrir
eru upp og ofan. Hins vegar eru þeir flestir
réttu manngerðirnar og setja trúverðugt
svipmót á persónurnar. Þegar öllu er á botn-
inn hvolft verður niðurstaðan skemmtilega
viðunandi. Dansinn er lítil og notaleg stemn-
ingsmynd sem tekst nokkura veginn það
sem hún ætlar sér; Að ná fram einkennum
Heinesens og framandi hugarheims á hvíta
tjaldið. Það hefur verið vandasamt verk
(enda hafa margir, kunnir kvikmyndagerðar-
menn gefist upp í návígi við skáldið). Ágúst
notar aðstoð sögumanns; Pétur á tímum at-
burðanna og í endurliti (þá fluttur af Árna
Tryggvasyni með miklum ágætum). Þetta
form hefur tekist að mestu leyti.
Sæbjörn Valdimarsson
Úr fókus
Skúlptúrar
í Galleríi
Hnossi
VAGNA Sólveig Vagnsdóttir opnar
sýningu á tréskúlptúrum í Galleríi
Hnossi, Skólavörðustíg 22, laugar-
daginn 26. september.
Vagna er fædd á Ósi við Amar-
fjörð 1935 en býr nú á Þingeyri.
Hún er sjálfmenntaður listamaður
og hefur notað hin ólíkustu efni í
verk sín. Hún hefur selt verk sín um
allan heim, segir í fréttatilkynningu.
Sýningunni lýkur 2. október og er
opin virka daga frá kl. 12-18, laug-
ardaga frá kl. 11-18 og sunnudaga
kl. 12-18.
TRÉSKtíLPTÚR Vögnu Sól-
veigar Vagnsdóttur.
Djass í
Hafnarborg'
DJASS fyrir alla er yfirskrift tón-
leikaraðar sem Gildisskátar í Hafn-
arfirði hafa staðið fyrir sl. þrjú ár í
Hafnarborg í Hafnarfirði. Nú á
fimmtudag kl. 21 hefst vetrarstarfið
með Óskari Guðjónssyni saxófón-
leikara, Hilmari Jenssyni og
Eðvarði Lárussyni gítarleikurum,
Þórði Högnasyni á kontrabassa,
Matthíasi M.D. Hemstock á tromm-
ur og Pétri Grétarssyni á slagverk.
Flutt verður dagskrá með sönglög-
um Jóns Múla Árnasonar.
Aðrir tónleikamir verða í októ-
ber, þá skemmtir Árni Scheving og
kvintett hans. Fjórar klassískar,
verða með tónleika í nóvember.
MY]\PLIST
Mokka
LJÓSMYNDIR
ORRIJÓNSSON
Opið alla daga á tíma kaffistofunnar.
Til 10. október. Aðgangur ókeypis.
KORNUNGUR Ijósmyndari,
Orri Jónsson, nýútskrifaður úr
Sjónlistaskóla New York borgar,
School of Visual Arts, hefur hengt
upp nokkrar mynd-
ir sínar á veggi
Mokka. Mun þetta
fyrsta sjálfstæða
framkvæmd hans á
sýningavettvangi,
hefur þó tekið þátt í
einni sýningu innan
veggja skólans.
Af formála vinar
á kynningarblöð-
ungi að ráða, mun
nokkuð tilstand
hafa verið í sam-
bandi við sýningar-
áform listspírunn-
ar, sem þótti ein-
hverra hluta vegna
afleitur kostur að
troða upp í hefð-
bundnum sýningar-
sal. Kaffihús kæmi
öllu frekar til
greina. Frekar öf-
ugsnúinn metnaður
með hliðsjón af
náminu í virðulega
skólanum, enn
fremur að Mokka
kaffi skyldi verða
fyrir valinu vegna meintra notaleg-
heita sinna. Viðkomandi sést yfir að
um einn elsta og hefðbundnasta
sýningarsal borgarinnar er að
ræða, sem um þessar mundir lýtur
stjórn hámenntaðs listsögufræð-
ings og sýningarstjóra! Hefðin fólst
lengstum helst í fijálslegu vali
sýnenda, þar sem bendiprik
komust hvergi nærri, og svo á stað-
urinn fertugsafmæli um þessar
mundir...
Þannig var engan veginn full-
komlega í fókus að velja Mokka, og
úr fókus eru einnig sumar mynd-
irnar á sýningunni, ekki þó á hnit-
miðaðan og hrifmikinn hátt heldur
frekar vandræðalegan á köflum.
Það er nefnilega mikið mál að vinna
ljósmyndir úr fókus og ef menn
hafa ekki tæknina og tilfinninguna
með sér getur útkoman orðið giska
svífandi.
Skrifin eru þannig í hæsta máta
vanhugsuð og unggæðingsleg, fátt
sniðugt við þennan strákslega og
alvörulausa dibbe, dibbe dooo
skólablaðastíl. Hefði sannast sagna
hæft öllum kaffístofum borgarinnar
betur en Mokka.
Það er einnig og kannski eðlilega
PORTRETT (4).
nokkur byrjunar- og skólabragur
yfir sýningunni, þrátt fyrir hina
nafnkenndu stofnun sem menntun-
in er sótt til. Og helst eru það
myndimar úr fókus sem lítið hreyfa
við skoðandanum, fara trúlega
framhjá flestum gestum kaffistof-
unnar. Mikið til um smámyndir að
ræða, þar sem daufleikinn ræður
ríkjum, en sem betur fer sér í fjór-
ar stærri á vesturvegg og eru þrjár
þeirra í frekar hefðbundnu sniði.
Vel og klárlega teknar, af tilfinn-
ingu fyrir miðlinum og þrátt fyrir
að eins sé úr fókus er til muna bet-
ur staðið að verki.
Bragi Ásgeirsson
INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT
J2 GFP 4435
o
z
; / / / / ' í i i j / /;7 / / / ,
§§§i ! > !, .
.. ..
Tegund Lítrar (br.) Stærð Verð Stgr.
GFP4141 146 lítrar 85x60x60 31.263,- 29.700,-
GFP 4220 220 lítrar 88x89x65 37.579,- 35.700,-
GFP 4290 294 lítrar 88x109x65 41.789,- 39.700,-
GFP 4370 370 lítrar 88x132x65 47.053,- 44.700,-
GFP 4435 443 lítrar 88x164x65 52.316,- 49.700,-
| Eigum einnig ymsai*
I siænöip frystiskápa
Frystikistur
Titboðsverð sem eru kontin til að vera.
i—i_ BRÆÐURNIR
m ORMSSON
Lóqmúla 8 • Sími 533 2800