Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.09.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 45 MENNINGARHÁTÍÐ í BERGEN „Hinn hreini tónn“ frá Islandi Hátíðin „Norrænir menningardagar“ var haldin í Bergen í Noregi fyrrihluta ágúst- mánaðar. Hópur Islendinga sótti hátíðina og annaðist kynningu á íslenzkri menningu og matarhefð undir forustu Fríðu Völu Asbjörnsdóttur, sem segir hér frá menn- ingardögunum og dvöl sinni í borginni. FRÍÐA Vala Ásbjörnsdóttir með Hákonshallen í Bergen í baksýn. ÍSLENSKU þátttakendurnir: f.v. Margrét, Valgerður, Stefán, Hildur og Fríða Vala. „HELE Norden skal leve“ eða - Norðurlöndin lifi - eru fi-jáls félaga- samtök á Norðurlöndum - í raun grasrótarhreyfing, sem sinnir menningar- og velferðarmálum sam- tímans. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti íslands, er verndari samtakanna og Jónas Jónsson, bún- aðarmálastjóri, hefur verið í stjórn þeirra frá upphafi, eða frá árinu 1994, en hann er nú að draga sig í hlé. Norskur stjómarmeðlimur í „Hele Norden skal leve“, Lars Hauge, sem einnig er þátttakandi í „Norsk Velforbund", valdi greinar- höfund til þátttöku í þessum nor- rænu félagasamtökum og sem tengilið fyrir: Höfuðborgarsvæði - menning, einkum matarmenning - ungt fólk og innflytjendur. Vinna mín snýst einkum og sér- flagi um þessi málefni, hvort sem það er tilviljun eður ei. Núna hef ég tveggja ára reynslu að baki í þessum samnorrænu félagasamtökum og finnst mér þau hafa verið jákvæð og uppbyggjandi. í ár lauk fjögurra ára tímabili, þar sem hljómlist var sett framarlega í menningarmálunum og á döfinni var að halda stórhátíð í Bergen, „De nordiske kulturdager i Bergen", dagana 7.-9. ágúst 1998. Þátttaka Islendinganna í þessari hátíð var myndarlega styrkt af sam- tökunum „Hele Norden skal leve“, sem greiddu allan kostnað innan Noregs og flugferðina frá Islandi. En einnig studdu fjölmörg íslensk íyrirtæki þátttökuna með því að leggja fram til kynningar íslenskan mat af ýmsu tagi. Hjá mér fór meiri partur sumarsins í undirbúning fyr- ir hátíðina í Bergen, en Rafn Hafn- fjörð, ljósmyndari, og Haraldur Finnsson, skólastjóri Réttarholts- skóla, léttu mér þann undirbúning. Sú varð raunin á að hlutur okkar ís- lendinganna varð æ stærri og veiga- meiri eftir því sem nær dró sjálfum hátíðahöldunum. Framlag okkar laugardaginn 8. ágúst, þ.e. aðalhá- tíðisdaginn, fólst í eftirfarandi: Inngangserindi, fluttu af greinar- höfundi, þar sem meðal annars var farið með kvæði eftir Halldór Kiljan Laxness - Kveðju og ræðu frá Vig- dísi Finnbogadóttur - fluttri af greinarhöfundi og Ivari Gundersen. - Hljóðfæraleik: Hom - Stefán Jón Bemharðsson, 20 ára. Fiðla - Val- gerður Ólafsdótir, 20 ára. Víóla - Hildur Ársælsdóttir, 18 ára. Selló - Margret Árnadóttir, 17 ára. - Ut- stillingu á 5 stómm veggspjöldum um: „Island i dag - Island för i tiden - Island i fremtiden (energi- ökonomi) - Spnndagsmaten i Reykjavik for 30 ár siden og nu - Útstillingu á íslenskum mat - Viða- mikilli matarkynningu. Hvemig tókst til? í norrænni blaðagrein, sem mér hefur verið send, er okkur þökkuð þátttakan. Þar er minnst á lifandi framkomu, frábæran hljóðfæraleik og góðan mat. En allt þetta „bragte Island fint frem i konferancen", eða með öðmm orðum, var Islandi til sóma. Trúlega megum við, sem hlut áttum að máli, vera pínulítið stolt og ánægð yfir okkar framlagi. Við, Is- lendingarnir fimm studdum vel við bakið hver á öðmm og okkur tókst að leysa úr vandamálunum um leið og þau komu. Ég læt hér fylgja kvæði, ort í léttum dúr, sem flutt var á hátíðinni undir yfirskrftinni: „Nor- disk rapsodi“: I fra Island langt mot nor. Der hvor kjære Frida bor. Hit til Norge kom med unge musikanter. Men pá flesland ble det tulL Kvoten var nok altfor full Det var kjott og fisk i mange varianter. Men pá flesland ble det tull“ þarf skýringar við. En svo bar við, að vegna mikfllar yfirvigtar á farangri, var ég krafin um kr. 53.000 norskar eða um 600.000 kr. íslenskar í flug- stöðinni í Ósló. Þar er sá siður hafð- ur á að farþegar ná í sinn farangur og innrita sig að nýju fyrir næsta flug. Að vísu hafði ég leyfi hjá Flug- leiðum fyrir 80 kg yfirvigt, en það leyfi gilti ekki fyrir SAS flugfélagið sem ég flaug með síðasta áfangann. Það kom mér ekki á óvart að lenda í vandræðum á flugvellinum í Ósló. Reyndar erfitt að sporna við því að heiman. Venjulegur starfsmaður gat ekki afgreitt mál mitt - með átta kassa af matvælum frá Islandi og 100 kg í yfirvigt. Ég var send úr ein- um stað í annan með tvo burðar- vagna í eftirdragi. í umstanginu missti ég af flugvélinni en ungmenn- in héldu áætlun og biðu eftir mér á flugvellinum í Bergen. Að lokum hitti ég á yfirmann flutningaþjónust- unnar sem var hinn alúðlegasti og vísaði mér áfram á hlið, merkt „Special godds“ og þar með var mál- ið afgreitt. Horft til baka Þegar horft er til baka finnst mér hljóðfæraleikur ungmennanna bera hæst. Bæði þegar þau léku sígilt verk eftir J.Á. Amon, kvartett fyrir horn og strengi op. 20 í þremur þátt- um við setningu hátíðarinnar og síð- ast en ekki síst, þegar þau léku við móttökuna í „Hákonshallen“, höll Hákonar konungs Hákonarsonar, sem hann lét reisa árið 1260 fyrir brúðkaup og vígslu sonar síns, Magnúsar lagabætis. Þar var fyrst endurtekinn síðasti kaflinn úr verki J.A. Amons. Síðan léku þau verk eft- ir Þorkel Sigurbjörnsson (f. 1938): Plus Sonat, Quam Valet (1972). Nú- tímalegt verk, sem kom á óvart en virtist vera dálítið stríðið á köflum - rétt eins og íslensk náttúra. Hugurinn leitaði heim á Esjuslóð- ir. Viku áður en þessi ferð var farin fórum við hjónin ásamt nokkrum góðum vinum að ganga yfir Esju og ætluðum að borða kvöldmat í Eilífs- dal. Áætluðum við að ferðin tæki 6-8 tíma á rólegri göngu. En Esja var ekkert á því að sleppa okkur. Þoka byrgði okkur sýn og við fundum ekki niðurleið. Fjall og himinn runnu saman í eitt - við villtumst. Komust í kvöldmatinn um miðnætti eftir 13 tíma labb. Við vorum þó mjög stolt yfir því að geta klárað okkur hjálparlaust niður af fjallinu. Hitt hefði orðið saga til næsta bæjar og hálfgerð hneisa fyrir „þroskað" fólk. Það var magnað að hlusta á leik íslensku ungmennanna í „Hákons- hallen". Ég fann fyrir gæsahúð á handleggjunum en ekki af kulda. Augnkrókarnir urðu rakir. Slík voru áhrifin. Var þetta kannski hinn hreini tónn sem getið er um í Brekkukotsannál Halldórs Kiljans Laxness? Síðar var mér sagt að slík hljómlist, þ.e. kammermúsík, hefði aldrei fyrr verið flutt í þessu húsi, sem reyndar er stolt Bergen-búa og helsti móttökustaður fyrir tigna gesti. Hér má geta þess að það var sér- stök upplifun, einkum fyrir hljóð- færaleikarana, að fikra sig upp og niður snúinn einstiga úr steini, til og frá aðalsalnum. Vistarveran sem tók við að stiganum loknum var líka ein- stök upplifun. Þar var hvergi að sjá hornréttan flöt. Allar línur ávalar - veggir, bekkir, borð og tvennar dyr. Allt fagurlega mótað úr steini. Þeg- ar niður í þetta steinaríki var komið að hljómleikunum loknum, faðmaði ég þau að mér, eitt af öðru. Orð voru óþörf. Eitthvað stórt hafði gerst og það var gaman að vera til. Leiðin frá höllinni að nútímalegri götunni bar vott um hugvit og hag- anleik gamla tímans. Steinlögð mjó gatan, ætluð hestvögnum, hallaði allbratt niður beggja vegna vegarins og endaði í steinlögðum rennum. Það rignir mikið í Bergen svo þetta var með ráðum gert. Stóru veggspjöldin mín töluðu sínu máli um menninguna. Þar mátti glöggt sjá að áður fyrr var mest virðing borin fyrir því stóra og mikla, sem nú er mikið liðin tíð. I hugbúnaði og tækjum nútímans er einmitt verið að sækjast eftir því smæsta. í gamla daga - á tímum skortsins - var orkuþéttni matarins eftirsóknarverðust, þ.e. að fá sem mesta orku miðað við minnsta fyrir- ferð. Nú er næringarþéttni matar- ins, gjaman á kostnað orkunnar, álitin eftirsóknai'verðust. Vandamál æ fleira fólks er að það hreyfir sig of lítið og fitnar um of. Hvað gerir framtíðarmaðurinn við því? Svarið er að finna á einu veggspjaldinu. Veggspjöldin koma ekki strax heim. Þau fara á sýningu í Kristi- ansand núna í september. íslenska matarkynningin verður trúlega mörgum eftirminnileg. Þar gaf að líta lúxus sfld frá Ora. Flat- kökur með fjallagrösum frá Köku- gerð Selfoss og seytt rúgbrauð frá Hverabakarí. Smjör og ost frá Osta- og smjörsölunni. Einnig var þarna lax, bæði grafinn og reyktur frá ís- lenskum matvælum. Hangikjöt frá Bændasamtökun- um og hákarl frá Hildibrandi í Bjarnarhöfn vakti mikla athygli gesta og virtist hákarlalyktin vera þeim einstök upplifun. Ég hafði útbúið spjöld sem sett voru hjá hverri matartegund þar sem á stóðu helstu upplýsingar um viðkomandi vöru. Þetta vakti ekki síður athygli og áhuga hjá gestun- um. En rjómaskyr, með bláberja- sultu og rjómablandi út á, var einna vinsælast. Lýsi frá Lýsi hf. vakti líka eftirtekt svo og harðfiskurinn. Það er heilmikið puð að vera með svona matarkynningu. Að vísu naut ég aðstoðar fjögurra norskra kvenna á vegum „Norsk velfor- bund“ við það verk. Að menningardögunum loknum átti ég þrjá aukadaga í Bergen. En hvort tveggja var, að ég þráði að upplifa fjallanáttúruna og ég þráði líka að vera bara ein með sjálfri mér smátíma. Á hótelinu þar sem ég bjó, meðan á hátíðinni stóð, voru Japanir og Spánverjar í miklum meirihluta og átti ég í frekar fátæklegum viðræð- um við þá við morgunverðarborðið sem var afar glæsilegt. Bros og al- mennilegheit voru okkar helstu samskiptamátar. Ég var svo heppin að fá að dvelj- ast hjá innfæddri fjölskyldu að menningardögunum loknum. Bergen-búar eru almennt álitnir lífsglaðari og líta svolítð stærra á sig en gengur og gerist meðal Norð- manna. Stoltir Bergen-búar telja sig vera afkomendur Bergen-búa. En aðrir Norðmenn eru þá vist bara komnir af öpum, rétt eins og fleiri! Fyrsta daginn gekk ég upp á Flöjin, aðalútsýnisstaðinn í Bergen, sem er í um 500 m hæð. Klukkan var 10:00 að morgni og þarna uppi var vart þverfótað fyrir Japönum. En þegar ég kom til baka eftir tveggja tíma göngu eftir vel merktum fjalla- og skógarstígum, var komin mikil mergð af Evrópubúum. Kannski taka Austurlandabúar daginn fyrr í sumarfríum sínum en við værukærir Evrópubúar. Þarna sást vel út yfir allan bæinn, dali og firði og langt út á sjó. I miðri Bergen gaf að líta gott bil eða band, sem aðskildi bæjarhlutana. Þegar betur var að gáð, reyndist þetta vera vegur, sem myndaði nokkurs konar „eldvegg", til vamaðar ef mikinn eldsvoða bæri að. En Bergen varð að störum hluta til eldi að bráð á árum áður, sem sett hefur djúp sár í vitund eldra fólks. Flest hús, eink- um þau smærri, eru úr viði enda Noregur vel skógi vaxinn. Annan daginn skoðaði ég söfn og lífið í bænum. Bryggjan eða „Bryggen" hefur sérstakt aðdráttar- afl. Þar er lífið í hámarki. Frábær götumarkaður, einkum er fiski- markaðurinn á háu menningarstigi og iðandi mannlíf kringum hann. I hádeginu settist ég á steinbekk rétt við sjávarbakkann og lauk upp úr heilli jarðarberjaöskju. Á hinum enda bekkjarins sat ítalskt par með hálft kfló af stórri, óskelflettri rækju í poka á milli sín, sem þau borðuðu með fingrunum beint upp úr pokan- um. Trúlega er gott fyrir ástfangna að heimsækja Bergen. Askjan af jarðarberjum hafði kostað kr. 28 norskar. Það minnti mig á það, að heyrt hef ég að Norð- menn telji að sumarið sé komið þeg- ar verðið á jarðarberjunum er kom- ið niður í 28 krónur, jafnt hitastig- inu. En í dag var hitinn einmitt 28 gráður C. Sumarið var því seint á ferðinni þetta árið. Það hafði víst rignt allan júnímánuð. Síðasta daginn fór ég með kláfin- um upp í Ulriken, sem er fjallgarður í um 650 m hæð. Ég slóst í fór með feðginum og leiðin lá um Vidden sem ég þýði sem víðerni fjaflanna. Þar mátti sjá sauðfé á beit með bjöllur hangandi á sér. Dálítil hljóð- mengun stafaði af þessum annars lágværa bjöUuhljómi. En skyldu ekki blessaðar skepnurnar stressast á þessum framandi hávaða þarna, þar sem kyrrðin var einn helsti helgidómurinn? Kannski gefa þær af sér stressað kjöt? Á íslandi fáum við enn óstressað lambakjöt. Tíminn leið og ég þurfti að haska mér til þess að missa ekki af flugvél- inni heim þá um kvöldið. Ég kvaddi feðginin og stytti mér leið niður Is- dalinn til Haukedalen þar sem ég bjó hjá einstaklega almennUegum hjónum, Sevarin J. Overaa og frú í Ásana, þessa þrjá síðustu daga, sem í raun voru eina sumarfríið mitt. Ég var bæði södd og sæl með veru mína í Bergen, sem reyndar einu sinni var höfuðborg Noregs en hét þá Björgvin. Bergen mun verða ein níu menningarborga Evrópu ár- ið 2000 - rétt eins og Reykjavík. Von bráðar sat ég í flugvélinni á leið heim. Víst er að hinn góði vilji sem svíf- ur yfir hjá „Hele Norden skal leve“ er mér verðmætur hvati til átaka og samvinnu. Þar hef ég eflst af kjarki og dug. En nú eiga skólinn og kennslan hug minn allan að sinni. Höfundur er kennari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.