Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 46

Morgunblaðið - 24.09.1998, Side 46
46 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Eiginmaður minn, bróðir, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, JÓN ÞÓRIR JÓNSSON, Réttarholtsvegi 33, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 19. september sl. Jarðarförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 29. september kl. 13.30. Þórunn Vilmundardóttir, Stefán H. Jónsson, Unnar Jónsson, Stefán Hólm Jónsson, Vilmundur Jónsson, Jórunn Jónsdóttir, Gunnar Valur Jónsson, Þórir Jónsson, Hafdís Kristinsdóttir, Svava Guðnadóttir, Hrönn Andrésdóttir, Halberg Siggeirsson, Kristín Sigurðardóttir, Sigurbjörg Sigurðardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur og bróðir, JÓN HANNIBALSSON, Bergholti 8, Mosfellsbæ, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 23. september. Jarðarförin auglýst síðar. Ragnhildur Þorleifsdóttir, Þórunn Stefanía Jónsdóttir, Benedikt Halldór Halldórsson, Þorsteinn Jónsson, Berglind Hanna Jónsdóttir, Þorsteina Kristjana Jónsdóttir og systkini. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, STEINGRÍMUR HANNES FRIÐLAUGSSON, Miðhlíð, Barðaströnd, sem lést þriðjudaginn 15. september síðast- liðinn, verður jarðsunginn frá Hagakirkju laugar- daginn 26. september kl. 14.00. Dagný Þorgrímsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar og fósturfaðir, GUNNAR BJARNASON, fyrrverandi hrossaræktarráðunautur og kenn- ari, lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 15. september. Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíla- delfíu, Hátúni 2, á morgun, föstudaginn 25. september kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Minningarsjóð íslenzka hestsins, sem skrifstofa Landssambands hesta- mannafélaga annast um (bankanúmer sjóðsins er 311-13-725000) eða Minningarsjóð Fíladelfíukirkjunnar. Fyrir hönd aðstandenda, Halldór Gunnarsson, Bjarni Gunnarsson, Gunnar Ásgeir Gunnarsson, Regína Sólveig Gunnarsdóttir, Margrét Haraldsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, STEFÁNS JÓNS BJÖRNSSONAR fyrrv. skrifstofustjóra. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- heimilisins Eirar fyrir góða umönnun. Hrafnhildur Elín Stefánsdóttir Cummings, Kenneth Cummings, Björn Stefánsson, Hrefna Jónsdóttir, Páll Magnús Stefánsson, Hildur Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. RANNVEIG LÁR USDÓTTIR + Rannveig Lár- usdóttir fæddist á ísafirði 13. desem- ber 1914. Hún lést á Vistheimilinu Arn- arholti 16. septem- ber síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Lárus Marís- son, f. 14. nóv. 1875 frá Langeyjarnesi á Skarðsströnd í Dalasýslu, d. 13. feb. 1942, og Mar- grét Benediktsdótt- ir, f. 29. maí 1872 á Kirkjubóli í Langa- dal, d. 15. jan. 1965. Rannveig átti tíu systkini og komust sex til fullorðinsára, en þau eru nú öli látin. Rannveig giftist 16. nóv. 1940 Gils Jónssyni, bakara, f. 25. júlí 1906, d. 26. mars 1967. Rann- veig eignaðist tvær dætur og tvo syni. Þau eru: 1) Anna Auð- unsdóttir, f. 2. jan. 1935, gift Herði Ársælssyni. Börn þeirra eru Margrét, f. 6. jan. 1955, Ár- sæll, f. 9. jan. 1956, Gils, f. 24. feb. 1958, Hörður Örn, f. 27. maí 1967, og Guðni Pétur, f. 22. ág. 1969. 2) Ingibjörg Gilsdóttir, f. 15. maí 1940, gift Finni Valdimarssyni. Börn þeirra eru: Rannveig, f. 4. apr. 1956, Fjóla, f. 30. okt. 1959, og Ás- laug, f. 9. ág. 1963. 3) Hafsteinn Gils- son, f. 12. júl. 1941, kvæntur Ágústu Haraldsdóttur. Þau skildu. Börn þeirra eru: Svanur, f. 26. mars 1965, og Hafdís, f. 13. jan. 1967. 4) Matthias Gilsson, f. 21. sept. 1949, kvæntur Kolbrúnu Roe, þau skildu. Börn þeirra eru: Gils, f. 4. júl. 1975, og Harpa, f. 14. nóv. 1976, d. 15. apr. 1991. Utför Rannveigar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hún amma er dáin. Mig langar að kveðja hana með fáeinum orð- um, því ég á mjög góðar minningar um hana ömmu mína. Um tíma bjuggum við í Hólmgarðinum á neðri hæðinni og amma og afi á efri hæðinni. Hún gætti okkar systkin- anna oft, bæði meðan mamma og pabbi voru að vinna og eins meðan þau voru að byggja á Ásbrautinni. Mér er það líka í fersku minni þeg- ar við frænkurnar fengum að fara í okkar fyrstu flugferð sem var til Isafjarðar með ömmu. Eg og Ranný frænka vorum klæddar eins og tvíburar og vorum við að heim- sækja Margréti langömmu sem ég er skírð í höfuðið á. Vorum við frænkur fjögra og fimm ára gaml- ar. Við ferðuðumst með sjóflugvél sem lenti á sjónum. Þetta var í fyrsta og eina skiptið sem ég sá langömmu mína því hún dó tveimur árum seinna. Þau voru ófá skiptin sem ég kom í bakaríið til Gils afa til að fá snúð og marengskökur og endaði yfirleitt ferðina með að fara á smurbrauð- stofuna til ömmu upp á Vesturgötu. Svo þegar ég og Ársæll bróðir vor- um orðin eldri gátum við alltaf kom- ið í Hólmgarðinn til ömmu. Hún hafði stóra smáaurabuddu í glugga- kistunni sem hún sagði að við mætt- um fara í til að fá pening í strætó. Þó vissi hún vel að við ættum strætómiða til að komast heim. Hún vissi líka að okkur fannst gott app- elsín og apótekaralakkrís. Amma og afi áttu ekki langan tíma saman, en þau ferðuðust mikið saman. Þau fóru að fara með Gull- fossi til Spánar og eftir að afi dó hélt hún sínu striki og fór margar + Ástkær eiginkona mín, BJÖRG BJARNADÓTTIR, Hvoli, í Aðaldal, er lést föstudaginn 18. september, verður jarðsungin frá Grenjaðarstaðarkirkju laugardaginn 26. september kl. 14.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Þorkell Þrándarson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELIN S. JÓNSDÓTTTIR, síðast til heimilis í Seljahlíð, verður jarðsungin frá Áskirkju, á morgun, föstudaginn 25. september kl. 13.30. Þorbjörg Gísladóttir, Guðmundur Magnússon, Halldór Gíslason, Stefanía Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar og amma, DAGBJÖRT UNNUR MAGNÚSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, áður til heimilis Sólbakka, Ytri-Njarðvík, verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 25. september kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnar Kristjánsson, Jóna Gunnarsdóttir, Alda Kristjánsdóttir Barbacci, John Barbacci. ferðir til Spánar. Hún fór líka íyrh- allar aldir á morgnana í bakaríið til að fá taupoka sem komu með hveiti og úr þeim saumaði hún kokka- svuntur og seldi. Amma reyndist mér mjög vel þegar ég eignaðist dóttur mína að- eins 17 ára gömul. Það voru engar smágjafir sem hún færði okkur, hún amma mín. Hún var líka mjög dugleg að fara með mig í bíó og man ég vel eftir fyrstu myndinni sem við sáum saman sem var Sound of music. Elsku amma mín, nú hefur þú loksins fengið hvíld sem þú hefur þráð svo lengi. Ég vil biðja góðan Guð að varðveita þig, og ég vona að þú og afi sameinist að nýju. Elsku mamma, Ingibjörg, Haf- steinn og Matti, ég votta ykkur og íjölskyldum ykkar dýpstu samúð mína við fráfall móður ykkar, tengdamóður, ömmu og langömmu. Megi góður Guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar. Margs er að rainnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Margrét Harðardóttir. Látin er á 84. aldursári amma mín og er hvíldin henni eflaust kærkomin. Þegar ég heimsótti hana síðast spurði hún: „Hvar er ég? Verð ég hérna lengi?“ Nei, bið- in varð ekki löng og hún er farin. Ég trúi að afi hafi tekið vel á móti henni og vafið hana örmum sínum og gæsku. Minningamar um ömmu mína tengjast aðallega æskuárunum, hún og afi á Volkswagen-bjöllu keyr- andi til Keflavíkur á sunnudegi, alltaf með eitthvað gott handa okk- ur systrunum, blár ópal í vasa afa. Leikandi í garðinum í Hólmgarði 29, stórt jólatré gnæfði þar hæst og falleg blóm og mnnar, garðurinn var stolt hennar og lagði hún mikla vinnu í hann. Ég sé fyrir mér allar stjúpumar og morgunfrúrnar og man ilminn af þeim þegar sólin skein. Garðkofinn var vinsæll í barnaleikjum okkar, það var svona moldarlykt þar inni. Amma og afi vom dugleg að ferðast, bæði innan- lands og utan. Sigldu þau m.a. með Gullfossi og þreyttist amma aldrei á að segja okkur frá þessum ferð- um. Eftir að afi dó hélt hún áfram að ferðast. Uppáhaldsstaðirnir vom Mallorca og Kanaríeyjar. Ég veit ekki hvað hún fór oft þangað en það var mjög oft. Hún ferðaðist oftast ein og var ein í íbúð, vildi ekki vera upp á aðra komin, bara hafa sína hentisemi. Amma hafði mikla ánægju af handavinnu og bjó hún t.d. til rósir úr kreppappír og bollu- vendi sem hún seldi. Svunturnar úr hveitipokunum sem hún saumaði, þær úr seldi hún kokkum veitinga- staða. Hún bara fór á milli eldhús- anna og bauð svunturnar til sölu. Þær þóttu mjög góðar og hafði hún varla undan við að sauma upp í pantanir. Hún vann sem smur- brauðsdama á smurbrauðsstofu á Vesturgötunni en síðustu starfsár sín vann hún í eldhúsi Borgarspítal- ans, eða á meðan heilsan leyfði. Amma tók þátt í starfi aldraðra í Bústaðasókn og hafði af því mikla ánægju. Fyrir um fimm árum fór heilsa hennar verulega að dala. Var hún þessi síðustu ár á hjúkrunarheimil- inu í Arnarholti, þar sem hún fékk góða umönnun. Á starfsfólkið þar miklar þakkir skilið. Börnum henn- ar votta ég samúð. Ég og fjölskylda mín þökkum ömmu Rannveigu íyr- ir samfylgdina og biðjum góðan Guð að geyma hana. Nú legg ég augun aftur ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka mér yfir láttu vaka þinn engii, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Rannveig Finnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.