Morgunblaðið - 24.09.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 47=
HANSINA
JONSDOTTIR
+ Hansína Jóns-
dóttir fæddist á
Akureyri 16. des-
ember 1919. Hún
lést 9. september
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Akureyrar-
kirkju 14. septem-
ber.
N áttúrulækningafé-
lag Akureyrar kveður
nú einn af sínum
ágætustu félögum,
sem meðan full starfs-
orka leyfði, gekk í far-
arbroddi til þess hugsjónastarfs,
sem átti hug hennar allan, að afla
fjármuna til byggingar fyrirhug-
aðrar heilsustofnunar í
Kjarnalundi. A aðal-
fundi félagsins 1982 er
eftirfarandi bókað:
Hansína Jónsdóttir,
ein af öflugustu sjálf-
boðaliðum félagsins,
gaf skýrslu um sápu-
sölu félagsins það ár,
með eftirfarandi vísu-
orðum sem eiginmað-
ur hennar Aðalsteinn
Ólafsson orti.
Síst hef ég margt að segja
hér,
samt má fólkið það heyra og
muna.
Sápan næstum því uppseld er,
andvirðið lagt í Bygginguna.
Akandi sölufólkið fór,
um flestar byggðir á Norðurlandi.
Hagnaður þúsund hundruð stór,
ég held það sé alveg viðunandi.
Hansína var um árabil formaður
hlutaveltu og bingó-nefnda félags-
ins og lék þá, ásamt frábæru sam-
starfsfólki sínu svipaðan leik og
vísurnar hér að framan greina frá.
Hansína var kjörin heiðursfélagi
árið 1991.
Nú hefur Hansína flutt sig um
set, meira að starfa Guðs um geim.
NLFA þakkar henni af alhug öll
þörfu og notadrjúgu handtökin og
biður henni fararheilla og allrar
Guðs blessunar.
Aðstandendum er vottuð dýpsta
samúð.
í stjórn NLFA: Ásdís Árna-
dóttir, Stefán Jóhannesson,
Eydís Eiðsdóttir, Jón Krist-
insson og Vilhjálmur Ingi
Árnason.
Skila-
frestur
minning-
argreina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf gi-ein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
v/Nýbýlaveg
SÓLSTEINAR 564 4566
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfidiykkjur
M
H
H
H
H
H
H
H
H
H
^ Sími 562 0200 ^
rYiiTTiiixixl
Persónuleg,
alhtiða útfararþjónusta.
Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper-
fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á
netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
f
Ástkær eiginmaður minn,
MAGGI SIGURKARL SIGURÐSSON,
Svarthömrum 31,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 13.
september. Útförin hefur þegar farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
F.h. barna, tengdabarna og barnabarna,
Unnur Hafliðadóttir.
f
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
RANNVEIG KARÓLÍNA SIGFÚSDÓTTIR
húsmóðir,
Eskifirði,
lést á dvalarheimilinu Hulduhlíð, Eskifirði,
miðvikudaginn 23. september.
Jarðarförin auglýst slðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Herdís Einarsdóttir,
Guðrún Sveinsdóttir,
Benedikt Sveinsson.
f
Útför mannsins míns, föður, tengdaföður og
afa,
GUÐMUNDAR GUÐNASONAR,
Fögruhlíð,
Fljótshlíð,
sem lést laugardaginn 12. september, ferfram
frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð, laugar-
daginn 26. september kl. 14.00.
Sigurlaug Guðjónsdóttir,
Ingilaug Guðmundsdóttir, Brynjólfur Guðmundsson,
Steinunn Guðmundsdóttir, Svavar Guðlaugsson,
Theodór Guðmundsson, Brynja Bergsveinsdóttir,
Guðjón Guðmundsson, Ágústa Guðjónsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
f
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
LOVÍSA INGIMUNDARDÓTTIR
frá Hjarðarholti,
Stöðvarfirði,
sem andaðist á Hrafnistu sunnudaginn 20.
september, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 25. september kl. 10.30.
Anna Albertsdóttir, Benedikt Þorsteinsson,
Birgir Albertsson, Ingibjörg Eyþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
f
Blessaður eiginmaður minn og faðir okkar,
GUÐMUNDUR BJÖRGVIN JÓNSSON,
Kirkjugerði 5,
Vogum,
lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur miðvikudaginn 23. september.
Guðrún Lovísa Magnúsdóttir
og börn.
f
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
LILJA LÁRA SÆMUNDSDÓTTIR
frá Heinabergi,
Lækjarási 1,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 22. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bogi G. Thorarensen,
böm, tengdabörn og ömmubörn.
f
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
AUÐUR JÓNSDÓTTIR ASPAR,
Skarðshlíð 12a,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 25. september kl. 13.30.
Halldór B. Aspar, Hrefna Kristinsdóttir,
Jón B. Aspar, Unnur Hermannsdóttir,
Birgir B. Aspar,
Stefán B. Aspar,
Edda B. Aspar, Reynir Rósantsson,
Torfi B. Aspar,
Gunnar B. Aspar, Guðrún Jóhannesdóttir,
Birna K.B. Aspar, Birgir Aðalsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
EIRÍKUR BJÖRNSSON,
Svfnadal,
Skaftártungu,
verður jarðsunginn frá Grafarkirkju laugardaginn
26. september kl. 14.00. Sætaferð verður sama
dag frá Hópferðamiðstöðinni kl. 10.00.
Ágústa Ágústsdóttir,
Sigurdís Erla Eiríksdóttir, Pétur Kristjónsson,
Björn Eiríksson, Kolbrún Þórarinsdóttir,
Ágúst Eiríksson, Erla Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
f
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför,
JÓHANNESAR ÖGMUNDSSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á vistheimilinu
Víðinesi fyrir góða umönnun.
Hrönn Jóhannesdóttir, Baldur Sigurgeirsson,
Sólveig Jóhannesdóttir, ívar Steindórsson,
Rut María Jóhannesdóttir, Hörður Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
f
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföður og
afa,
BALDVINS ÁRNASONAR,
Hraunbæ 103,
Reykjavík.
Ólafur Ingi Baldvinsson, Margrét Héðinsdóttir,
Inga Lóa Baldvinsdóttir, Vilhjálmur Pétursson,
Valentínus G. Baldvinsson, Margrét Dögg Hreggviðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/