Morgunblaðið - 24.09.1998, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1998 57 i
BRIDS
Uinsjóii (iuðniiiniliir
l'áll Arnarsnn
Ekki kom á óvart að spilið
hér að neðan skyldi falla í
fimm tíglum dobluðum í
úrslitaleik Mai-vins og Ar-
mannfells í bikarkeppn-
inni:
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
* 52
V ÁG10974
♦ 107
*ÁK5
Vestur
A6
V-
♦ ÁKD98643
* 10962
Austur
* Á83
¥ D8652
* G5
* D73
Suður
A KDG10974
¥ K3
♦ 2
*G84
Eftir pass austurs í upphafi
opnaði suður á þremur
spöðum á öðru borðinu, en
fjói-um á hinu. Við því sagði
vestur fimm tígla í báðum
tilfellum, sem norður do-
blaði. Nema hvað?! Ekki
annað en það, að fimm tígl-
ar unnust eftir laufmann-
spil út, sem er ekki góður
árangur þegar tekið er tillit
til þess að eina vörnin gegn
fimm spöðum í NS^er smár
tígull út undan AKD og
hjartastunga í öðrum slag.
En er einhver skynsam-
leg leið til í fimm spaða?
Norður á engan spaða-
stuðning og tvo hunda í
tígli, svo ekki á hann auð-
velt með að fara í fimm
spaða. En hvað með suður,
sem á þetta góðan lit? Get-
ur hann tekið út úr
doblinu? Hann fengi svo
sem engar sérstakar þakk-
ir fyrir það ef makker hans
ætti 2-3 slagi á tígul, sem
gæti vel verið. Reyndar eru
þeir spekingar til sem
halda því fram að dobl
norðurs hér (og í svipuðum
stöðum) eigi að sýna jafn-
gild spil til sóknar og varn-
ar. Það er svonefnt TV-
dobl, sem er ensk skamm-
stöfun, en þó ekki fyi-ir
sjónvarp, heldur „trans-
ferable values". Kanada-
maðurinn Eric Kokish
reyndi að kenna íslenskum
landsliðsspilurum þetta
dobl þegar hann hélt hér
námskeið fyrir nokkrum
árum, en enginn skildi
hann. Enda vildu menn
ekki þurfa að passa í svona
stöðu með þrjá slagi á
tromp.
En hvað sem því líður er
undarlegt á þessum dögum
tölvunnar, að ekki skuli
vera til fræðileg úttekt á
bestu aðferðinni í stöðum
af þessum toga.
DEMANTSBRÚÐKAUP. í dag, fimmtudaginn 24. septem-
ber, eiga sextíu ára hjúskaparafmæli hjónin Sesselja Pét-
ursdóttir og Sofus Berthelsen, Hjallabraut 33, Hafnar-
firði. Þau eiga 8 börn, 23 barnabörn, 43 barnabai-nabörn
og eitt barn í fimmta ættlið í beinan karllegg. Þau munu
hafa boð fyrir afkomendur og vini í veitingahúsinu Skút-
unni, Hólshrauni 3, Hafnarfirði, laugardaginn 26. septem-
ber kl. 15 e.h.
^pTÁRA afmæli. í dag,
4 ejfimmtudaginn 24.
september, verðui- sjötíu og
fimm ára Helgi Jónsson,
myndlistarnemi, Eiðismýri
22, Seltjanarnesi. Hann
tekur á móti ættingjum og
vinum, í dag kl. 20, í sal hjá
íbúðum aldraðra að Skóla-
braut 3-5, Seltjarnarnesi.
september, verður fimmtug
Guðný Jóhannsdóttir hús-
stjórnarkennari, Hraun-
brún 21, Hafnarfirði. Eig-
inmaður Guðnýjar er Ber-
ent Sveinbjörnsson pípu-
lagningameistari. Guðný
tekur á móti gestum í sam-
komuhúsinu á Garðaholti
fóstudaginn 25. september
frá kl. 20-23.
Með morgunkaffinu
316
ÞAÐ er allt í lagi að þeir
séu svolítið óþægilegir
fyrstu tvo dagana. Ég ætla
ekki að nota þá fyrr en í
næstu viku.
HÖGNI HREKKVÍSI
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættar-
mót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
Sent í bréfsíma 569-
1329, sent á netfangið
ritstj (©mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík.
STJÖRIVUSPA
eftir Frances llrakc
VOG
Afmælisbarn dagsins: Þú ert
Ijúfur og heiðarlegur að eðl-
isfari en átt það til að vera á
röngum stað á röngum tíma.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Leggðu þig allan fram og þú
munt undrast hversu mikiu
þú kemur í verk með góðu
móti. Hafðu lögfræðileg at-
riði á hreinu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Segðu hug þinn svo sam-
starfsmenn þínir fari ekki í
grafgötur um afstöðu þína.
Ykkur vinnst miklu betur í
hreinu andiúmslofti.
Tvíburar t ^
(21. maí - 20. júní) P A
Frestui' er á illu bestur seg-
ir máltækið en stundum
verður ekki undan því vikist
að takast á við leiðinleg
verkefni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Óvæntui- gestur veitir þér
nýja sýn á mál sem þú hefur
lengi verið að glíma við.
Gefðu þér tíma til þess að
melta þessa nýju vitneskju.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu ekki þunga lund ann-
arra hafa of mikil áhrif á
þig. Þeir geta verið að glíma
við vandamál sem eru mun
erfíðari en þú heldur.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (SÍL
Reyndu að ýta áhyggjunum
til hliðar og leyfðu sjálfum
þér að blómstra þótt ekki
væri nema skamma stund.
(23. sept. - 22. október) ms
Það er gott að eiga trúnað-
arvin til þess að ræða málin.
Þú þarft að einbeita þér að
fjármálunum og allur sá tími
sem til þess fer mun marg-
borga sig.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Sparsemi er dyggð en níska
ekki. Aðgát skal höfð í nær-
veru sálar. Talaðu því gæti-
lega og forðastu að ýkja
sannleikann til þess að vekja
aðdáun annarra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) SLQ’
Það er ekkert til að hafa
áhyggjur af þótt þér finnist
þú eitthvað beygður þessa
dagana. Það getur verið gott
að skipta um umhverfi í
smátíma.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Vinur er sá sem í raun reyn-
ist. Mundu að þér ber að
endurgjalda slíka vináttu
þegar eftir er leitað.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) kM
Forðastu að ganga svo langt
að þér sé hætta búin. Ef þér
vex verkefnið í augum leit-
aðu þá hjálpar við lausn þess.
Fiskar imt
(19. febrúar - 20. mars) >W>
Oft veltir lítil þúfa þungu
hlassi og það færð þú að
reyna þegar þú ætlai' að
koma skikki á peningamálin.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Nýtt — Nýtt
Buxur — dress — blússur — peysur
og velourfatnaður
f-Æe^ui^nai^ c íi/<s((fi*oeiu
Háaleitisbraut 68,
sími 553 3305.
Allt upppantað í
september, tilboðið
framlengt í október.
Myndataka, þar sem þú ræöur hve
stórar og hve margar myndir þú
færð, innifalið ein stækkun 30 x 40
cm í ramma.
kr. 5.000,oo
Þú færð að velja úr 10 - 20 myndum
af bömunum, eftirfarandi stærðir
færðu með 60 % afslætti frá gildandi
verðskrá ef þú pantar þær
strax.endanlegt verð er þá.
13 x 18 cm í möppu kr. 1.200,00
20 x 25 cm í möppu kr. 1.720,00
30 x 40 cm í ramma kr. 2.560,00
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími: 554 30 20
Ljósmyndastofan Mynd
sími: 565 42 07
Passamyndir á fimm mínútum alla virka daga.
■
1
jSendið mér nýja
! vetrarlistann:
! WtW L EIGANl
j ÚTIVISTARBÚÐIN
JSendið úr klippu til: Sportleigan, U ^VÍ^UnTferöamiiðstÖðÍna^
i Vatnsmýrarvegi 9, 101 Reykjavík. 1
Heimilisfang.
Simar 551 9800 og 551 3072
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
'slim-line"
dömubuxur frá
gardeur
Uðutttv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680