Morgunblaðið - 24.09.1998, Page 59

Morgunblaðið - 24.09.1998, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGTJR 24. SEPTEMBER 1998 59 < FOLK I FRETTUM Stutt Fúll út í sína fyrr- verandi ► Á SIKILEY er ungur mað- ur afar sár út í fyrrverandi kærustu sína sem sagði lion- um upp án skýringa. Nunzio Licuzzo heitir maðurinn og hefur nú verið handtekinn fyrir að líma upp veggspjöld af nakinni kærustunni um allan bæinn Modica sem er í Ragusa-héraði á Sikiley sunnanverðri. Myndirnar hafa þó væntanlega verið faglega unnar því Nunzio er ljósmyndari sem gerir stutt- myndir í frístundum. Hins vegar þótti bæjarbú- um fulllangt gengið þegar símanúmer kærustunnar fyrrverandi voru skrifuð stórum stöfum á veggspjöld- in, þar sem vegfarendur voru hvattir til að hringja til hennar. Nokkrum dögum síðar hafði síðan heimilis- fang stúlkunnar bæst við og var þá lögreglu bæjarins nóg boðið og handtók elsk- hugann úrilla. Kæran hljóð- aði upp á áreitni og tilraun til mannorðsmorðs. Megrun efst á baugi ► ÍSRAELSKI forsætisráð- herrann, Benjamin Netanya- hu, fagnaði nýju ári gyðiuga með því loforði að á árinu skyldu aukakílóin fá að fjúka. Forsætisráðherrann sem er 48 ára gamall hefur bætt örlítið á sig á þeim tveimur árum sem hann hef- ur setið á valdastóli. Þegar hann var spurður um heit fyrir árið sagði hann skorin- ort að hjá honum persónu- Iega væri megrun efst á list- anum. Nú halda gyðingar hátíð nýja ársins, Rosh Hashana, en hún hófst á sunnudaginn, og einkennist af bænahaldi og veglegum máltíðum. Það verða því inargar freisting- arnar í byrjun árs hjá ráð- herranum. Sænskt súkkulaði ► SÆNSKUR súkkulaði- framleiðandi hefur beðið forsætisráðherra Svijijóðar, Göran Persson, og helsta andstæðing hans, Carl Bildt, afsökunar vegna auglýsing- ar sem sýnir þá brosa livorn til annars, enda nóg af sætu súkkulaði á milli þeirra. Slagorðið „Hvers vegna sætta sig við aðeins eitt“, prýðir síðan auglýsinga- spjaldið. í Aftonbladet er haft eftir Persson að auglýsingin sé smekklaus. „Andlit mitt er notað í auglýsingaskyni og það getur skaðað stjórn- málamann í minni stöðu og fer langt út fyrir velsæmis- mörk.“ Bildt, sem var for- sætisráðherra á árunum 1991-94, var einnig óhress með að mynd af honum skyldi notuð án leyfis. Hann bætti þó við að myndbirting- in rændi hann ekki svefni því mun alvarlegri mál lægju fyrir en þessi auglýs- ing. ► ÓHÁÐA kvikmyndadrottn- ingin Lili Taylor á í viðræðum um að leika í fyrsta skipti aðal- hlutverk í mynd frá einu af stóru kvikmyndaverunum, þ.e. Draumasmiðju Geffens, Katzen- bergs og Spielbergs. Til stendur að myndin Draugahúsið eða „The Haunt- ing of Hill House“, sem byggð er á samnefndri skáldsögu Shirley Jackson, verði frumsýnd um jólin árið 1999 og leikstjóri verði Jan De Bont. Áður hefur verið gerð mynd eftir skáldsögunni sem nefndist „Draugagangurinn“ og leikstýrt var af Robert Wise með Julie Harris, Claire Bloom og Russ Tamblyn í aðalhlutverkum. Sag- an íjallar um hóp af fólki sem safnast saman í gömlu húsi til að komast að því hvort þar sé draugagangur. Taylor hefur leikið í fjöl- mörgum óháðum myndum og fékk fyrstu verðlaun dómnefnd- arinnar á Sundance kvikmynda- hátíðinni árið 1995 fyrir frammistöðu sína í „Girls Town“, Ég skaut Andy Warhol og mynd Friðriks Þórs Friðriks- sonar Á köldum klaka. Um þess- ar mundir leikur hún ágjarnan listaverkasala í mynd John Waters „Pecker". Svíkur Lili Taylor lit? Nr. var Lag Flytjondi 1. (7) Whats it Like Everlast 2. (1) If You Tolerate This... Manic Street Preachers 3. (2) Got the Life Korn 4. (4) Flagpole Sitta Harvey Danger 5. (6) Walking After You Foo Fighters 6. (8) Why Are You so Mean to Me Nada Surf 7. (10) Lonely Soul Unkle&Ashcroft 8. (13) Punk Named Josh Chopper One 9. (10) Hvitt 200 000 Naglbítar 10. 05) Never Let My Down Again Smashing Pumkins 11. (-) Body Movin Beastie Boys 12. (16) Jesus Says Ash 13. (-) Start the Commotion Wiseguys 14. (5) Stripped Rammstein 15. (-) Celebrity Skin Hole 16. (3) Enjoy the Silence Failure 17. (12) One More Murder Better Than Ezra 18. (-) Only When 1 Loose Myself Depeche Mode 19. 04) Father of Mine Everdear 20. (22) Dope Show Marlyn Manson ; 21. (27) 1 am the Bulldog Kid Rock 22. 07) Lenny's Song Possum Dixon 23. (-) Part of the Progress Morcheeba 24. (9) We Still Need More Supergrass 25. (-) Honey Moby 26. (26) Lipstick Rocket From the Crypt 27. 08) Vera Vínill 28. (-) Being a Girl Mansun 29. (24) Everything for Free K's Choice 30. (19) Take on Me Reel Big Fish Lolita í bankaráni LEIKKONAN Lolita Davidovich hefur ákveðið að leika í tveimur „óháðum'* myndum á næstunni. FyiT munu menn þó líta leikkonuna í Disney-myndinni „Mystery^ Alaská* þar sem hún leikur á móti Russell Crowe og Hank Azaria undir leikstjórn Jay Roach. Nýju myndirnar eru „Four Days“ þar sem hún mun leika á móti Kevin Zegers, Colm Meaney og William For- sythe í mynd um bankarán og er sagan sögð frá sjónarhomi unglings. I „Shegalla** mun Lolita leika dóttur sem á í samskiptaerfiðleikum, ekki síst við móður sína sem leikin er af Lynn Red- grave. 20 ta 30% auka- afsláttur af útsöluvörum Nýjar vörur með 20% afslætti. Vorum einnig að taka inn nýja dökka Mizuno skó, Mizuno Mesh boli, UHL innanhússkó í stærðum frá 28 til 38. Einnig innanhússkó, gerfigrasskó o.fl. Opið á laugardögum frá kl. 10 til 14 iþrött Skipholti 50d, sími 562 0025

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.