Morgunblaðið - 06.12.1998, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1998 B 29*
Sólarsaga
Sálarinnar
SÁLIN hans Jóns míns fagnar tíu
ára afmæli sínu nú um stundir,
meðal annars með tvöföldum geisla-
diski sem hefur gengið bráðvel.
Fyi-stu eintökunum fylgdi ítarleg
samantekt um sveitina skreytt
fjölda mynda.
Sálin hans Jóns míns rekur rætur
sínar til þess að haustið 1987 fékk
Þorsteinn J. Vilhjálmsson Jón
Olafsson hljómborðsleikara og aðal-
sprautu Bítlavinafélagsins til að
setja saman sveit sem flytja átti
Blues Brothers-lög á skemmtun í
Sigtúni. Jón fékk til liðs við sig
nokkra tónlistarmenn, þar á meðal
Stefán Hilmarsson söngvara og
Guðmund Jónsson gítarleikara, en
aðeins var ætlunin að leika á þessari
einu skemmtun.
Eftir áramót ákvað Jón Ólafsson í
félagi við tvo aðra að stofna soul-
sveit og kallaði til þá Stefán og Guð-
mund aftur. Sveitin fékk nafnið Sál-
in hans Jóns míns í takt við fyrir-
hugaða tónlistarstefnu, sendi frá
sér breiðskífuna Syngjandi sveittir
um vorið og spilaði sem mest hún
mátti yfir sumarið. Jón og félagar
hættu um haustið til að taka upp
fyrri iðju í Bítlavinafélaginu, en þeir
Guðmundur og Stefán ákváðu að
halda áfram, fengu til liðs við sig
nýja menn og tóku nýja stefnu; í
stað þess að leika soul-skotna tón-
list eftir aðra varð aðal sveitarinnar
að flytja frumsamda tónlist eftir þá
Guðmund og Stefán. Með þetta að
leiðarljósi varð Sálin vinsælasta
hljómsveit landsins á skömmum
tíma og hélt vinsældunum þar til
ákveðið var að láta lýðræðið ráða og
allir lögðu lög á vogarskálarnar á
breiðskífunni Þessi þungu högg árið
SAFNGRIPUR Sólarsaga Sálar-
innar ‘88-’98.
1992. Ekki gekk það sem skyldi og
snemma árs 1993 ákváðu þeir félag-
ar að taka sér ótímabundið frí til að
sinna öðru hver í sínu lagi.
Fríið góða stóð í tvö ár, því sum-
arið 1995 var Sálin aftur komin á
kreik og hefur svo verið síðan að
sveitin starfar í snörpum vinnulot-
um á milli þess sem liðsmenn henn-
ar sinna öðru námi og störfum með-
al annars ytra.
Eins og getið er fylgdi litprentað-
ur bæklingur fyrsta skammti af
safnplötu Sálarinnar þar sem saga
sveitarinnar er rakin í stórum
dráttum. Bæklinginn, sem er þegar
orðinn merkilegur safngripur, piýð-
ir fjöldi mynda af sveitinni og liðs-
mönnum hennar frá ýmsum tímum.
DÆGURTÓNLIST
HLJOMSVEITAKEPPNIN Rokkstokk er
orðin árlegur viðburður, en hún er haldin
af félagsmiðstöðinni Ungó í
ileykjanesbæ ár
hvert. í keppninni sem
haldin var í sumar keppti 21
sveit og í haust kom út
geisladiskur með upptökum 1
frá keppninni.
Upptökurnar ei*u úr Rokkstokk
98-keppninni, utan að lög sigur-
sveitar keppninnar að þessu
sinni, Reykjavíkursveitarinnar
Klamediu X, eru tekin upp í
hljóðveri. Fyrir Utan Kla-
mediu X eiga lög á disknum
hljómsveitimar Varð, einnig
úr Reykjavík, sem lenti í öðru
sæti, Terrance, sveit úr Kefla
vík, sem hreppti þriðja sætið,
Albatross, Beefcake, Vírus, Þór-
gunnur nakin, Ofurflemmi og sval-
arnir, Equal, Amnesia, Duffel,
RRR Saur, Moðhaus, Danmodan,
R18856, Albinói 98, Karpet, Quin-
tet Sindra, Kiðlingur, Fungus og
Krumpreður. Á disknum eru og lög með tveimur
utankeppnissveitum, rappsveitinni Oblivion og
Gús. Á disknum er einnig að finna margmiðlunar-
efni, kynningu á hljómsveitunum, myndir og upp-
lýsingar um keppnina.
Auk þess að komast á plast fékk Klamedia X að
launum ferð til Danmerkur á tónlistarhátíðina
Mosstock, sem er helsta hátíð áhugahljómsveita í
Danmörku. Sveitin þótti standa sig bráðvel í
kepphinni. Auk þessa fékk Klamedia X hljóð-
verstíma í Sýrlandi, geisladiska og veislu.
Klamedia X er skipuð fyrrum liðsmönnum
Urmuls og Moonboots að hluta en annars eru í henni
þau Áslaug H. Hálfdánardóttir söngkona, Bragi V.
Skúlason gítarleikari, Jón Geir Jóhannsson trommu-
leikari, Snorri H. Kristjánsson bassaleikari, Þráinn A.
Baldvinsson gítarleikari og Örlygur Benediktsson
hljómborðsleikari.
SIGURSVEIT
Áslaug H. Hálf-
dánardóttir
söngkona Kla-
mediu X í miklu ,
stuði á Mos-
stock.
Viðskiptagreinar Tölvugreinar
Valgreinar
Annað
skemmtHegt & hagnytt
Tölvuskóli Reykjavíkur býður ítarlegt nám í skrifstofutækni fyrir alla þá sem hafa hug á
að ná góðum tökum á fjölbreyttri starfsemi á nútíma skrifstofu. Ásamt markvissu
tölvunámi er einnig lögð rík áhersla á alhliða kennslu í skrifstofugreinum eins og
bókhaldi og versiunarreikningi. Að námi loknu eru nemendur færir um flest
skrifstofustörf.
Námið er 345 stundir að lengd og eru þar með taldar 45 stundir í þremur valgreinum. Auk
þess fylgir tveggja vikna starfsþjálfun í fyrirtæki. Námið og starfsþjálfunin tekur um
16 vikur. Mikil áhersla er lögð á að hafa vönduð íslensk námsgögn í öllum greinum.
Bókfærsla
Verslunarreikningur
Almenn
þókhaldsverkefni,
víxlar og skuldabréf
Launabókhald
Lög og reglugerðir
Virðisaukaskattur
Raunhæf verkefni,
fylgiskjöl og
afstemmingar
Tölvubókhald
Bókhald sem
stjórntæki
165 stundir
100 stundir
35 stundir
Almenn tölvufræði
Ritvinnsla
Word
Töflureiknir
Excel
Tölvufjarskipti
Internetið
Glærugerð
PowerPoint
tolvuskoli @ tolvuskoli.is
ENTER
íslenska og verslunarbréf
Tjáning, hópvinna, framsögn,
útlit, þjónusta viðskiptavina,
vinnustellingar, útlit, framkoma,
símsvörun, atvinnuumsóknir.
T ölvubókhald 15 stundir
Vélritun 15 stundir
Viðskiptaenska isstundir
Tollskýrslugerð I5stundir
Internet vefsíðugerð 15 stundir
Gagnagrunnur isstundir
I Tölvuskóli
Reyl<javíkur
Borgartúni 28, sími 561 6699
www.tolvuskoli.is