Morgunblaðið - 29.01.1999, Síða 1
23. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kuldinn sagður eins og ískló
yfir byggðunum í norðri
FROSTHÖRKUNUM í norðan-
verðri Skandinavíu og Síberíu
iinnir ekki og í fyrrinótt fór frost-
ið í bænum Karasjok í Noregi nið-
ur í 50,2 gráður. „Nú er miklu
mildara, ekki nema 47 stiga
frost,“ sagði Mona Solbakk, sem
býr í Karasjok, í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi. Sagði hún
ástandið vissulega einkennilegt,
fólk færi ekki út úr húsi nema
brýna nauðsyn bæri til og reyndi
að komast hjá því að nota bfla, því
þeir geti farið illa séu þeir gang-
settir í svo miklu frosti. Er kuld-
anum líkt við ískló sem gripið hef-
ur byggðina heljartaki en frost-
þoka liggur yfir öllu.
Skólahald hefur legið niðri alla
vikuna og mikill kuldi hefur verið
í sumum húsum, sérstaklega þeim
sem kynt eru með rafmagni.
Straumurinn fór af bænum í
fyrradag skamma stund og ískóln-
aði þá innandyra. Eftir að hann
komst á að nýju var álagið svo
mikið að yfirvöld hafa beðið fólk
að stilla rafmagnsnotkun í hóf.
„Þá hefur víða komið til vand-
ræða, t.d. varð svo kalt á elliheim-
ilinu hér að flytja varð rúm gamla
fólksins að arninum í matsalnum
til að halda á því hita,“ segir Sol-
bakk.
Fatnaður úr hreindýraskinni er
það eina sem dugar í svo miklu
frosti en ekki búa allir svo vel að
eiga skinnklæði og því er fólki
ráðlagt að vera ekki lengi á ferli
útivið og þvo sér ekki í andliti og
um augu áður en farið er út, þar
sem húðfitan ver húðina.
Einar Eyþórsson, sem kennir
mannfræði við háskólann í AJta,
segir kuldann vissulega hafa áhrif
á daglegt Iíf. í Alta var í gær um
30 gráða frost en stinningskaldi
hefur verið og því töluverð vind-
kæling. Einar segist kynda húsið
með eldiviði nótt og dag eins og
aðrir í bænum, börnin leiki sér
ekki útivið og þeim sé ekið í og úr
skóla. Kuldinn hafi haft áhrif á
samgöngur, t.d. hafi flugvél frosið
föst við flugvöllinn í Alta, flestir
bátar eru í höfn og bflar eru lítið
á ferli enda hægara sagt en gert
að koma þeim í gang, auk þess
sem bensínið á það til að fijósa í
leiðslunum.
Saman opin
berlega í
fyrsta sinn
KARL Bretaprins og ástkona
hans, Camilla Parker-Bowles,
sáust í fyrsta sinn saman opinber-
lega í gærkvöldi er þau yfirgáfu
afmælisveislu systur Parker-Bow-
les á Ritz-hótelinu í London. Vakti
það gríðarlega athygli en Ijöl-
miðlar höfðu haft veður af því að
parið hygðist láta sjá sig saman
og skapaðist nánast umsáturs-
ástand fyrir utan hótelið.
Þrátt fyrir að ástarsamband
Karls og Parker-Bowles hafi ver-
ið á allra vitorði svo árum skiptir
hefur prinsinn gætt þess vandlega
að láta ekki sjá sig opinberlega
með ástkonu sinni enda samband-
ið viðkvæmt fyrir margra hluta
sakir. Var þröng á þingi fyrir ut-
an Ritz-hótelið af þessum sökum
en fjölmargir ljósmyndarar létu
sig hafa það að bíða allan daginn
á gangstéttinni til að tryggja sér
sem best sjónarhorn. Um 100 ljós-
myndarar biðu átekta enda gátu
menn sér þess til að mynd af par-
inu gæti selst á allt að eina miiljón
punda, um 130 milljónir ísl. kr.
Réttað yfír Clinton
Yitnaleiðsl-
ur líklega á
myndband
Washington. Reuters.
LEIÐTOGUM repúblikana og
demókrata í öldungadeild Banda-
ríkjaþings tókst ekki að ná sam-
komulagi um framkvæmd réttar-
haldanna yfir Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta. í gærkvöldi var sam-
þykkt tillaga repúblikana sem held-
ur opnum möguleikanum á að vitna-
leiðslur í öldungadeildinni verði
teknar upp á myndband. Þá er ekki
útilokað að myndbandið verði síðar
sýnt opinberlega. Vitnaleiðslur hefj-
ast á mánudag.
Demókratar halda því fram að
með atkvæða-
greiðslu í fyrra-
dag, sem var nær
alveg eftir
flokkslínum, sé
Ijóst að Clinton
verði ekki sak-
felldur við réttar-
höldin. 56 þing-
menn greiddu þá
atkvæði með
vitnaleiðslum og
44 á móti. Er þessi atkvæðagreiðsla
talin örugg vísbending um hvernig
atkvæði falli við lokaniðurstöðu
þingsins en 67 atkvæði þarf til að
víkja forsetanum úr embætti.
Réttarhöldum Ijúki
fyrir 12. febrúar
í atkvæðagreiðslunni í gærkvöldi
felldu repúblikanar tillögu demó-
krata sem ætlað var að koma í veg
fyrir að yfirheyrslurnar yfir vitnun-
um sem stefnt hefur verið fyrir öld-
ungadeildina, Monicu Lewinsky,
Vernon Jordan og Sidney Blumen-
thal, verði teknar upp á myndband.
Féllu atkvæði sem fyrr eftir
flokkslínum.
Þrátt fyiir ósætti flokkanna, sem
virðist hafa aukist á síðustu dögum,
voru talsmenn þeirra sammála um
að stefna að því að réttarhöldunum
ljúki fyrir 12. febrúar nk.
Aftenposten/Ole Magnus Rapp
SIGRID Næss, veðurathugunarmaður í Karasjok, mældi í gær 50,2 gráða frost. Kuldametið er frá árinu
1886 en þá fór kuldinn niður í 51,4 gráður. Spíri er í hitamælinum því kvikasilfur frýs í svo miklum kulda.
Clinton
Fær ekki
bilinn
GLEÐI Molstad-hjónanna í
Alvdal í Noregi vegna happ-
drættisvinnings sonar þeirra
reyndist skammvinn, því í ljós
hefur komið að pilturinn fær
ekki vinninginn, bifreið að verð-
mæti tæpar þrjár milljónir
króna, í sínar hendur fyrr en
hann verður átján ára, að því er
segir í Aftenposten.
Astæðan er sú að vinnings-
hafinn er aðeins sjö ára og sam-
kvæmt norskum lögum mega
ófjárráða börn ekki hafa undir
höndum hærri fjárhæð en sem
nemur um 300.000 ísl. kr. Ber
stjórnvöldum að fara með um-
sýslu alls fjár umfram það þar
til eigandinn verður fjárráða.
Foreldrar piltsins eru að
vonum sáiTeiðir og spyrja
hvers vegna yfirvöld hafi ekki
áður skipt sér af svipuðum
dæmum. Fulltrúar stjórnvalda
í Alvdal halda því hins vegar
fram að þeim sé skylt að axla
þessa ábyrgð samkvæmt lög-
um.
Utanríkisráðherrafundur Tengslahópsins vegna Kosovo haldinn í dag
NATO setur stríðandi
fylkingum úrslitakosti
London. Reuters.
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ, NATO, lýsti
því yfir í gær að það hefði aukið viðbúnað sinn til
að vera reiðubúið að láta til skarar skn'ða í
Kosovo-deilunni ef stríðandi fylkingar þar féllust
ekki á friðartillögur Tengslahópsins sem fundar í
dag í London. Fyrr um daginn mátti skilja orð
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Kofi
Annan, sem svo að hann styddi yfirvofandi hern-
aðaraðgerðir NATO í Kosovo. Sagði Annan að
þjóðir heims yrðu að nota „þá blöndu valdbeiting-
ar og málamiðlana sem væri lykillinn að friði á
Balkanskaga“.
Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO, varaði
yfirvöld í Júgóslavíu, sambandsríki Serbíu og
Svartfjallalands, og Frelsisher Kosovo, KLA, við
því í gær að færu þau ekki að þeim skilyrðum sem
Tengslahópur Bandaríkjanna, Rússlands, Bret-
lands, Frakklands, Þýskalands og Ítalíu setti fram
á fundi sínum ættu þau yfir höfði sér hernaðarað-
gerðir.
Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýska-
lands, sagði í gær að Serbum og Kosovo-Albönum
yrði gefinn vikufrestur til að setjast að samninga-
borði og að friðarviðræðurnar ættu að fara fram í
Frakklandi. Hinn rússneski starfsbróðir
Fischers, ígor ívanov, hélt til Frakklands í gær
til fundar við Hubert Vedrine, utanríkisráðherra
Frakka, áður en formlegur fundur Tengslahóps-
ins hæfist. „Spurningin er hver staða Kosovo á að
vera innan júgóslavneska sambandsríkisins og
það er útilokað að ákvarða það með miklum átök-
um,“ sagði Ivanov.
Annan og Arbour höll undir valdbeitingu
Enn kom til átaka í gær í Kosovo og segja Serb-
ar að tveir serbneskir lögreglumenn hafi særst og
tveir félagar í KLA fallið er þeir síðarnefndu hafi
ráðist á þá. Alþjóðlegir eftirlitsmenn rannsökuðu
hins vegar fullyrðingar KLA um að málum hefði
verið þveröfugt farið, Serbar hefðu ráðist á félaga
í KLA er þeir voru á leið yfir landamærin frá Al-
baníu.
Kofi Annan hitti í gær sendiherra aðildarríkja
NATO að máli og minnti eftir fundinn á þann lær-
dóm sem dreginn hefði verið af Bosníustríðinu.
Sagði Annan að þjóðir heims kynnu að vera komn-
ar að þeim punkti er valdbeiting væri eina lausnin
sem efth- stæði.
Þá lýsti Louise Arbour, yfirmaður stríðsglæpa-
dómstóls SÞ, í gær yfir efasemdum um að viðræð-
ur væru besta leiðin til að leysa vandann í Kosovo.
Kvaðst hún staðráðin í því að komast að sannleik-
anum að baki fjöldamorðunum í Racak fyrr í mán-
uðinum en fullyrt var í Washington Post í gær að
hleranir Vesturveldanna hefðu leitt í Ijós að hátt-
settir embættismenn Serba hefðu fyi'irskipað þau.
Því hafa talsmenn júgóslavnesku stjórnarinnar
vísað á bug.
■ Árásin 1 Racak/25