Morgunblaðið - 29.01.1999, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
GLÆSILEG SÓFASETT
FRÁ DE ANGELI
Teg. Barbara 3+1+1 210.000 stgr. m/tauákl.
Teg. Martine 3+1+1 leöur.
CE> □□□□□□
36 món. -----' 36 mán.
HÚSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, simi 565 4100
VERSLUNAREIGENDUR
ATHUGIÐ!
@ »ÝTT
Professionals
Augnskuggar Professionals eru
hannaðir af FÖRÐUNARMEISTURUM FRÁ
Augnskuggar sem haldast á allan daginn.
Skínandi fallegir í sumar-, vetur-,
vor- og haustlitum
Heildverslun
Áslaugar Borg
Álfheimum 15, sími 588 6717, fax 588 6718.
VIÐSKIPTI
s
Wang Ronghua sendiherra Kína á Islandi
Bjartar efnahags-
horfur í Kína
Morgunblaðið/Árni^Sæberg
FRÁ fundi Islensk-kínverska viðskiptaráðsins í gær. F.v. Birgir Isleifur
Gunnarsson Seölabankasfjóri, Wang Ronghua, sendiherra Kína á Is-
landi, og Sigtryggur Rósmar Eyþórsson, formaður Islensk-kínverska
viðskiptaráðsins.
KÍNVERJAR telja efnahagskrepp-
una sem nú ríkir í Asíu aðallega eiga
rætur sínar í óskynsamlegri efna-
hagsuppbyggingu innan ASEAN-
landanna, sem hefur skilað offram-
leiðslu innan ákveðinna gi-eina sök-
um of mikillar áherslu á útflutning.
Þá benda þeir á ófullkomnar fjár-
málastofnanir á svæðinu og segja
opnun fjármagnsmarkaða í ýmsum
Asíuríkjum hafa gerst of snemma og
á of skömmum tíma. Löndin treysti
um of á erlent fjármagn og óhag-
kvæm erlend lán auk þess sem vægi
skammtímalána sé of mikið í hag-
kerfum þeirra. Þetta kom m.a. fram í
framsöguræðu Wang Ronghua,
sendiherra Kína á Islandi, á fundi
sem Islensk-kínverska viðskiptaráð-
ið stóð fyrir á miðvikudag um ástand
efnahagsmála í SA-Asíu og viðhorf
Kínverja til fjármálakreppunnar.
Ronghua segir Kinverja hafa náð
að koma í veg fyrir verðbólgu í land-
inu þrátt fyrir kreppuna m.a. með
umfangsmiklum kaupum á erlendum
gjaldeyrisforða. Á ánmum 1994-97
keyptu Kínverjar alls 120 milljarða
bandaríkjadala en í dag nemur
gjaldeyrisforði landsins rúmlega 140
milljörðum dala.
Engin lausn í gengisfellingn
Hann segir gengislækkun gjald-
miðla í mörgum löndum Asíu hafa
dregið verulega úr útflutningi Kín-
verja bæði til Japans og Suðm--
Kóreu. „Vissulega gætum við reynt að
bregðast við þeirri staðreynd með því
að lækka gengi kínverska yuansins en
slík ráðstöfun væri einungis skamm-
tímalausn. Verð útflutningsafurða
myndi lækka og eftirspum þ.a.l.
aukast um einhvem tíma. Hinsvegar
myndi verð á innfluttum vömm
hækka og vega þannig á móti jákvæð-
um áhrifum gengisfellingar til lengri
tíma litið.“ Ronghua bendir einnig á
að gengislækkun kínverska yuansins
myndi óhjákvæmilega leiða af sér
frekari samdi'átt á svæðinu í heild
sem og í Kína. Hann segir stjórnvöld
þess í stað hafa lagt áherslu á að auka
hagræði og samkeppnishæfni kín-
verskra fyrirtækja tíl að mæta efna-
hagsþrengingunum jafnframt því sem
yfirvöld hafa gætt þess að viðhalda
jafnvægi í viðskiptum við erlend ríki.
Frá því að Kínverjar hófu að opna
hagkerfi í auknum mæli, hefur er-
lendum fjárfestum í landinu fainð
fjölgandi. Ronghua bendir á að í dag
séu yfír 160 erlend fjármálafyrirtæki
með starfsemi í landinu með saman-
lagðar eignir upp á 40 milljarða
bandaríkjadala. Hann segir megin-
markmið ársins 1999 aðallega felast í
að styrkja kínverskan landbúnað og
auka rekstrarhagræði ríkisfyrirtækja
enn frekar. Hann telur efnahagshorf-
ur í Kína fyrir árið 1999 góðar og fulla
ástæðu til bjartsýni. „Gert er ráð fyr-
ir að þjóðarframleiðslan aukist um
8,6%. Verðmæti innfluttra afui'ða
verða 170 milljarðar dollai-a og
hækka um 18 milljarða á milli ára auk
þess sem útlit er fyrir að útflutnings-
verðmæti kínverskra afui'ða á þessu
ári fari úr 192,5 milljörðum dollara í
206 milljarða," að sögn Ronghua.
Viðræðum Lykilhótela hf. og Fosshótela ehf. slitið
Fosshótel vilja auka
gistirými í Reykjavík
VIÐRÆÐUM Fosshótela ehf. og
Lykilhótela hf. um rekstur Fosshót-
ela á sex Lykilhótelum hefur verið
slitið. Ólafur Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Fosshótela, segir að
samningsaðilar hafi ekki getað kom-
ið sér saman um rekstur hótelanna
og því var viðræðum slitið.
Ef samstarfið hefði orðið að
veruleika hefðu Fosshótel orðið
stærsta hótelkeðja landsins með 17
hótelum og 917 herbergjum. Ólafur
sagði að Fosshótel hygðust snúa
sér að nýjum verkefnum, svo sem
viðræðum við hótel á landsbyggð-
inni undir heitinu Fosshótel-
Partners. „Fjölmörg landsbyggðar-
hótel hafa sýnt hugmyndinni
áhuga. Þá hefur aukin eftirspurn
eftir gistirými kallað á hugmyndir
um að Fosshótel kaupi eða reisi
hótel í Reykjavík." Ólafur sagði að í
kjölfar aukins og jafnari ferða-
mannastraums til borgarinnar
hefði fyrirtækið í hyggju að auka
gistiiými um 100-150 herbergi.
Guðmundur Jónasson ehf. á 75% í
Fosshótelum en Ómar Benedikts-
son, framkvæmdastjóri Islands-
flugs, og Lífeyrissjóður Austur-
lands eiga 25%. Ólafur sagði að um
tíma hefði staðið til að Jón Ragnars-
son hjá Lykilhótelum gerðist hlut-
hafi í Fosshótelum en af því verður
ekki. Hann segir að nú standi yfir
viðræður um að nokkur fyrirtæki
gerist hluthafar í Fosshótelum.
Ólafur vildi ekki nafngreina fyrir-
tækin.
Auqnablik...
Nú er ISfeKr-
Gleraugu með Hoya plastgleri,
glampa- og rispuvörn.
Styrkleiki +/-ó ásamt umgjörð.
Áður 17.500, nú 12.500.
Þú sparar 5.000 kr.
Margskipt gler með breiðu lessvæði.
Styrkleiki +/-6 ásamt umgjörð.
Áður 35.450, nú 25.450.
Þú sparar 10.000 kr.
Við hugsum vei um sjón þína.
PROFl£S^bPTIK
Viðurkenndur siónfræðingur.
_____________GLERAUGNAMIÐSTÖÐIN
LAUGAVEGI 24, SÍMI 552 0800
754 m.kr
viðskipti á
VÞÍ
VIÐSKIPTI á Verðbréfaþingi ís-
lands námu 754 milljónum ki-óna í
gær. Mest voru viðskipti með hluta-
bréf, fyrir 259 milljónir króna, mest
með bréf Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins fyrir tæplega 80 millj-
ónir króna. Gengi bréfa í FBA var í
lok dags 2,17, sem er 1,9% hækkun
frá lokagengi dagsins á undan og
55% hæira en útboðsgengi.
Verð hlutabréfa í UA hélt áfram
að hækka og endaði gengið í 5,92
og hefur verð hlutabréfa hækkað
um rúmlega 17% frá áramótum.
Úrvalsvísitala lækkaði um 0,39%,
sem má rekja til 2,1% lækkunar á
bréfum í Eimskip.