Morgunblaðið - 29.01.1999, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 19
Morgunblaðið/Þorkell
FJÖLDI stjórnenda Landssímans var á Grand Hóteli er stjórnunar-
námskeiði fyrirtækisins var hleypt af stokkunum í gær.
Stjórnendur
Landssímans á
skólabekk
LANDSSÍMINN hefur hleypt af
stokkunum stjórnunarnámskeiði
fyrir stjórnendur hjá fyrirtæk-
inu, sem eru 140 að tölu. Nám-
skeiðið hefur hlotið nafnið
„Sterkt samband" og er þriggja
missera nám og er metið til ein-
inga á háskólastigi.
Viðar Viðarsson, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs
Landssímans, sem jafnframt er
formaður verkefnisstjórnar nám-
skeiðsins, segir að markmið þess
sé að efla stjórnendur innan fyr-
irtækisins, styrkja ímynd þess,
þjónustumenningu og samkeppn-
ishæfni og efla liðsheild meðal
starfsmanna.
„Hugmyndina að stofnun skól-
ans má rekja til vinnustaðar-
greiningar sem náði til alls fyrir-
tækisins og Gallup framkvæmdi
til að meta viðhorf starfsmanna
til breytinga í viðskiptaum-
hverfi, til vinnuaðstöðu, til sam-
skipta innan deilda og milli
deilda og viðhorf þeirra til
stjórnenda fyrirtækisins svo eitt-
hvað sé nefnt. Þótt margt já-
kvætt hafi komið í Ijós sást ýmis-
legt sem betur mátti fara innan
fyrirtækisins."
Viðar segir að í kjölfarið hafi
verið ákveðið að gera markvisst
átak í því að bæta úr þeim göll-
um sem komu fram í vinnustaða-
greiningunni og gera fyrirtækið
samkeppnishæft á öllum sviðum.
Hann segir að með námskeiðinu
sé verið að fjárfesta í mannauði
starfsmanna og heildarkostnaður
þess sé yfir 40 milljónir króna.
„Að okkar mati er um að ræða
einhveija mestu fjárfestingu ís-
lensks fyrirtækis í mannauði sín-
um. “
Námskeið Landssímans
„Sterkt samband“, er byggt upp í
13 skrefum, þar sem hvert skref
hefur sérstakt áhersluatriði eins
og þjónustustjórnun, gæðastjórn-
un, starfsmannasamtöl, svo eitt-
livað sé nefnt. Verkefnið er unn-
ið undir stjórn verkefnisstjórnar,
sem í sitja starfsmenn Landssím-
ans, Skrefs fyrir skref ehf. og
Gallup. Er námskeiðið 250
klukkustundir og verður kennt í
nokkrum lotum í Viðey, Reykja-
vík og á Leirubakka.
49 m.kr. í boði í
hlutafjárútboði
Stofnfisks hf.
ALLS verða boðnar út 49 milljónir
króna að nafnverði í hlutafjárútboði
Stofnfisks hf. sem hófst í gær. Um
er að ræða níu milljóna króna nafn-
verðshlut í eigu ríkisins sem boðnar
verða út á genginu 1,40, auk sölu á
nýju hlutafé íyrir allt að 40 milljónir
að nafnverði sem selt verður með
tilboðsfyiirkomulagi. Ekki er
ákveðið gengi í tilboðssölunni en í
útboðslýsingu, sem Islandsbanki
annast, kemur fram að ekki verði
gengið að lægri tilboðum en á geng-
inu 1,40 og í því sambandi er höfð
hliðsjón af innra virði félagsins 30.
júní sl., sem var 1,36. Hlutafjárút-
boðið hófst eins og áður sagði í gær
og stendur til 12. febrúar.
Mikil breyting í starfsemi
Stofnfiskur hf. var stofnaður 6.
mars 1991 af Laxeldisstöð ríkisins í
Kollafirði f.h. ríkissjóðs (75%) og
Silfurlaxi hf. (25%), að því er fram
kemur í útboðslýsingu. Meginá-
hersla skyldi í byrjun lögð á kyn-
bætur fyrir hafbeit, enda var það
skilyrði fyrir þátttöku ríkissjóðs í
verkefninu að Silfurlax hf. tryggði
hinu nýja félagi um 50% af árlegum
rekstrarkostnaði þess með hrogna-
kaupum. Allt fram til 1995 var því
lögð megináhersla á kynbætur fyrir
hafbeit, samfara því að hafinn var
undirbúningur undir kynbætur fyr-
ir laxeldi með vali á stofnum, en
stefnt var að því að útflutningur
laxahrogna gæti hafist um 1998.
Mikil breyting varð á starfsemi fé-
lagsins á árinu 1995 í framhaldi af
rekstrarstöðvun Silfurlax hf., en þá
lagðist að mestu leyti af framleiðsla
á hafbeitarhrognum. Fram til árs-
ins 1995 hafði framleiðsla þessara
hrogna verið um 95% af hrogna-
framleiðslu Stofnfisks. Þá jókst
mikilvægi hrogna fyrir matfiskeldi
og fiýtt var tilraunum með útflutn-
ing hrogna til eldis í Chile og á Ir-
landi. í dag er ríkissjóður Islands
langstærsti hluthafinn í félaginu
með 93,60% hlutafjár en 6,40%
skiptast jafnt á milli Öxnalækjar hf.
og Vigfúsar Jóhannessonar, fram-
kvæmdastjóra Stofnfisks.
Landbúnaðarráðuneytið hefur,
fyrir hönd ríkisins, lýst því yfir að
ætlunin sé, í kjölfar hlutafjáraukn-
ingarinnar, að bjóða allan eignar-
hlut ríksins til sölu. Hvenær það
verður ræðst meðal annars af áhuga
fjárfesta nú, en stefnt er að því að
það verði ekki síðar en í árslok á
þessu ári.
Forstjóri Lánasýslu ríkisins um uppkaup spariskírteina
*
A vöxtunarkrafan
3,50% í lægsta tilboði
EFTIR að uppkaupum Lánasýslu
ríkisins á spariskírteinum í fiokki
RS05-0410/K til 6,2 ára lauk sl. mið-
vikudag með því að engu tilboði í
bréfin var tekið, sakaði viðskiptastofa
Landsbanka Islands Lánasýsluna
um að gefa rangar eða villandi upp-
lýsingar um ástæður þess að tilboð-
um var ekki tekið og sagði að mikil-
vægt væri að markaðsaðilar geti
treyst upplýsingum sem berast frá
aðilum eins og Lánasýslu ríkisins.
I fréttabréfum Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins og Islands-
banka í gærmorgun er yfirlýsingin
einnig gagnrýnd.
I yfírlýsingu Lánasýslunnar sagði
að engu tilboði hafi verið tekið þar
sem ávöxtunarkrafan hafi ekki verið
í samræmi við ávöxtunarkröfu á
Verðbréfaþingi Islands. Sigurgeir
Jónsson forstjóri Lánasýslunnar
segir að við ákvörðunina hafi verið
miðað við síðustu viðskipti daginn
fyrir útboðið sem voru á ávöxtunar-
kröfunni 4,10% en tilboðin sem bár-
ust hafi verið allt niður í 3,50%.
FBA bauð kröfuna 4,00%
í Morgunkorni Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins kemur fram að
FBA bauð 100 milljónir króna til sölu
á ávöxtunarkröfunni 4,00%. ,Af sam-
tölum við aðra markaðsaðila og fjár-
festa má ráða að töluvert sölufram-
boð virðist hafa verið á bilinu
4,0%--4,05% ávöxtunarkröfu. í ljósi
þess að síðustu viðskipti voru á 4,05%
fyrir útboðið og að aðstæður á VÞI
hafa verið þannig undanfarna daga
að til þess að kaupa mikið magn hef-
ur þurft að fara niður í (eða undir)
4,0% ávöxtunai'kröfuj þarfnast að-
gerðir Lánasýslu frekari skýringa af
hennar hálfu, það myndi eyða ákveð-
inni óvissu,“ segh' í Morgunkorninu.
Þar segir einnig að niðurstaðan
leiði til áframhaldandi óvissu og
vextir gætu því lækkað enn frekar á
næstu vikum.
I morgunfréttum Islandsbanka er
tekið í sama streng og sagt að niður-
staða útboðsins breyti engu um þann
„lækkunarfasa“ sem nú er á skulda-
bréfamarkaði.
Áfram keypt á markaði
Sigurgeir Jónsson forstjóri Lána-
sýslu ríkisins segir að daginn fyrir
útboðið hafi síðustu viðskipti í þess-
um fiokki, sem álitin voru marktæk,
að upphæð 160 milljónir króna, verið
á ávöxtunarkröfunni 4,10-4,12 og við
það hafi verið miðað við yfirferð til-
GENGIÐ hefur verið frá skiptum á
hlutabréfum Pharmaco hf. í Lyfja-
verslun Islands hf. að nafnvfrði
25.111.222 kr. gegn hluta hlutabréfa
Lyfjaverslunar Islands hf. í Delta
hf. að nafnvirði 5.546.861 kr. sem er
2,8% heildarhlutafjár Delta hf., sam-
kvæmt samkomulagi við Pharmaco
boða sem ríkinu bárust um kaup á
spariskírteinum.
Eftir því sem ávöxtunarkrafan er
lægi'i því meira þarf ríkið að borga
fyrir spariskírteinin sem það kaupir.
Sigurgeir segir að tilboð sem bár-
ust hafi verið með ávöxtunarkröfu
allt niður í 3,50% og því töluvert und-
ir því sem bauðst á markaði daginn
fyrir útboðið.
Sigm'geir sagði að reynt yrði að
meta það á næstu dögum hvort ráð-
ist verður í annað útboð með þess-
um hætti, en um nýbreytni var að
ræða við tilhögun útboðsins í þetta
sinn.
Hann sagði að þangað til ákvörðun
yrði tekin um framhaldið myndi ríkið
halda áfram að kaupa bréf á markaði
en kaup á þessum flokki spariskír-
teina er hluti af áætlunum ríkis-
valdsins um að borga niður skuldir
innanlands á árinu.
hf. dags. 14. nóvember 1998.
Pharmaco hf. hverfur nú úi' hlut-
hafahópi Lyfjaverslunar Islands hf.
Lyfjaverslun íslands á í dag eigin
bréf að nafnvirði 31.383.405 kr. sem
er 10,46% heildarhlutafjár félagsins.
Gengi bréfa í Lyfjaverslun hækkaði
um 4,3% í gær.
y'
Pharmaco, Delta og Lyfjaverslun Islands
Geng’ið frá hluta-
bréfaskiptum
s *
A morgun getur þú - með atkvæði þínu - tryggt að Asta R. Jóhannesdóttir
þingmaður Reykvíkinga geti haldið áfram að standa vörð um réttindi
og hagsmuni almennings.
Ásta Ragnheiður hefur verk að vinna á Alþingi.
Við höfum líka verk að vinna.
Tryggjum henni 2. sætið í opnu prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík á morgun.
grtur ráðið’úrslitum! “ GÓðœtÍð til Ottm!