Morgunblaðið - 29.01.1999, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Bílaframleiðandinn Ford kaupir
fólksbíladeild Volvo
Ahyggjur innan
sænsku ríkis-
stjónmrimmr
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið, Gautaborg. Reuters.
„ÞETTA er áfall fyrir sjálfstraust-
ið,“ sagði í fréttaskýringu Dagens
Nyheter af kaupum bandarísku
Ford-bílaverksmiðjunnar á fólks-
bílaframleiðslu Volvo íyrir fímmtíu
milljarða sænskra króna, um 500
milijarða íslenskra króna. Fréttin
um söluna er sú síðasta af mörgum
fyrirtækjasölum eða flutningum,
sem veldur sænsku stjórninni
áhyggjum. Nú þegar Volvo stendur
uppi með fullar hendur fjár eru lík-
ur á að það verði notað til að kaupa
Scania af Wallenberg-samsteyp-
unni og renna traustum stoðum
undir vörubflaframleiðsluna.
Ýmsir vörpuðu þó öndinni léttar,
því „Ford er betri en Fiat“ heyrðist
víða, en Fiat var einn hugsanlegra
kaupenda. Hluthafarnir hafa þó síð-
asta orðið, en 1993 komu þeir í veg
fyrir samruna Volvo og frönsku
Renault-bílaverksmiðjanna. Meðal
sérfræðinga þykir verðið eðlilegt,
en stærðarmunur fyrirtækjanna er
þó mikill. Á lista Financial Times í
gær yfir 500 stærstu fyrirtæki
heimsins er Ford í 48. sæti en Volvo
í 352. sæti.
Fullkomin viðbót segir Ford
Ford Motor Co. í Bandaríkjunum
sagði í gær að fólksbfladeild AB
Volvo í Svíþjóð yrði fullkomin við-
bót þess sem á vantaði í bílaúrvali
Fords og veitti mikla möguleika á
að auka umsvif sænska fyrirtækis-
ins.
Fyrstu fréttir sænska útvarpsins
í gærmorgun voru að sala á Vol-
vohlutabréfum hefði verið stöðvuð í
kauphöllinni í Tókýó vegna óstað-
fests orðróms um kaupin. Sá
orðrómur fékkst svo staðfestur og
kaupin voru kynnt á blaðamanna-
fundum í Detroit og Gautaborg eft-
ir hádegi. Hákan Frisinger, stjórn-
arformaður Volvo, sagði að nú væri
framtíð Volvo bjartari en áður og
Jaeques Nasser, framkvæmdastjóri
Ford, sagði að með kaupunum yrði
framleiðslan breiðari og gæfí góðan
vaxtargrundvöll. Rækilega var und-
irstrikað að framleiðslunni yrði
áfram stjórnað frá Gautaborg.
„Við ætlum að fóstra og vernda
Volvo Car,“ sagði aðalfram-
kvæmdastjóri Ford, Jacques Nass-
er, á blaðamannafundi. „Það er í
okkar þágu og Volvo.“ Hann bætti
því við að hann gerði ráð fyrir að
Ford mundi selja sjö hundruð þús-
und lúxusbfla um allan heim á
næsta ári.
„Ford er besti bandamaðurinn,
besti samstarfsaðilinn og besti eig-
andinn sem við gátum fengið,“
sagði forstjóri Volvo, Leif Johans-
VOLVO-FORD SAMANBURÐUR
Volvo AB í Svíþjóð ætlar að selja fólksbíladeild sína Ford Motor Co.
í Bandaríkjunum fyrir tæpa 500 milljarða íslenskra króna.
Samkomulagið gerir Volvo kleift að einbeita sér að almenningsvögnum, vörubílum, flugiðnaði,
búnaði í skip og vinnuvélar og það mun auka slaka markaðshlutdeild Fords í Evrópu.
Markaður
% af heildarsölu (1997)
Önnur lönd 13 Bandarikin 69
% af heildarsölu (1997)
Bílaiðnaður 80
Evrópa 18
Ford 1997 (*98)
Sala $153,627m
Hagnaður $6,920m
Starfsmenn 363,892
Fjármögnun* $57,387m
Fjármálaþjónusta 20
Markaður
% af heildarsölu (1997)
Önnur lönd 14 Svíþjóð 11
VOLVO
Volvo 1997 (*98)
% af heildarsölu (1997)
Annað 21 Fólksbilar 52
Sala
Hagnaður
Starfsmenn
Fjármögnun*
$23,229m
$1,31 Om
79,050
$10,649m
N-Ameríka 28 Evrópa 47
Heimild: Hoover, Financial Times
Vörubílar 27
son, á blaðamannafundinum. Hann
bætti þvi við að verðið væri sann-
gjarnt, hluthafar fengju sannvirði
fjárfestingar sinnar og Volvo öðlað-
ist fjárhagslegt bolmagn.
Verð hlutabréfa
í Volvo hækkar
Salan gerir Volvo kleift að ein-
beita sér að vörubflum, vinnuvélum
í byggingariðnaði, vélum í skip og
búnaði í flugvélar og eldflaugar. Jo-
hansson sagði að ágóðanum af söl-
unni yrði varið til að efla þessa
starfsemi. I samræmi við þessa
stefnu mun Volvo hætta framleiðslu
almenningsvagna og vörubíla í
verksmiðju sinni í Irvine í Skotlandi
og munu 450 missa atvinnuna. Vol-
vo sagði í nóvember að 6.000 störf
yrðu lögð niður.
Verð hlutabréfa í Volvo hækkaði
um 10% þegar markaðurinn var
opnaður í Stokkhólmi, en lækkaði
aftur í 219,5 sænskar krónur, sem
var níu króna hækkun um daginn.
Volvo verður undir stjórn fyrir-
tækis sem verður sameign Volvo og
Ford. Stjórn fólksbfladeildarinnar
Volvo Car verður áfram í Gauta-
borg og mikill hluti rannsókna- og
þróunarstarfs fyrirtækisins verður
áfram í Svíþjóð. Þar sem sala hefur
legið í loftinu lengi gætti ákveðins
léttis hjá starfsfólkinu. Tuve Jo-
hannesson sagðist ekki geta sagt
neitt til um starfsfólkið, en 29 þús-
und manns starfa við fólksbílafram-
leiðsluna.
„Hið sænskasta af öllu sænsku,“
var Volvo kallað aftur og aftur í
gær. Nasser sagðist einnig hafa
hug á að nýta góða stöðu Volvo-
merkisins og jákvæða sænska
gæðaímynd fyrirtækisins.
Eftirvænting ríkir í sænskum
viðskiptaheimi að sjá hvað Volvo
gerir við peningana, sem fást fyrir
fólksbflaframleiðsluna. Volvo keypti
nýlega 13 prósenta hlut í Scania.
Nú liggur í loftinu að Volvo hafí hug
á að kaupa fyrirtækið alveg og
leggja kapp á að verða enn öflugra
á sviði vörubfla- og vélaframleiðslu.
Scania tilheyrir Wallenberg-sam-
steypunni, ekki Volvo. Meðan Pehr
Gyllenhammar var framkvæmda-
stjóri Volvo glímdi hann við Wallen-
bergana um yfírráðin í sænsku
efnahagslífi, en tapaði að vissu leyti
er hann hætti hjá Volvo í kjölfar
þess að hluthafarnir höfnuðu sam-
runa Volvo og Renault 1993.
Volvo á enn eftir að sannfæra
sænska fjárfestingahópinn Investor
AB, aðalfjárfestingaarm Wallen-
berg-fjölskyldunnar, um að sam-
runi Volvo-Scania sé besti kostur-
inn. Investor hefur örlög Scania í
hendi sér þar sem hópurinn á 45,5%
hlut í fyrirtækinu.
Trú á sænskum iðnaði
Viðbrögðin við sölunni á þessum
fánabera sænsks iðnaðar létu ekki
standa á sér. Göran Persson forsæt-
isráðherra vildi ekki tjá sig um söl-
una fyrr en eftir blaðamannafund
forstjóranna, en sagði hana þá góða
fyrir Svíþjóð. Hún sýndi að erlend
fyrirtæki tryðu á sænskan iðnað.
Carl Bildt, leiðtogi Hægriflokksins,
var ósammála og sagði strax í gær-
morgun að salan undirstrikaði að
bæta þyrfti aðstæður sænskra fyrir-
tækja, einkum skattahliðina.
Að Svíþjóð er land stórfyrirtækj-
anna sést glögglega á áðurnefndum
lista Financial Times, því þar eru
sex sænsk fyrirtæki, eitt sænskt-
fínnskt, en frá Finnlandi, Noregi
og Danmörku eru eitt frá hverju
landi. Ericsson hefur tilkynnt að
Lundúnaskrifstofan öðlist aukið
vægi, þó að höfuðstöðvarnar verði
áfram í Stokkhólmi. Pappírsfyrir-
tækið Stora flytur til Helsinki í
kjölfar samruna við finnskt fyrir-
tæki. Lyfjafyrirtækið Astra ráð-
gerði samruna við hið breska
Zeneca og flutning til Lundúna, en
undirtektir hluthafa eru enn óljós-
ar, svo nokkmydæmi séu tekin um
landflóttann. I ljósi þessa kom
Björn Rosengren atvinnuráðheiTa
nýlega á nefnd með forsvarsmönn-
um iðnaðarins og verklýðshreyfing-
arinnar til að kanna ástandið.
Orðrómurinn um hugsanlega sölu
Volvo ýtti meðal annars undir
stofnun þeirrar nefndar.
Lego segir upp
1.000 manns
Kaupmannahöfn.
LEGO, hinn víðkunni danski leik-
fangaframleiðandi, ætlar að segja
upp 1.000 starfsmönnum á næsta
ári til þess að fyrirtækið geti aftur
skilað hagnaði.
Eftirspum eftir hinum heims-
frægu leikkubbum og öðrum leik-
Annar
Disney-
garður við
París?
París. Reuters.
EURO DISNEY gerir sér vonir
um að opna annan skemmtigarð í
Frakklandi árið 2002 til að minnast
10 ára afmælis Disneylands í París
að sögn Gilles Pelisson forstjóra.
Pelisson sagði í viðtali við
franska biaðið Le Monde að nýi
garðurinn yrði tileinkaður heimi
kvikmynda og sjónvarps og mundi
laða til sín 4,5 milljónir gesta fyrsta
starfsár sitt og veita 4.500 manns
atvinnu.
Disneyland í París er orðinn einn
vinsælasti ferðamannastaður
Evrópu og komu þangað 12,5
milljónir gesta í fyrra. Síðari
garðurinn verður á sama stað í
Marne-la-Vallee austur af París.
Nýr Disneygarður verður
opnaður í Tókýó á næsta ári og
unnið er við nýjan garð í nágrenni
Los Angeles.
föngum Lego hefur minnkað á síð-
ari árum á sama tíma og áhugi á
tölvuleikjum hefur aukizt.
Hagnaður fyrirtækisins minnk-
aði í 62 milljónir danskra króna
1997 úr 470 milljónum danskra
króna 1996. Sala fyrirtækisins nam
7,6 milljörðum danskra króna bæði
árin.
Kjeld Kirk Kristiansen aðal-
framkvæmdastjóri sagði starfsfólki
að niðurskurðurinn væri nauðsyn-
legur til þess að fyrirtækið gæti
aftur skilað hagnaði. Hann kvað
fyrirtækið stefna að því að auka
hagnað sinn um einn milljarð
danskra króna.
Talsmaður fyrirtækisins viður-
kenndi að það væri rekið með tapi,
þótt reikningar fyrirtækisins verði
ekki birtir fyrr en í apríl.
Aðallega verður sagt upp fólki í
sölu- og markaðsdeildum og á
skrifstofu. Tæpur helmingur
10.000 starfsmanna Lego starfar í
Danmörku.
Fyrsta tapið
Lego, sem er í eigu Kristiansen-
fjölskyldunnar, hefur ekki verið
rekið með tapi síðan það var stofn-
að 1932. Nýlega var tölvustýrt
Lego-kerfi markaðssett. Fyrirtæk-
ið á einnig skemmtigarða, þar á
meðal einn í Windsor á Englandi.
Stofnandi fyrirtækisins, Ole
Kirk Kristiansen, var trésmiður,
sem fékkst við leikfangagerð í tóm-
stundum. Hinir heimsfrægu
leikkubbar voru fundnir upp 1958.