Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 23
_______VIÐSKIPTI______
Ford dregur saman
seglin í Bretlandi
London. Reuters.
BREZKT dótturfyrirtæki Ford
Motor Co. hyggst draga meir úr
framleiðslu í Dagenham, stærstu
verksmiðju sinni í Bretlandi, vegna
minni eftirspumar á veikum mörkuð-
um í Evrópu og Rómönsku Ameríku.
Þar sem dregið hefm- úr eftir-
spurn í Evrópu og á öðrum útflutn-
ingsmörkuðum eftir Fiesta, stolti
Dagenham-verksmiðjunnar, kveðst
Ford hafa ákveðið að stöðva bif-
reiðaframleiðslu í 25 daga frá 1.
febrúar til 30. apríl.
Talið er að þessi síðasta aðhalds-
aðgerð muni ná til 3.500 starfs-
manna, eða um 12,5% starfsliðs
Fords í Bretlandi, sem er skipað
28.000 mönnum.
Starfsemi Fords í Bretlandi fer
fram á 23 stöðum, en fyrst og
fremst í Dagenham-verksmiðjunni,
og eru starfsmenn hennar 7.300.
Niðurskurðurinn kemur í kjölfar
fleiri aðhaldsaðgerða í október þeg-
ar hafizt var handa um að draga úr
framleiðslunni í Bretlandi vegna
minnkandi eftirspurnar í Evrópu,
Brasilíu og Mexíkó.
Air France einka-
vætt að hluta
París. Reuters.
FRANSKA ríkisstjórnin hefur sett
um 16,4% hlutabréfa í hinu ríkis-
rekna flugfélagi Air France í um-
ferð.
Ráðuneyti fjármála og sam-
gangna sögðu í sameiginlegri til-
kynningu að um 32 milljónum hluta-
bréfa í félaginu yrði komið í sölu á
hlutabréfamarkaði.
Ráðunautar frönsku stjórnarinn-
ar leggja til að stofnanafjárfestum
verði boðið hvert bréf á 12-14,2 evr-
ur, eða 79-93 franka.
Samkvæmt þessu er félagið metið
á 2,34-2,77 milljarða eyra, eða
15,4-18,2 milljarða franka. Ágóði rík-
isins verður 2,4-3 milljarðar franka.
Litlum fjárfestum gefst kostur á
bréfum með afslætti og bréf verða
tekin frá fyrir flugliða og aðra
starfsmenn. Þeir samþykktu að fá
hlutabréf í staðinn fyrir kauplækk-
anir, sem miðuðu að þvi að gera fé-
lagið samkeppnishæfara.
Upphaflega átti takmörkuð
einkavæðing Air France að fara
fram í fyrrahaust, en henni var
frestað vegna iamandi verkfalls
flugmanna. Það varð til þess að
hagnaður á helmingi reikningsárs-
ins 1998/99 minnkaði í 1,34 milljarða
franka úr 1,75 milljörðum.
fliiar pizzur ð
uöeins 099 hr.
Við bjóðum nú allar pizzur á 899 kr.
Skiptir þá engu hversu stór pizzan er,
hvort áleggstegundirnar eru I eða 10,
hvort þú sækir uppáhaldspizzuna þína
eða snæðir hana einfaldlega í góðu
yfirlæti hjá okkur á Austurströnd eða
í Hlíðarsmáranum. Athugið beinan
síma á Austurströnd: 561 0070
Kynntu þér hin frábæru
heimsendingartilboð okkar!
...fín sending!
Hlíðarsmára 8 ~ Kópavogi
Austurströnd 8 ~ Seltjarnarnesi
Volvo V70 Cross Country er sniðinn fyrir ísland.
Margir samverkandi þættir tryggja einstaka aksturseiginleika
við ólíkar og erfiðar aðstæður, hvort sem er á leyndum
hálkublettum í borginni eða þungri vetrarfærð á íjallvegum.
Volvo V70 Cross Country hefur lágan þyngdarpunkt
og góða þyngdardreifingu, en jafnframt næga veghæð
sem haldið er stöðugri með sjálfvirkri hleðslujöfnun.
Lágþrýst bensinvél með forþjöppu og millikæli skilar
193 hestóflum og hefur mikinn togkraft á öllu
snúningssviðinu. Sjálfvirkur aldrifsbúnaður með seigju-
tengslum deilir vélaraflinu milli hjólanna, í samræmi
við breytilegar aðstæður. Fjölliðaöxull með fullri
driflæsingu og háþróuð TRACS spólvöm tryggja ávallt
besta mögulegt veggrip. Fullkomið hemlakerfi með ABS
læsivöm og EBD afldreifingu lágmarkar hemlunarvegalengd.
BRIMBORG
Faxafeni 8 • Sími 515 7010
aldrifinn o g albúinn
VOLVO V70XC AWD
CROSS COUNTRY
Upplifðu hann í reynsluakstri
Brimborg-Þórshamar
Tryggvabraut 5 • Akureyri
Simi 462 2700
Biley
Búðareyri 33 • Reyðarfirði
Sími 474 1453
Betri bllasalan
Hrísmýri 2a • Selfossi
Sfmi 482 3100
Tvisturinn
Faxastrá 36 • Vestmannaeyjum
Sími 481 3141
... FÆRIFLESTAN SNJO...