Morgunblaðið - 29.01.1999, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Ósló. Morgunblaðið.
STEINAR Bastesen, hvalveiðimað-
ur og þingmaður á norska Stór-
þinginu, safnar nú stuðningsyfir-
lýsingum í því skyni að stofna nýj-
an stjdrnmáiaflokk. Mikil átök
manna í millum hafa sett svip sinn
á starf flokksins Þverpdiitísk þjdð-
arsamtök, sem Bastesen er þing-
maður fyrir.
Bastesen viðurkenndi i samtali
við Dagbladet að samstarf sitt og
Haralds Harams, leiðtoga
Þverpdlitískra þjdðarsamtaka,
Bastesen
safnar und-
irskriftum
væri ekki ýlqa gott. Viðurkenndi
Bastesen einnig að hann safnaði
nú undirskriftum í því augnamiði
að stilla upp lista í Ósld fyrir kom-
andi sveitarstjdmarkosningar, sem
fram eiga að fara í haust.
Lýsir Haram framferði Baste-
sens sem svikum við flokkinn.
Sagði einnig Arvid Falch, annar
fulltrúi flokksins á Stdrþinginu, að
löngu væri orðið tímabært að
Bastesen gerðist einfaldlega full-
trúi fyrir þann flokk sem hann er
jafnan kenndur við, Sjávarsíðu-
flokkinn.
Ætli Bastesen og samstarfsmenn
hans í raun og vem að bjdða fram
undir merkjum nýs flokks þurfa
þeir að hafa safnað fímm þúsund
undirskriftum fyrir 1. febrúar.
l,i . ’ .>»«.4^
■ ■ ■
Takmarkað magn!
Frábær hugbúnaður fylgir:
, • Claris Works (ritvinnsla,
t J töflureiknir, gagnagrunnur ofl.)
L * Internet Explorer og Netscape netvafrar
fs • Fax STF fax hugbúnaður
v / • Kai's Photo Soap SE myndvinnsluforrit
* • MDK skotleikur
• Nanosaur skotleikur
• Thingin Things og Sammy fyrir bömin
3ja mánaða internet
áskrift... __________
islandia
intemet
iMACertölan sem
farið hcfnr sígnr-
för um heiminn!
iMAC er tfjjva
fvrir alla!
G3 örgjörvi
4 Gh harður
56 Kb mótald
Gcisladrif
Víöóma hátalarar
Deilt um doll-
aradrauma
Argentínu
Stjórnvöld í Argentínu hafa viðrað
hugmyndir um að taka upp Bandaríkja-
dollara sem gjaldmiðil í stað pesós.
HAGFRÆÐINGAR hafa undan-
farna daga óspart skipst á skoð-
unum um hugmyndir Argentínu-
manna um að taka gjaldmiðil sinn,
pesóinn, úr umferð og notast í stað-
inn alfarið við Bandaríkjadollara.
Eru menn alls ekki á eitt sáttir í
þessum efnum og er því jafnvel
haldið fram að Ai-gentínumenn hafi
ekki raunverulega í hyggju að
hrinda hugmyndum sínum í fram-
kvæmd, markmið þeirra hafi ein-
faldlega verið að styrkja trú mark-
aða á hagkerfi landsins. Hefur enda
komið á daginn að dregið hefur úr
áhyggjum alþjóðlegra fjárfesta um
að Argentína feti í fótspor Brasilíu
og felli gengi gjaldmiðils síns.
Hugmyndir Argentínumanna
tengjast þeim fjármálaörðugleikum
sem þjakað hafa Brasilíu undanfarn-
ar tvær vikur. Var það Pedro Pou,
forseti ai-gentínska seðlabankans,
sem tilkynnti á blaðamannafundi í
liðinni viku að nú væru til athugunar
þrjár ólíkar leiðir til að draga úr,
eða hætta algerlega, notkun pesós:
ins og taka upp dollara þess í stað. í
þeirri fyrstu fælist að pesóinn yi-ði
einfaldlega lagður niður og dollari
tekinn upp. I öðru lagi mætti koma á
eins konar myntbandalagi Ameríku-
ríkjanna, en það fæli m.a. í sér að
stofnaður yrði seðlabanki íyrir allt
svæðið. Síðasti kosturinn yrði ein-
faldara myntbandalag, sem ekki fæli
í sér stofnun sérstaks seðlabanka.
Sagði Pou að Argentínumenn
ættu nú í viðræðum við fulltrúa
Bandaríkjastjórnar um þessi mál og
staðfesti talsmaður bandaríska fjár-
málaráðuneytisins að þótt enginn
formlegur vinnuhópur hefði verið
skipaður væru Bandaríkjamenn
alltaf tilbúnir að ræða slík málefni
við fulltrúa erlendra ríkja.
Pou lagði að vísu áherslu á að
dollari yrði ekki tekinn upp í Ar-
gentínu „á næstu dögum eða jafnvel
vikum“. Sagði hann að hér væri um
að ræða langtíma áaatlun sem Ar-
gentínumenn vildu gera til að auka
hagvöxt í landinu, með því að sam-
ræma vexti í Argentínu við það sem
gerist í Bandaríkjunum.
Tóku upp myntráð árið 1991
Óðaverðbólga geisaði í Argentínu
á níunda áratugnum og náði há-
marki árið 1989 þegar verðbólga var
um og yfír 5000%. Ákváðu stjórn-
völd í kjölfarið að setja myntráð á
laggirnar til að ná stjóm á efnahags-
málunum. Var þessu hrint í fram-
kvæmd árið 1991. Þetta fól í sér að
gengi pesósins var tengt dollara og
fyrir hvern pesó í umferð lagði
seðlabankinn áherslu á að eiga einn
dollara á móti í sjóðum sínum.
Vald seðlabankans í peningamál-
um varð í raun heldur lítið við þess-
ar aðstæður og er bankanum t.d.
ekki lengur kleift að hlutast til um
gengi pesósins með beinum hætti.
Þótt sjálfstæðri peningastefnu væri
þar með að nokkru fórnað tókst með
þessu að koma á stöðugleika í fjár-
málum landsins, enda kemur svo
miðstýrt fyrirkomulag í veg fyrir sí-
fellda seðlaprentun, sem stuðlar að
óðaverðbólgu.
Þrátt fyrir stöðugleikann hefur
Argentínumönnum hins vegar ekki
tekist að komast hjá háum vaxta-
greiðslum enda virðist sem alþjóð-
legar fjái-málastofnanir eigi erfitt
með að yfn-vinna ótta um að Argent-
ínumenn muni slíta tengingunni við
dollara. Hefur Argentínumönnum
ekki tekist að öðlast þá tiltrú mark-
aða á gjaldmiðilinn sem að var
stefnt og er afleiðingin sú að vextir í
landinu eru áfram mjög háir.
Skiptar skoðanir
meðal hagfræðinga
Skiptar skoðanir eru meðal hag-
fræðinga um ágæti þeirra hug-
mynda sem Argentínumenn hafa nú
sett fram. Segja fylgjendur slíkra
hugmynda að í raun muni Argent-
ínumenn ekki tapa neinu ef þeir
tækju pesóinn úr umferð - nema ef
vera skyldi hluta af þjóðarstolti sínu
- en gætu með því að láta stefnu-
mörkun í gjaldmiðilsmálum í raun í
hendur Bandaríkjamanna líklega
forðað sér frá viðlíka vandræðum og
riðu yfir nýlega í Brasilíu.
En þessu eru ekki allir sammála.
„Það er fáránlegt að halda að Ar-
gentínumenn geti varið efnahag sinn
með því að kasta pesóinum fyrir
róða og taka þess í stað upp dollara
þegar á það er litið að þein-a helsti
viðskiptaaðili er Brasilía og að gengi
brasilíska gjaldmiðilsins hefur hrap-
að mjög að undanförnu," sagði Peter
Kenen, hagfræðingur við Princeton-
háskóla.
Gerir Kenen lítið úr hugmyndum
þess efnis að álfan í heild geti mynd-
að sterka blokk með mjmtbandalagi
áþekku EMU-bandalagi Evrópu-
sambandsríkjanna, ekki síst þar sem
önnur ríki S-Ameríku hafa ekki lýst
jafn miklum áhuga og Argentínu-
menn á að gefa upp á bátinn stjóm
gjaldmiðilsins í því skyni að tryggja
verðstöðugleika. „Evrópa er alveg
sér á báti. Þar er til staðar áratuga-
löng saga sameiginlegra ákvarðana,"
segir Kenen. „An fimmtíu ára Evr-
ópusamvinnu hefði ekkert evrópskt
myntbandalag komið til.“
Umræða sem áður
var talin óhugsandi
A það er bent að í raun yrði ekki
um svo mikla breytingu að ræða fyr-
ir Argentínumenn, ef þeir tengdust
dollaranum, því núverandi fyrir-
komulag, myntráðið, bindur hvort
eð er hendur seðlabankans í landinu.
Mætti í raun alveg eins láta banda-
ríska seðlabankann um slíkt þótt
það hefði þann ókost í för með sér að
Argentínumenn sjálfir hefðu engin
áhrif á ákvarðanir og stefnumörkun
bandaríska seðlabankans, og væru
þannig eins konar gísl Bandaríkja-
manna í peningamálum.
Ekki er heldur líklegt að upptaka
dollarans í Argentínu myndi breyta
miklu fyrir Bandaríkjamenn og að
mati The Wall Street Journal gæti
seðlabankinn bandaríski nokkuð
auðveldlega annað þeirri auknu eft-
irspurn sem fylgja myndi í kjölfarið.
Er dollarinn nú þegar nánast jafn-
gildur pesóinum í Argentínu þótt öll
starfsemi argentínska ííkisins bygg-
ist reyndar á notkun pesós.
En hvort sem Argentínumönnum
er alvara með að taka upp dollarann
eða hvort þeir ljáðu máls á þessum
möguleika í þeirri von að umræðan
ein og sér myndi valda því að þeim
reynist ekki nauðsynlegt að taka
skrefið til fulls þá segja sérfræðing-
ar að umræðan nú sýni í það
minnsta að það sem áður var talið
óhugsandi er alls ekki svo fjar-
stæðukennt í dag. I heimi þar sem
hrun í einni heimsálfu hefur um-
svifalaust áhrif á hagvöxt annars
staðar er eðlilegt að þeirri spurn-
ingu sé velt upp hvort lítið og af-
markað efnahagssvæði geti átt sinn
eiginn gjaldmiðill og varið hann
gegn þeim kraftmiklu vindum sem
oft blása í efnahagsmálum.