Morgunblaðið - 29.01.1999, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 43
UMRÆÐAN/PROFKJOR
Loksins, loksins!
UM NÆSTU helgi
fer fram prófkjör Sam-
fylkingarinnar sem er
samstarfsvettvangur
félagshyggjufólks. Mik-
ið hefur verið gert úr
erfiðum fæðingarhríð-
um og ekki allir sáttir
við niðurstöðuna. Ekk-
ert er fullkomið og
þetta er aðeins skref á
leið sem vonandi verð-
ur löng. Það sem mest
er um vert er að nú
gefst tækifæri til að
reyna hvort um virki-
lega félagshyggjubreið-
fylkingu er að ræða.
Ég hvorki sé eða
heyri fjölmiðil, að ekki
sé þar fjallað um „GÓÐÆRIГ í ís-
lensku þjóð- og efnahagslífí. Þar
hafa pólitíkusar stjórnarflokkanna
verið yfirlýsingaglaðastir, en jafnan
haft varann á og bætt við „það verð-
ur að gæta ýtrasta aðhalds og
spamaðar í ríkisútgjöldum".
í tilefni „GÓÐÆRISINS" hafa
margar stéttir knúið fram launa-
hækkanir sem sumar nema á annan
tug prósenta. Gerðir hafa verið að-
lögunar- og vinnustaðasamningar
hjá opinberum og einkareknum fyr-
Arnór
Pétursson
irtækjum, færandi
launþegum verulegar
launahækkanir. Sveit-
arstjórnarmenn og for-
svarsmenn fyrirtækja
og stofnana hafa notað
tækifærið og hækkað
eigin laun verulega. í
haust sá ég haft eftir
forsætisráðherra að
ákveðnar launahækk-
anir væru „alveg innan
ramma“ og á dögunum
sagði hann að allt útlit
væri fyrir að
GÓÐÆRIÐ mundi
standa nokkur ár til
viðbótar.
Góðæri hefur fylgt
kaupæði og viðskipta-
jöfnuðurinn daglega orðið óhag-
stæðari. Kaupæði þetta er þó aðeins
bundið við hluta þjóðarinnar, það er
þá sem hafa getað skarað eld að
sinni köku bæði með og án aðstoðar
valdhafa.
Til hliðar standa þeir sem minnst
hafa, s.s. öryrkjar og ellilífeyrisþeg-
ar, og finna aðeins lyktina af réttun-
um. Fyrir jólin kom það gleggst í
ljós, því á meðan þeir sem betur
máttu stóðu í biðröðum til að kaupa
raftæki, bifreiðar, utanlandsferðir
eða annan munað, mynduðust
einnig lengstu biðraðir frá kreppu-
árunum við velgjörðarpotta félags-
og líknarstofnana. Það skyldi þó
aldrei verða eini árangm- gósentím-
ans, fyrir utan að skipta þjóðinni
Til hliðar við góðærið
standa þeir sem minnst
hafa, s.s. öryi-kjar og
ellilífeyrisþegar, segir
Arndr Pétursson, og
finna aðeins lyktina af
réttunum.
upp í ríka og fátæka að íslendingar
lærðu að standa í biðröðum.
Til að snúa þessu ranglæti við
þarf sterka fylkingu félagshyggju-
fólks, en hún verður ekki trúverðug
nema hana skipi breiður hópur sem
endurspeglar sem flesta hagsmuna-
aðila í þjóðfélaginu. Aðeins þá verð-
ur Samfylkingin raunverulegur val-
kostur félagshyggjufólks og það
skilar sér í kjörkössunum í vor. Þá
munu allir loks fá sinn réttláta skerf
af góðærinu.
Höfundur er fommður Sjálfsbjargar
landssambands fatlaðra og fram-
bjóðandi í prófkjöri Samfylkingar-
innar.
Skekkjur í upp-
gjöri menntamála
ÞAÐ FER að verða
tímabært að gera upp
átta ára valdaskeið
Sjálfstæðisflokksins í
menntamálum. Eflaust
dettur flestum í hug at-
hafnasemi núverandi
ráðherra á sviði tölvu-
mála og vissulega á
hann heiður skilinn að
því leyti. Hitt er þó mik-
ilvægara að fram fari
mat á stöðu og þróun
skóla og skólastiga og
hvemig staða mennta-
mála er að því leyti þeg-
ar ný öld er í sjónmáli.
Vissulega hafa sjálf- Magnús
stæðismenn með ráð- Ingólfsson
herrann í fararbroddi
látið hendur standa fram úr ermum.
Lagasmíð og áform um gæðastýr-
ingu og mat af ýmsu tagi hafa verið
áberandi en fyrst og fremst hefur
endurhæfing kerfisins frá vinstri
villu verið hið pólitíska erindi ráð-
herrans. Þannig hefur verið valið að
hafa flokkspólitískar kreddur að leið-
arljósi í menntakerfi þjóðarinnar í
stað þess að ná sátt um stefnumótun
úti í þjóðfélaginu og á löggjafarþing-
inu. Skólinn á að efla þroska nem-
enda og undirbúa þá undir líf og
starf í lýðræðisþjóðfélagi. Gegn því
markmiði vinna sjálfstæðismenn
með málatilbúnaði þar sem pólitísk
miðstýring er t.d. aukin á framhalds-
skólastiginu með skipun skólanefnda
á kostnað kennara sem nú eru svo til
áhrifalausir. Um leið eru nemendur
meðhöndlaðir eins og sakamenn með
sektarálagningu fyrir ófullnægjandi
árangur. Flestir skólamenn hafa í
hjarta sínu andstyggð á þessari ófag-
legu stefnu enda vinnur hún gegn
skólanum. Og á grunnskólastiginu
sem er hin námslega undirstaða
þjóðarinnar er ástandið sýnu verst.
Innihald pakkans sem sveitarfélögin
fengu er þetta: Kennaraskortur,
ónóg sérkennsla, sérúrræði og sál-
fræðiþjónusta, aga-
vandamál og linnulaus-
ar kjaradeilur. Þetta er
myndin sem þjóðin hef-
ur af grunnskólanum
sem sveitarfélögin sitja
uppi með en ábyrgðin
er Sjálfstæðisflokksins.
Á háskólastiginu er við-
varandi fjársvelti sem
oft á tíðum virðist vera
eina stjómtækið sem
framkvæmdavaldið hef-
ur gagnvart æðri
menntun í landinu.
Ekki eru námsmenn of
sælir af sínu hlutskipti
enda efnahagslegt jafn-
rétti til náms óþekkt
hugtak í orðræðu nú-
verandi valdhafa og hagur náms-
manna eftir því verri en var fyrir
áratug. Ekki er lesturinn fagur en
þetta er raunveruleiki þess fjórð-
ungs þjóðarinnar sem tilheyi'ir
menntakei'finu. Reyndar veit þjóðin
inu, nánai- tiltekið menntamálaráðu-
neytinu og hefja endurreisn skóla-
kerfisins. Þai' er þetta einna brýnast:
Styrkja þarf grunnskólann með
öllum ráðum eftir greiningu og mat á
vanda hans.
Styrkja þarf grunn-, endur- og sí-
menntun kennara á öllum skólastig-
um.
Stöðva þarf óviðunandi brottfall
nemenda úr framhaldsskólum með
fjölþættum aðgerðum.
Breyta þarf löggjöf um innra starf
skóla aftur í lýðræðisátt.
Bæta þarf hag námsmanna með
raunverulegt efnahagslegt jafnrétti
að markmiði.
Þjóðarátak þarf í umræðu,
fræðslu og rannsóknum á sviði upp-
eldismála.
Höfundur er kennari og stjórnmála-
fræðingur og sækist eftir 2. til 3.
sæti Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík.
Það er brýnt að koma
Sjálfstæðisflokknum út
úr stjórnarráðinu, segir
Magmís Ingólfsson,
nánar tiltekið mennta-
málaráðuneytinu og
hefja endurreisn skóla-
kerfisins.
öll að það er eitthvað brogað við
stefnu sem er undarlegt sambland af
íhaldskreddum og sovétkommún-
isma. Það er því brýnt að koma Sjálf-
stæðisflokknum út úr stjórnarráð-
ori/lcime
Náttúrulegar sænskar snyrtivörur
Viljum bæta við okkur
leiðbeinendum.
Góðir tekjumöguleikar.
39S
jSími 567 7838 - fax 557 3499
e-mail raha@islandia.is
tv.xnet.is/orifiame
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44,
sími 562 3614.
Ekki verði sótt
um aðild að
Evrópusambandinu
I MALEFNASKRÁ
Samfylkingarinnar er
tekið fram að ekki sé
fyrirhugað að sækja
um aðild að Evrópu-
sambandinu á næsta
kjörtímabili. Þetta er
mjög mikilvægt að hafa
í huga nú þegar gengið
er til prófkjörs Sam-
fylkingarinnar í
Reykjavík.
Það hafa ekki verið
mjög skiptar skoðanir
um það innan Alþýðu-
bandalagsins að Island
hefur ekkert að gera í
Evrópusambandið.
Rökin eru í fyrsta lagi
pólitísk, því með aðild réðum við
litlu sem engu um okkar mál sem
væru þar með að meiru eða minna
Eg vil því að mín
afstaða sé öllum ljós,
segir Arni Þór
Signrðsson, ég er ekki
að leita eftir umboði
kjósenda til þess að
knýja þjóðina inn í
Evrópusambandið.
leyti komin í hendur annan'a. í öðru
lagi höfum við verið andvíg
Evrópusambandsaðild vegna
þess að auðlindastefna þess er óvið-
unandi fyrir okkur Islendinga. Það
er forsenda fyrir sjálfbærri um-
hverfis- og auðlindastefnu að ís-
lendingar fari sjálfir með forræði
auðlinda sinna. I þriðja lagi eru rök-
in efnahagsleg, því þar með yrði ís-
land ofurselt kröfum og áherslum
markaðarins á öllum sviðum og
gæti sig lítið hreyft. Evrópusam-
bandsmálið er ekki bara spurning
um aðild að sambandinu, það er líka
spurning um lífsviðhorf. Éf við vær-
um aðilar að Evrópusambandinu
gætum við ekki fylgt okkar eigin
stefnu og áherslum í t.d. efnahags-
málum, félagsmálum eða menning-
armálum í samræmi við okkar að-
stæður. Við yrðum að fylgja stefnu
sambandsins sem í litlu ef nokkru
tæki mið af íslenskum aðstæðum.
Árni Þór
Sigurðsson
Þessi mál þarf að
skoða nú og þau verða
á dagskrá á næsta
kjörtímabili. Ég hef
veitt því athygli að að-
eins einn frambjóðandi
í prófkjöri Samfylking-
arinnar hefur nefnt
Evrópusambandið á
nafn í kosningabaráttu
sinni. Þar er krafist
inngöngu í Evrópu-
sambandið. Þótt ekki
hafi verið sérstaklega
skiptar skoðanir um
málið til þessa innan
Alþýðubandalagsins
og þótt Samfylkingin
hafi gert áherslur Al-
þýðubandalagsins að sínum í þessu
máli veit maður aldrei hvaða stefnu
málin taka þegar á hólminn er kom-
ið. Ég vil því að mín afstaða sé öll-
um ljós: ég er ekki að leita eftir um-
boði kjósenda til þess að knýja þjóð-
ina inn í Evrópusambandið.
Kjósendur eiga rétt á að fá að vita
afstöðu frambjóðenda til allra
helstu þjóðfélagsmála og þar sem
Evrópumálin verða á dagskrá þykir
mér brýnt að koma minni afstöðu á
framfæri. Ég skora á meðframbjóð-
endur mína að gera slíkt hið sama.
Höfundur sækist eftir 1. sæti Al-
þýðubandalagsins íprófkjöri Sam-
fylkingarinnar i Reykjavik.
Ofnasmiðja Reykjavíkur
Vagnhöfða 11 112 Reykjavík
Hágæða heitavatnsofnar frá Danmörku.
BBRUGMAN
HANDKLÆÐAOFNAR
Steypusögun.kjarnaborun,
múrbrot, smágröfur.
Leitiö tilboða. I|,VI
--------------- THOR
S:577-5177 Fax:577-5178
http://WWW.SIMNET.IS/THOR
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR LOKAGJALDDAGI INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00 GKR.
1994-l.fl.D 5 ár 10.02.99 kr. 13.629,70
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 29. janúar 1999
SEÐLABANKIÍSLANDS
|8I
H I HHHHH