Morgunblaðið - 29.01.1999, Síða 70
70 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Haldið upp á daginn
ELDRI kona sést hér
stökkva í tjörnina.
ANNAR „Rostungur" yljar sér
við bál sem kveikt var á tjam-
arbakkanuni.
SÍÐASTLIÐINN laugardag voru 55
ár liðin frá því að umsátri Þjóðverja
um Sankti Pétursborg lauk, en þá
var borgin nefnd eftir byltingar-
manninum Lenín og kölluð Lenín-
grad. Til þess að halda upp á daginn
tóku „Rostungar“ borgarinnar sig til
og stungu sér til sunds í ískaldri
tjörninni í Sigurgarði, en hópur þessi
telur klakasund allra meina bót.
Þéttir á velli
SUMOGLIMUKAPPARNIR
Sekiwake Chiyotaikai og
meistarinn Wakanohana sjást
hér reyna að halda sér innan
hringsins í Nýársstórmóti
súmóglímukappa í Tókyó, en
keppnin fór fram á sunnu-
daginn var. Fyrsta keppnin
milli þeirra félaga fór á þann
veg að Chicotaikai stóð uppi
sem sigurvegari.
Aðeins í nokkra daga
Minnst 40% afsláttur
RCWELLS
Kringiunni 7, sími 588 4422
FYRIR ALLA í
► FJÖLSKYLDUNNM
ÍSLENSK TEIKNIMYND
Lirfa lærir á lífíð
Allir þekkja verkin
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GUNNAR Karlsson f Skrípó, vinnur að
teiknimyndinni Litla lirfan ijóta.
LITLA lirfan ljóta í garðinum heima hjá sér.
I þessum garði á Lirfan heima.
hans Gunnars Karls-
sonar, en hann hefur
gert nær allar íslensku
teiknuðu auglýsingarn-
ar sem birtast í sjón-
varpinu.
SKRÍPÓ heitir fyrirtækið hans
Gunnars, og nýlega fékk það vilyrði
um styrk frá Kvikmyndasjóði Is-
lands upp á 4,5 milljónir króna til
framleiðslu 30 mínútna langi-ar ís-
lenskrar teiknimyndar sem mun
heita Litla lii-fan ljóta. Sagan er eftir
Friðrik Erlingsson, og í fyrra fengu
þeir félagar styrk úr Menningarsjóði
útvarpsstöðva til sama verkefnis.
Átti að verða bók
„Þetta er lífsraunasaga lítillar,
ljótrar lirfu. Hún horfir á heiminn og
hittir hin og þessi önnur skordýr,
sem hún lærir ýmislegt af. Það er
reyndar ekki þannig að við Friðrik
séum svo hugmyndasnauðir að við
séum að herma eftir kvikmyndunum
Antz og A Bug’s Life, hugmyndin að
sögunni er miklu eldri en það. Upp-
haflega vildi Friðrik gera bók út frá
þessari sögu og ætlaði að fá mig til
að teikna myndirnar í hana, en ég
vildi gera teiknimynd fyrir sjónvarp
þar sem það er mitt aðalfag," segir
Gunnar um aðdragandann að litlu
lirfumyndinni.
„Ég er lærður listmálari, en hef
jafnframt starfað við að mynd-
skreyta bamabækur og teikna aug-
lýsingar. Einhvern tímann í gamla
daga fór ég líka á námskeið í teikni-
myndateiknun, en það var ekki
möguleiki að nýta sér það af nokkru
viti hér á Islandi fyrr en fyrir fjórum
árum þegar ódýru tölvurnar komu,
og þá steypti ég mér út í þetta af ein-
skærum áhuga. Áður þurfti annað-
hvort hundruð manna til að vinna
eina teiknimynd eða 20 milljóna
króna tölvu.“
- Er ekki ólíkt að vinna á tölvu og
að teikna fríhendis?
„Nei, reyndar ekki. Maður verður
að geta teiknað til að vinna við tölv-
una, hún gerir ekkert sjálf. Það er
teikniborð tengt henni og á það
teiknar maður fígúrurnar með þar til
gerðum penna.“
Mikil gróska
Lirfan verður þrívíð teiknimynd,
ekki ósvipuð auglýsingunni um
mjólkurdropann Dreitil. Um þessar
mundir er Gunnar að vinna að þrem-
ur 30 sekúndna auglýsingum, en
hver þeirra tekur um einn og hálfan
mánuð að vinna, ef vel er unnið.
Þetta hljóta að vera mjög dýrar aug-
lýsingar.
„Já, og þá er það ekki af því að
tímakaupið sé svo hátt, heldur er svo
mikil vinna í hverri og einni. Það
breytir því samt ekki að það er mikil
gróska í greininni og sífellt meiri eft-
irspurn. Svo mikil að ég hef ekki tek-
ið helgarfrí í fjögur ár, eða alveg síð-
an ég byrjaði í þessu.“
- Er konan þín kannski skilin við
þig?
„Nei, ég flutti vinnuna heim, öðru-
vísi gekk þetta ekki. Svo er ég kom-
inn með fastan starfsmann, auk þess
að ráða lausamenn í sérstök verk-
efni, því ég lofa sífellt upp í ermina á
mér.“
- Er þetta fyrsta teiknimyndin
með sögu sem þú teiknar?
„Já, fyrsta lengri teiknimyndin og
veit eiginlega ekki ennþá hversu
mikið verk þetta verður, en það er
víst að styrkurinn mun koma að góð-
um notum. Við hefðum reyndar þurft
að fá helmingi hærri upphæð, því ég
býst við að þurfa að kaupa ný tæki til
að geta gert þessa mynd. Heildar-
kostnaðurinn verður líkast til um 18
milljónir. í umsókninni til Kvik-
myndasjóðs reiknaði ég með að
myndin yrði sex mánaða vinna fyrir
fjóra menn. Litla lirfan ljóta verður
frekar róleg mynd, sem þýðir minni
vinnu þar sem fígúrurnar eru minna
á hreyfingu. Það er helst að mynda-
vélin hreyfíst. Sögumaður les svo yf-
ir myndirnar. Benedikt Erlingsson
leikari, sem er bróðir Friðriks, las
fyrir okkur söguna, og hann gerði
það mjög skcmmtilega."
- En verður þetta fyrsta íslenska
teiknimyndin?
„Nei, reyndar ekki, en Litla iirfan
ijóta verður vonandi fyrsta íslenska
þrívíddarteiknimyndin.“
DREITILL, Egill og fleiri góðir frá hendi Gunnars.