Morgunblaðið - 13.02.1999, Side 8
8 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
-
FRÉTTIR
Keikó bjargar íslandi
.........- i
„Free Dabby“.
Otryggðir gegn töfum
af völdum veðurs
ÍSLENSKU hjónin sem höfðu ver-
ið veðurteppt í austumska skíða-
bænum Lech vegna fannfergis
komu heim til Islands á miðviku-
dag, fjórum dögum eftir áætlaða
heimkomu. Kostnaðarauka vegna
tafai- af þessu tagi verða ferða-
menn sjálfir að bera, þar með talið
nýtt flugfar og uppihald þá daga
sem dvalið er umfram áætlaðan
tíma. Ekki er boðið upp á trygg-
ingu, sem bætir kostnaðarauka,
nema í þeim tilfellum þar sem flug
tefst beinh'nis vegna veðurs. Þá eru
bætur greiddar í klukkustundum,
en ekki þarf að sýna fram á neina
reikninga. Þeir sem komast hins
vegar ekki á flugstað vegna veður-
skilyrða verða að bera kostnaðai--
aukann sjálfir. Þá er tjón, sem
verður beinhnis af völdum náttúru-
hamfara, ætíð undanskihð í trygg-
ingaskilmálum.
Hópur Islendinga, sem var í St.
Anton, á leið til Lech komst loks til
Lech á miðvikudagskvöld og á bók-
að far til Islands á laugardag.
; i v , , *
Nicotinell'
#
Tvær leiðir til að
hætta!
m
Q0- V/
\:' ,, Nicotinell býður upp á tvær árangursríkar leiðir
til að losna við reykingarávanann.
Nicotinell nikótínplásturinn. Einn plástur á dag
heldur nikótínþörfinni niðri allan sólarhringinn.
Nicotinell plásturinn fæst með þremur styrkleikum.
Nicotineil nikótíntyggjóið hefur sömu eiginleika
og venjulegt tyggjó og fæst bæði með piparmyntu-
og ávaxtabragði. Nicotinell tyggjóið
fæst með tveimur styrkleikum.
Komdu í næsta apótek og fáðu bæklinga
um það hvernig Nicotinell plásturinn
og Nicotinell tyggjóið hjálpa þér
í baráttunni við tóbakið.
Thorarensen Lyf
18 ■ 104 RcfkjaTfk • Sfnai )68 6044
,
i l
'
41 tyggígúavni or lyf som er notað som hjálparotni til þoss að hætta roykjngum Aðorns má nota lytið ot roykinflum or tuett.
Það inniholdur nikótín som losnar úr þvi þogar luggið or. frásogast í munnínum og diegur úr tráhvarlsoinkonnum þogar roykingum
nr hætt. Tygflja skal ertt stykki í einu. hægt og rólega, til aö vmna gogn reykmgaþörf Skammtur er emstaklmflsbundinn en ekki
á tyggja ftoin en 25 6tk. á dag. Ekki or ráðlagt að nota lytið lengur on í 1 ár
Ntcoiineit plástur inniheldur nikótfn og er ætlaður sem hjálparlyt til að hætta reykingum. Notist einungis af fullorðnum.
skai lima á hárlausa og hwia húð. Skömmtun: Fynr þá som rcykja 20 6ígarettur á dag eða moira; t piástur með 21 mg á sí
—'—a i 3-4 vnktif, þvi næst 1 ptástur moð 14 mg á sólarbong. daglega I aðrar 3-4 vikur og að siðustu ptéstur með 7 — A ‘J
ikur Fyrir þá som roykja mmna en 20 sfgarettur ó dag: 1 plástur moð 14 mg á solarhring.dáglega í
tr með pfástrum sem innihalda 7 mg á sólarhríng, daglega í 3-4 vikur. Meðferð skal ekki standa lcngt
ptásturinn á s
g etUr dag, botdur frnna annan stað á tíkamanum. Kynnið ykkur v>
skat lyfln þar sem börn ná ekkl til. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á fylgiseðlum sem
--------------
Tillaga um
fornleifa-
uppgröft í
Skálholti
KRISTÍN Ástgeirsdóttir, þingflokki
óháðra, hefur lagt fram á Alþingi til-
lögu til þingsályktunar um fornleifa-
uppgröft í Skálholti. Meginefni til-
lögunnar er að Alþingi álykti að fela
menntamálaráðheiTa að hefja nú
þegar undirbúning að uppgreftri
hinna fomu bæjarhúsa að biskups-
setrinu í Skálholti í tilefni af 1000 ára
afmæli kristnitöku. Skal uppgröftur-
inn hefjast svo fljótt sem auðið er.
í greinargerð segir m.a. að mikil
fomleifarannsókn hafl farið fram í
Skáiholti á árunum 1954 til 1958, en
að rannsóknin hafí aðeins náð til
kirkjurústanna en ekki til rústa
biskupsgarðsins. ,Að mati flutn-
ingsmanns er verðugt verkefni í til-
efni af 1000 ára afmæli kristnitök-
unnar að kanna sögustaðinn mikla
og jafnframt að nota tækifærið til
að koma upp veglegu sögusafni í
Skálholti, til dæmis með því að
byggja yfír rústirnar eftir að upp-
greftri lýkur, líkt og gert var að
Stöng í Þjórsárdal á sínum tíma.
Þar má segja sögu staðarins í máli
og myndum, tali og tónum og auðga
hana með hlutum sem finnast í rúst-
unum eða eftirlíkingum þeirra,“
segir í greinargerð.
Af vettvangi vísindasögunnar
Vísindi á
18. öld
Einar H. Guðmundsson
dag verður haldið
málþing á vegum Fé-
lags um 18. aldar
fræði í Þjóðarbókhlöð-
unni á annarri hæð og
hefst málþingið klukkan
13.30. Yfirskrift mál-
þingsins er Af vettvangi
vísindasögunnar. Fyrir-
lesarar eru fimm og
þeirra á meðal er Einar
H. Guðmundsson stjarn-
eðlisfræðingur. Hann
flytur fyrirlestur um
stjammælingar Rasmus-
ar Lievogs sem gerðar
voru hér á iandi í lok 18.
aldar. Einar var spurður
hvort það væru fyrstu
slíkar mælingar sem
gerðar hafa verið á ís-
landi.
- Segja má að þetta séu
fyrstu reglubundnu
stjarnmælingamar sem stundað-
ar hafa verið hér á landi. Rasmus
Lievog var sendur hingað frá
Kaupmannahöfn þessara erinda
á vegum Konunglega danska vís-
indafélagsins og bar titil stjömu-
meistara. Hann gerði sínar mæl-
ingar á Alftanesi í stjömutumi
við bæinn Lambhús, sem er í
landi Bessastaða. Hann kom til
landsins 1779 og fór aftur 1805.
Hann var því hér við þessa iðju í
26 ár. Þessar mælingar voru
hluti af átaki Dana til nákvæmra
hnattstöðumælinga. Stjömutum-
inn í Lambhúsum var aðeins einn
fjöguma h'tilla stjörnutuma sem
settir vora upp í nýlendum Dana
á þessum tíma.
- Ilvíiðci fyrirlestrar aðrir verða
haldnir á málþinginu?
- Leó Kristjánsson jarðeðlisfræð-
ingur flytur fyrirlestur um silfur-
bergið frá Helgustöðum. Helgi
Bjömsson jöklafræðingur mun
fjalla um hið merka jöklarit
Sveins Pálssonar. Næst er fyrir-
lesturinn um Rasmus Lievog og í
lokin fjalla Hilmar Garðarsson
sagnfræðingur og Trausti Jóns-
son veðurfræðingur um veður-
mælingar á íslandi á 18. og 19.
öld.
- Gerði Rasmus Lievog eitthvað
annað en að framkvæma stjömu-
athuganir á Islandi?
- Hann gerði einnig veðurathug-
anir og svo fylgdist hann með
stefnu jarðsegulsviðsins með
áttavitum. Svo er ástæða til að
nefna að hann teiknaði fyrsta ná-
kvæma uppdráttinn af Reykjavík
árið 1787, um það leyti sem bær-
inn fékk kaupstaðarréttindi.
Hans aðalstarf vai- eigi að síður
stjammælingar sem beindust
fyrst og fremst að staðarákvörð-
unum, þetta vora lengdar- og
breiddarmælingar. Mælitækin
sem hann hafði vora af ýmsu tagi
en flest orðin gömul og sum úr
sér gengin. Þetta vora sjónaukar
af ýmsu tagi og homamælar, sér-
staklega kvaðrantur einn mikill.
Hann skráði þessar mælingar
samviskusamlega í dagbækur
sem eru varðveittar á Handrita-
deild Landsbóka-
saftisins og við skoðun
á þeim kemur berlega
í Ijós að þessar mæl-
ingai- vora mjög vand-
aðar. Ummæli þeirra
sem um þær hafa fjall-
að era jjau að Rasmus Lievog
hafi verið í hópi bestu stjarnmæl-
ingamanna í Norður-Evrópu á
þessum tíma. Þessar mælingar
vora að hluta til birtar undir
nafni yfirmanns Lievogs, Thom-
►Einar H. Guðmundsson er
fæddur í Reykjavík 4. janúar
1947. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1967 og doktoj-sprófí í
stjarneðlisfræði frá Háskólanum
í Kaupmannahöfn 1981. Hann
hefur starfað í Kaupmannahöfn
og Bandaríkjunum og verið sér-
fræðingur við Raunvísindastofn-
un Háskólans og þar er hann nú
prúfessor í stjarneðlisfræði.
Hann á eina dóttur.
asai- Bugges, prófessors í Kaup-
mannahöfn, auk þess munu þær
hafa borist í bréfum milli manna.
Sérstaklega áhugaverðar era
mælingar Lievogs á myrkvum
Júpiterstungla og þær vora not-
aðar af ýmsum merkum mönnum
í lok 18. aldar og síðar við gerð
stærðfræðilegra líkana af hreyf-
ingu tungla Júpiters um móður-
hnöttinn. Hluti þessara
mæligagna er nú varðveittur í
miklu gagnasafni geimrann-
sóknastofnunarinnar JPL í Kah-
fomíu, sem er rekin í samvinnu
Tækniháskólans í Kalifomíu og
Geimferðastofnunar Bandaríkj-
anna, NASA. Þær hafa auk fjöl-
margra mælinga frá öðrum verið
notaðar í tengslum við ferð geim-
flaugai-innar Galileos til Júpiters,
en flaugin er enn að störfum að
safna gögnum.
- Er átjánda öldin og þekking
manna þá merkilegt rannsóknar-
efni?
- Eg tel svo vera. Það er mjög
mikið sem ekki hefur verið skoð-
að gaumgæfilega af því sem
menn vora að bjástra á 18. öld
og reyndar fyrr á öldum. Þetta á
ekki síst við ýmsar greinar sem
við köllum raunvísindi í dag.
Sjálfur hef ég fyi-st og fremst
verið að kanna verk þeirra
manna sem fyrr á tímum feng-
ust við stjörnufræði. Þeir eru
ekki ýkja margir en þó nokkrir.
Þeirra á meðal era biskuparnir
Guðbrandur Þorláksson og
Oddur Einarsson, Gísli Einars-
son, skólameistari í Skálholti og
Gísli Þorláksson biskup, en þeir
voru allir uppi á 16. eða 17. öld.
A 18. öld mætti t.d.
nefna menn eins og
Magnús At-ason
landmælingamann,
Stefán Björnsson,
reiknimeistara í
Kaupmannahöfn og
Eyjólf Jónsson stjörnumeist-
ara, forvera Rasmusar Lievogs.
Síðan má nefna Björn Gunn-
laugsson og eftir það má segja
að nútíminn hefji innreið sína í
þessum fræðum.
Lievog var í
hópi bestu
stjarnmæl-
ingamanna