Morgunblaðið - 13.02.1999, Síða 16
16 LAUGAKDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Endurbætur á Þjóðminjasafninu hefjast af fullum krafti 1 sumar
döBBödddBöBddd
dgddddoddddddd
□□□□□□□□
omDDn
VIÐ suðurenda Þjóðminjasafnsins verður byggður nýr inngangur f húsið, en innganginum við Hringbraut verður lokað.
Opnun safnsins frestað
til 17. júní árið 2001
OPNUN Þjóðminjasafnsins við Suð-
urgötu hefur verið frestað til ársins
2001, en ljóst þykir að endurbætur á
húsinu reynast umfangsmeiri en áð-
ur var reiknað með. Auk þess hefur
flutningur muna úr húsinu tafist,
m.a. vegna athugasemda sem gerðar
hafa verið við brunavarnir í bráða-
birgðahúsnæðinu. Kostnaður við
endurbæturnar er áætlaður 500
milljónir. Á næstunni verður auglýst
útboð vegna hönnunar sýningar í
safninu, en þetta er í fyrsta skipti
sem ríkið efnir til útboðs af þessum
toga.
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra gi-eindi í gær frá því að ákveð-
ið hefði verið að fresta opnun Þjóð-
minjasafnsins við Suðurgötu til 17.
júní árið 2001, en þegar ákvörðun
um endurbætumar var tilkynnt í
árslok 1997 var stefnt að því að ljúka
framkvæmdunum fyrir 17. júní áríð
2000. Björn sagði að komið hefði í
ljós að endurbæturnar væm tíma-
frekari en gert var ráð fyrir auk þess
sem flutningur muna úr húsinu hefði
tafist. Hann sagði að ekki væri
ástæða til að setja þessari fram-
kvæmd of nauman tímaramma.
Aðalatriði væri að vinna vel og
skipulega að uppbyggingu safnsins.
Þjóðminjasafnið yrði þungamiðja
varðveislu menningararfs þjóðarinn-
ar. Menningarhlutverk þess yrði
mikið fyrir þjóðina, en einnig fyrir
ferðamenn sem sækja landið heim.
Tilboði tekið í fyrsta verkþátt
Sturla Böðvarsson, formaður
byggingamefndar Þjóðminjasafns-
ins, sagði að undirbúningi fram-
kvæmda miðaði vel. Búið væri að
bjóða út verkþætti og taka fyrstu til-
boðum. Samningur hefði verið gerð-
ur við verktakafyrirtækið ístak um
fyrsta áfanga, sem fæli í sér að rífa
innan úr húsinu og steypa upp við-
byggingu sunnan við húsið. Næsti
áfangi yrði endurbætur á Jarðfræði-
húsi Háskóla Islands. Háskólinn nýt-
ir það hús enn, en þar verða í fram-
tíðinni skrifstofur og vinnuaðstaða
fyrir starfsmenn Þjóðminjasafns.
Sturla sagði að eitt af hlutverkum
byggingarnefndar hefði verið að út-
vega bráðabirgðahúsnæði meðan
framkvæmdir við hús Þjóðminja-
safns við Suðurgötu stæðu yfir.
Mununum yrði komið fyrir á tveimur
stöðum, annars vegar við Lyngháls í
húsi sem áður hýsti Fjölbrautaskóla
Garðabæjar og í húsi við Vesturvör í
Kópavogi. Sturla sagði að húsið við
Vesturvör væri hugsað sem framtíð-
argeymsluhúsnæði safnsins þar sem
m.a. yrði góð vinnuaðstaða til skrán-
ingar.
Flutningur á munum stöðvaður
Fyrr í vetur voru gerðar athuga-
semdi við brunavarnir I húsinu við
Vesturvör og var þá tekin ákvörðun
um að stöðva flutning muna í húsið.
Sturla sagði að unnið hefði verið að
því að koma eldvamarmálum í gott
lag í samvinnu við Eldvamareftirlit-
ið og Brunamálastofnun. Guðný
Gerður Gunnarsdóttir safnstjóri
sagði að áformað væri að hefja flutn-
ing muna úr Þjóðminjasafninu fljót-
lega eftir páska og honum yrði lokið í
júnílok.
Miklar breytingar verða á starf-
semi Þjóðminjasafnsins þegar það
hefur starfsemi að nýju við Suður-
götu árið 2001. Húsið verður ein-
göngu notað sem sýningarhúsnæði,
en það er í dag notað undir sýningar,
skiTfstofur og geymslur. I dag er
sýningaraðstaða í húsinu á um 800
fermetrum, en eftir breytingarnar
þrefaldast sýningarplássið. Nýr inn-
gangur í húsið verður byggður við
suðurenda þess, en innganginum við
Hringbraut verður lokað. Að sögn
Ögmundar Skarphéðinssonai- arki-
tekts er við hönnun safnsins miðað
við að nýta nýjustu sýningartækni
eins og hún gerist best erlendis.
Notast yrði m.a. við margmiðlunar-
tækni og nýjustu tölvutækni.
Hönnun sýningar boðin út
Gunnar Jóhann Birgisson, for-
maður þjóðminjaráðs, sagði að
ákveðið hefði verið að efna til sam-
keppni um hönnun sýningar í Þjóð-
minjasafninu. Samkeppnin yrði aug-
lýst á næstunni. Öllum yrði heimil
þátttaka. Sérstök dómnefnd kæmi til
með að velja bestu tillöguna. í henni
eiga m.a. sæti þjóðminjavörður og
safnstjóri Þjóðminjasafns.
Þór Magnússon þjóðminjavörður
sagði að þó að húsi Þjóðminjasafns-
ins við Suðurgötu hefði verið lokað
væri önnur starfsemi safnsins en
sýningarstarfsemi í fullum gangi.
Hann sagði að nú væri t.d. unnið að
átaki í skráningarmálum. Unnið
væri að því að taka myndir af öllum
munum safnsins og fyrirhugað væri
að skanna þær inn á tölvu. Áformað
væri að gera gagnasafn Þjóðminja-
safnsins aðgengilegt á Veraldarvefn-
um. Gagnasafnið yrði síðan tengt
gagnsafni byggðasafna um allt land.
Prófkjör
Samfylk-
ing ar á
Noröur-
landi
PRÓFKJÖR Samfylkingar á
Norðurlandi eystra og Norður-
landi vestra fer fram í dag. Sex
eru í framboði á Norðurlandi
eystra, en átta á Norðurlandi
vestra.
Kjörstaðir í fjölmennustu
bæjarfélögunum á Norðurlandi
eystra eru opnir á milli kl.
10-21. Þetta eru Akureyri, en
kosið er í Húsi aldraðra, Húsa-
vík, en kosið er í Borgarhóls-
skóla og Dalvík, en þar er kos-
ið á Hafnarbraut 7. A Ólafsfirði
er kosið í ÚÍÓ-húsinu, en þar
verður kjörstað lokað kl. 18.
Kjörstaðir í Hrísey, Kópaskeri,
Raufarhöfn og Þórshöfn eru
opnir frá 13-17. Kjörstaður í
Mývatnssveit er opinn frá kl.
13-16.
Byrjað verður að telja at-
kvæði kl. 17 og er búist við
fyrstu tölum fljótlega eftir að
síðustu kjörstöðum lokað kl.
21.
Á Norðurlandi vestra er kos-
ið í 9 kjördeildum. Á stærri
stöðum eni kjördeildir opnar
milli kl. 10-20. Þetta á við um
Selið á Hvammstanga, Félags-
heimilið á Blönduósi, Fellsborg
á Skagaströnd, Safnahúsið á
Sauðárkróki, Höfðaborg á
Hofsósi og Aiþýðuhúsið á
Siglufirði. Einnig er kosið í
Vesturhópsskóla þar sem
kosningu lýkur kl. 14:30,
Laugabakka þar sem kosningu
lýkur kl. 17, Húnaveri þar sem
kosningu lýkur kl 18, Hólum
þar sem kosningu lýkur kl. 16
og Varmahlíð þar sem kosið er
til kl. 20.
Óvíst er hvenær fyrstu tölur
verða birtar á Norðurlandi
vestra, en stefnt er að því að
þær verði tilbúnar um eða eftir
miðnætti.
Landsbankinn lánar kanad-
ísku fyrirtæki 500 milljónir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÁ UNDIRRITUN lánasamnings Landsbankans við Barry Group. Frá vinstri eru David Middleton, fram-
kvæmdastjóri hjá Barry Group, Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, Bill Barry, forstjóri
Barry Group, Bjarni Lúðvíksson, framkvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, og Brynjólfur
Helgason, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans.
Stúdentaráð
gagnrýnir
ráðherra
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
gengur þvert á vilja Háskóla Is-
lands í frumvarpi til laga, sem hann
lagði fram á miðvikudag, segir í
fréttatilkynningu frá Stúdentaráði
Háskóla Islands.
I tilkynningunni segir að stúdent-
ar í háskólaráði hafi lagt fram tvær
breytingartillögur við drög rektors
og ráðuneytisins að frumvarpinu,
sem allar hafi verið samþykktar í
háskólaráði. Þar segir ennfremur að
í frumvarpinu, sem hafi verið lagt
fram á miðvikudag, líti ráðherra
hins vegar framhjá tveimur þeirra
tillagna sem samþykktar hafi verið
og gangi þar með þvert á vilja há-
skólaráðs og þar með Háskóla Is-
lands.
Fyrri tillagan varðar stöðu Stúd-
entaráðs en í tilkynningunni segir
að Háskólaráð hafi óskað eftir því
að fá í lög skýra heimild tíl að semja
við Stúdentaráð um afmörkuð
rekstrarverkefni án útboðs en að í
frumvarpinu sé lagt til að þessi
lagaheimild verði afnumin. Síðari
tillagan varðar fulltrúa ráðherra í
háskólaráði en háskólaráð hafnaði
pólitískum fulltrúum, því það telji
að ekki sé hægt að sætta sig við að
þeir séu skipaðir af menntamálaráð-
hen-a einum án tilnefningar.
í tilkynningunni harma stúdentar
það ef menntamálaráðherra hyggst
ekki taka tillit til vilja háskólaráðs í
þessu mikilvæga máli, sem snerti í
raun innanhússmál skólans.
LANDSBANKI íslands hefur
gengið frá lánasamningi við
kanadíska fyrirtækið Barry Group,
sem starfrækir fiskvinnslu og út-
gerð á Nýfundnalandi og Nova
Scotia.
Að sögn Kristins Briem, aðstoð-
armanns bankastjóra Landsbank-
ans, felur samningurinnn í sér af-
urðalánafyrirgreiðslu að fjárhæð
allt að 7 milljónir Bandaríkjadala
sem svarar til um 500 milljóna ís-
lenskra króna.
Barry Group rekur fjölbreytta
fiskvinnslu á 17 stöðum í Kanada og
gerir út 3 fiskiskip, en hefur tryggt
sér afla af 55 fiskiskipum til viðbót-
ar. Jafnframt kaupir fyrirtækið hrá-
efni til vinnslu á mörkuðum frá öðr-
um löndum, m.a. frá íslandi.
Velta þess á síðasta ári var yfir 4
milljarðar króna og starfsmenn fyr-
irtækisins eru um 3.500 talsins þótt
heilsársstörf séu nokkru færri þar
sem sumar vinnlustöðvar eru lokað-
ar hluta úr ári.
SH hafði milligöngu
um viðskiptin
Að sögn Kristins hefur Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna hf. annast
sölu á hluta af afurðum Barry
Group og hafði í upphafi milligöngu
um afurðarlánaviðskiptin.
„Landsbankinn átti sín fyrstu
lánaviðskipti við kanadískt fyrir-
tæki á síðasta ári þegar gengið var
frá samningum við San Souci í Nova
Scotia, dótturfyrirtæki SÍF. Samn-
ingurinn við Barry Group er hins
vegar fyrsti lánasamingurinn við er-
lent fyrirtæki sem ekki er í eigu ís-
lenskra aðila,“ sagði Kristinn.
Kristinn segii- lánveitinguna í
samræmi við þá stefnumótun
Landsbankans að auka alþjóðlega
starfsemi og styðja við útrás ís-
lenskra fyrirtækja. „Vegna mikillar
reynslu og þekkingar á sjávararút-
vegi er Landsbankinn í sumum til-
vikum betur í stakk búinn til að
annast lánsfjármögnun erlendra
sjávarútvegsfyrirtækja en erlendir
bankar. Þá er afurðalánakerfi ís-
lendinga á margan hátt betur sniðið
að þörfum sjávarútvegsfyrirtækja
en hliðstæð þjónusta erlendra
banka.“
Að sögn Kristins hefur bankinn
að auki hafið viðskipti við fyrirtæki
á sviði sjávarútvegs í Noregi og á
Spáni.