Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 27
ERLENT
Monica Lewinsky
fær uppreisn æru
Washington. The Daily Telegraph.
FYRIR viku fengu
Bandaríkjamenn loks
að heyra og sjá Monicu
Lewinsky. Konuna sem
undanfarna mánuði hef-
ur prýtt forsíður dag-
blaða, slúðurdálka og
skopmynda. Fengu þeir
þá tækifæri til að meta
persónuna, þegar þeir
sáu upptökumar sem
gerðar voru af vitna-
leiðslum fyrir öldunga-
deild Bandaríkjaþings
og virðist sú mynd hafa
gjörbreytt þeirri sem
fjölmiðlar hafa dregið
upp. Fyrir sjónir bar
sjálfsörugga manneskju
sem með tilsvörum sínum fipaði
saksóknara og virðist það hafa fall-
ið í kramið hjá almenningi vestra.
„Hver er þessi fyrrverandi
starfsmaður Hvíta hússins," spurði
saksóknari Repúblikana, James
Rogan, úr ræðustól öldungadeild-
arinnar áður en upptakan var leik-
in. Konan, sem hefur hingað til að-
eins verið lýst í Starr-skýrslunni
og með niðrandi orðum gamalla
unnusta - Bill Clintons forseta þar
á meðal, svaraði spurningum sak-
sóknara af festu og sjálfsöryggi.
Hún gerði að gamni sínu og leið-
rétti saksóknarana með hnyttnum
tilsvörum er þeim varð fótaskortur
á tungunni. Sumir hafa jafnvel tek-
ið svo djúpt í árinni að í viðtalinu
hafi Lewinsky svipað til Banda-
ríkjaforseta sjálfs. Fréttaskýrend-
ur hafa lofað frammi-
stöðu hennar í há-
stert. Frést hefur af
því að veitingahúsa-
gestir hafi staðið upp
og klappað íyrir
Lewinsky þegar hún
hafi gengið inn. Þeg-
ar hún kom til Wash-
ington að bera vitni,
var hópur fólks sem
hyllti hana á götu úti
og í anddyri hótelsins
sem hún gisti.
Lewinsky sem ný-
verið keypti hús ná-
lægt æskuslóðum sín-
um í Los Angeles er
ekki á flæðiskeri
stödd þótt hún hafi gefið upp vonir
sínar um stjórnmálaferil í Wash-
ington eða glæstan viðskiptaferil í
New York. Talsmaður Lewinsky
hafði eftir henni að hún hlakkaði til
að takast á við framtíðina sem að
öllu óbreyttu ætti að vera tíðinda-
minni en undangengnir mánuðir.
Tilboð um viðtöl og einkarétt á út-
gáfu bókar hennar hafa streymt
inn að undanfórnu.
Um leið og Kenneth Starr, sér-
skipaður saksóknari í málum Clint-
ons, gefur formlegt leyfi sitt, mun
ABC-sjónvarpsstöðin taka viðtal
við Lewinsky. Næst í röðinni er
Channel-4 sjónvarpsstöðin breska
sem hefur boðið henni 400.000
sterlingspund (um 50 milljónir
króna) fyrir viðtal og útgáfuréttur
bókar Lewinsky, sem ráðgert er að
komi út í byrjun næsta mánaðar,
er metinn á um 1 milljón Banda-
ríkjadala (um 70 milljónir króna).
Elinor Smeal, formaður banda-
rískra kvenréttindasamtaka, sagði
í viðtali við New York Times á dög-
unum að Lewinsky ætti ekki að
skorta gylliboðin á næstunni. „Hún
vissi hvað hún vildi og upp að vissu
marki er hægt að segja að hún hafi
fengið það“.
Líkur eru jafnvel taldar á að
Lewinsky stjórni eigin sjónvarps-
spjallþætti í framtíðinni. Þá mun
það vera hún sem spyr spurning-
anna í stað þess að svara þeim.
Monica
Lewinsky
Einstakt tilbo3sver3
Jeep Crand Cherokee
5.9 Limited
Aðeins tveir bílar til, einn svartur og
einn Ijósgrár sem er með topplúgu að
auki. Báðir bílamir eru nýir og ókeyrðir
og í ábyrgð frá umboði.
Líföndun
Að anda er að lifa
Guðrún Arnalds verður með helgarnámskeið í líföndun
20. og 21. febrúar
Hvernig vaeri að taka stefnuna fyrir nýtt ár með því að fylla þig af orku?
Losa um það gamla og búa til pláss fyrir meiri gleði og kærleika?
Líföndun hjálpar við að ná djúpri slökun, takti við okkur sjálf og er um leið
góð leið til að kynnast okkur sjálfum.
Guðrún Arnalds. símar 551 8439 og 896 2396
___________Ef við lærum að anda léttar verður líf okkar ósjálfrátt léttara
Fullt vcr8 er 5.
Eitt öflugasta tækið á markaðnum
5.9 I vél, 245 hö, sjálfskiptur
Tveir loftpúðar, leðurinnrétting, vökva- og
veltistýTi með cruise control, rafdrifnar rúður,
loftkæling, ABS-hemlalæsivöm, „QuadraTrac"
millikassi, fjögurra þrepa sjálfskipting með
yfirgír, rafstýTðar sætisfestur, minni á stillingu
ökumannssætis og á hliðarspeglum, opnanleg
afturrúða, litað gler, tónjafnari,
geislaspilari/segulband/útvarp, 8 hátalarar,
hlíf yfir farangursrými, niðurfellanleg
aftursætisbök 40/60,16’’ álfeígur, sjálfvirkt
hitastýrikerfi í miðstöð, aksturstölva, áttaviti,
útihitamælir, samlitir stuðarar og grill,
þokuljós.
g o ó
í/
fi
/ Cl V ó v
-FJOLSKYLDU-OC
H USDYRAG.ARÐUR1N N
Meó einu
handcaki byróu
cí i borð á baki
biistjórasæcis.
4 ioftpuðar:
bílscjóri, farþegt
i framsæti og
hiiðarpúóar.
Það er líkt og Renault Mégane Scénic stækki
þegar þú sest inn i hann, enda er hann fyrsti
fjölnotabíllinn I flokki bda í millistæró. Segja
má aó Scénic sé í raun þrír bílar, fjölskyldubfll,
feróabíll og sendibíll.
Hann er aóeins 4.23 m á lengd en hugmyndarík
hönnun og mikið innanrými gerir hann ótrúlega
notadrjúgan og hagkvæman fýrir einstaklinga
og fjölskyldur.
Þaó er engin furða þó hann hafi umsvifalaust
verið valinn bíll ársins af öllum helstu
bílatímaritum í Evrópu þegar hann var kynntur.
Hér á landi hefur hann þegar fengió ffábærar
viðtökur.
Ármúla 13, Sími 575 1200, Söludeild 575 1220