Morgunblaðið - 13.02.1999, Side 30
30 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Gíbraltar enn orðið bitbein í samskiptum Breta og Spánverja
Efnt til viðræðna
um lausn deiiunnar
Madrid, London. Reuters, The Daily Telegraph.
SPÆNSK og bresk stjórnvöld
ákváðu í gær að efna til viðræðna í
því skyni að leysa nýjustu deilu
ríkjanna um Gíbraltar sem komin
var á það stig í fyrradag að þrýst
var á Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, í breska þinginu að
senda þangað herskip til að sýna
Spánverjum að þeir kæmust ekki
upp með neinn yfirgang.
Þeir Abel Matutes, utanríkisráð-
herra Spánar, og Robin Cook, utan-
ríkisráðherra Bretlands, ræddust
hins vegar við í síma á fimmtudags-
kvöld og urðu þá sammála um að
reyna að draga úr spennu milli
landanna íyrir fund leiðtoga Evr-
ópusambandsríkjanna 21. febniar
næstkomandi. Urðu þeir sammála
um að fresta öllum frekari aðgerð-
um í málinu uns þeir hefðu átt fund
saman.
Bretar mótmæltu form-
lega við Evrópusambandið
Astæða væringanna að þessu
sinni er deila um fiskveiðar úti fyr-
ir höfðanum en lögi’eglan á Gí-
braltar tók í síðasta mánuði
spænskan fiskibát fyrir ólöglegar
veiðar innan landhelginnar.
Bragðust Spánverjar illa við og
hertu eftirlit við landamæri Gí-
braltar og hafa hótað að hætta að
viðurkenna ökuskírteini sem þar
eru gefin út. Jafnframt höfðu þeir
uppi vangaveltur um að banna
flugvélum, sem era að koma til eða
fara frá klettahöfðanum, að fara
um spænska lofthelgi. Mótmæltu
Bretar þessum hugmyndum harð-
lega og bára fram formlega
kvörtun við Jacques Santer, for-
seta framkvæmdastjórnar ESB.
Bretar hafa ráðið Gíbraltar frá
1717 og hefur það lengi verið Spán-
verjum þyrnir í augum. Stungu
þeir í fyn-a upp á sameiginlegu for-
ræði yfir höfðanum og lofuðu Bret-
ar að íhuga málið. Þeir hafa hins
vegar sagt að ekki komi til greina
að samþykkja slíkar tillögur á með-
an 30.000 íbúar Gíbraltar kjósa
sjálfir að vera áfram undir bresk-
um yfirráðum. Era engar
breytingai- fyrirsjáanlegar á þeim
vilja íbúa Gíbraltar.
Fannst látin
í baðkarinu
eftir þrjú ár
Madríd. Reuters.
SPÆNSK kona fannst nýlega lát-
in í baðkari á heimili sínu, eftir
að hafa legið þar í allt að þrjú ár.
Lík konunnar, sem var sjötug að
aldri, fannst á heimili hennar í
Madríd eftir að nágrannar höfðu
talið fjölskyldu hennar á að
sækja hana heim.
Ættingjar konunnar höfðu
ekki heimsótt hana í langan tíma
enda hafði þeim sárnað mjög er
hún kom ekki við útför bræðra
sinna. I ljós hefur hins vegar
komið að konan Iést á undan
mönnunum tveimur. Sagði lög-
regla að a.m.k. 18 mánuði væru
liðnir frá andláti hennar og hugs-
anlega 3 ár, en úr því yrði skorið
með krufningu.
Nágrannar konunnar sáu hana
síðast árið 1996, en þá hafði liðið
yfir hana á götu úti. Þeir kölluðu
í tvígang á lögreglu til að sjá
hvort hún væri heil á húfi, en
enginn hafði komið til dyra er
bankað var og því ekkert aðhafst
í málinu.
Nágrannarnir vildu á endanum
ekki sætta sig við þessi málalok
og þegar þeim varð endanlega
ljóst að fjölskylda konunnar
hafði alls ekki í hyggju að grafa
stríðsöxina höfðu þeir uppi á
þriðja bróðurnum, sem býr í
borginni San Sebastian í norður-
hluta Spánar. Var hann talinn á
að bijóta upp hurðina heima hjá
konunni og komst fjölskylda
hennar þá fyrst á raun um hvern-
ig komið var.
Arafat vill
ríkjasam-
band við
Jórdaníu
Hebron. Reuters.
YASSER Arafat hvatti í gær í fyrsta
sinn til þess að Palestínumenn á
sjálfstjórnarsvæðunum á Vestur-
bakkanum gangi í ríkjasamband við
Jórdaníu, þar sem meirihluti íbú-
anna eru Palestínumenn.
Arafat sagði á pólitískum fundi í
þeim hluta Hebron-borgar sem er
undir palestínskri stjórn, að þing
PLO, Frelsishreyfingar Palestínu-
manna, kysi helzt ríkjasamband við
Jórdaníu ef Abdallah konungur, sem
tók við af föður sínum Hussein við
andlát hans um síðustu helgi, væri
samþykkur hugmyndinni.
Fram að þessu hefur Arafat og
þing PLO, sem ber heitið Þjóðarráð
Palestínu, oftsinnis lagt til að stofnað
yrði ríkjasamband Palestínu og
Jórdaníu, en það gæti aðeins gerzt
eftir að búið væri að stofna sjálfstætt
Palestínuríki.
„Við eram reiðubúnir að stofna
ríkjasamband með Jórdaníu fyrir
eða eftir stofnun Palestínuríkis. Vilji
Jórdanía tafarlausar viðræður um og
samræmingu þeirra skrefa sem stíga
þarf til að stofna ríkjasamband, þá
erum við tilbúnir," sagði Nabil Abu
Rdeineh, talsmaður Arafats í samtali
við Reuters.
-----------------
Adams spáir
sameiningu
innan 15 ára
GERRY Adams, leiðtogi Sinn Féin,
stjórnmálaarms írska lýðveldishers-
ins (IRA), sagðist í gær sannfærður
um að innan fimmtán ára myndi
sameining Irlands hafa átt sér stað
eða að hún yrði þá, í það minnsta, yf-
irvofandi. Vöktu ummæli Adams
sterk viðbrögð meðal sambands-
sinna, sem vilja að N-frland verði
áfram hluti Bretlands, og er haft eft-
ir talsmanni Davids Trimbles, verð-
andi forsætisráðherra, í síðdegis-
blaðinu The Belfast Telegraph að
sameining væri alls ekki á dagskrá
og að Adams myndi örugglega ekki
endast örendið til að sjá sameinað
írland.
Adams hélt því fram að efnahags-
leg og samfélagsleg rök sameiningar
væra afar sterk en sambandssinnar
létu hafa eftir sér að Adams léti
þessi ummæli falla nú til að friða
vopnabræður sína í IRA, sem telji
hann hafa misreiknað sig er hann
ákvað að samþykkja friðarsamkomu-
lagið á síðasta ári.
EVRÓPUMEI
ANNA
9
Magnaður kraftur og
ósvikin þœgindi aiía leið.
Alvöru jeppar með hátt og
lágt drif, sjálfstæða grind
og hagkvæmni í rekstri.
Sestu inn...