Morgunblaðið - 13.02.1999, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 63
Morgunblaðið/Ásdls
UM 300 manns voru viðstaddir opnun nýrrar félag'smiðstöðvar
í Setbergsskóla.
Ný félagsmiðstöð opnuð
í Hafnarfirði
Kjördæmisfélag
Frjálslynda flokksins í
Reykjavík
Auðlindin
í hendur
löglegra
eigenda
ERNA V. Ingólfsdóttir hjúki-unar-
fi'æðingur var kjörin formaður kjör-
dæmisfélags Frjálslynda flokksins í
Reykjavíkurkjördæmi á stofnfundi
félagsins á fimmtudag. Fundurinn,
sem ríflega 70 manns sóttu, sam-
þykkti ályktun, þar sem segir að
svarið við þeiiri ósvinnu, sem gild-
andi fískveiðistjórn veldur, geti að-
eins verið að auðlindin verði færð í
hendur löglegra eigenda.
Aðrir í stjórn kjördæmisfélagsins
eru Árni Gunnarsson rithöfundur,
Gunnar Bæringsson útibússtjóri,
Oskar Þór Karisson fiskverkandi og
Ragnar Steinarsson tannlæknir. I
varastjórn voru kjörnir Helgi Frið-
geirsson sjómaður og Reynii- H. Jó-
hannsson prentari.
Ályktun fundarins, sem samþykkt
var samhljóða, er svohljóðandi:
„Stofnfundur kjördæmisfélags
Frjálslynda flokksins í Reykjavíkur-
kjördæmi ályktar, að þessa dagana
megi í fréttum sjá sláandi dæmi um
hvernig gildandi fískveiðistjórn ligg-
ur eins og mai-a á þeim hluta útgerð-
ar- og sjómanna, sem lent hafa utan-
garðs í kerfinu. Kvótaleiga á kvóta-
þingi hefur hækkað um 22% á fáein-
um mánuðum, frá því siðlausa verði,
sem fyrr var. Nú kastar tólfunum,
þegar kvótaleiga fyrir þorsk er kom-
in upp fyrir eitt hundrað krónur fyr-
ir hvert kíló.
Þetta er átakanlega til mai'ks um
hvert kverkatak fískveiðistjórnin
veitir kvótabröskurum gagnvart
mönnum í nauð, í viðleitni þeirra til
að framfleyta sér. Þarna sanna sig
þau þrælatök, sem kerfíð gefur hin-
um aðalbomu, lénsherrunum, kost á
gagnvart lénsþrælunum. Orð sjávar-
útvegsráðherra í Ríkisútvarpinu í
hádegi 11. þ.m. staðfesta stöðu þess-
ara mála og hverra hagsmuni hann
stendur vörð um.
Þetta er þó aðeins lítið sýnishorn
af þeirri ósvinnu, sem gildandi fisk-
veiðistjórn veldur.
Svarið við þessum ófógnuði getur
aðeins verið: Braskið burt! Auðlind-
ina í hendur löglegra eigenda!"
Námskeið
í líföndun
GUÐRÚN Ai-naids verður með nám-
skeið í líföndun helgina 20.-21. febrú-
ar. Á námskeiðinu verður skoðað
hvernig lífsmynstrin speglast í önd-
uninni, eins og segú' í fréttatilkynn-
ingu, og hvernig nota má öndunina
til að losa um tilfínningai'. Nám-
skeiðið er haldið í Sjálfefli, Nýbýla-
vegi 30, Kópavogi, frá klukkan 10-18
laugardag og sunnudag.
LEIÐRÉTT
Misritun
SKAMMSTÖFUN LGI (Location
Greenland - Iceland) misritaðist í
frásögn Morgunblaðsms um útnefn-
ingar í keppni ÍMARK um athyglis-
verðustu auglýsingarnar á fimmtu-
dag. LGI er annar tveggja framleið-
enda auglýsingar Össurar hf. „A
Perfect Part of Me“ sem útnefnd er í
flokki tímaritaauglýsinga. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Aðeins önnur látin
í MINNINGARGREIN um Guðjón
Ólafsson frá Blómsturvöllum í Morg-
unblaðinu 6. febrúar síðastliðinn, rit-
aðri af Franz Gíslasyni, urðu þau
leiðu mistök að segja að „báðai' Mar-
grétarnar á Maríubakka“ væru látn-
ar, en svo er ekki. Mai'grét, ekkja
Sigurðar bónda á Maríubakka, er á
lífi og eru allir hlutaðeigendur beðnir
afsökunar á þessum leiðu mistökum.
Rætt um
krabbamein og
andlega heilsu
hjá Styrk
STYRKUR, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeiiTa, hef-
ur opið hús mánudaginn 15. febrúar
kl. 20.30 í Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Dr. Snorri Ingimarsson ræðir um
krabbamein og andlega heilsu.
Snorri er sérfræðingur í krabba-
meinslækningum og geðlækningum.
í frétt frá Styrki segir að allir vel-
unnarar félagsins séu velkomnir.
Lesið úr verkum
Heiner Muller
ANDREAS Storm les verk Heiner
Miiller í Goethe-Zentrum Reykja-
vík, Lindargötu 46 í dag, laugardag,
kl. 16.30
Heiner Miiller, sem samdi flest
verk sín í Austur-Berlín, höfuðborg
Þýska alþýðulýðveldisins, flakkaði
yfir landamæri í hinum ytri heimi,
segir í kynningu. Hann var einn
fárra austurþýskra listamanna sem
leyft var að ferðast vestur yfir til að
standa að gestauppfærslum. Þannig
SÝNINGU ljósmyndara og blaða-
ljósmyndara í Gerðarsafni í
Kópavogi lýkur um helgina en í
tengslum við hana voru fluttir
þar fyrirlestrar um síðustu helgi.
Þá gafst gestum kostur á að
velja uppáhaldsmynd og setja
nafn sitt í pott sem síðan var
dregið úr þegar tekið hafði ver-
EINAR Jóhannesson klarínettu-
leikari, Unnur Sveinbjarnardótt-
ir víóluleikari og Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari
koma fram á tónleikum í Safn-
aðarheimilinu á Akranesi á
morgun, sunnudag, kl. 16 og í
Salnum í Kópavogi á þriðjudag-
tókst honum að fljdja skoðanir sínar
á leikhúsinu yfir , járntjaldið". Text-
inn „Hamletmaschine" og leikritið
„Germania - Tod in Berlin“ eru á
meðal öfgakenndustu og þéttustu
texta Mullers. Bæði verkin eru nán-
ast óþekkt á Islandi og verða því
kynnt hér í fyi'sta skipti. Upplestur-
inn er hluti af sýningu um Heiner
Múller sem einnig verður í Goethe-
Zenti'um.
Andreas Storm er leikari og leik-
stjóri. Hann fæddist í Bremen árið
1969 en býr nú og starfar til skiptis í
Hamborg og Zúrich. Til ársins 1997
var hann fastráðinn við Badisches
Staatstheater í Karlsruhe.
Aðgangur er ókeypis.
Norskur prédik-
ari hjá KSS
NORSKI prédikarinn Gunnar
Hamnöy, sem nú er staddur hér-
lendis á vegum Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga, verður í kvöld á
fundi hjá Kristilegum skólasamtök-
um. Hefst fundurinn kiukkan 20.30.
Fundurinn í kvöld verður opinn,
þ.e. ekki eingöngu féiagsmönnum
KSS, og verður mál Gunnars túlkað
af norsku. Fundarstaður er hús
KFUM og KFUK við Holtaveg í
Reykjavík.
ið saman hvaða mynd hlaut flest
atkvæði. Fékk mynd Þórs Gísla-
sonar, ljósmyndara á Akureyri,
flest atkvæði. Nafn Björns Bene-
dikts Guðnasonar, nema á fjöl-
miðlabraut í Fjölbrautaskólan-
um í Garðabæ, kom upp úr pott-
inum og fékk hann myndina til
eignar.
inn kemur kl. 20.30. Á efnisskrá
eru verk eftir Brahms,
Schumann, Bruch og Þorkel Sig-
urbjörnsson. Tilefni tónleikanna
er að í vor verða liðin þrjátíu ár
frá því Einar og Unnur luku ein-
leikaraprófi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík.
ÆSKULÝÐS- og tómstundaráð
Hafnarfjarðai' hefur opnað nýja
félagsmiðstöð í Setbergsskóla.
Félagsmiðstöðin, sem aðallega
er ætluð börnum og unglingum í
Setbergshverfi, hefur hlotið nafnið
Setrið og er í eystri hluta skólans,
þar sem áður voru til húsa Náms-
flokkar HafnarQarðar. Forstöðu-
maður miðstöðvarinnar er Þórður
Björnsson félagsmálafi-eðingur.
Um 300 manns voru viðstaddir
TÆPLEGA 200 fleiri sakamál voru
höfðuð fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur árið 1998 en 1997. Gjaldþrota-
beiðnum fækkaði um 256 milli ára,
eða um fimmtung. I heild fjölgaði
málum til afgreiðslu fyrir dómnum
um 881. Auk þess, sem fyrr var talið,
á aukningin sér þá skýringu helsta,
að kominn er til sögu nýr flokkur
dómsmála: ítrekun sektarboða til
áritunar.
Héraðsdómi Reykjavíkur bárust
11.632 mál til afgreiðslu árið 1998.
Almenn einkamál voru 6.276, um
200 fleiri en árið áður. Af þessum
málum fóru 777 til munnlegs flutn-
ings, 10 færri en 1997.
Á síðasta ári liðu að meðaltali um
sjö og hálfur mánuður frá því
einkamál var höfðað og þar til dóm-
ur gekk, þegar um munnlegan
ílutning var að ræða. I frétt frá
Héraðsdómi segir að þessi tími hafi
styst töluvert á undanförnum árum
og standi góðar vonir til að meðal-
ÓMAR Kristjánsson, forstjóri flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar, segir að
verslunum í flugstöðinni sé ekki lok-
að á ferðamenn nema í undantekn-
ingartilfellum.
AIls eru átta búðir í flugstöðinni.
Ómar segir að það sé aí'ar sjaldgæft
að búðum sé lokað á ferðamenn, í
mesta lagi 10 slík tilfelli komi upp á
ári og þá væri um smærri verslan-
irnar að ræða, því reglan væri sú að
ef um 70 farþegar eða fleiri væru í
stöðinni þá væru allar verslanirnar
opnar. Stóru búðunum, þ.e., Island-
icu, fríhöfninni og TF-búðinni
ásamt veitingarekstrinum ber
skylda til að hafa alltaf opið ef ein-
hver er í stöðinni, segir Ómar.
Ef færri en 70 farþegar eru í
opnunina en þar sungu þau Jón
Ragnar Jónsson og Birna Dögg
Guðbergsdóttir, nemendur í 9.
bekk Setbergsskóla, nokkur lög og
gestum var boðið upp á kaffi, gos
og ineðlæti.
Setrið verður opið á mánudög-
um, miðvikudögum og föstudögum
frá 17.15 til 19 en einnig verður
opið frá 20 til 22 á miðvikudags-
kvöldum og 20 til 23 á fostudags-
kvöldum.
afgreiðslutími munnlega fluttra
einkamála geti orðið um 7 mánuðir
en varla styttri, að óbreyttu fyrir-
komulagi.
Sakamálin voru 1.252 1998 en
1.062 árið áður. Að meðaltali liðu
tveú- og hálfur mánuður frá því ríkis-
saksóknari höfðaði sakamál þar til
dómur gekk en í sakamálum þar sem
lögreglustjórar fara með ákæruvald
liðu að meðaltali þrjár vikur frá því
ákæra barst dómi og þar til dómur lá
fyi-ir. Er þessi tími svipaður og und-
anfarin ár.
Þótt gjaldþrotabeiðnum hafi
fækkað um tæplega 500 frá árinu
1996 hefur uppkveðnum gjaldþrota-
úrskurðum lítið fækkað, að því er
fram kemur í frétt Héraðsdóms. Úr-
skurðirnir voru 414 í fyrra, 453 árið
áður og 476 árið 1996.
Lögregla leitaði 251 sinni til dóms-
ins með beiðni um úrskurði í þágu
rannsóknar. Slíkar beiðnir voru 323
árið 1997 en 232 1996.
stöðinni eru smærri verslanir lokað-
ar en þær stærri opnar. Á þriðjudag
seinkaði brottför vélar til London
og samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins voru allar verslanir í
stöðinni lokaðar um það leyti, sem
farþegar voru i stöðinni, klukkan
18.30. Að sögn Ómars var þetta ein-
stakt tilvik, en samkvæmt upplýs-
ingum frá vaktstjóra hafi verslun
sem selur timarit og fleira verið op-
in þangað til um það leyti sem far-
þegar voru kallaðir út í vél til brott-
farai', en þá hafi ekki komið farþegi
þangað inn í heila klukkustund. Því
hafi líklega verið um að ræða
nokkrar mínútur sem verslunin var
lokuð á meðan farþegar voru enn í
stöðinni.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
HÉR tekur Björn Benedikt Guðnason við niyndinni hjá Önnu Elfnu
Svavarsdóttur. Með þeim eni Finnbogi Marinósson, Fríður Eggerts-
dóttir og Brynjólfur Jónsson.
Vann mynd á sýningu
ljósmyndara
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
UNNUR, Anna Guðný og Einar á æfingu í Salnum.
Afmælistónleikar á
Akranesi og í Salnum
Starfsemi Héraðsdóms Reykjavíkur 1998
Sakamálum fjölg-
ar en gjaldþrot-
um fækkar
Verslanir Leifsstöðvar
Sjaldan lokað á
ferðamenn