Morgunblaðið - 19.02.1999, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 15
AKUREYRI
Fiskihöfnin dýpkuð
Morgunblaðið/Kristján
FÆREYSKA fyrirtækið Sandgrevstur notar sanddæluskipið Vitan
við dýpkun Fiskihafnarinnar á Akureyri og starfa fjórir Færeyingar
um borð.
Framsóknar-
menn vara við
skuldasöfnun
FÆREYSKA fyrirtækið Sand-
grevstur í Fuglafirði hóf í vikunni
framkvæmdir við dýpkun Fiskihafn-
arinnar á Akureyri en fyrirækið átti
lægsta tilboðið í verkið. Alls bárust
fjögur tilboð í þennan fyrri áfanga af
tveimur við Fiskihöfnina en Sand-
grevstur bauðst til að vinna verkið
fyrir um 23 milljónir króna, sem er
um 66% af kostnaðaráætlun.
Heildarefnismagn við dýpkun hafn-
arinnar er um 82 þúsund rúmmetrar
og skal verktakinn flytja um 75 þús-
und rúmmetra af efninu í Krossanes,
þai' sem það verður notað í uppfyll-
ingu og um 7 þúsund rúmmetrar fara
upp á Sanavöllinn. Dýpi við vestur-
kant Fiskihafnarinnar verður 9 metr-
ar en annað svæði í höfninni verður
7,5 metrar á dýpt. Verkinu skal lokið
eigi síðar en 15. apríl nk.
120 metra langt stálþil
Einnig verður rekið niður 120
metra langt stálþil við vesturkant
Fiskihafnarinnar. Hörður Blöndal,
hafnarstjóri Hafnasamlags Norður-
lands sagði að þegar væri búið að
auglýsa eftir tilboðum í efnið en eftir
væri að bjóða niðurrekstur stálþils-
ins út. „Við vonumst til að hægt
verði að hefjast handa við þá fram-
kvæmd í maí eða júní í vor.“
I öðrum áfanga verða gömlu ver-
búðirnar við Slippstöðina fjarlægðar
og uppfyllingunni sem þær standa á
mokað í burtu. Þar verður jafnframt
rekið niður 70 metra langt stálþil.
Hörður sagði þó að frekari fram-
kvæmdir á svæðinu réðust af þeim
fjárveitingum sem fengjust til verks-
ins. „Siglingastofnun er eftirlitsaðili
með þessum framkvæmdum og er
jafnframt okkar ráðgjafi," sagði
Hörður.
GUÐMUNDUR Ómar Guðmunds-
son, bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokks, varaði við því á fundi bæjar-
stjórnar Akureyrar í vikunni að
bæjarsjóður færi út í skuldasöfnun,
en honum þótti sýnt að í það
stefndi. Nefndi hann í tengslum við
umræðu um reikningsyfirlit bæjar-
sjóðs að farið hefði verið 10% fram
úr endurskoðaðri fjárhagsáætlun
síðasta árs eða um 170 milljón
króna. Spurði hann hvort tengsl
væru milli þess og skuldabréfaút-
boðs bæjarins upp á 700 milljónir
króna sem undirritað var í liðinni
viku.
Flokkssystir Guðmundar, Asta
Sigurðardóttir, sagði framúr-
keyrsluna vekja ugg og hún kæmi
afar illa við sig. Það væri ekki
nýlunda að hún talaði móti skulda-
söfnun. Því miður virtist stað-
reyndin sú að stór hluti af skuldum
bæjarins væri neysluskuldir.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri sagði að um bráðabirgðatöl-
ur væri að ræða í reikningsyfirlit-
inu „og við vitum þegar af stórum
skekkjum, sem verða lagaðar,"
sagði hann. Það væri hins vegar
óviðunandi staða að sitja uppi með
rekstur sem ekki færi eftir áætl-
un. Fjárhagsáætlun var endur-
skoðuð í ágúst og sagði bæjar-
stjóri útilokað að svo mikill halli
hefði orðið til á svo skömmum
tíma. Fullyrti Ki'istján að inn-
byggðar skekkjur hefðu verið í
áætluninni, en farið yrði ofan í
saumana á málinu til að sjá í
hverju þær lægju. Taldi bæjar-
stjóri að nægar upplýsingar hefðu
ekki legið fyrir þegar fjárhagsá-
ætlunin var endurskoðuð.
Háskólinn á Akureyri
Epal gefur iðjuþjálfun stóla
Jólagarðurinn
í Eyjafírði
Engin tengsl
við Norður-
pólinn
EIGENDUR Jólagarðsins í Eyja-
firði hafa sent frá sér fréttatilkynn-
ingu vegna umfjöllunar fjölmiðla
um uppgjör Noi'ðuipólsins á Akur-
eyri. Að gefnu tilefni og til að forð-
ast frekari misskilning vilja eigend-
ur Jólagarðsins koma eftirfarandi á
framfæri.
„Jólagarðurinn er einkarekið fjöl-
skyldufyrirtæki. Hann hefur verið
farsællega starfræktur í þrjú ár. Á
þeim tíma hefur hann ekki á
nokkurn hátt tengst títtnefndum
Norðurpól á Akureyri eða nokkurri
annarri jólauppákomu.
Þeim fjölmörgu sem leið eiga um
Akureyri og Eyjafjörð gefst því enn
sem fyrr kostur á að ferðast milli
árstíða og heimsækja töfraveröld
jólanna alla daga árið um kring.“
Þroskahjálp á
Norðurlandi eystra
Nám fatlaðra í
framhaldsskóla
KYNNINGAR- og umræðufundur
á vegum Þroskahjálpar á Norðu-
rlandi eystra um nám fatlaðra ne-
menda í framhaldsskóla verður
haldinn á Fosshótel KEA á lauga-
rdag, 20. febrúar frá kl. 11 til 14.
Ingibjörg Auðunsdóttir kynnir
starf ráðgjafahóps á vegum
menntamálaráðuneytis um nám
fatlaðra nemenda í framhalds-
skóla. Svanfríður Larsen segir frá
undirbúningi að skólagöngu fatl-
aðra nemenda í framhaldsskóla á
vegum Skólaþjónustu Eyþings.
Gunnhildur Bragadóttir formaður
fræðslunefndar fjallar um blöndun
og Lilja Guðmundsdóttir formað-
ur Þroskahjálpar á Norðurlandi
eystra fjallar um vonir og vænt-
ingar foreldra. Að lokum verða
umræður og fyrirspurnir. Þátt-
tökugjald er 1.000 krónur og er
léttur hádegisverður innifalinn.
Fundurinn er öllum opin.
Ólafsfjörður
Sigurjón
hættir í
bæjarstjórn
Ólafsfirði. Morgunblaðið.
SIGURJÓN Magnússon bæjar-
fulltrúi Vinstrimanna og óháðra
óskaði eftir því á fundi bæjar-
stjórnar Ólafsfjarðar á þriðjudag
að fá lausn frá störfum. Ein af
ástæðum þess að Sigurjón óskar
lausnar er dvínandi áhugi á bæj-
arpólitíkinni. Gunnar Reynir
Kristinsson sem skipaði fjórða
sæti lista Vinstrimanna og óháðra
tekur sæti Sigurjóns í bæjarstjórn
Ólafsfjarðar.
EPAL hefur gefíð iðjuþjálfunar-
braut Háskólans á Akureyri sex
stóla en þeir verða notaðir sem
hjálpartæki við kennslu nem-
enda á brautinni. Stólarnir sem
um ræðir eru norskrar gerðar
og sérhannaðir en notkun þeirra
getur virkað fyrirbyggjandi t.d.
varðandi bakverki. Guðmundur
Hannesson, framkvæmdastjóri
Epal, sem færði forsvarsmönn-
um iðjuþjálfunarbrautar stólana
sagði að stólar af þessu tagi
væru mikið notaðir á þjálfunar-
stöðvum en notkun þeirra á
vinnustöðum ykist sífellt. „Það
eru margir slæmir í bakinu og
geta ekki setið á hefðbundnum
stólum,“ sagði hann. Háskólinn
hefur ekki átt slíka stóla áður
og bætir gjöf þeirra Epal-manna
því mjög úr. Þessir stólar verða
m.a. notaðir við kennslu í nám-
skeiði um heilsueflingu og
viimuvernd.
Á myndinni eru frá vinstri:
Guðrún Pálmadóttir, námsbraut-
arstjóri iðjuþjálfunar, Snæfríður
Þóra Egilson lektor, Guðmundur
Hannesson hjá Epal, Þorsteinn
Gunnarsson, rektor Háskólans á
Akureyri, og Elsa Friðfinnsdótt-
ir, forstöðumaður heilbrigðis-
deildar.
Skákþing
Akureyar
í yngri
flokkum
SKÁKÞING Akureyrar í
yngri flokkum hefst í skák-
heimilinu við Þingvallastræti
18 á morgun, laugardaginn
20. febrúar og þá verður
haldið áfram annan laugar-
dag, 27. febrúar. Teflt er í
þremur flokkum, unglinga-
flokki, 13 til 15 ára, drengja-
flokki, 10 til 12 ára og barna-
flokki 9 ára og yngri. Taflið
hefst kl. 13.30 og er þátttöku-
gjald 300 krónur og eru allir
velkomnir.
Fimm umferðum lokið
Tefldar hafa verið flmm
umferðir í Skákþingi Akur-
eyrar, eldri flokki, en leikar
fóru þannig í þeirri umferð
að Ólafur Kristjánsson vann
Halldór Brynjar Halldórs-
son, Stefán Bergsson hafði
betur gegn Hauki Jónssyni
og Rúnar Sigurpálsson vann
Sigurð Eiríksson, en Þór
Valtýsson sat yfir.
Staðan á mótinu er þannig
að Rúnar er efstuj' með 4
vinninga, Stefán hefur 3,5
vinninga og Ólafur er þriðji
með 3 vinninga.