Morgunblaðið - 05.03.1999, Síða 8

Morgunblaðið - 05.03.1999, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR / holræsaskoðun til Tokyö ^ s//_ fSU&l''>lil m UMMM, hún er miklu betri skítalyktin hérna Alfreð, svo er líka hægt að bæta tengigjaldi ofan á „skítaskattinn“. Skipan samvinnunefndar miðhálendis mótmælt HÉRAÐSNEFND Þingeyinga mótmælir því að fulltrúar annarra en þeirra sveitarfélaga sem liggja að miðhálendinu eigi sæti í sam- vinnunefnd miðhálendis, en í frum- varpi til breytinga á skipulags- og byggingarlögum sem nú er til um- fjöllunar á Alþingi er gert ráð fyrir að í nefndinni séu meðal annars full- trúar úr öllum kjördæmum auk eins fulltrúa frá félagssamtökum um úti- vist. Héraðsnefndin er einnig andsnúin því að fest verði í lög að markalína miðhálendisins liggi milli heimalanda og afrétta. Umhverfis- nefnd Alþingis óskaði eftir áliti hér- aðsnefndarinnar á lagafrumvarp- inu. „Við viljum að svæðisskipulags- málum sé stjómað eins í öllum sveitarfélögum landsins og þar sem um svæðisskipulag er að ræða þá sé það viðkomandi sveitarfélag sem til- nefni í þá nefnd,“ segir Sigurður Rúnar Ragnarsson, framkvæmda- stjóri héraðsnefndarinnar. „Þegar sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu eru að fara í svæðisskipulag eru þau ekkert að biðja okkur Þingeyinga að setja mann í nefndina.“ Vafasamt að draga línu milli heimalanda og afrétta Sigurður segir að það geti valdið miklum erfiðleikum að setja í lög markalínu miðhálendsins. Svæðis- skipulagsnefnd hálendisins, sem skipuð var fulltrúum héraðsnefnda þeirra sveitarfélaga sem land eiga að hálendinu og lauk störfum fyrir skömmu, hafði meðal annars það verkefni að draga línu um það svæði sem skipuiagið átti að gilda á. „Það tók tvö ár að ná samkomulagi um þá línu,“ segir Sigurður. „I mörgum til- fellum var stuðst við mörk heima- lands og afrétta en það var alls ekki hægt alls staðar og það er ekki hægt enn í dag því það eru víða deil- ur um þessi mörk. Ef öll lönd utan heimalanda eiga að kallast hálendi þá eru þar innifalin stór svæði á Vestfjarðakjálkanum, á Trölla- skaga, Norð-Austurlandi, á Aust- fjörðum og víðar.“ Sigurður segir að mikill hiti sé í mönnum vegna frumvarpsins og menn muni ekki láta það yfir sig ganga. Reynt verði að sjá til þess að málið verði ekki afgreitt og fulltrú- ar sveitarfélaga sem eiga land að miðhálendinu muni síðan koma saman að þingi loknu og skipa sína svæðisskipulagsnefnd í samræmi við núgildandi skipulagslög. Hann segir að ef lögin verði sam- þykkt á Alþingi verði farið með mál- ið fyrir dómstóla. „Það verður ekki eingöngu á grundvelli markalínunn- ar heldur á grundvelli þess að for- sendu þess svæðisskipulags sem bú- ið er að gera og túlkunum sem við fengum skriflegar um að sveitarfé- lögin mundu stjóma þessu skipu- lagssvæði hefur verið kippt í burtu.“ Ráðstefna um skattamál Þessi mál snerta alla landsmenn Kristján Bragason KATTAMÁL er heit- ið á ráðstefnu sem haldin verður á veg- um Landssamtaka iðn- verkafólk og Verkamanna- sambands Islands í dag, föstudaginn 5. mars. Að sögn Kristjáns Bragasonar, vinnumarkaðsfræðings og starfsmanns Verkamanna- sambands Islands, eru inn- an þessara tveggja lands- samtaka um 40.000 verka- menn sem er hátt hlutfall af vinnandi fólki hér á landi. -Hvers vegna er verið að efna til umræðna um skattarnáJ? „Markmiðið með ráð- stefnunni er að koma af stað virkri umræðu um skattamál enda snerta þau mál alia landsmenn." Hann segir umræðu um skattamál tengjast undirbúningi fyrir næstu kjara- samninga en þeir eru lausir í byrjun næsta árs. „Launþega- hreyfingin þarf að gera upp við sig hvort hún vill nota skattkerf- ið til að ná því fram að auka kaupmátt, ráðstöfunartekjur og lífskjör til þeirra einstaklinga sem verið er að semja fyrir eða eingöngu nota launakröfur á at- vinnurekendur. Þessi ráðstefna er fyrsta skrefið í þá átt að skapa umræður um þessi mál. Við vonum að umræðumar leiði til þess að fólk fari að velta fyrir sér hvaða áhrif mismun- andi aðgerðir hafa eins og til dæmis lækkun skattaprósentu. Hvaða áhrif hafa slíkar aðgerðir á ráðstöfunartekjur og velferð verkafólks? Þegar upp er staðið hafa sh'kar aðgerðir ekki mikil áhrif á laun verkafólks heldm- laun tekjuhærri hópa í þjóðfé- laginu.“ -Menn greinir á um hvaða leiðir á að fara ískattamálum? „Já, sjónarmiðin eru mismun- andi og oft fara þau eftir starfi viðkomandi, tekjum, búsetu og svo framvegis. Állir eru þó sam- mála um að þeir greiði of háa skatta. Kröfugerð gagnvart hinu op- inbera þarf að vera ábyrg og við þurfum að vera öll tilbúin að leggja eitthvað af mörkum ef við viljum halda velferðarkerfinu. Verkafólk hafnar hins vegar þjónustugjöldum sem leið til að ná fram þessu markmiði." Kristján segir mikilvægt að launafólk á Islandi komi sér saman um sameiginlega stefnu í skattamálum og nái sátt um hana. „Launafólk verður að átta sig á mótsögninni sem felst í að gera kröfur um lækkun skatta en á sama tíma búast við aukinni þjónustu. Gera allir sér grein fyrir því hvað þeir eru að leggja fram og hvað þeir fá í staðinn?“ Hann bendir á að réttindi og ábyrgð þurfi í grundvallaratrið- um að fylgjast að. „Réttindum sem fást fyrir skattfé eiga að fylgja skyldur. Dæmi eru at- vinnuleysisbætur sem fást ekki greiddar nema gegn þátttöku í starfsleitaráætlunum og að sá atvinnulausi sæki námskeið til að auka möguleika sína á starfi síðar. Með því að tengja saman réttindi og skyldur náum við ►Kristján Bragason er fæddur í Reykjavík árið 1969. Hann lauk BA-prófi í stjórnmála- fræði frá Háskóla íslands árið 1994 og MA-prófi í vinnumark- aðsfræðum frá Warwick-há- skólanum í Bretlandi árið 1996. Hann hóf störf hjá Verka- mannasambandinu eftir að námi lauk árið 1996. Sambýliskona hans er Mar- grét Leósdóttir læknanemi. fram hagkvæmari nýtingu opin- berra fjármuna." - Hefur verkalýðshreyfingin eklú lagt áherslu á að skattkerf- ið sé tekjujafnandi? „Jú, og það eru til ótal aðferð- ir við að ná fram slíkum mark- miðum. Ein leiðin er að gera það í gegnum skattkerfið með skatt- leysismörkum og tekjutengingu bóta. Það má hins vegar velta því fyrir sér hvort hægt er að gera það á annan hátt. Þessi mál þarf að skoða.“ -Hverjir tala á þessari ráð- stefnu? „Björn Grétar Sveinsson, for- maður Verkamannasambands íslands, setur ráðstefnuna og eftir að Geir H. Haarde fjár- málaráðherra hefur kynnt stefnu ríkisstjórnarinnar í skattamálum mun Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur ræða um áhrif skattkerfisins á mis- munandi tekjuhópa." Kristján bendir á að fulltrúi frá Öryrkjabandalaginu og Landssambandi aldraðra muni koma með sýn eldri borgara og öryrkja á skattakerfið. „Eg mun velta upp mismunandi leiðum sem eru færar varðandi skatta- mál og Garðar Vilhjálmsson, skrifstofustjóri hjá Iðju, félagi verk- smiðjufólks, mun ræða um velferðar- kerfið og hvað við er- um að fá fyrir skatt- ana okkar. Að loknum erindum verða um- ræður þar sem Grétar Þor- steinsson, forseti ASÍ, Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, Sjöfn Ingólfsdóttir, full- trúi BSRB, fulltrúi ríkisstjórn- arflokka og fulltrúi frá stjórnar- andstöðunni sitja fyrir svörum. Einar Karl Haraldsson stjórnar umræðum." Ráðstefnan sem er í dag, fostudaginn 5. mars, er haldin á Hótel Loftleiðum, frá 10-17 og er öllum opin. Allir sammála um að þeir greiði of háa skatta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.