Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 49
MINNINGAR FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 49" ■t MORGUNBLAÐIÐ ■ I sem hann gjarnan lét falla inn í um- ræðuna oft óvænt og stundum með smábroddi í. Við sem þekktum hann höfðum gaman af og vissum að undir stundum nokkuð hryss- ingslegu viðmóti sló hlýtt hjarta og svo hló Sævar og gerði grín að öllu saman. Sævar var bílstjóri ágætur og alltaf boðinn og búinn að aka klúbbfélögum hvert svo sem þeim datt í hug að fara. Virtist hann hafa ákaflega lítið fyrir því, að minnsta kosti heyrði ég hann aldrei kvarta og var þó sjálfsagt ástæða til oft á tíðum. Með Sævai-i höfum við misst góð- an vin og afbragðs félaga og mun vandfyllt það skarð sem orðið er í vinahópinn. Eflaust bíða hans næg verkefni á nýjum ökuleiðum með öðrum farar- tækjum og öðrum farþegum. Hitt veit ég aftur á móti fullvel að hvað svo sem honum verður falið að fást við á öðru sviði tilverunnar verður það leyst af hendi af stakri trú- mennsku og ósérhlífni. Eftirlifandi konu hans, börnum og fjölskyldu allii vottum við hjónin okkar innilegustu samúð í þeirra þungu sorg. Góður guð styrki þau og styðji. Ingjaldur og Hanna. Elskulegur vinur okkar Sævar Sigurgeirsson lést að morgni 23. febrúar síðastliðins. Fregnin um andlát hans kom okkur hjónum ekki alveg á óvart. Hann var búinn að heyja hetjulega baráttu við vá- gestinn mikla um árabil, þó hvað hetjulegast síðastliðna mánuði. Minningabrotin eru mörg, og geislandi persónutöfrar Sævars heitins ylja hnuggnum hug. Það var árið 1975 sem kynni okkar hófust hjá Guðmundi Jónassyni hf. Sævar hafði þá verið þar í nokkur ár og hann ásamt öðrum kenndi nýliðanum hvemig átti að umgang- ast „i-útumar“ með tilhlýðilegri virðingu. Það er sterkt í mynning- unni þegar ég fór mína fyrstu áætl- unarferð til Hólmavíkur fyrir pásk- ana 1976, í leiðindaveðri og ófærð. Þær vora tvær rútumar er lögðu á heiðar og hálsa frá BSÍ þennan morgun, og vora bílstjórarnir á R 342 og R 373 góðir með sig er til- kynnt var í Gufunesradíói að ein- ungis Hólmavíkurrúturnar mættu leggja á Holtavörðuheiði, en henni hafði verið lokað sökum ófærðar. Kom sér þá vel fyrir nýliðann að hafa reyndan og traustan mann í fararbroddi sem lék á als oddi í ófærðinni og lét ekki bilbug á sér finna þótt ferðin tæki 17 tíma og nýliðanum þætti leiðin löng. Eftir átta ára samveru hjá „Guðmundi" lágu leiðirnar áfram saman í „vöru- bflastússinu“ og síðar í leigubif- reiðaakstri á BSR. Ekki er hægt að minnast Sævars án þess að hans ástkæra eiginkona Marsý komi einnig upp í hugann. Ogleymanleg era ferðalögin innanlands jafnt sem utan, uppátækin með „gullald- arliðinu“, öll þorrablótin og síðast en ekki síst þegar „eldhúsbfll" í fjölskylduferð birtist á ásnum og ók í hlað í Víðum. Þá var Sævar í essinu sínu, jós af sínum gleði- branni með Marsý sína og aldraða tengdaforeldra á leið um landið. Við kveðjum hér kæran vin og þökkum áralanga trygga og góða vináttu. Við geymum minningu um góða dreng. Elsku Marsý okkar. Þér og þinni fjölskyldu vottum við okkar dýpstu samúð. Guð veri með ykkur. Þórhallur og Hjördís. Okkm- langar til að minnast hans Sævars með nokkram orðum. Sæv- ar tók að sér akstur á vegum Vist- heimilisins frá árinu 1990. Hann hefur því oft verið daglegur gestur hér á þessum áram, stundum oft á dag. Sævar var öruggur og góður bfl- stjóri. Það var gott að geta treyst honum fyrir akstri með börnin. Þau hændust að Sævari því hann var hress og skemmtilegur. Samt ákveðinn og röggsamur og það komst enginn upp með nein læti í bflnum hans Sævars. Það ríkti eng- in lognmolla í kringum Sævar bfl- stjóra. Honum fylgdi hressandi blær. Ef honum mislíkaði eitthvað sagði hann skoðanir sínar umbúða- laust. Undir niðri var hann þó hlý persóna sem vildi öllum vel. Sævar háði áralanga baráttu við illvígan sjúkdóm. Við undruðumst þrekið og kjarkinn sem hann sýndi. Oft var hann auðsjáanlega sárþjáður en sinnti sínu starfi meðan stætt var. Störm á flánni er fölnuð og nú fer enginn um veginn annar en þú. í dimmunni greinirðu ðaufan nið ogveiztþúertkominn að vaðinu á ánni... (Hannes Pétursson.) Við viljum þakka Sævari sam- fylgdina og vottum Marsý og öðr- um aðstandendum okkar dýpstu samúð. Starfsfólk Vistheimilis barna, Laugarásvegi 39. Fallinn er frá frændinn góði. Ég man hann frá barnæsku. í kjallaraíbúðinni í Samkomuhúsinu gamla á Blönduósi, í Hreppshús- inu þar, í húsinu, sem foreldrar hans byggðu uppi á brekkunni á Blönduósi, og ég man hann í Mos- gerðinu í Reykjavík, eftir að for- eldrar hans fluttu suður, einnig á Hvammstanga, eftir að hann stofnaði sitt fallega heimili þar, með sinni ástkæru konu, og ég man börnin hans ungu. Ég man vel heimili fjölskyldu þeirra í Ból- staðarhlíðinni í Reykjavík, og seinna í Vesturberginu, og ég man nýlegar samverustundir okkar á niðjamóti foreldra minna, sem haldið var síðastliðið sumar á Húnavöllum, og ekki sízt sam- verustundir, nú í haust, er haldið var mikið gildi í tilefni 85 ára af- mælis föður hans, Sigurgeirs, þess síunga öðlings. Þá má ekki gleyma ánægjulegum stundum er ég átti með honum og Marsý fyrir nokkr- um vikum á heimili þeirra, þær eru ógleymanlegar. Alls staðar var Sævar hrókur alls fagnaðar, þrátt fyrir mjög erfíð veikindi nú um langan tíma. Hann Sævar var mjög sérstakur, og einhver minn kærasti frændi. Jákvæðari og skemmtilegri manni hefi ég ekki kynnst á lífsleiðinni. ^ Lífsgleði hans var með eindæmum. Hann var um lengri tíma lang- ferðabflstjóri, hann átti þá á stund- um næturstað hér á Homafirði. Þegar hann kom í heimsókn þekkt- ist bankið hans á útidyrahurðina, það var engu líkt og við voram ekki í neinum vafa um hver var á ferðinni. Elsku Marsý! Stríðinu langa er lokið. Við, sem í fjarlægð höfum verið, vottum þér og börnum þín- um, svo og öðram ástvinum inni- lega samúð og þá ekki síst Sigur- geiri, föður hans, svo og,r' tengdamóður hans, Helgu. Guð blessi ykkur öH. Sigþór, María og fjöiskyldur. 3 . jtl a r s F E R M I N G A R '' '' í i-tf* - - h 1*' °-i - 7 v > ‘”W '! ‘ ‘ B L A Ð A U K 1 Hvað segja fermingarbörnin? Líflegar hringborðsumræður um tilgang fermingarinnar, undirbúninginn, gjafirnaro.fi. Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 mánudaginn 8. mars. AUGLÝSINGADEILD Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is Meðal efnis: Fermingarfatatíska • Hárgreiðsla og snyrting • Fermingargjafir • Uppskriftir frá matreiðslumönnum Veisluborð - hugmyndir að skreytingu •Rættviðverðandifermingarböm * Fermingarmyndir af þekktum íslendingum «0.fl. \ I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.