Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 27 ERLENT Tyrkir gera lítið úr ummælum forseta síns Reuters SULEYMAN Demirel, forseti Tyrklands, leggur áherslu á orð sín við opnun ráðstefnu í Ankara. Abdullah stokkar upp í stjórn sinni Amman. Reuters. Hörð gagnrýni á loftárásirnar kom fram á fundi ör- yggisráðsins Ankara. Reuters. TALSMENN tyrkneska utanríkis- ráðuneytisins reyndu í gær að gera lítið úr ummælum Suleyman Dem- irel Tyrklandsforseta, sem sagði á miðvikudag að árásir bandarísku flugsveitanna á olíudælustöð Iraka við borgina Mosul, hafí verið ótækar. „Síðustu atburðir hafa sýnt fram á viðkvæma stöðu okkar,“ sagði Ser- met Atacanli, talsmaður tyrkneska utanríkisráðuneytisins, á blaða- mannafundi sem efnt var til vegna ummæla forsetans. Tyrklandsstjórn hefur að undan- fíjmu lýst yfír áhyggjum sínum vegna endurtekinna árása Bandaríkja- manna og Breta á írösk skotmörk. Sagði Atacanli að stjómvöld í Was- hington og Baghdad yrðu að leysa úr deilumálum sínum með friðsamlegum hætti. „Það verður að finna lausn á þessu spennuástandi, sem hefur verið líkt og blæðandi sár síðan 1991,“ sagði talsmaðurinn, sem hvatti írösk stjómvöld til að framfylgja ályktun- um Sameinuðu þjóðanna. Gagnrýni öryggisráðsins Arásir bandaríska og breska flug- hersins á skotmörk innan flugbanns- svæðisins yfii’ norður- og suðurhluta Iraks vora gagnrýndar harðlega á lokuðum fundi öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna á miðvikudag, að sögn kínversku Xinhua-fréttastofunnar. Kemur það fram í frétt BBC í gær að Qin Huasun, núverandi forseti ör- yggisráðsins, hafi sagt á fundinum að nær daglegar árásir orrustuþotna á írak væru skýlaust brot á fullveldi og lögsögu Iraks. Lýsti hann því einnig yfir að loftárásirnar bitnuðu á mannúðarstarfi Sameinuðu þjóðanna í Irak. Tóku fulltrúar Rússlands, Frakklands og Malasíu undir sjónar- mið Kínverja og létu í ljós að þeir væm mótfallnir aðgerðunum. Kín- verjar og Rússar hafa sagt að örygg- isráðið hafí aldrei heimilað flug- bannssvæðin og væm þau því ólög- leg. Bandaríkjamenn og Bretai- hafa lýst því yfir að flugbannssvæðin séu réttlætanleg í Ijósi ályktana öryggis- ráðsins um verndun Kúrda í Norður- Irak og Shíta í suðurhluta landsins. Sagði Nancy Soderberg, aðstoðar- sendihema Bandaríkjanna hjá Sa- meinuðu þjóðunum, að bandarísku flugmennirnir hafi hafið árásir í sjálfsvörn. „Við bregðumst við í sjálfsvörn og til varnar flugmönnum okkar,“ sagði sendiherrann. Gert var við olíuleiðsluna miili Iraks og Tyrklands á miðvikudag og hefur rennsli olíunnar verið komið í samt horf. Olían sem flutt er um leiðsluna til Tyrklands er notuð til að greiða fyrir mat og nauðþurftir til Iraka. Flytur leiðslan um helming leyfilegs olíuútflutnings íraka. Benon Sevan, yfumaður hjálpar- starfs Sameinuðu þjóðanna í Irak, sagði að menn hefðu miklar áhyggj- ur af bágu ástandi meðal almennings í Irak. „Þegar árásir eru gerðar verður fólk fyrir tjóni. Það em ekki bara byggingar sem skaddast," sagði Sevan. ABDULLAH, nýr konungur Jórdaníu, tók sína fyrstu stóm stjórnvaldsákvörðun í gær þegar hann leysti for- sætisráðherrann Fayez al- Tarawnah frá störfum og fékk Abdul-Raouf al- Rawabdeh, gam- alreyndan stjórn- málamann, til að mynda nýja ríkis- stjórn. Abdullah, sem svarinn var í emb- ætti konungs í síðasta mánuði eftir andlát Husseins Jórdaníukonungs, tilnefndi einnig Abdul-Karim al-Ka- bai-iti, fyrrverandi forsætisráðhema, sem yfirmann starfsliðs konungs- hallarinnar. Embætti þessu fylgja umtalsverð völd og sögðu frétta- skýrendur að Kabariti myndi gegna lykihlutverki við mótun utanríkis- stefnunnar, á meðan Rawabdeh KREMLVERJAR báru til baka fregnir um að Borís Jeltsín Rúss- landsforseti hafi fyrirskipað Jev- gení Prímakov forsætisráðherra að reka kommúnista úr ríkisstjóm Rússlands. Slíkt hefði getað bundið enda á tiltölulega stöðugt stjórnar- far í Rússlandi síðustu misserin. Kommúnistaflokkurinn hefur brugðist við auknum ft-éttaflutingi af togstreitu milli Jeltsíns og myndi einbeita sér að innaríkismál- um. Rawabdeh settist fyrst í ríkis- stjórn í Jórdaníu árið 1976 og gegndi á einum tíma embætti varaforsætis- ráðherra. Kabariti var hins vegar forsætisráðherra 1996-97 en á þeim tíma gripu stjórnvöld í Jórdaníu til harkalegra aðhaldsaðgerða í efna- hagsmálum, auk þess sem þau hættu öllum stuðningi við stjórnvöld í írak. Þessai’ breytingar eru sagðai' til marks um enn minnkandi áhrif Hassans, bróður Husseins og fyrr- verandi ríkisarfa í Jórdaníu, en það var hann sem tilnefndi Tarawnah sem forsætisráðherra um mitt síð- asta ár, þegar Hussein var í læknis- meðferð í Bandaríkjunum, og í ríkis- stjórn Tarawnahs voru margir bandamenn Hassans. Hussein kon- ungur svipti bróður sinn ríkisar- fatitlinum með dramatískum hætti í janúar og útnefndi Abdullah ríkis- arfa í hans stað. Prímakovs með því að hóta því að knýja fram nýjar þingkosningar ef kommúnistar yrðu reknir úr ríkis- stjórninni. Dmítrí Jakúshkín, tals- maður forsetans, sagði í viðtali við rússnesku sjónvarpsstöðina NTV að fregnir um fyrirskipanir Jeltsíns væm „alger þvættingur". Gerði hann einnig lítið úr því að nokkur ágreiningur væri milli forsetans og Prímakovs. Enginn fótur fyrir sögu- sögnum um ágreining Moskvu. Reuters. Fylkisstjórnarkosningar í Austurriki Hægrimaðurinn Haider vinnur á Vín. Reuters. JÖRG Haider, leiðtogi austurríska hægriflokksins FPÖ, virðist ætla að verða sigurvegari fylkisstjórnar- kosninga sem fram fara í þremur fylkjum Austurríkis á sunnudag. I Salzburg, Tíról og Kárnten kjósa um helgina samtals 1,23 milljónir Austurríkismanna ný héraðsþing. Mesta athyglin beinist að því hvernig FPÖ reiðir af í Kárnten, en þar er Haider sjálfur í kjöri til fylk- isstjóra. I nýjustu skoðanakönnun- um hefur FPÖ mælzt þar með 35-38% fylgi og þar með gott for- skot á hina stóm flokkana tvo, sem saman era við stjórnartaumana í Vín, jafnaðarmenn og kristilega demókrata Þjóðarflokksins. Á áranum 1988-1991 var Haider fylkisstjóri Kárnten, en þá var hann knúinn til að segja af sér vegna ummæla sem hann lét falla um atvinnustefnu Þriðja ríkisins. Síðan þá hefur hann leitazt við að hrista af sér þann stimpil að sem stjórnmálamaður hallist hann lengra til hægri en góðu hófi gegnir og unnið sér víðtækt fylgi með því að leggja áherzlu á ýmis mál sem brenna á fólki en valdhafarnir í Vín hafa síður sinnt, svo sem atvinnu- leysisvandanum, innflytjendamál- um og vandamálum sem tengjast fyrirhugaðri stækkun Evrópusam- bandsins til austurs. Næsti kanzlari? En jafnvel þótt FPÖ komi sem sterkasti flokkurinn út úr kosning- unum í Kárnten er ekki víst að það dugi Haider til að hreppa fylkis- stjórastólinn, þar sem hinir stóru flokkarnir tveir væru vísir til að sameinast um myndun fylkis- stjórnar til að koma í veg fyrir það. Fari svo hefur Haider heitið að berjast áfram fyrir sigi’i í næstu kosningum til sambandsþingsins í Vín, sem verða í síðasta lagi í haust, með það að takmarki að verða kanzlari, sá fyrsti eftir síðari heimsstyrjöld sem ekki kemur úr röðum jafnaðaimanna eða hins íhaldssama Þjóðarflokks. Blackmun látinn Washington. Reuters. HARRY Blackmun, fyrrver- andi forseti hæstaréttar Bandaríkjanna, lést í gær, níu- tíu ára að aldri. Blackmun, sem lét af störfum árið 1994 eftir tuttugu og fjögurra ára setu sem hæstaréttardómari, er helst minnst fyrir dóm sem hann felldi árið 1973 í máli Roe gegn Wade. Þar lýsti hæstiréttur því yfir að konur hefðu stjórnarskrárbundinn rétt til að fara í fóstureyðingu. Voru fóstureyðingar í raun þar með lögleiddar í Banda- ríkjunum. Þótt það væri repúblikaninn Richard Nixon sem tilnefndi Blackmun í hæstarétt árið 1970 reyndist Blackmun einn af frjálslyndari dómurum rétt- arins, varði t.a.m. harðlega réttinn til fóstureyðinga og var mjög andsnúinn dauða- refsingum. :: ■■ .. * Smáratorg HAGKAUP Meira úrval - betrikaup • 4 þvottakerfi • 2 hitastillar SO og 65 gráður • Mjög hljóðlátar 39db • Vatnsflæðivarar (þrefalt kerfi) • Hitaelement undir botni • Rafeindastýrður kerfisveljari • Framleidd í þýskalandi Whirlpool uppþvottavél
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.