Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 11
FRÉTTIR
TIMARNIR breytast!
Hvaðmeðþig?
Merkja má við einn
frá hverjum ílokki
Prófkjörið er opið stuðnings-
mönnum Samfylkingarinnar og
óflokksbundnum kjósendum. Tekið
er fram í prófkjörsreglum að kjós-
endur sem eru flokksbundnir í öðr-
um stjórnmálaflokkum hafi ekki
kosningarétt. Sé tekið mið af þeirri
hörðu baráttu sem er í gangi má
búast við að kjörnefnd verði nokk-
ur vandi á höndum að tryggja að
menn úr öðrum flokkum kjósi ekki
í prófkjörinu.
Reglurnar gera ráð fyrir að kjós-
endur raði frambjóðendum í fyrsta
til þriðja sæti. Nægilegt er að
merkja við einn, en ekki má merkja
við fleiri en þrjá. Jafnframt gera
reglurnar ráð fyrir að aðeins megi
merkja við einn frambjóðanda úr
hverjum flokki. Einn alþýðubanda-
lagsmaður og ein kvennalistakona
bjóða sig fram þannig að það ætti
ekki að verða erfitt fyrir stuðnings-
menn þessara flokka að ákveða sig
hvern þeir eigi að kjósa. Tveir
bjóða sig hins vegar fram fyrir
hönd Alþýðuflokks, Gísli S. Einars-
son og Hólmfríður Sveinsdóttir, og
verða kjósendur að velja á milli
þeirra. Hver kjósandi getur aðeins
merkt við annað þeirra.
Byggðasjónarmið spila stóra
rullu í prófkjörinu. Gísli og Jóhann
em báðir búsettir á Akranesi og
það átti sinn þátt í að erfiðlega gekk
að ná samstöðu um að þeim yrði
stillt upp í tvö efstu sætin. Enginn
núverandi þingmanna Vesturlands
kemur úr Borgarfírði og hefur það
valdið óánægju meðal Borgfii'ðinga.
Hólmfríður er frá Borgarnesi og er
reiknað með að Borgfirðingar
standi þétt að baki henni m.a. vegna
þessarar óánægju með stöðu þeirra
innan þingmannahópsins.
Hólmfríður sækir að Gísla
Baráttan um fyrsta sætið stend-
ur fyi'st og fremst milli Jóhanns og
A-flokkarnir berjast um 1. sæti Samfylkingar á Vesturlandi
Fjórir frambjóðendur
taka þátt í prófkjörinu
Einungis fjórir taka þátt í prófkjöri Sam-
fylkingar á Vesturlandi. Tveir alþýðu-
flokksmenn berjast um öruggt sæti og
veikir það stöðu þingmanns flokksins,
Gísla S. Einarssonar. Egill Ólafsson kann-
aði baráttu frambjóðenda.
FJÓRIR frambjóðendur taka þátt
í prófkjöri Samfylkingar á Vestur-
landi, sem fram fer um helgina.
Þau eru Dóra Líndal Hjartardóttir
tónlistarkennari, Gísli S. Einarsson
alþingismaður, Hólmfríður Sveins-
dóttir stjómmálafræðingur og Jó-
hann Arsælsson, fyrrverandi al-
þingismaðui'. Hörð barátta er um
fyrsta sætið milli Gísla og Jóhanns,
en Hólmfríður stefnir einnig
ákveðið á annað sætið.
Fylgi Alþýðuflokksins og Al-
þýðubandalagsins í Vesturlands-
kjördæmi hefur í gegnum árin ver-
ið svipað. Alþýðuflokkurinn hefur
átt þingmann í kjördæminu allt frá
því núverandi kj ördæmaskipan var
tekin upp árið 1959. I síðustu
tvennum alþingiskosningum fékk
Alþýðubandalagið hins vegar fleiri
atkvæði en Alþýðuflokkurinn.
Þrátt fyrir það náði Gísli S. Einars-
son kjöri fyrir Alþýðuflokkinn í
kosningunum 1995, en Jóhann Ar-
sælsson, þingmaður Alþýðubanda-
lagsins, féll út af þingi. Vegna þess
hvað styrkleiki flokkanna er
áþekkur gekk Samfylkingunni illa
að ná samkomulagi um uppstill-
ingu á framboðslista fyrh' þessar
kosningar. Niðurstaðan varð sú að
efna til prófkjörs.
Gísla. í öllum prófkjörum sem
Samfylkingin hefur efnt til í vetur
hafa alþýðuflokksmenn náð fýrsta
sætinu. Eina undantekingin er sig-
ur Jóhönnu Sigurðardóttur í
Reykjavík, en hún er fyrrverandi
alþýðuflokksmaður. Reynslan
kennir mönnum því að álykta að al-
þýðuflokksmenn séu almennt dug-
legri að vinna í prófkjörum en al-
þýðubandalagsmenn enda er sterk
hefð fyrir prófkjöram í Alþýðu-
flokknum.
Gísli hefur fjórum sinnum tekið
þátt í prófkjöri og býr því að mikilli
reynslu í svona baráttu. Hann er
mikill baráttujaxl, en ýmislegt
bendir þó til þess að hann verði í
nokkuð kröppum dansi í þessu
prófkjöri. Astæðan er ekki síst
framboð Hólmfríðar. Hún gaf í
upphafi baráttunnar yfirlýsingu
um að hún stefndi að fyrsta sætinu,
en sagði í samtali við Morgunblaðið
að hún teldi eðlilegi-a að hún yrði í
öðru sæti og hefði sagt það við
stuðningsmenn sína.
Gísli sagðist ekki trúa því að
Hólmfríður og Jóhann hefðu bund-
ist bandalagi gegn sér í prófkjör-
inu. Hann sagði að þessi prófkjörs-
barátta væri að mörgu leyti ólík því
sem hann ætti að venjast vegna
þess ójafnræðis sem væri milli
frambjóðenda þar sem tveir al-
þýðuflokksmenn væru að berjast
um öraggt sæti á meðan engin bar-
átta væru í hinum flokkunum. Tak-
-19,99-
síöasta ár aldarinnar
hennar hafa lengi verið virkir
þátttakendur í starfi Alþýðu-
flokksins á Akranesi. Hún ætti
einnig að geta vænst stuðnings
kvennalistakvenna. Ymislegt
bendir til að afskipti Gísla af lagn-
ingu Borgarfjarðarbrautar veiki
stöðu Gísla í Borgarfirði, en þau
era umdeild.
Spurningin er hvað stuðnings-
menn Samíylkingar á Snæfellsnesi
gera. Takist Gísla að fá öflugan
stuðning þaðan eykur það mjög lík-
ur á að hann nái markmiði sínu. Jó-
hann hefur hins vegar unnið mikið
fyrir vestan þar sem hann er fædd-
ur og uppalinn. Skúli Alexanders-
son, fyrrverandi þingmaður Al-
þýðubandalagsins, sem búsettur er
á Hellissandi, hefur t.d. unnið ötul-
lega að því að Jóhann fái fyrsta
sætið.
Dóra Líndal stefnir á 1.-3. sæti.
Ekki er búist við að hún blandi sér
alvarlega í baráttuna um tvö efstu
sætin. Þess ber þó að geta að
Kvennalistinn hefur í gegnum árin
verið nokkuð sterkur á Vesturlandi
og átti þar þingmann 1987-1991.
Dóra hefur tekið þátt í starfí
Kvennalistans í kjördæminu frá ár-
inu 1985 og átt sæti á framboðs-
lista flokksins. Flestir reikna með
að hún verði í þriðja sæti, en til
þess þarf hún að tryggja sér
minnst 25% atkvæða í það sæti.
Dóra Líndal Gísli S.
Hjartardóttir Einarsson
Hólmfríður Jóhann
Sveinsdóttir Ársælsson
ist Gísla ekki að fá fleiri atkvæði en
Jóhann í fyrsta sætið gæti svo farið
að hann yrði í þriðja eða jafnvel
fjórða sæti. Nái Hólmfríður ekki
markmiði sínu gæti svo farið að
hún vermi botnsætið.
Jóhann og Gísli eiga báðir nokk-
uð sterkt fylgi á Akranesi. Reikn-
að er með að Hólmfríður verði
sterkust í Borgarfirði, en þó má
ekki gleyma því að ættmenni