Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 65
BRÉF TIL BLAÐSINS
Hér þarf að reikna
dæmið betur
Frá Kristjönu Emilíu
Guðm undsdóttur:
VARLA getur nokkur maðui-
ímyndað sér hvernig það er þegar
líkaminn hættir að starfa eðlilega
og við taka þær hrellingar sem því
fylgja. Við skulum fylgjast með ein-
um slíkum. Um er að ræða sjúkling
með stíflaðan þvaglegg.
Við búum í Kópavogi og klukkan
er 5:00 að nóttu og því komið langt
fram yfir þann tíma sem Heilsu-
gæsla Kópavogs starfar. Þar er
engin kvöldþjónusta hvað þá nætur-
þjónusta. Ég hringi á Læknavakt-
ina sem starfrækt er í Kópavogi en
þar er enga hjálp að fá. Svona til-
fellum er ekki sinnt hjá þeim. Ekki
er annað til ráða en hringja á
sjúkrabíl. Eftir viðeigandi yfir-
heyrslur og skýrslugerð er sendur
bíll og hraustir menn flytja sjúk-
linginn, sem er sárþjáður, út í bíl-
inn. Ekið er sem leið liggur á slysa-
vakt. Á leiðinni er tekin skýi-sla af
sjúklingnum. Þegar komið er á
áfangastað tekur við okkur hjúkr-
unarfræðingur sem tekur skýrslu
og skoðai’ sjúklinginn vandlega,
hlustar hann, mælir blóðþrýsting,
tekur blóðsýni og athugar hjart-
slátt. Framkvæmir svo hið þarfa
verk að losa stífluna úr þvagleggn-
um. Sjúklingnum léttir og hann
losnar við kvalimar.
Nú birtist aðstoðarlæknirinn sem
skoðar sjúklinginn og tekur af hon-
um skýrslu. Segir okkur svo að við
þurfum að bíða eftir niðurstöðum úr
rannsókn á þvag- og blóðsýnum, þá
muni þvagfærasérfræðingur skoða
sjúklinginn og gefa úrskurð um
hvort hann megi fara heim. Klukk-
an er orðin sex og það tekur því
ekki að ræsa sérfræðinginn út því
hann á að mæta klukkan 8:00. Við
tökum þessu með þolinmæði enda
ekki í aðstöðu til annars og sjúk-
lingurinn orðinn kvalalaus. Við bara
bíðum. Tíminn sniglast áfram. Ég
tek upp vasabókina mína og byrja
að skrifa. Klukkan verður 8:00 og
hún verður 9:10 þá birtist sérfræð-
ingurinn sem skoðar sjúklinginn og
segir að hann megi fara heim. Ég
hringi á sjúkrabíl, borga reikning-
inn og við erum komin heim klukk-
an 10.00.
Ekkert af þessu væri frásagnar-
vert ef ekki væri sú staðreynd að ef
hægt hefði verið að fá hjálp heim að
nóttu hefði hjúkrunarfræðingur eða
sjúkraliði getað framkvæmt á örfá-
um mínútum það sem þurfti til
hjálpar sjúklingnum. Hver maður
getur séð að það væri mörgum sinn-
um ódýrara fýrir samfélagið heldur
en að setja í gang slíkt apparat sem
það er að fara á slysavakt með smá-
aðgerð sem þessa.
Eins og áður segir er engin kvöld
eða næturþjónusta í Heilsugæslu
Kópavogs. Að vísu er hægt að fá
heimilshjálp á kvöldin og er það
þakkarvert en slík aðstoð er engan
veginn fullnægjandi til umönnunar
sjúklinga. Ég tel að sólarhrings-
þjónusta á vegum Heilsugæslu
Kópavogs sé löngu tímabær í svo
stórum bæ sem Kópavogur er. Mér
er kunnugt um að kvöldþjónusta
við sjúka er í Hafnarfirði og bæði
kvöld og næturþjónusta í Reykja-
vík. Slík þjónusta gerir öldruðum
og sjúkum kleift að búa miklu leng-
ur heima. Það er viðurkennd stefna
að aldraðir fái að dveljast heima
eins lengi og þeir óska ef hægt er
að koma því við. Ekki efast ég um
að heimahjúkrun Heilsugæslu
Kópavogs sé fús að veita alla þá
hjálp sem þarf en mér er sagt að
fjárskortur hamli því að hægt sé að
veita þessa þjónustu hér í Kópa-
vogi. Það er þó alveg ljóst að það
væri bæði ódýrara og hagkvæmara
fyrir okkur öll að efla heimahjúkr-
un en að fara með sjúklinga á slysa-
vakt í hvert skipti sem þarf örlitla
aðstoð við þá um kvöld eða nætur-
tíma. Það sem vill verða neyðarúr-
ræðið er að vista sjúklingana á
stofnunum sem er að sjálfsögðu
mörgum sinnum dýrara fyrir þjóð-
félagið. Hér þarf að reikna dæmið
betur.
Er Rafíðnaðarsam-
band Islands orðið
málsvari verktak-
anna á Islandi?
SKATTAMÁL
föstudaginn 5. mars kl. 10:15-17:00
á Hótel Loftleiðum, Bíósal.
10:15-10:30 Setning: Björn Grétar Sveinsson,
formaður Verkamannasambands íslands.
10:30-11:00 Ávarp Geirs H. Haarde, fjármálaráðherra:
Stefna ríkistjórnarinnar í skattamálum.
11:00-11:20 Kaffihlé.
11:20-12:00 Goðsögn um skatta: Edda Rós Karlsdóttir,
hagfræðingur Alþýðusambands íslands.
12:00-13:00 Matarhlé.
13:00-13:30 Erindi frá Öryrkjabandalaginu og
Landssambandi aldraðra: Margrét Sigurðar-
dóttir, varaformaður Félags eldri borgara.
13:30-14:40 Þjóðarsátt um skatta og velferð:
Kristján Bragason, vinnumarkaðsfræðingur
VMSÍ og Garðar Vilhjálmsson, skrifstofu-
stjóri Iðju, félags verksmiðjufólks.
14:40-15:00 Kaffihlé.
15:00-17:00 Umræður og pallborð: Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ, Björn Grétar Sveinsson, for-
maður VMSÍ, Sjöfn Ingólfsdóttir, fulltrúi
BSRB, Ágúst Einarsson, alþingismaður og
Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður.
Umræðum stjórnar Einar Karl Haraldsson.
Frá Guðmundi Þorleifssyni:
ÉG HEF fylgst með skrifum í
Morgunblaðinu í mörg ár og aldrei
orðið eins hissa á umfjöllun um
vinnu erlendra verktaka hér á landi.
Mér er minnisstætt þegar erlendir
suðumenn komu hingað til að vinna
sem verktakar við álverið í Hval-
firði. Þar sem eigandi álversins var
erlendur var þessi vinna umsvifa-
laust stöðvuð af okkar félagsmála-
ráðherra, svona koma erlend fyrir-
tæki og verktakar ekki fram við Is-
lendinga. Þama býst ég við að land-
ar mínir hafi fengið töluvert álit á
félagsmálaráðherra okkar og ég
tala ekki um þá fjölmörgu verktaka
í landinu, sem stærðu sig af félögum
sínum, hvað þau nú heita (Vinnu-
veitendasamband Islands, Verk-
takasamband Islands, Landssam-
band íslenskra rafverktaka og ég
veit ekki hvað og hvað) því í þeim
hefur ekki heyrst síðan.
Nú varð öldin önnur. íslenskt
stórfyrirtæki hóf framkvæmdir og
Páll skipti um föt. Nú var alveg
sama hvemig hinn erlendi verktaki
hagaði sér, Landsvirkjunarmenn
sögðu ráðherra að það væri allt í
lagi, og þá var allt í lagi, þó svo að
tvö af stærstu verkalýðsfélögum
hefðu sent honum allskonar viðvar-
anir. Ég geri ráð fyrir að lands-
menn allir hafi fylgst með umfjöllun
fjölmiðla varðandi þetta mál, og þá
undraverðu stefnubreytingu Lands-
virkjunar að góður sé sá verktaki,
sem taka þarf stærstan hluta verks-
ins af og samt nær ekki að skila
verkinu á tilsettum tíma. Þetta
hljóta að verða góðir tímar fyrir ís-
lenska verktakastarfsemi, því ég
veit að það hefur ekki verið tekið
sömu vettlingatökum á þeim.
Og nú er komið að fyrirsögninni,
eru verktakar orðnir deild hjá Raf-
iðnaðarsambandi Islands með Guð-
mund í forsvari? Því ef svo er, hefur
það farið fram hjá fyrirtæki því er
ég starfa hjá. Sé aftur á móti málum
þannig háttað, er ég fullviss um að
allmörg fyrirtæki myndu með glöðu
geði greiða til þeirra heldur en í
eitthvert félag sem er gjörsamlega
steindautt.
Þá vil ég hvetja fleiri til að skrifa
lesendabréf og þakka Guðmundi og
Rafiðnaðarsambandi Islands þann
góða málflutning og þá vörslu um
íslenskt atvinnulíf, þó svo það verði
Páli Péturssyni ráðherra og stjórn
þeirri, sem hann situr í, til ævarandi
skammar.
GUÐMUNDUR ÞORLEIFSSON,
Smáratúni 38, Reykjanesbæ.
Látum ár aldraðra vera okkur
hvatningu til að gera átak í bættri
þjónustu við sjúka og aldraða og
mætum nýrri öld með sólarhrings-
þjónustu á vegum Heilsugæslu
Kópavogs.
KRISTJANA EMILÍA
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Borgarholtsbraut 27, Kópavogi.
Ráðstefnustjóri: Guðmundur Þ. Jónsson, formaður
Landssambands iðnverkafólks.
Fréttir á Netinu
% mbl.is
KVENRÉTTINDAFÉLAG
ISLANDS
Menntunin; mótturinn og dýrðin?
Ráðhús Reykjavíkur
Menntun, máttur og dýrð kvenna...............................Sigríður Lillý Baldursdóttir - formaður KRFl
Hlutur kvenna í skólastarfi....................................Björn Bjarnason - menntamálaráðherra
Er kynjamunur horfinn úr menntakerfinu?..................Jón Torfi Jónasson - prófessor, Háskóla Islands
Skapandi nám, að skapi kvenna.....................Valgerður Bjarnadóttir - Menntasmiðju kvenna, Akureyri
Hefur starfsfólk fyrirtaekja jafnan aðgang að símenntun?..Randver Fleckenstein - Forskot, stjórnunar-og rekstrarráðgjöf
Pallborðsumræður:
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ
ögmundur Jónasson, formaður BSRB
Björk Vilhelmsdóttir, formaður BHM
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ
Ásta Möller, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Ráðstefna KRFÍ - Ráðhúsi Reykjavíkur -
Laugardaginn 6. mars 1999 - kl. 10.00 • 13.00.
VETRARDAGAR
10% aukaafsláttur
af útsöluverði
Úlpur frá kr. 1.795
Snjógallar frá kr. 3.
- /
SPAR SPORT
■----— ,-------->
TOPPMERKI Á LÁGMARKSVERÐI)
^í— r-----------
NOATUN 17 /S. 511 4747