Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.03.1999, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Undanþága frá reglugerð verð- ur ekki veitt EKKI stendur til að endurskoða reglugerð nr. 245/1996 sem gekk í gildi 1. maí 1996 og kveður á um að frekari bætur skuli ekki greiddar til öryrkja sem eiga meira en 2,5 millj- ónir í peningum eða verðbréfum. „Samkvæmt reglugerðinni er ekki heimilt að veita undanþágu frá henni og það hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort reglugerðinni sjálfri verði breytt," sagði Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður heil- brigðisráðherra, þegar hann var spurður um viðbrögð ráðherra við máli Garðars Sölva Helgasonar ör- orkulífeyrisþega. Garðar Sölvi hafði sparað lífeyri sinn í mörg ár og mótmælti reglu- gerð heilbrigðisráðherra frá 1996 með bréfí til Davíðs Oddssonar árið 1996. Garðar Sölvi sagði í bréfinu að sér væri refsað fyrir að telja fram allt sitt sparifé og að bætur sínar og aldraðrar móður hans skerðist um 25.000 krónur á mánuði vegna sparifjáreignarinnar. Þórir vísar á bug ásökunum Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur þing- manns og Margrétar Thoroddsen um að heilbrigðisráðheira hafí farið með rangt mál þegar hún sagði að reglan um skerðingu bóta vegna sparifjáreignar hefði ekki komið til með reglugerð sem sett var árið 1996, þar sem Tryggingastofnun hefði áður farið eftir henni sem vinnureglu. Hann ítrekar þau um- mæli ráðherra að áður en reglu- gerðin var sett árið 1996 hafi við- miðunarmark í kringum 2,5 millj- ónir verið notað sem vinnuregla innan Tryggingastofnunar, sam- kvæmt upplýsingum hans frá stofnuninni. FRÉTTIR Mál Garðars Sölva rætt á Alþingi SIGRÍÐUR Jóhannesdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, gerði mál Garðars Sölva Helgasonar að umtalsefni í fyrirspumartíma á Al- þingi á mánudag og spurði Ingi- björgu Pálmadóttur heilbrigðisráð- herra m.a. að því hvort einhver reglugerð kynni að vera í bígerð sem aflétti núgildandi reglugerð er heimilaði að taka frekari uppbót af öryrkjum sem ættu sparifjárinn- stæðu sem næmi yfir 2,5 milljónum króna. Sigríður rakti aðstæður Garðars og skýrði frá bréfi því sem hann hefði sent til Davíðs Oddssonar forsætisráðhema árið 1996 eða sama ár og reglugerðin var sett. „Hæstvirtum forsætisráðherra láð- ist að svara þessu hógværa bréfi og því birtist það í síðasta fréttabréfi Geðhjálpar óbreytt,“ sagði hún. „Garðar hefur verið til heimilis hjá Ekki hægt að ræða einstök mál á Alþingi sagði ráðherra móður sinni sem er á níræðisaldri og lifað mjög spart. Hann hefur til dæmis aldrei átt bfl, aldrei komið til útlanda og aldrei keypt áfengi eða tóbak. Hann hefur lagt reglu- lega fyrir af örorkubótum sínum og eins og hann segir sjálfur gefið upp allt sitt sparifé skattyfii"völd- um til hagræðis. Vegna þessarar ráðdeildarsemi var honum að sjálfsögðu hegnt grimmilega og bætur hans skertar um 13 þúsund krónur á mánuði.“ Því næst spurði Sigríður hvort heilbrigðis- ráðherra teldi eðlilegt að fólk sem væri að gera sitt besta væri „nið- urlægt með þessum hætti og hvort einhver reglugerð kynni að vera í bígerð sem aflétti slíkum órétti.“ Heilbrigðisráðherra kvaðst í svari sínu ekki geta talað um ein- stök persónuleg mál úr ræðustóli Alþingis. „Mér finnst það ekki passa,“ sagði hún en tók fram að bætur væni tekjutengdar og að svo hefði verið um langan tíma. Sigríð- ur tók aftur til máls og benti á að umrædd skerðing á bótum tæki að- eins til fólks sem ætti sparifjárinn- stæður eða verðbréf en ekki til þeirra sem ættu eign sem væri að samsvarandi verðmæti. Ráðherra kom aftur í pontu og ítrekaði að bætur væru tekjutengdar. „Það er sama hvort um laun er að ræða fyrir vinnu eða fjármagnseignir,“ sagði ráðherra. Morgunblaðið/Golli Hlfp S S ! í*ÍTf ! líi i 1 s s 11 H s pnpfi iiiH lílp H-|l Jl I ævintýraheimi á bókasafninu ÞESSI unga kona var svo hugfangin af ævintýrum skógardýrs- er það þó á sumrin sem börnin lesa mest af bókasafnsbókum, ins Húgós að hún leit ekki einu sinni upp þegar ljósmyndari ólíkt fullorðna fólkinu sem grúfir sig yfir bækurnar í skamm- læddist að henni á Borgarbókasafninu í gær. Að sögn bókavarða deginu. Frumvarp um breytingu á orkulögum Leitað leiða til að gera rekstur hagkvæmari Brotist inn í Týnda hlekkinn BROTIST var inn í verslunina Týnda hlekkinn við Laugaveg síðastliðna nótt og þaðan stolið þremur snjóbrettum ásamt peningum úr kassa. Þjófamir spenntu upp hurð á framanverðri versluninni og fóru sömu leið út aftur með ránsfenginn. Þeir sem kunna að hafa orð- ið varir við grunsamlegar mannaferðir við verslunina síðastliðna nótt eru beðnir um að hafa samband við rann- sóknardeild Lögreglunnar í Reykjavík. IÐNAÐARNEFND Alþingis hefur nú til umfjöllunar lagafrumvarp iðn- aðaráðherra þess efnis að Rafmagns- veitum ríkisins verði heimilt að stoftia og eiga hlut í félögum sem hafa það að megintilgangi að fram- leiða, flytja, dreifa eða selja orku. „Fyrirtækinu er jafnframt heimilt að stofna og eiga hlut í félögum til að hagnýta þá sérþekkingu og búnað sem fyrirtækið ræður yfir til rann- sóknar- og þróunarstarfa á sviði orkumála og til orkuverkefna erlend- is,“ að því er lagt er til í frumvarpinu. Frumvarpið fór fyrir fyrstu um- ræðu á Alþingi í vikunni og skýrði Sturla Böðvarsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, m.a. frá því að ástæð- urnar fyrir flutningi frumvarpsins væru þær að rekstur Rafmagns- veitna ríkisins hefðu gengið mjög illa vegna þess að Rafmagnsveiturn- ar þyrftu að dreifa orkunni um land- ið. „Það hefur ekki alltaf gefið mik- inn arð fyrir veiturnar að dreifa orkunni um hinar dreifðu byggðir vegna þess að þar er tiltölulega lítil sala og litlar tekjur miðað við um- fang kerfisins og þann kostnað sem þar er um að ræða,“ sagði hann og tók fram að Rafmagnsveitur ríkisins leituðu því leiða til að gera fyrirtæk- ið hagkvæmara í rekstri. „Það er grundvallarmisskilningur að frum- varpið sé flutt til að styrkja Raf- magnsveitur ríkisins til þess að verða eitthvert yfirburðafyrh’tæki. Tilgangurinn er einungis sá að leita leiða til að gera fyrirtækið hag- kvæmara þannig að það geti lækkað raforkuverð sem er allt of hátt í dag,“ sagði hann. Erindi um breytingar hjá NATO WERNER Bauwens, einn yfir- manna alþjóðadeildar Atlantshafs- bandalagsins í Brussel, heldur er- indi á sameiginlegum fundi Sam- taka um vestræna samvinnu (SVS) og Varðbergs í Skála, Hótel Sögu, á laugardag kl. 12. I tilefni 50 ára afmælis NATO vilja félögin leggja áherslu á fræðsluerindi um starfsemi banda- lagsins, bæði hvað varðar öryggis^, hernaðar- og pólitísku hliðina. A febrúarfundi félaganna talaði Jer- ome W. Chureh, yfu-maður upplýs- inga- og fræðsludeildar SHAPE, um hernaðarhlið NATO. Á fundin- um á laugardag fjallar Werner Bauwens um þær breytingar sem hafa átt og eiga sér nú stað hjá NATO, sem í apríl nk. verður hálfr- ar aldar gamalt. Werner Bauwens, sem er lög- fræðingur að mennt, lagði stund á háskólanám við háskólann í Leuven í Belgíu, auk annarra skóla. Hann hóf störf í utanríkisþjónustu Belgíu árið 1981. Hann réðst til NATO í Brussel árið 1991 og er nú m.a. ábyrgur fyr- ir móttöku og fræðslu allra gesta sem koma í kynnisferð til höfuð- stöðva bandalagsins. Werner Bauwens kennir jafnframt við tvo háskóla. Fundurinn er opinn félagsmönn- um SVS og Varðbergs, auk þess öllu áhugafólki um erlend málefni. ---------------- Búnaðarþing Tollar á kjarn- fóðurblöndum verði lækkaðir BÚNAÐARÞING samþykkti á fundi sínum á miðvikudag að beina því til Bændasamtaka Islands að vinna að lækkun tolla á innfluttum kjarnfóðurblöndum en þó þannig að heildarhagsmunir landbúnaðar væru hafðir að leiðarljósi. Jafn- framt vill Búnaðarþing að séð verði til þess að toilurinn renni í Fram- leiðnisjóð landbúnaðarins og verði ráðstafað þaðan til búgreina eftir uppruna hans. Þingið samþykkti einnig að fela stjóm Bændasamtakanna að láta gera samanburð á ólíkum rekstrar- formum í landbúnaði, það lýsti yfir stuðningi við frumvarp til laga um búnaðarfræðsiu og við þingsályktun um úttekt á nýtingu lítilla orkuvera.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.