Morgunblaðið - 05.03.1999, Síða 22

Morgunblaðið - 05.03.1999, Síða 22
22 FÖSTUDAGUR 5. MARZ 1999 UR VERINU MORGUNBLAÐIÐ Sérstakur vefur um ferð mbl.ÍS á leik_ Manchester United og Chelsea. Ferðin hefst í dag, fylgstu með frá upphafi! Þú getur skoðað upplýsingar um félögin, liðsmenn, völlinn, aðdraganda leiksins og fylgst með ferðasögunni eftir því sem henni vindur fram. Samvinnuferðir Landsýn kostar gerð vefjarins. Fylgstu með á mbl.is. 0mbl.is ^ALLTAH e/TTH\/A,-E> tJÝTl Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson NÝTT húsnæði Fiskmarkaðar Vestmannaeyja sem tekið var í notk- un fyrir skömmu. Fiskmarkaðurinn í Eyjum er fluttur í nýtt húsnæði Vestmannaeyjuni - FISKMARKAÐUR Vestmannaeyja flutti fyrir skömmu í nýtt húsnæði en á sama tíma og nýja húsnæðið var tekið í notkun voru sjö ár liðin frá fyrsta uppboði markaðarins. Fisk- markaðurinn keypti 400 fermetra húsnæði við Friðarhöfn af Eimskipa- félaginu og byggði síðan 280 fer- metra við það. Húsnæðið hefur verið hannað og standsett fyrir starfsemi Fiskmarkaðarins og er öll aðstaða fyrir starfsemina nú eins og best verður á kosið. Páll Rúnar Pálsson framkvæmda- stjóri segir að öll vinnuaðstaða á markaðnum breytist mikið til batn- aðar við flutninginn í nýja húsnæðið. Það uppfylli allar ströngustu kröfur sem Fiskistofa geri til starfseminnar og aðstaða til lestunar flutningabíla sé önnur og betri þvi við húsið séu þrír rampar til að lesta slíka bíla. Þá segir hann að allt svæðið í kringum markaðinn hafi tekið stakkaskiptum. Búið sé að malbika og ganga frá lóð- um í kring svo að svæðið í heild sé orðið til fyrirmyndar. Páll segir að Fiskmarkaðurinn hafí fest kaup á slægingarbúnaði af fískverkuninni Kútmagakoti og geti markaðurinn því nú boðið viðskipta- vinum sínum upp á slægingarþjón- ustu. Sama dag og flutt var í nýja hús- næðið var haldinn aðalfundur Fisk- markaðarins. Páll segir að á fundin- um hafí komið fram að um 40% sam- dráttur hafi orðið á síðasta ári miðað við árið á undan. Á síðasta ári hafi verið seld 6.200 tonn á móti 10.200 tonnum árið á undan. Helstu ástæð- ur þess sagði hann vera gífurlegt gæftaleysi við suðurströndina en einnig hefði haft áhrif að Isfélag Vestmannaeyja, sem hefði farið með stóran hluta af afla sínum gegnum markaðinn, hefði tekið fískinn beint inn til sin í stað þess að fara með hann á markaðinn. Páll segir að þrátt fyrir þennan samdrátt hafí reksturinn gengið sæmilega. Fyrir utan afskriftir og fjármagnsliði hafí reksturinn verið nánast á núlli en að teknu tilliti til fjármagnsliða og af- skrifta hefði tap ársins verið 3,8 milljónir og mætti rekja stærsta hluta þess taps til gengistaps, vegna óhagstæðrar þróunar japanska jens- ins. Páll segist vera bjartsýnn á rekst- ur nýbyrjaðs árs. Kvótastaða Eyja- báta sé þokkaleg, gæftir hljóti að verða betri en á síðasta ári og verð á fiskinum sé mjög hátt um þessar mundir. Hann segir að fyrstu 15 daga febrúar hafi verið seld 260 tonn á markaðnum fyrir 28 milljónir á móti 177 tonnum fyrir 14 milljónir á sama tíma í fyrra sem segi allt um hversu miklu betra verðið sé núna og því sé ekki ástæða til annars en bjartsýni varðandi rekstur ársins. Morgunblaðið/Agnes Fylgst með upp- boði í Bremerhaven NÝLEGA var Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra á ferð í Þýskalandi, þar sem hann sótti m.a. heim fyrirtæki sem eru að hluta eða öllu leyti í eigu Islendinga. Förin var farin í tilefni þess að sjávarútvegsráðherra var beðinn um að vera ræðumaður á aðla- fundi Þýsk-íslenska verslunarráðsins, sem haldinn var í Hamborg. Fyrsta morguninn í ferðinni var byrjað árla dags á fiskmarkaðn- um í Bremerhaven, sem Islendingurinn Samúel Iireinsson stýrir. Eins og fram kom hér í blaðinu þann 19. janúar sl. þá taldi Samúel stjórnvöld í Bremerhaven á það að einkavæða fiskmarkaðinn í Bremerhaven og rekur Samúel fiskmarkaðinn nú, með góðum ár- angri. Morguninn sem sjávarútvegsráðherra og fylgdarlið staldraði við á markaðnum, stóð uppboð á um 57 tonnum af ýmsum tegund- um fersks fisks í tæpan hálftíma og þegar uppgjörið lá fyrir nokkrum minútum síðar, kom á daginn að fyrir fiskinn höfðu feng- ist rúm 199 þúsund þýsk inörk, eða tæpar átta milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.